Morgunblaðið - 10.04.1990, Page 18

Morgunblaðið - 10.04.1990, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 1990 Þýsk sálumessa Tónlist_____________ Jón Ásgeirsson Söngsveitin Fílharmonía hélt upp á 30 ára starfsafmæli með tónleikum í Langholtskirkju sl. laugardag. Á efnisskrá var Þýsk sálumessa eftir Brahms. Ein- söngvarar voru Sigrún Hjálmtýs- dóttir og Loftur Erlingsson. Stjómandinn var Úlrik Ólason en konsertmeistari Szymon Kuran. Með flutningi Þýsku sálumess- unnar hefur Ulrik Ólasyni tekist að auk tiltrú manna á að enn um sinn eigi Söngsveitin Fílharmonía eftir að skapa sér sögu í íslensku tónlistarlífi. Þar sannast sem fyrr, að það er stjórnandinn, geta hans og þörf fyrir að takast á við stór viðfangsefni, sem heillar söngfóik til samstarfs. Margir hafa eflaust séð fyrir sér aðskilnað atvinnu- og áhuga- mennskunnar, þegar felldur var niður flutningur 13. sinfóníunnar eftir Shostakovitsj. Það sem skilur þar á milli, er að áhugahópar vinna sín verk á lengri tíma en atvinnufólk, sem hefur hlotið þann undirbúning, er styttir mjög alla forvinnu. A tónleikum Söngsveit- arinnar sýndi það sig að vetrinum hafði verið vel varið, því flutning- urinn, þegar til heildarinnar var litið, var í alla staði vandaður. Það sem helst vantaði var dram- atískur þungi í upphafi verksins og sterkari andstæður í styrk. T.d. í fyrsta kaflanum, sem að mestu skal vera veikt fluttur, þar, eins og víðar, var hljómsveitin oft of jafnsterk, til að þær sérkenni- legu andstæður í styrkleika er tengjast túlkun textans kæmu greinilega fram. Þetta var einkar áberandi í 2. kaflanum, sem er einn af áhrifa- mestu köflum verksins. Hann hefst á veikum leik og söng sem brýst svo út í fullum styrk. And- stæður í styrk og hraða einkenna þennan kafla sérstaklega. í fug- ato-kaflanum í síðasta hluta 3. þáttar sem og í niðurlagi þess 6., voru karlaraddirnar of fáliðaðar og hljómsveitin nokkuð of sterk til að raddfleygunin kæmist vel til skila. Einsöngvararnir stóðu sig með prýði, Sigrún Hjálmtýsdóttir, sem er afburða góð söngkona, flutti 5. þáttinn af glæsibrag, Loftur Erlingsson, sem enn er við nám í Söngskólanum í Reykjavík, sýndi það rækilega að hann er stórkost- lega efnilegur söngvari. Þrátt fyrir að nokkuð vantaði á samgirni hljómsveitar og kórs í túlkun og mótun blæbrigða, var flutningurinn í heild rnjög góður og auðheyrt að Úlrik Ólason hefur unnið vei. Sé tekið tillit til þess að hann er að safna sér reynslu og kunnáttu í erfiðu starfi, er frammistaða hans eftirtektarverð. Kammersveitin Kammersveit Reykjavíkur hélt sína síðustu tónleika á þessu starfsári í |slensku óperunni sl. sunnudag. Á efnisskrá voru verk eftir Atla Heimi Sveinsson, Hjálmar H. Ragnarsson og Schu- bert. Tónleikarnir hófust á kammer- verki eftir Atla Heimi Sveinsson er hann samdi vegna opnunar Borgarieikhússins sl. haust. Verk- ið nefnir hann Á gleðistund. Þetta skemmtiverk (fyrir tíu hljóðfæra- ieikara) er þrískipt að formi og má vel skilja það sem gamansama túlkun af marsi og djass. Annar kaflinn er fjarrænn hægur vals (í sexskiptum takti) og sá þriðji er nútíminn með öllum sínum uppátækjum og tæknibrellum. Það er mikið leikhús í Gleðistund- inni og var það ágætlega og líflega flutt undir stjórn Guð- mundar Óla Gunnarssonar. Lagaflokkurinn Tengsl eftir Hjálmar H. Ragnarsson við kvæði eftir Stefán Hörð