Morgunblaðið - 10.04.1990, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRIL 1990 .
39
Mannrán á aðalfundi SFR
eftir Asgeir R.
Helgason
Það er merkilegt að verða fyrir
þeirri lífsreynslu að vera kyrrsettur
með valdi á félagsfundi í almennu
félagi. Það er líka merkilegt að
verða fyrir þeirri heimsku að menn
skuli neyddir til þess að hlýða á
hrútieiðinlegar ræður í kiukkutíma
í reykmettuðum og daunillum salar-
kynnum til þess eins að fá að neyta
atkvæðaréttar síns í lýðræðislegu
félagi.
Píslargangan hefst
Mín sorgarsaga hófst eiginlega á
því að ég var svo óheppinn að vera
að vinna um kvöldið þegar kjósa
átti í stjórn Starfsmannafélags
ríkisstofnana þar sem ég er félags-
maður. Ég gat ekki séð þetta fyrir
og hafði því enga möguleika á að
kjósa utan kjörstaðar. Því reyndi
ég að sæta lagi rétt fyrir kl. 21 og
skreppa á aðalfundinn svona rétt
til að nota kosningaréttinn. Nú, ég
kem inn í vel heit_ og reykmettuð
salarkynni Hótels Islands þar sem
fundurinn var haldinn og í granda-
leysi gef ég mig fram við kjörnefnd
og fæ afhent kjörgögn. Þetta hefði
ég betur látið ógert því með þessu
hafði ég óafvitandi undirritað tíma-
bundna frelsissviptingu eða firrt
mig rétti til að greiða atkvæði í
félaginu ella.
Með þaninn kassann
Iivernig þá, spyijið þið. Jú, þann-
ig var að ég uppgötvaði það mér
til sárrar hrellingar að sjálf at-
kvæðagreiðslan átti ekki að fara
fram fyrr en klukkutíma síðar og
ég, maður í vinnu, sá náttúrulega
í hendi mér að ég hafði hlaupið á
mig með að vera að mæta þarna
of snemma. Því hugðist ég nota
tímann fram að kosningu, enda
hafði ég mælt mér mót við fólk
útaf minni vinnu kl. 21.30 og þótt
skítt að þurfa að svíkja það stefnu-
mót. En þegar ég hugðist yfirgefa
reykjarkófið vatt sér að mér vörpu-
legur maður í einkennisbúningi og
spurði hvasst: Hvert ert þú að fara
vinur? Ég horfði á manninn ráðvillt-
ur og hissa, nú út, svaraði ég með
spurn í röddinni enda vanari því að
dyraverðir meinuðu mér að komast
inn á skemmtistaði frekar en út.
Ut, nei góði minn, héðan fer enginn
út fyrr en búið er að kjósa. Nú var
mér öilum lokið. En hvað ef ég
ætla nú ekki að kjósa sagði ég svona
rétt til að klóra í bakkann. Eða
ertu að segja mér að ég sé hér í
fangelsi góði maður, bætti ég við
til að sýnast örlítið borubrattur.
r \
HITASTILLT
MORATERM blöndunar-
tæki með sjálfvirkri hita-
stillingu og öryggis-
hnapp, sem takmarkar
hitastig við 38 C.
Mora sænsk gæðavara
fyrir íslenskar aðstæður.
Fást í byggingavöruverslunum.
^ meiri ánægja^
.iióaBrnA 'iöb
Nú kom örh'tið á dyravörðinn svo
hann vatt sér að mjög svo valds-
mannslegum manni sem var að því
mér skildist í kjörstjórn og spurði
hann ráða. Nei, þú ferð ekki héðan
út nema afhenda mér kjörgögnin
svaraði valdsmannslegi maðurinn
og þandi út brjóstkassann svona
rétt til að sýna að hann gæti nú
alveg ráðið við mig ef ég ætlaði að
æða út án hans leyfis. Ég leit á
brjóstkassann og dyravörðinn og
mér skildist að út kæmist ég aldrei
að minnsta kosti ekki í heilu lagi
nema að skila sneplunum. Þá það
hugsaði ég það er best að ná í snepl-
ana, en þá hafði ég skilið eftir hjá
kunningja mínum inni í salnum til
varðveislu á meðan ég sinnti minni
plikt. Sneplarnir voru sóttir og aftur
gengið fyrir kjörstjórn.
Má ég ekki skila þessum gögnum
hér og fá önnur þegar ég kem aftur
í húsið, spurði ég ábúðarmikla konu
sem var vandlega merkt kjörstjórn.
Þú getur skilað gögnunum ef þú
vilt sagði hún með frekjutón í rödd-
inni en þá eru þau bara ógild og
þú færð ekki önnur gögn. En, sagði
ég og reýndi að útskýra fyrir kon-
unni að ég væri í vinnunni og hefði
óvart meldað mig inn of snemma
vegna misskilnings. Nei, kemur
ekki til mála og þar með var það
afgreitt mál.
