Morgunblaðið - 10.04.1990, Síða 37

Morgunblaðið - 10.04.1990, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRIL 1990 37 Arndís Baldurs, Blönduósi - Kveðja Fædd 30. október 1899 Dáin 31. mars 1990 Hún átti ei til neitt tál né fals, hún trúði á dyggðir manna, á frelsi og rétt í framsókn alls hins fagra, góða og sanna. (E. Ben.) Bjartar minningar bernskunnar eru sjóður, sem sækja má í styrk á erfiðum tímum, og þeir, sem þar eiga hlut að, leggja til gott vega- nesti fyrir framtíðina. Margar góð- ar bernskuminningar eru tengdar heimili afa og ömmu á Blönduósi, en þar dvaldi ég nokkur sumur og var tíður gestur þess utan. Hugurinn hvarflar til ýmissa smá- atvika, sem grópast í minni. Þó er eftirminnilegastur sá andblær hljóðrar hamingju og kyrrðar, sem ríkti á heimilinu, þar sem alltaf var nægur tími til að sinna kraft- miklum drengjum, þrátt fyrir að gestkvæmt væri oft. Þó oft væru gerð ýmis strákapör var öllu tekið með jafnaðargeði og gert gott úr málum á þann veg að af lærðist. Sú ræktun var ekki síðri hinni náttúrlegu, sem amma stundaði af natni og eljusemi við erfið skil- yrði af náttúrunnar hálfu, en hrifnastir vorum við strákamir af rabarbaranum, sem við náðum okkur í leyfislaust, en án ámæla ef upp um komst. Þá eru ekki síður eftirminnilegar vangaveltur um lífið og tilveruna, sem fram fóru á baðherberginu meðan skrúbbað var af skítugum fótum eftir dag- langar íþróttaiðkanir berfættur á Kvennaskólatúninu, þar sem rætt var um sigra og töp. Amma var hreinskiptin, glað- vær og þoldi ekki_ órétt og mátti ekkert aumt sjá. Ég minnist þess að á veturna gaf hún smáfulgum á hveijum degi og var alltaf krökkt af þeim við húsið að vetrariagi. Þegar hallaði að ævikvöldi leit- aði hugur hennar oft til bernskuár- anna, og þeirra erfiðleika, sem hún lifði þá. Og einnig til þess tíma, er hún gifti sig og stofnaði heim- ili og þeirrar hamingju, sem það veitti henni. Hún hertist af mót- lætinu og mat því hamingjuna þess meir, þegar hana bar að garði. Þ.B. Ferming í Siglufjarð- arkirkju á skírdag Ferming í SigluQ arðarkirkj u skírdag. Prestur sr. Bragi Ingi- bergsson. Fermd verða: Aðalbjörn Sigurður Filippusson, Norðurgötu 13. Agnar Þór Sveinsson, Lækjargötu 11. Aldís Stefánsdóttir, Hafnartúni 10. Ásdís Hrund Þórarinsdóttir, Túngötu 38. Benedikt Þorsteinsson, Laugarvegi 13. Birkir Þór Sigurðsson, Suðurgötu 57. Bjarni Friðrik Jóhannesson, Hólavegi 75. Björgvin Davíð Björnsson, Hvanneyrarbraut 63. Davíð Aðalsteinsson, Lækjargötu 4C. Elva Dögg Sverrisdóttir, Hafnartúni 8. Eygló Möller, Suðurgötu 82. Fríða Maríanna Stefánsdóttir, Túngötu 40. Heimir Birgisson, Hlíðarvegi 9. Helga Hermannsdóttir, Kirkjustíg 9. Hrafnhildur Ólafsdóttir, Faxavegi 33. Ingvar Þór Kristjánsson, Fossvegi 31. Jóna Jakobina Þorgeirsdóttir, Hólavegur 37. Kjartan Sigutjónsson, Suðurgötu 60. Margrét Kristinsdóttir, Hafnargötu 14. Ólöf Eirný Gunnarsdóttir, Aðalgötu 28. Ragnar Haukur Hauksson, Suðurgötu 50. Renzo Gústav Passaro, Hólavegi 67. Róbert Pálsson, Hvanneyrarbraut 61. Soffía Aðalsteinsdóttir, Suðurgötu 66. Þóra Kristín Steinarsdóttir, Hólavegi 95. Fjölbrautaskóli Suðurnesja: Ljósavél til kennslu gef- in á vélstjórabraut Keflavík. Vélstjórabraut Fjölbrautaskóla Suðurnesja fékk nýlega afhenta ljósavél að gjöf frá athafhamönnunum og bræðrunum Birgi og Axel Pálssonum í Keflavík. Ljósavélin er úr Jöfri KE 17 sem þeir bræður gerðu út um árabil en varð að víkja á sínum tíma þegar miklar breytingar