Morgunblaðið - 10.04.1990, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 1990
27
Róstur hafa náð tíl
14 breskra fangelsa
St. Andrews. Frá Guðmundi H. Frímanns- syni, fréttaritara Morgunblaðsins.
ROSTUR brutust út í 10 brezkum fangelsum um helgina og hafa þá
náð til 14 fangelsa alls. Umsátrið um Strangeways-fangelsið í
Manchester stendur enn og hefúr
Sunnudaginn 1. apríl lögðu fang-
arnir í Strangeways-fangelsinu
hluta fangelsisins undir sig og enn
í gær neitaði lítill hópur, líklega um
19 manns, að gefast upp fyrir fang-
elsisyfirvöldum. Hafa verið unnar
miklar skemmdir á fangelsisbygg-
nú staðið á aðra viku.
ingunni og húsið talið að mestu
ónýtt. Tveir hafa látizt í þessum
róstum í Strangeways-fangelsinu.
Á laugardag hófust óeirðir í
Dartmoor-fangelsinu. Þeim lauk á
• sunnudag. Einn fangi lézt. Ekki er
vitað hvort hann var myrtur eða
Konungur Nepal leyf-
ir stjórnmálaflokka
Katmandú. Reuter.
BIRENDRA konungur í Nepal
aflétti á sunnudag 30 ára gömlu
banni við starfsemi stjórnmála-
flokka í landinu og lét þar með
undan aukinni baráttu stjórnar-
andstæðinga fyrir lýðræðsium-
bótum.
Stjórnarandstæðingar í Nepal
hrundu baráttu fyrir lýðræðislegum
stjórnarháttum af stað í febrúar
síðastliðinn. Náði hún hámarki sl.
föstudag er tugþúsundir manna
reyndu að komast að konungshöll-
inni i Katmandú. Hófu hermenn
skothríð á fólkið og biðu a.m.k. 50
menn bana.
Eftir fund með konungi á sunnu-
dag sögðust leiðtogar stjórnarand-
stöðunnar vera hættir baráttu fyrir
lýðræðisumbótum og var það túlkað
á þann veg að konungur hefði látið
undan kröfum þeirra.
Birendra konungur
hvort hann hafi látizt af slysförum.
Til uppþota kom í átta fangelsum á
sunnudag, í í Cardiff, Hull, Leeds,
Brixton, Long Lartin, Bristol, Shep-
ton Mallet og í Pentonville í Norður-
London.
Nokkrir stjórnarþingmenn hafa
gagnrýnt innanríkisráðherrann fyrir
að hafa ekki beitt valdi í Strangewa-
ys-fangelsinu og bundið enda á upp-
reisn fanganna, sem hefur varað
lengur en nokkur önnur til þessa.
David Mellor, aðstoðarinnanríkis-
ráðherra, segir, að valdbeiting sé
ekki fyrirhuguð og bezta aðferðin
sé að þreyta fangana. En yfir þá
er sprautað vatni allar nætur og
haldið uppi stöðugum hávaða.
Ýmsir hafa bent á, að aðstæður
í brezkum fangelsum séu mjög
slæmar. Til dæmis sé Strangeways-
fangelsið frá því um 1870 og í því
eru nú tæplega þrefalt fleiri fangar
en það var upphaflega byggt fyrir.
Svipaða sögu megi segja annars
staðar. Fangar í brezkum fangelsum
eru ríflega 46 þúsund. Talsmenn
fangavarða hafa bent á, að skortur
sé á 'starfsfólki í fangelsum.
David Mellor segir, að mikið fé
hafi verið lagt í það á allra síðustu
árum að bæta fangelsin og stækka
þau, meira en nokkru sinni fyrr.
Hann segir einnig, að ein rótin að
róstunum í Strangeways-fangelsinu
sé andúð annarra fanga á kynferðis-
afbrotamönnum, en þeir léku nokkra
þeirra grátt á fyrstu dögum upp-
réisnarinnar.
Yfirvöld réðu niðurlögum allra
uppreisnarmanna um helgina, þeirra
síðustu á mánudag, ef Strangeways-
fangelsið er undanskilið.
Reuter
Stuðningsmenn Mario Vargas Llosa fognuðu sigri hans í fyrri umferð
forsetakosninganna í Perú.
Forsetakosningarnar í Perú:
Fujimorí sigurstrang’-
legur í síðari umferð
Lima. Reuter.
Rithöfundurinn Mario Vargas Llosa fékk mest fylgi í fyrri umferð
forsetakosninganna í Perú á sunnudag en á hæla honum kom Alberto
Fujimori, sem er af japönskum ættum og bauð sig fram utan flokka.
Kom mikið fylgi hans verulega á óvart og hafa ýmsir frammámenn
vinstriflokkanna á orði að styðja hann gegn Vargas Llosa í síðari
umferðinni seint í maí eða snemma í júní.
Skæruliðar vinstrimanna hvöttu
almenning til að hundsa kosningarn-
ar en hann svaraði fyrir sig með
mikilli kjörsókn. Vargas Llosa, sem
bauð sig fram fyrir mið- og hægri-
flokka og lagði áherslu á róttækan
uppskurð á efnahagslífinu, hlaut
34% atkvæða en Fujimori 31%.
Frambjóðandi stjómarflokksins,
Jafnaðarmannaflokksins, fékk 14%
og marxista 7%.
Fujimori er fæddur í Perú en af
japönsku foreldri og var háskóla-
rektor um skeið. Hann hóf kosninga-
baráttuna fyrir ári með þeim orðum,
að stjómmálaflokkamir byðu ekki
upp á þær lausnir, sem við ættu í
Perú. Hann er sammála Vargas
Llosa um nauðsyn róttækra efna-
hagsumbóta en vill leggja grunninn
að þeim með því að bæta fyrst hlut-
skipti þeirra, sem minnst mega sín.
Féll sá áróður fátæklingunum vel í
geð.
Ýmsir forystumenn vinstriflokk-
anna gefa nú í skyn, að þeir muni
styðja Fujimori í síðari umferðinni
og segjast ekki efast um, að hann
muni sigra verði það ofan á.
FALLEGAR OG
EIGULEGAR BÆKUR
TIL
FERMIN G ARGJAFA
ÍSLENSKUR SÖGUATLAS 1. BINDI. 12.490 KR.
Stórglæsilegt rit sem ó erindi við alla unga Islendinga.
Islandssagan birtist í þeim búningi sem unga kynslóðin kann að meta.
ATLAS AB. 9.000 KR.
Víðtækasta uppflettirit um lönd og lífheim jarðarinnar
sem birst hefur ó íslensku. Ótæmandi fróðleiksnóma.
ÆVISÖGUR ORÐA. 1.500 KR.
Saga orða og orðtaka rakin og skýrð svo langt sem heimildir nó.
ISLENSKIR MÁLSHÆTTIR. 1.875 KR.
Ómissandi viskubrunnur og uppflettirit fróðleiksfúsra lesenda.
ÍSLENSKT ORÐTAKASAFN 1.—2. BINDI. 3.750 KR.
Allt um ísiensk orðtök. Hreinn skemmtilestur.
FUGLAR ÍSLANDS OG EVRÖPU. 3.920 KR.
Aukin og endurskoðuð útgófa þessa einstaka
grundvallarrits lýsir 635 íslenskum og evrópskum fuglategundum.
UNGT FÓLK OG VANDAÐAR BÆKUR
EIGA SAMLEIÐ.
FÉLAGI TIL FRAMTÍÐAR.