Að líða fyrir lýðréttinn
Ég varð því annað hvort að velja
á milli þess að fara af fundi, skila
kjörgögnunum (sem ég blessunar-
lega fann) og fyrirgera þar með
rétti mínum til að kjósa eða sitja
Ásgeir R. Helgason
inni í alltof heitum fundarsal fullum
af krabbameinsvaldandi svitalykt
og hlusta á endalausa lofræðu frá-
farandi formanns um sjálfan sig,
til að fá að kjósa. Að ekki sé talað
um að svíkja þá skjólstæðinga mína
sem ég hafði lofað að hitta þá um
kvöldið. Það var svo til að bæta
gráu ofan á svart að ájá fólk sem
hafði haft vit á því að mæta ekki
á staðinn fyrr en rétt fyrir kosn-
ingu, fá sín kjörgögn án fyrirstöðu.
Nú var minn maður orðinn svo reið-
ur út í þessar heimskulegu kosn-
ingareglur að hann ákvað að þrauka
fundinn þó ekki væri nema til þess
að fá tækifæri til að kjósa ekki frá-
farandi stjórn ef vera skyldi að
Þú getur lækkað
fargjaklið þitt
Innlegg í ferðasjóðinn
1000 krónur
Handhafi þessa seðils sparar sér 1000 krónur
ef hann staðfestir ferð til Costa del Sol,
Mallorka eða Algarve í Portúgal fyrir 1. maí.
Hver einstaklingur getur skilað einum miða
þannig að fimm manna fjölskylda sparar sér
fimm þúsund krónur o.s. frv.
Ekki skiptir máli hvenær sumars ferðirnar
eru farnar.
Fylgist með augiýsingum okkar á
næstunni til að fá fleiri miða.
URVAL-UTSYN
Oriigg þjóniuita um allan heim
Álfabakka 16, simi 60 30 60 og Pósthússtræti 13, simi 26900.
i
-----r~r
Oö A8 sa :IMI3
nýtt fólk hefði þann snefil af greind
sem þarf til að sjá til þess að slíkur
skrípaleikur endurtaki sig ekki.
Allt er gott sem ...
Jæja, hugsaði ég það er best að
bíða eftir úrsiitum kosninganna og
sjá hvort ég hafi haft erindi sem
erfiði. Nú ég beið til klukkan hálf
þijú um nóttina og þá loksins voru
úrslitin kynnt. Viti menn mitt fólk
hafði borið sigur af hólmi, hvílíkur
léttir. Ég verð þó að viðurkenna að
ég kenndi svolítið í bijósti um frá-
farandi formann sem hefur að baki
langt .og oft á tíðum vanþakklátt
og óeigingjarnt starf. Ég held að
við stöndum öll í þakkarskuld við
Einar og vona að hann fái verðugan
stall í sögu félagsins okkar. En nú
eru nýir tímar og nýtt afl hefur
tekið við stjórnartaumunum og þá
er bara að vona að ég þurfi aldrei
aftur að ganga í gegnum þær hörm-
ungar að þurfa að sitja heilan aðal-
fund í svita og kófi til þess eins að
fá að neita minna sjálfsögðu lýðrétt-
inda.
Höíundur er upplýsinga.fulltrúi og
félagsmaður í Starfsmannafélagi
ríkisstofnana.
'
Loftpressur
margar gerðir
Hagstætt verð
Olíufélagið hf
681100
Sambyggðar
trésmíðavélar
Bandsagir
Spónsagir
Rennibekkir
Yale
LYFTARAR
YALE lyftari ef þú
ætlar að kaupa lyftara
fyrir framtíðina
ARVIK
ÁRMÚU 1 -REYKJAVlK- SlMI 687222 -TELEFAX 687296
pV
CB FORHITARAR
MIÐSTÖÐVARHITARAR
og
NEYSLUVATNSHITARAR
Mest seldu FORHITARAR
landsins
ÁVALLT TIL
Á LAGER
LANDSSMIÐJAN HF.
Verslun: Sölvhólsgötu 13
Simi (91)20680
Hvaðer
Armaflex
Það er heimsviðurkennd
pípueinangrun í hólkum,
plötum og límrúllum frá
Armstrong’
% Ávallt til á lager.
Þ. ÞORGRÍMSSON & CO
Ármúla 29 - Múlatorgi - Simi 38640
Kork*o*Plast
GÓLF-GLJÁI
Fyrir PVC-filmur,
linoleum, gúmmí, parkett
og steinflísar.
Notið aldrei salmiak eða
önnur sterk sápuefni á
Kork*o*Plast
KinksunnboA ú íslandi:
ÁÞORGRlMSSON&CO
Ármúla 29, Múlatori’i. s. 3S640.