Morgunblaðið - 10.04.1990, Qupperneq 48
48
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 1990
M!Ð HJÓLUM
FYRIR PARKETT j
OG DÚK
skapar betra andrúmsloft," segir
Guðmundur.
„Ég held meira að segja að ég
hafi mikið til byijað að æfa til að
geta kíkt á strákana,“ segir Inga.
„Ég byijaði að æfa með systur
Ivars Haukssonar, sem keppti á
mótinu. Hún hætti en ég hélt
áfram og skipulegar æfingar
hjálpuðu mér að losna við
bakmeiðsli sem höfðu hijáð mig
eftir að ég mejddi mig í
djassballett. Áður en ég ákvað að
fara í vaxtarræktina hafði ég æft
dans meira og minna frá þriggja
ára aldri.“
Leið Guðmundar inn í
vaxtarræktina var með öðrum
hætti, óánægja og
minnimáttarkennd vegna eigin
vaxtarlags ýtti honum fyrst út í
venjulega líkamsrækt. „Fyrir sex
árum var ég horaður, 62 kíló að
þyngd með innfallinn bijóstkassa
og signar axlir. Ég fór með
tveimur kunningjum, sem síðar
hættu en ég sá fíjótlega árangur
sem varð mér hvatning. Síðar
ákvað ég að byija á raunverulegri
vaxtarrækt, sem krefst meira
erfiðis, enn betra mataræðis og
aga en almenn líkamsrækt. Alltof
oft er þessu tvennu ruglað
saman,“ segir Guðmundur.
Ekkikvenkyns
vatröll
„Ég held að einmitt þess vegna
hræðist margar stelpur að þjálfa
líkama sinn með líkamsrækt. Þær
halda að vöðvarnir vaxi þeim upp
fyrir haus á fyrstu æfingu. Það er
útbreiddur misskilningur að þjálfun
geri kvenfólk karlmannlegt. Réttar
æfingar og mataræði skila bara
spengilegum kroppi, ekki kvenkyns
vöðvafjöllum. Það er frekar að þú
laðir kvenleikann fram en hitt, svo
er aftur spurning hvað þú vilt fara
langt í þjálfun líkamans. Sjálf ætla
ég ekkert að bæta á mig vöðvum
heldur fínstilla þann grunn sem ég
hef og ég hef æft eins og vaxtar-
ræktarmaður, ekki venjulega lík-
amsrækt. Samt er ég ekki neitt
vöðvatröll. . .“ segir Inga.
Guðmundur bætir við: „Annar
misskilningur varðandi þjálfun með
lóðum er sú að hætti menn að æfa
breytist vöðvarnir i fitu. Slíkt gerist
ekki en vöðvarnir rýrna. Hins vegar
ef menn borða óhóflega eftir ?ð
hafa hætt æfingum, þá kemur
fitan, en vöðvar breytast aldrei í
fitu. I vaxtarrækt sem slíkri eru
menn mun agaðri varðandi
mataræði en í öðrum íþróttum, þar
sem kæruleysi ræður oft ríkjum.
Við borðum sjaldan brasað kjöt eða
þungt fæði, það skilar sér bara í
þyngslum og sleni. Ferskur fiskur,
grænmeti og trefjaríkt fæði skilar
mestri vellíðan. Þess vegna hafa
læknar lagt áherslu á neyslu slíkrar
fæðu síðustu ár.“
Uppbygging án
móna
Neysla annars konar efna til að
byggja upp líkamann hefur verið
mikið í umræðu og ósjaldan er látið
liggja að því að lyftinga- og vaxtar-
ræktarmenn almennt taki hormóna
til að skila fyrr árangri. Um þetta
segir Guðmundur: „Umræðan hefur
einkennst af miklum ranghugmynd-
um hérlendis. Ég þekki ekki af eig-
in reynslu íslensk dæmi um hormón-
aneyslu. Þó þetta þekkist hjá er-
lendum íþróttamönnum og hafi
mikið verið rætt eftir að upp komst
um fijálsíþróttamanninn Ben Jo-
hnson. I heimsmeistara- ogEvrópu-
meistaramótum í vaxtarrækt sem
dæmi eru menn skoðaðir og vísað
úr keppni ef upp kemst um hormón-
aneyslu. Ég tel enga þörf á slíkum
efnum, menn geta byggt sig upp
með góðri fæðu og vítamínum, án
allrar áhættu. Upphafsmaður vaxt-
arræktar í heiminum, Ben Weider,
berst nú t.d. fyrirþví með bandar-
ískum þingmanni að fá það í lög
að notkun og eign hormónaefna
hafi í för með sér sömu refsingar
og neysla og sala heróíns eða kóka-
íns. Það yrði stórt skref til að
hreinsa íþróttaheiminn af þessari
skömm.“
Sigur Guðmundar í
vaxtarræktarmótinu á að miklu
leyti rætur að rekja til þess að
samræmi milli líkamshluta hans er
í eðlilegu jafnvægi. „Ég hef ekki
þurft að hafa mikið fyrir því að ná
þessu marki. Þetta virðist vera mér
eðlislægt að vöðvarnir raðist á rétta
staði. En það er gaman hve mikið
er hægt að stýra eigin
líkamsbyggingu með því að taka
ákveðna vöðvahópa fyrir á
æfingum," segir Guðmundur.
