Morgunblaðið - 10.04.1990, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRIL 1990
GOÐAR
FERMINGAR
GJAFIR
SILFURHÁLSMEN
Verö frá kr. 2.150,-
SILFURHRINGIR
Verö frá kr. 2.580,-
BÓMULLARPEYSUR
Verö frá kr. 4.450,-
RAMI1AGERÐIN
HAFNARSTRÆT119
OG KRINGLUNNI
Saltfiskurinn og
landsbyggðin
eftir Bjarna Marinó
Þorsteinsson
Á undanförnum dögum og vikum
hafa málefni SÍF verið í brenni-
depli. Aðdragandi þess er ákvörðun
sjávarútvegsráðherra, Halldórs Ás-
grímssonar, að banna útflutning á
ferskum, flöttum fiski með skipum
til fullvinnslu erlendis í salt. Eftir
söltun erlendis er þessi sami fiskur
seldur á erlendum mörkuðum sem
íslenskur saltfiskur í fullri sam-
keppni við þann fisk sem SÍF er að
flytja út fullunninn.
Heildsalar í Reykjavík og ýmsir
aðrir útflytjendur, þ. á m. úr okkar
eigin röðum framleiðenda, brugðust
ókvæða við þessari faglegu og fram-
sýnu ákvörðun ráðherra og létu sig
hafa að brigsla SÍF um einokunarað-
stöðu í útflutningi á saltfiski sem
eru algjörlega haldlaus rök og eiga
sér enga stoð í veruleikanum sem
sjá má af því, að allir saltfiskfram-
leiðendur eiga hlut í SÍF. SÍF er
óumdeilanlega samvinnufyrirtæki
enda fyrirtæki í eigu framleiðenda
sjálfra.
Allir sem eitthvað hafa fylgst með
málum vita í hvaða óefni var komið
með saltfiskútflutnmg okkar Islend-
inga upp úr 1930. Útflytjendur voru
margir og undirbuðu hver fyrir öðr-
um með mjög slæmum afleiðingum
fyrir útgerðarmenn og sjómenn og
raunar alla þjóðina. I þessu tilviki
langar mig til að vísa til ræðu Ólafs
heitins Thors á landsfundi Sjálfstæð-
ismanna 1953 en þar segir hann
m.a.:
„Með starfsemi SÍF hófst þegar
nýtt tímabil þryggis og festu í fisk-
sölumálum íslendinga og frá því
hafa síðan engin afvik verið. Og það
er einmitt þess vegna, sem megin-
þorri fiskframleiðenda krefst þess,
að þessi samtök þeirra séu vernduð
pg fái að fara ein með saltfisksölu
Isiendinga. Og við þeirri ósk hafa
fyrirrennarar mínir í embættinu
fram að þessu orðið.“
„Um saltfisksöluna vil ég að lok-
um segja það, að 'mín spá er sú, að
verði núverandi skipan brotin niður
mun af því leiða glundroða og mikið
íjárhagslegt tjón, en sú dýra reynsla
mun koma vitinu fyrir menn og
neyða þá til að taka þessa skipan
upp að nýju.“
Annar fánaberi í sjávarútvegi og
atvinnumálum, Einar heitinn Guð-
finnsson, segir á einum stað í ævi-
sögu sinnij þar sem hann fjallar um
stofnun SIF:
„Að mínum dómi var þetta mikið
gæfuspor fyrir þjóðarheildina, sem
átti svo mikið undir því, að vel tæ-
kist til um sölu á þessari aðalútflutn-
ingsvöru iandsmanna þá, saltfiskin-
um. Mér sjálfum fannst mikill mun-
ur að fást við fiskkaup eftir stofnun
sambandsins og hægara að fylgjast
með öllum verðsveiflum, auk þess
hagræðis að eiga greiðan aðgang
að stjórnendum og framkvæmda-
stjórum samtakanna, sem allt voru
þaulreyndir menn. Ég tel mig einn
af stofnendum SÍF og hef alla tíð
verið aðili að þeim samtökum og
reynt að styðja þau, því mér finnst
þau hafa sannað gildi sitt og vera
þjóðinni til góðs, eins og þau voru
í upphafi."
Hvað sem svo má um Ólaf og
Einar segja þá voru þeir báðir óum-
deilanlegir leiðtogar og framsýnir
menn. Enginn getur sakað þá um
að hafa verið einokunarsinna heldur
þvert á móti þá vildu þeir allt til
vinna að efla þjóðarhag og sýndu
það í verki.
Sagan endurtekur sig. Hvað hefur
Oflug sölusamtök eru aðal-
ástæðan fyrir góðum árangri
- segir Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra
„ÉG VIL EKKI eyðileggja það uppbyggingarstarf, sem hefur verið
unnið á undanfornum áratugum," sagði Halidór Ásgrímsson sjávarút-
vegsráðherra þegar Morgunblaðið spurði hann hvort honum fyndist
rétt að leyfa fleirum en Sölusambandi íslenskra fiskiramleiðenda að
flylja út saltfísk. „Það er alveg ljóst að mikilvægasta ástæðan fyrir
því hvað okkur hefur tekist vel til á erlendum mörkuðum er sú að
við höfum átt öflug sölusamtök."
