Morgunblaðið - 10.04.1990, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 10.04.1990, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRIL 1990 43 Þungt er það höfuð sem kórónu ber! eftirJónas Þorsteinsson Eftir að hafa siglt breska farþega- skipinu „Queen Elizabeth 11“ gegn- um Panama-skurðinn nýlega og sam- dægurs heyrt í „Útvarp Reykjavík" á 15767 kHz að Bretadrottning kæmi til íslands í sumar, fór ég að íhuga, hve mörg okkar vita að for- sætisráðherra Englands, frú Margar- et Thatcher, hefur ekki mestu völdin þar — heldur hennar konunglega hátign Elizabeth II af guðs náð drottning Bresku samveldisland- anna, Englands og Norður-írlands. Erkibiskupinn skipar hún og til ridd- ara slær hún breska þegna er fram úr öðrum skara. Herinn er henni eið- svarinn, en ekki ríkisstjóminni. Þjóð- réttarlega getur drottningin rekið forsætisráðherrann og neitað að skrifa undir lagaskipanir frá þinginu. Hún hefur ekki notfært sér þetta vald — neitunarrétti konungs hefur ekki verið beitt í þinginu síðan 1707. Bretar eru enn „gamaldags" í mörgu, þótt þeir séu einhver mesta menning- arþjóð veraldar. Hennar hátign greiðir ekki skatta, þótt hún fái sem svarar 645 milljónum íslenskra króna í árslaun, ásamt öðrum hlunnindum. Kaup þetta verður drottningin að nota til uppihalds og viðhalds á Buck- ingham-höllinni, Windsor-kastala, konunglega skemmtiskipinu „Britt- anica“ og nokkrum öðrum eignum. England er eitt vinsælasta ferða- mannaland í Evrópu, einmitt vegna konungdæmisins. Fólk um víða ver- öld fylgist betur með hennar hátign og fjölskyldu en frægustu kvik- myndaleikurum. Þegar Karl ríkiserf- ingi og lafði Díana giftust, varð hreinn hagnaður ríkissjóðs af öllu sem inn kom í sambandi við brúð- kaupið um 484 milljónir íslenskra króna. Vegna þess hve kóngahaldið er arðvænlegt, mun engum rétt Jónas Þorsteinsson „Forsætisráðherra Englands, frú Margaret Thatcher, er ekki valdamest þar.“ hugsandi í þinginu koma til hugar að beita sér fyrir niðurlagningu þess. Hennar hátign Elizabeth II hefur boðist til að segja af sér, hvenær sem þegnarnir óska. Það er manna sögn að drottningin sé margfaldur milljón- eri í enskum pundum, en í rauninni á hún ekki allt, sem henni er talið. Hún á ekki konunglegu skartgripina, sem geymdir eru í „Tower of Lon- don“, ekki heldur gífurlegt safn dýr- mætra listaverka, kastala o.fl. Ef hún segði af sér, mundi ofan nefnt renna beint í ríkiskassann. Með okkar frægu gestrisni skulum við gera drottningunni íslandsferðina ógleymanlega! lliifiimlur eryfirlóðs við Panama-skurð. SœÍkerans Akureyrí: Hólabúðin. Verslunin Þorpið. Shell-nesti - Hörgárbraut. Söluturninn Esja. Verslun Sig. Fanndal, Siglufirði. Kaupfélag Skagfirðinga, Varmahlíð. Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðárkróki. Ábœr, Sauðárkróki. Verslunin Tindastóll, Sauðárkróki. Verslun Haraldar Júlíuss. Sauðárkróki. Vöruhús Hvammstanga. Staðarskáli Hrútafirði. Kaupfélag Húnvetninga, Skagaströnd. Kaupfélag Húnvetninga, Blönduósi Verslunin Vísir, Blönduósi. Esso Blönduósi Verslunin Dalakjör, Búðardal. Setta, Stykkishóbni. Verslunin Hólmkjör, Stykkishólmi. Essoskálinn, Flateyri. Verslunin Grund, Grundafirði. Verslunin Kassinn, Ólafsvík. Kjörbúðin, Hellissandi. Verslunin Suðurver, Suðureyri. Hamraborg hf. ísafirði. Söluturninn Vitinn, ísafirði. Kaupfélag Borgfirðinga, Borgarnesi. Verslunin Skagaver, Akranesi. Verslunin Grundaval, Akranesi. K.Á. Selfossi. Verslunin Höfn, Selfossi. Ólabúð, Eyrarbakka. Söluskáli, Landvegamótum. Söluskálinn Björk, Hvolsvelli. Staðarkjör, Grindavík. Söluturninn Braut, Grindavík. Samkaup, Njarðvík. Kaupfélag Suðurnesja, Sandgerði. K.Á. Vik. K.Á. Kirkjubœjarklaustri. K. Kristmanns, Vestmannaeyjum. KASK, Höfn Hornafirði. KASK, Djúpavogi. Snekkjan, Fáskrúðsfirði. Melabúðin, Neskaupstað. Verslunarfélag Austurlands, Egilsstöðum. Kaupfélag Þingeyinga, Húsavík. Reykjavík og nágrenni: Kjötstöðin, Glœsibœ. Plúsmarkaðurinn, Vesturbergi. Plúsmarkaðurinn, Álfaskeiði. Plúsmarkaðurinn, Grímsbœ. Plúsmarkaðurinn, Sporhamrar. Verslunin Austurstrœti 17. Vínberið Laugavegi. Söluturninn Grímsbœ. Söluturninn Iðufelli 14. Söluturninn Lœkur, Lœkjargötu. Sölutúrinn Barmahlíð 8. Lóukjör, Kópavogi. íslensk dreifíng sími 68 73 74 Mikilvæg undirstaða -felst í þessu litla hylki Ef líkama þinn vantar réttu bætiefnin er hætt við að ýmislegt fari úrskeiðis. Hvernig gengur að vakna á morgnana? Hvað með námsgetuna, þrekið, skapið, hárið, húðina og neglurnar? Þú getur tryggt líkamanum rétta undirstöðu með Magnamín bætiefnahylkjunum. ■ Taktu góða Magnamínlotu - með morgunmatnum Magnamín með morgunmatnum - treystir undirstöðuna. yy. * NtaraMiabK Hftt&NO AUGtÝSINGASTOfA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.