Morgunblaðið - 10.04.1990, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRIL 1990
Samherji kaupir hlut KEA í Söltunarfélaginu
DALVÍKURBÆR ætlar að selja
Kaupíelagi Eyfirðinga hlutabréf
sín í Utgerðarfélagi Dalvíkinga
og er kaupverðið 81,4 milljónir
króna samkvæmt drögum að
kaupsamningi. Kaupfélagið mun
eftir kaupin eiga 97,4% hlut í
UD. KEA leggur tveimur skipa
sinna, Sólfelli og Baldri og veiði-
heimildum þeirra verður bætt
við togarana Björgvin og Björg-
úlf. Þá selur kaupfélagið eignar-
hlut sinn í Söltunarfélagi Dalvík-
ur til Samherja hf. á Akureyri.
Málefni Útgerðarfélagsins voru
rædd á stjórnarfúndi á laugar-
PASKATRIMM FLUGLEIÐA
í HLÍÐARFIALLIV/AKUREYRI
Allir, sem taka þátt
í páskatrimminu,
eiga möguleika á
ókeypis ferð
með Flugleiðum
innanlands eða
erlendis.
Komdu og
vertu með.
FLUGLEIÐIR
innanlandsflug
dag og á bæjarráðsfúndi á
sunnudag.
Dalvíkurbær og Kaufélag Ey-
firðinga eiga hvort um sig 48,69%
hlut í UD og Björgvin Jónsson
útgerðarmaður á 2,62%. Fulltrúi
Kaupfélags Eyfirðinga kynnti á
stjómarfundi tilboð sem felst í því
að félagið leggur fram um 2.000
tonna kvóta, skipanna Baldurs
EA-108 og Sólfells EA-640 gegn
því að eignast aukinn hlut í ÚD,
eða sem nemur 67%. Rekstraráætl-
anir varðandi útgerð skipanna
tveggja, Björgvins og Björgúlfs
voru lagðar fram á fundinum og
sagði Valdimar Bragason fram-
kvæmdastjóri að með auknum
véiðiheimildum að viðbættu hærra
fiskverði, sem næmi um 10 krónum
á kílóið af þorski ofan á lámarks-
verð verðlagsráðs, þá gæti rekstur-
inn staðið undir sér.
Fulltrúar Dalvíkurbæjar í stjórn
ÚD lýstu yfir að ekki myndi nást
samkomulag um breytingar á
eignaraðild félagins, en bærinn
værí reiðubúinn til að selja allt sitt
hlutafé í Útgerðarfélaginu.
Söltunarfélag Dalvíkur er í eigu
sömu aðila, en KEA á 64% hlut í
SFD og Dalvíkurbær um 35%.
Samheiji hf. á Akureyri kaupir
hlut kaupfélagins í Söltunarfélag-
• inu,- -en hvað- -þá -sölu- -varðar- -er -
nauðsynlegt að Dalvíkurbær afsali
sér forkaupsrétti sínum á hluta-
bréfum KEA í SFD. í yfirlýsingu
frá Samheija segir að markmiðið
með kaupunum sé í fyrsta lagi að
styrkja stöðu Samheija til lengri
tíma litið og í öðru lagi að taka
þátt í rekstri öflugrar rækjuvinnslu
sem starfrækt verður á Dalvík.
Á bæjarráðsfundi á sunnudag
höfnuðu fulltrúar meirihlutans í
bæjarstjórn því að KEA yki ein-
hliða hlut sinn í ÚD en bæjarstjóra
var falið að taka upp viðræður um
sölu á hlutabréfum bæjarins í fé-
laginu. Fulltrúi minnihlutans í
bæjarráði lét bóka að hann gæti
fallist á að KEA yki hlutafé sitt í
félaginu gegn því að leggja fram
auknar veiðiheimildir og að ef
framkomnar tillögur næðu fram
að ganga teldi hann rekstrar-
grundvöll félagsins viðunandi. Þá
taldi fulltrúi minnihlutans einnig
óeðlilegt í ljósi atvinnuástandsins
í bænum að Dalvíkurbær dragi fé
út úr atvinnurekstri og fæli aðild
og stjórnun í hendur annarra aðila.
Fyrir bæjarstjórnarfundi á
Dalvík sem haldinn verður í dag
liggja drö að kaupsamningi á milli
Dalvíkurbæjar og Kaupfélags Ey-
firðinga um kaup KEA á öllu hlut-
afé bæjarins í ÚD á 81,4 milljónir
króna, sem greiðist með 10 ára
skuldabréfi og sömu vaxtakjörum
og skuldabréf Atvinnutrygginga-
- sjóðs' bera; sem eru rtú -5%: - -
Útgerðarfélag Dalvíkinga:
KEA kaupir hlut bæjarins og
leggur veiðiheimildir á móti
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Gertklárt
Ragnar Víkingsson trillusjómaður í Hrísey var að gera bátinn kláran
um helgina þegar ljósmyndari var þar á ferðinni.
Iþróttamaður
Akureyrar:
ÚTIHURÐIR
Mikið úrval. Sýningarhuröir á staðnum.
Tré-x búðin, Smiðjuvegi 30, s. 670777,
Brúnás, Ármúla 17, Rvík, s. 84585 og
84461, Tró-x, Iðavöllum 6, Keflavík, s.