Grímsson var annað viðfangsefnið en það var frumflutt í fyrra í Gerðubergi. Einsöngvari var, eins og þá, Jó- hanna V. Þórhallsdóttir og flutti hún, ásamt strengjakvartett undir stjóm Rutar Ingólfsdóttur, verkið á sannfærandi máta. Besti hluti verksins er söngurinn um stein- depilinn við ljóðið Spör. Vel mætti umrita það fyrir píanóundirleik og yrði það trúlega vinsælt við- fangsefni sífjölgandi hóps þeirra sem læra til söngs. Síðasta verkið á efnisskránni var Silungakvintettinn eftir Schu- bert. Þetta meistaraverk var ágætlega flutt, en með strengja- Kammersveit Reykjavíkur. kvartett undir stjórn Rutar Ing- ólfsdóttur lék Selma Guðmunds- dóttir á píanó. I heild voru tónleikarnir vel framfærðir og skemmtilegir, eink- um vegna þess hve verkin voru ólík en áttu þó margt sameigin- legt, að minnsta kosti það, að vera áhugaverð tónlist og vel leik- in. Aftnælisrit Jóns Böðvarssonar í TILEFbJI sextugsafinælis Jóns Böðvarssonar í maí í vor hafa nokkr- ir vinir hans og velunnarar ákveðið að gefa út safh greina um Jón og störf hans en einnig um fræði ýmisleg sem snerta áhugasvið hans og mun Iðnskólaútgáfan gefa ritið Jón Böðvarsson er þjóðkunnur maður og hefur víða tekið til hend- inni. Á háskólaárum sínum tók hann virkan þátt í félagsmálum stúdenta og setti svip sinn á vettvang stjóm- málanna. Hann er víðfrægur leið- sögumaður og hafa margir notið leiðsagnar hans, til dæmis um Njálu- slóðir eða vettvang Kjalnesingasögu. Menntaskólakennari var hann um árabil og fyrsti skólameistari Fjöl- út. brautaskóla Suðurnesja. Hann er fyrsti heiðursfélagi Skólameistarafé- lags íslands. Jón er nú ritstjóri Iðn- sögu íslendinga. Meðal höfunda í afmælisritinu verða: Ámi Björnsson, þjóðhátta- fræðingur, Ásgeir Ásgeirsson, sagn- fræðingur, Bragi Halldórsson, fram- haldsskólakennari, Einar Bragi, skáld, Eyþór Þórðarson, starfsmaður Þjóðskjalasafns, Friðrik Ólafsson, Jón Böðvarsson skrifstofustjóri Alþingis, Heimir Pálsson, ritstjóri, Hjalti Kristgeirs- son, yfirhagfræðingur Hagstofu ís- lands, Hjálmar Árnason, skólameist- ari, Ingi R. Helgason, forstjóri, Jón Árni Friðjónsson, framhaldsskóla- kennari, Jón F. Hjartarson, skóla- meistari, Jón Torfason, sagnfræð- ingur, Jörgen Pind, forstöðumaður orðabókar HÍ, Kristján Bersi Ólafs- son, skólameistari, Ólafur Ásgeirs- son, þjóðskjalavörður, Smári Geirs- son, frv. skólameistari, Stefán F. Hjartarson, sagnfræðingur, Svavar Gestsson, menntamálaráðherra, Sverrir Hermannsson, bankastjóri, Þorgeir Þorgeirsson, rithöfundur, Þór Vigfússon, skólameistari, og Þórður Kristinsson, kennslustjóri HI. Verð bókarinnar er kr. 2.900. Þeir sem hug hafa á að gerast áskrifendur geta snúið sér til Iðnskó- laútgáfunnar og er áskrifendum gefinn kostur á að fá nafn sitt birt á heiilaóskalista í bókinni. (Fréttatilkynning) TIMKEN FAG itlO KEILULECUR KÚLU- OC RÚLLULECUR LECUHÚS Eigum á lager allar gerðir af legum i' bi'la, vinnuvélar, framleiðsluvélar og iðnaðartæki. Allt evrópsk og bandarísk gæðavara. Útvegum allar fáanlegar legur með hraði. Það borgar sig að r nota það besta. Þekking Reynsla Þjónusta {FALKINN SUÐURLANDSBRAUr 8 SlMI 84670 ■ FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYT- IÐhefuraðósk hlutaðeigandi sveit- arstjórna heimilað að almennar sveitarstjórnarkosningar fari fram 9. júní 1990 í eftirtöldum sveitarfé- lögum: Skorradalshreppi