voru gerðar á skipinu. Af þessu tilefni fór fram stutt athöfn í húsnæði vélstjórabrautar- innar, þar sem skólanum var formlega afhent vélin ásamt fleiri gjöfum sem honum hafa borist, Kristófer Þorgrímsson gaf álags- hemil sem kemur sér vel við kennslu og einnig gaf Vélstjórafé- lag Suðurnesja 50 þúsund krónur. Til að hægt væri að nýta ljósavél- ina sem er af tegundinni Caterpill- ar, þurfti ýmsan búnað og gaf Hekla hf. í Reykjavík,- sem er umboðsaðili vélarinnar, ræsibún- að, hljóðdeyfi og mæla - og Sjóvá-Almennar gaf mæla í aðai- töflu. Ægir Sigurðsson skólameistari þakkaði gjafírnar fyrir hönd skólans og gat þess að skólinn væri orðinn ágætlega búinn tækj- um sem honum hefði áskotnast á undanförnum árum, þó margt vantaði í safnið enn. Líkti hann söfnun tækja að skólanum við söguna um naglasúpuna þar sem byijað var með einn nagla en að lokum var komin dýrindis súpa. BB Morgunblaðið/Bjöm Blöndal Óskar Jónsson fyrsti kennarinn og stundum kallaður faðir vél- stjórabrautarinnar kom til að gangsetja ljósavélina. Við hlið hans stendur Birgir Axelsson. Skóla- og fræðslumál íþrótta- og æskulýðsmál 4. fundur í fundaherferö Sjálfstæðisflokksins í Njarðvík verður í dag þriðjudaginn 10. apríl, kl. 20.30 í Sjálfstæðishúsinu í Njarövík. Málshefjendur: Gylfi Guðmundsson, skólastjóri, Stefán E. Bjarka- son, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi, Kristbjörn Albertsson, kennari. Allir áhugamenn um bæjarmál í Njarðvík eru hvattir til að mæta. Sjálfstæðisfélögin í Njarðvik. Almennur félagsfundur í Sjálfstæðisfélagi Kjalnesinga verður haldinn í Fólkvangi þriðjudag- inn 17. apríl kl. 20. Fundarefni: 1. Tillaga að starfsreglun fyrir D-listann í Kjalarneshreppi. 2. Framboðslistinn fyrir sveitarstjómarkosningarnar í vor. 3. Kaffiveitingar. 4. Önnur mál. Stjórnin. Rangárvallasýsla Aðalfundur Fjölnis, félags ungra sjálfstæðismanna í Rangárvalla- sýslu, verður haldinn í Laugafelli laugardaginn 14. apríl kl. 17.00. 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Önnur mál. Allt ungt sjálfstæðisfólk er hvatt til að mæta og taka þátt i starfinu. Stjórnin. I.O.O.F. Rb. 1 =1394108-M.A. □ EDDA 59901047 - 1 Atkv. □ HELGAFELL 59904107 VI2 □ HAMAR 59904107-Pskaf. □ SINDRI 59901047 - Fr. AD-KFUK Fundur í kvöld kl. 20.30 á Amt- mannsstíg 2b. Margrét og Helga Steinunn Hróbjartsdætur sjá um efni fundarins. Útivist Tunglskinsganga og fjörubál í Akurey. Fyrsta Úti- vistarferðin í eynna, sannkölluö ævintýraferð. Brottför frá Grófar- bryggju kl. 20.00. Verð kr. 500. Sjáumst. Útivist. IMIÍlMHlBBBmBMB——M— FERÐAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU 3 S: 11798 19533 Þriðjudagur 10. apríl kl. 20 Kvöldganga á fullu tungli - blysför. Gengið frá Moshlíð (í Hafnarfirði v. kirkjug.) um Flóttaveginn (Gamla Flóttamannaveginn) að Vífilsstaðahlíð og Vífilsstöðum. Áning við söng og kertaljós í Maríuhellum. Tilvalin fjölskyldu- ganga. Verð 400 kr., frítt f. börn 15 ára og yngri með foreldrum sínum. Blys kr. 100. Þetta verður sannkallað ævintýri á gönguför. Brottför frá Umferóarmiðstöð- inni, austanmegin (farþegar teknir á leiðinni). Verið velkomin! Ferðafélag Islands. L m Útivist Páskaferðir Snæfellsnes - Snæfellsjökull 12.-15. apríl. Góð gisting á Lýsuhóli. Sundlaug. Gönguferðir við allra hæfi, m.a. á jökulinn. Fararstjórar: Ingibjörg Ásgeirs- dóttir og Ásta Þorleifsdóttir. Verð: 5.500/6.000. Þórsmörk - Goðaland. 5 d. 12.-16. apríl, 3 d. 14.