92-14700, Trésmiðjan Börkur, Frosta-
götu 2, Akureyri, s. 96-21909.
Sæplast hefur keypt
Plasteinangrun
SÆPLAST hf. á Dalvík hefúr keypt Plasteinangrun hf. á Akureyri
og var kaupsamningur undirritaður um helgina. Sæplast tekur við
rekstrinum þegar fyrir liggur uppgjör um stöðu Plasteinangrunar
um síðustu mánaðamót.
Pétur Reimarsson framkvæmda- hafa sína og bauð að greiða 21%
stjóri Sæplasts sagði að vélar og af skuldum. Pétur sagði að miðað
tæki Plasteinangrunar yrðu flutt væri við í kaupsamningi að nauða-
frá Akureyri til Dalvíkur, en ekki samningamál Plasteinangrunar
væri búið að ákveða nákvæmlega væru frágengin. Veðhafar myndu
hvenær sá flutningur yrði. Hluta- taka yfir húseign fyrirtækisins við
bréf í Plasteinangrun verða afhent Óseyri, en Sæplast tæki við rekstr-
Sæplasti þegar uppgjör liggur fyrir1 inum og vélar og tæki yrðu flutt
og tekur fyrirtækið þá formlega við til Dalvíkur.
rekstrinum. Uppistaðan í framleiðslu Pla-
Plasteinangrun fékk á síðasta ári steinangrunar síðustu mánuði hefur
fimm mánaða greiðslustöðvun og verið trollkúlur, en frá því í haust
að henni lokinni fór félagið fram á hefur fyrirtækið ekki framleitt
að gera nauðasamninga við kröfu- fiskikassa, en norskt fyrirtæki hafði
einkarétt á þeim framleiðslu og
sagði það samningi við Plastein-
angrun upp síðastliðið haust. v;
Pétur sagði að stefnt væri að
aukinni sölu trollkúlna á erlendum
mörkuðum og einnig væri fyrir
hendi áhugi á að ná samningum
við Norðmennina eða aðra aðila nm
framleiðslu á fiskikössum. Þá hefði
mikill undirbúningur verið unnin
af hálfu Plasteinangrunar vegna
tunnuframieiðslu og myndi hann
nýtast Sæplasti að einhveiju leyti.
„Við ætlum að skoða okkar gang
í rólegheitum, en mér sýnist á öllu
að þetta eigi að geta gengið ágæt-
lega,“ sagði Pétur.
Plasteinangrun var í eigu Kaup-
félags Eyfirðinga og Sambands
íslenskra samvinnufélaga sem áttu
hvort um sig 50% hlut.
20 milljónir í
snjómokstur
Þorvaldur
kjörinn
Þorvaldur
ÞORVALD-
UR Örlygs-
son knatt-
spyrnumað-
ur var kjör-
inn íþrótta-
maður Akur-
eyrar 1989 á
ársþingi
íþrótta-
bandalags Akureyrar sem
haldið var um helgina.
Þorvaldur lék knattspyrnu
með íslandsmeisturum KA
síðasta sumar og var einn af
lykilmönnum liðsins. Auk Þor-
valdar fengu fjórir aðrir
íþróttamenn viðkenningu.
í öðru sæti var Haukur
Eiríksson skíðamaður úr Þór,
Erlingur Kristjánsson, fyririiði
KA síðasta sumar og þjálfari
sama liðs í handknattleik varð
þriðji, Stefán Jóhannesson
blakmaður úr KA varð fjórði
og Guðmundur Benidiktsson
sem spilar bæði handknattleik
og knattspyrnu með Þór varð
í fimmta sæti.
Á ársþinginu var Óðni Árna-
syni afhentur afreksbikarinn,
en hann veittur einhveijum
þeim sem unnið hefur mikið að
íþróttamálum með. börnum og
unglingum.
YFIR 20 milljónir króna hafa
farið í snjómokstur á Akureyri
það sem af er ári, en á fjárhags-
áætlun var gert ráð fyrir 16,8
milljónum króna í snjómokstur
á öllu árinu. Snjómokstur hefúr
verið óvenjumikill í vetur og
einnig í fyrravetur og má gera
ráð fyrir að á milli 40-50 milljón-
ir króna hafi verið notaðar til
að moka snjó síðustu tvo vetur.
Guðmundur Guðlaugsson yfir-
verkfræðingur hjá Akureyrarbæ
sagði að þegar vika var eftir af
marsmánuði hafi verið búið að
eyða 18,7 milljónum króna í snjóm-
okstur, en með þeim tveimur vikum
sem liðnar eru að auki megi gera
ráð fyrir að yfir 20 milljónir króna
hafi farið í moksturinn.
Af þeim 18,7 milljónum króna
sem bærinn hefur greitt í snjó-
mokstur er virðisaukaskattur 3,7
milljónir króna.
Á fjáhagsáætlun var gert ráð
fyrir 16,8 milljónum króna í snjó-
mokstur og hafði framlagið þá
hækkað um 6 milljónir króna frá
upphaflegri áætlun. „Siðustu
tveir vetur hafa verið óvenju erfið-
ir og snjómokstur þessa vetur kost-
ar bæinn líklega 40 eða jafnvel
hátt í 50 milljónir króna, það
stefnir allt í það. En við þessu er
ekkert að gera, nú verðum við
bara að vona að fari að vora, og
að það vori hægt og rólega,“ sagði
Guðmundur.