Halldór Ásgrímsson sagði að hins
vegar yrðu menn ætíð að vera tilbún-
ir að breyta til í ljósi þróunar og
breyttra tíma. „Það er ekkert svo
fullkomið að það þarfnist ekki lag-
færinga og breytinga, hvort sem það
er SÍF e_ða eitthvað annað,“ sagði
Halldór Ásgrímsson.
Hann sagði að litlir aðilar gætu
náð árangri á afmörkuðum sviðum,
sérstaklega ef þeir þyrftu ekki að
eyða miklum peningum til þróunar-
og kynningarstarfs. „Mér sýnist hins
vegar að nýir aðilar í sölu á frystum
fiski til Bandaríkjanna hafi ekki skil-
að neinum sérstökum árangri. Ég
er ekki að halda því fram að þeir
hafí skemmf neitt sérstaklega fyrir.
Mér finnst það hins vegar ekki vera
rök i málinu. Aðalatriðið hlýtur að
vera með hvaða hætti við getum náð
mestum árangri."
Halldór sagði að það væri alveg
ljóst að ósaltaði, flatti fiskurinn, sem
fluttur var héðan til Evrópu, hefði
ekki staðist almennar vinnslureglur
og gæðakröfur. Hins vegar mætti
segja það sama um hluta af þeim
fiski, sem fiuttur væri þangað óunn-
inn.
Halldór sagðist vera viss um að
sumt af þeim físki, sem hefði verið
fluttur héðan til Bretlands, hefði
umsvifalaust verið hent út af fisk-
markaðinum í Tókíó. „Þar kemur
ekkert inn nema mjög ferskt hrá-
efni, enda finnst ekki nokkur lykt á
þessum stóra markaði. Þar er mjög
strangt gæðaeftirlit og við hljótum
að þurfa að hafa þann metnað að
gera slíkar kröfur, jafnvel þótt þær
séu ekki gerðar á mörgum mörkuð-
um erlendis, þar sem skortur á fiski
er mjög mikill og menn hafa vanist
lélegum fiski.“
Bjarni Marinó Þorsteinsson
„Eg held að óhætt sé
að segja að þeir sem nú
eru að berjast fyrir
breytingum á sölufyrir-
komulagi SÍF séu vilj-
andi eða óviljandi að
vinna mikið óhæfu-
verk.“
verið og er að gerast í skreiðarsölu-
málum þar _sem hið margrómaða
frelsi ríkir. Ég ætla ekki að rekja
þg sögu hér. Saltfiskframleiðendur
sem margir eru einnig skreiðarverk-
endur þekkja þá sðgu vel og margir
af biturri reynslu. Saltfiskframleið-
endur vita líka að ef veitt verða leyfi
til útflutnings á saltfiski utan SÍF
mun fljótt skapast sama ástand í
saltfisksölumálum og nú ríkir í
skreiðarsölu og það viljum við ekki
kalla yfir okkur landsbyggðarmenn,
en saltfiskvinnsla er burðarásinn í
atvinnulífinu í mörgum byggðarlög-
um bæði fjölmennum ogfámennum.
Ég held að óhætt sé að segja að
þeir sem nú eru að beijast fyrir
breytingum á sölufyrirkomulagi SÍF
séu viljandi eða óviljandi að vinna
mikið óhæfuverk gegn hagsmunum
sjálfra sín og þess mikla íjölda salt-
fiskframleiðenda sem halda tryggð
við samtökin og vilja veg þeirra sem
mestan. Þessi sölusamtök okkar eru
búin að starfa í 58 ár og hafa hald-
ið uppi merki íslenskrar saltfiskverk-
unar og aflað íslenskum framleið-
endum bestu markaða sem völ er á
víða um lönd.
Er þá nokkur ástæða til ‘að breyta
söiukerfi samtakanna eða leyfa ein-
hveijum gróðabisnesmönnum sem
varla sjá niður fyrir tærnar á sér
fyrir auragræðgi eða skammvinnum
hagnaði að skemma eða eyðileggja
áratugalangt starf ágætra manna
sem byggt hafa upp sölusamtök
okkar í gegnum árin?
Höfundur er saltfískvcrkandi í
Ólafsfírði.
Sígildar freistinga
r
í nýjum umbuðum!
Þó að flatkökurnar okkar hafi nú fengið nýjan og
veglegri búning, þá eru þær enn sömu ljúfmetiskökurnar
Láttu freistast og nældu þér í fyrirtaks snæðing
frá Ömmubakstri
BAKARIFRIÐRIKS HARALDSSONAR SF. KARSNESBRAUT 96, KOPAVOGI