-16. apríl. Gönguskiðaferð. Gengið frá Merkurbrú í Bása. Séð um flutn- ing á farangri. Góð aðstaða í Útivistarskálunum í Básum. Fararstjórar: Reynir Sigurðsson og Rannveig Ólafsdóttir. Verð: 5.500/6.000 og 4.500/5.000. Gönguskíðaferð. Þingvellir - Hlöðufell - Haukadalur. 14.-16. apríl. Gönguskíðaferð fyrir fólk í góðri þjálfun. Fyrsta nóttin í tjaldi við Kerlingu, önnur í skála á Hlööuvöllum. Fararstjóri: Óli Þór Hilmarsson. Verð: 4.500/5.000. Undirbúningsfundur fyrir ferðina verður i kvöld þriðjud. 10. apríl á skrifst. Útivistar, Grófinni 1 og hefst kl. 20.30. Miöar i páskaferðirnar seldir á skrifst. Sími/símsvari 14606. í Útivistarferð eru allir velkomnir. Sjáumst! Útivist. FERÐAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU 3 S: 11798 19533 Dagsferðir um bænadaga og páska iímuamumaaMumMMMá Skirdagur 12. apríi kl. 13. a. Tröllafoss-Hrafnhólar. Létt ganga. Tröllafoss skoðaður í vetrarbúningi. Verð 800 kr. b. Skfðaganga á Mosfellsheiöi. Gott skíðagönguland við allra hæfi. Verð 800 kr. Föstud. langi 13. apríl ki. 13. Músarnes-Saurbær. Skemmti- ieg fjöruganga á Kjalarnesi. Til- valin fjölskylduferð. Verð 800 kr. Laugardagurinn fyrir páska, 14. apríl kl. 13. a. Óseyrarbrú-Stokkseyri-Garð- yrkjuskólinn. Fróðleg og fjöl- breytt ökuferð. Verð 1200 kr. b. Skiðaganga: Hveradalir-Hell- isheiði-Hveragerði. Hellisheiðin stendur fyrir sínu. Verð 1000 kr. Annar í páskum kl. 13. a. Búðasandur-Maríuhöfn. Strandganga í Hvalfirði. M.a. skoðaðar minjar um kaup- höfn frá 14. öld. Verð 1000 kr. b. Skíðaganga: Kjósarskarð- Meðalfellsvatn. Hressandi skíðaganga. Verð 1000 kr. Brottför í ferðirnar frá Umferðar- miðstöðinni, austanmegin. Fritt fyrir böm með foreldrum sínum. Nýtið páskana til útiveru með Ferðafélaginu. Veriö velkomin! Við minnum á að afmælisgangan i tilefni 60 ára afmælis Hvítárnes- skála hefst eftir 2 vikur (22. apríl). Ferðafélag íslands. áliiiiUiUiUUiiilitiii FERÐAFÉLAG # ÍSLANDS ÖLDUGÖTU 3 & 11798 19533 Ferðafélag íslands Fjölbreyttar Ferðafélags- ferðir um páskana 1. Snæfellsnes-Snæfellsjökull, 3 dagar (12.-14. apríl). Jökulgangan og hin fjöl- breytta strönd undir Jökli er að sjálfsögðu aðalaðdráttar- afl ferðarinnar, en ekki síður frábær gistiaðstaða i svefn- pokaplássi á Görðum í Stað- arsveit. Skipulagðar göngu- ferðir, um fjöll og strönd, við allra hæfi. Kvöldvaka. Stutt í sundlaug. Fararstj. Kristján M. Baldursson og Ásgeir Pálson. 2. Landmannalaugar, skíða- gönguferð, 5 dagar (12.-16. apríl). Gengið frá Sigöldu, 6-7 klst. Séð verður um flutning á far- angri. Það er ógleymanleg upplifun að kynnast Land- mannalaugum í vetrarbún- ingi. Fararstj. Jón Gunnar Hilmarsson og Daði Garðars- son. Brottför skírdagsmorg- un kl. 08.00. áUÉUtUiWiUUUtiiÉ 3. Páskaganga í Þórsmörk, 3 dagar (14,- 16. apríl). Geng- ið verður á skíðum frá Merk- urbæjunum inn í Langadal. Góð gisting í Skagfjörðs- skála. Pantið strax i ferðirnar. Sætum fer fækkandi. Skrifstofan á Öldugötu 3 er opin alla virka daga frá kl. 9-17. Við minnum ennfremur á dags- ferðir um bænadaga og páska. Nánari upplýsingar um ferðirn- ar á skrifst. Pantið tímanlega. Páskaferðirnar sem og aðrar Ferðafélagsferðir eru fyrir fólk á öllum aldri. Verið með! Ferðafélag Islands. Ymíslegt Trésmiðurinn Simi 91-40379 á kvöldin. istendingur óskast Danskur kennari, sem dvelur hér í nokkra mánuði, óskar eftir karli/konu, íslending 2-3svar í viku til æfinga i talmálinu (radio & TV). Simi 36021.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.