Borgar- ijarðarsýslu, Lundarreykjadals- hreppi Borgarfjarðarsýslu, Norður- árdalshreppi Mýrasýslu, Hvítár- síðuhreppi Mýrasýslu, Stafholts- tungnahreppi Mýrasýslu, Mikla- holtshreppi Snæfellsnessýslu, Skógarstrandarhreppi Snæfellsnes- sýslu, Hörðudalshreppi Dalasýslu, Haukadalshreppi Dalasýslu, Hvammshreppi Dalasýslu, Fells- strandarhreppi Dalasýslu, Skarðs- hreppi Dalasýslu, Saurbæjarhreppi Dalasýslu, Rauðasandshreppi Vestur-Barðastrandarsýslu, Mýra- hreppi Vestur-Barðastrandarsýslu, Mýrahreppi Vestur-ísafj arðarsýslu, Ögurhreppi Norður-ísafjarðarsýslu, Reykjaíjarðarhreppi Norður-ísa- fjarðarsýslu, Nauteyrarhreppi Norður-ísaljarðarsýslu, Árnes- hreppi Strandasýslu, Kaldrananes- hreppi Strandasýslu, Kirkjubóls- hreppi Strandasýslu, Fellshreppi Strandasýslu, Óspakseyrarhreppi Strandasýslu, Bæjarhreppi Strandasýslu, Staðarhreppi Vestur-Húnavatnssýslu, Fremri- . Torfustaðahreppur Vestur-Húna- vatnssýslu, Ytri-Torfustaðahreppi Vestur-Húnavatnssýslu, Kirkju- hvammshreppi Vestur-Húnavatns- sýslu, Þorkelshólahreppi Vestur- Húnavatnssýslu, Sveinsstaðahreppi Austur-Húnavatnssýslu, Skaga- hreppi Austur-Húnavatnssýslu, Skefilsstaðahreppi Skagafjarðar- sýslu, Skarðshreppi Skagafjarðar- sýslu, Lýtingsstaðahreppi Skaga- fjarðarsýslu, Skriðuhreppi Eyja- fjarðarsýslu, Öxnadalshreppi Eyja- fjarðarsýslu, Hálshreppur Suður- Þingeyjarsýslu, Bárðdælahreppi Suður-Þingeyjarsýslu, Reykdæla- hreppi Suður-Þingeyjarsýslu, Öxar- fjarðarhreppi Norður-Þingeyjar- sýslu, Presthólahreppi Norður- Þingeyjarsýslu, Svalbarðshreppi Norður-Þingeyjarsýslu, Hlíðar- hreppi Norður-Múlasýslu, Jökul- dalshreppi Norður-Múlasýslu, Fljótsdalshreppi Norður-Múlasýslu, Tunguhreppi Norður-Múlasýslu, Skriðdalshreppi Suður-Múlasýslu, Mjóafjarðarhreppi Suður-Múla- sýslu, Fáskrúðsfjarðarhreppi Suður-Múlasýslu, peithellnahreppi Suður-Múlasýslu. í öðrum sveitar- félögum en ofantöldum skulu kosn- ingar til sveitarstjórna fara fram 26. maí 1990. ■ LIONSKL ÚBBARNIR Njörð- ur, Þór og Freyr færðu augndeild Landakotsspítala Neodymium- YAG leysitæki að gjöf fyrir skömmu. Leysitæki þetta er notað til skurðaðgerða á augum og má nota leysinn til þess að skera vefi inni í auganu, án þess að opna þurfi augað. Með þessu tæki má þannig gera aðgerðir á augum á nokkrum mínútum, sem áður hefðu þurft meiri háttar skurðaðgerð, þar sem opna þurfti augað og leggja sjúklinga inn á sjúkrahús. Tækið er allt hið fullkomnasta að gerð og hefur þegar verið notað með góðum árangri. Alþjóðlega Lionshreyfing- in hefur sjónvernd á stefnuskrá sinni og íslenska hreyfingin hefur sinnt þessum málum ötullega á ís- landi. íslenska Lionshreyfingin hefur með tækjagjöfum sínum stað- ið á bak við margar meiri háttar framfarir í augnlækningum á ís- landi. (Frcttatilkynning) ■ ÞANN 30. mars sl. skipaði Svavar Gestsson, menntamálaráð- herra nefnd til að kanna hvort rétt sé að setja lög eða koma á reglum um skoðanakarmanir. Nefndin er þannig skipuð: Ólafur Þ. Harðar- son, lektor, sem jafnframt er for- maður nefndarinnar, Elías Héðins- son, félagsfræðingur, Elías Snæ- land Jónsson, aðstoðarritstjóri, Gunnar Maack, framkvæmda- stjóri, Hilmar Þór Hafsteinson, kennari, Ólafiir Örn Haraldsson, framkvæmdastjóri og Páll Skúla- son, prófessor. Nefndinni er ætlað að ljúka störfum fyrir næstu ára- mót.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.