„Núna hefur orðið sú breyting í
mótum um allan heim að
samræming skiptir meira máli en
vöðvamassi. Þegar Arnold
Schwarzenegger var upp á sitt
besta skiptu vöðvamiröllu máli,
ekki samræmi. Schwarzenegger
samsvarar sér því mjög illa, hefur
veigalítil læri miðað við risavaxinn
búkinn. Ég hef í raun verið heppinn
hve náttúrulega þetta hefur raðast
á mig, en ég hef þyngst um 24
kíló frá því ég steig fyrst inn í
líkamsræktarstöð, án fitu vel að
merkja.“
Unglingar og öldungar
æfa saman
„Eitt sem fer í taugarnar á okk-
að er mjög óvenjulegt að kær-
ustupar vinni til íslands-
meistaratitils í sömu íþrótt. Þetta
afrekuðu þó Guðmundur Bragason
og Inga S. Steingrímsdóttir þegar
þau sjógu andstæðingum sínum
við í Islandsmótinu í vaxtarrækt.
Fyrstu kynni þeirra voru einmitt
í kringum vaxtarræktarmót á
Akureyri. Síðan leiddi eitt af öðru,
þau trúlofuðu sig ári síðar og hafa
búið saman tvö síðustu ár. Inga
nemur íþróttafræði í Fjölbrauta-
skólanum í Breiðholti en Guð-
mundur vinnur hjá íjölritunarstof-
unni Emm-Offsett.
Þau hafa æft saman í'
líkamsræktinni í Borgartúni og þó
muni nær helming á þyngd
lóðanna, sem þau lyfta til að
byggja upp vöðvana, hefur
samvinnan skilað árangri —
íslandsmeistaratitli beggja. „Það
er hvetjandi að æfa með
kvenmanni og ég held að öllum
sem æfa líkams- eða vaxtarrækt
þyki þægilegt að hafa gagnstæða
kynið nærri á æfingum. Það
...............,mi----------------
Styrkur Guðmundar liggur í góðu samræmi milli likamshluta, ekki
miklum vöðvamassa, sem þó er ærinn miðað við venjulegan mann ...
lieikvSíÆ)-1
fetiitgargjöf
Þessi stóll styður vel við bakið og gætir þess að
þú sitjir rétt. Hann er með léttri hæðastillingu,
veltanlegu baki, fimm arma öryggisfæti og með
hjólum fyrir parkett og dúk.
Þetta er góö
fermingargjöf
cnuu
Hallarmúla 2 Sími 83211
Söluaöili Akureyri, Tölvutœki — Bókval.
KONGAFOLK
Hillii* undir nýja Danaprinsessu
Þessa dagana er mikill taugatitringur hjá frændum okkar Dönum,
því álitið er að Jóakim prins sé í þann mund að opinbera trúlofun
sína og hinnar 23 ára gömlu Iben Detlev. Margrét Danadrottning
hefur bætt Iben á gestalistann fyrir fimmtugsafmælið 18. apríl næst-
komandi og bendir það til þess að ungfrúin hafi fengið „grænt ljós“
frá konungsijölskyldunni, þar sem aðeins nánustu ættingjar og vinir
verða viðstaddir afmælishófið. Iben er ljósmyndafyrirsæta og hafa þau
Jóakim þekkst í tvö ár. Hefur verið heldur hljótt um samband þeirra
í seinni tíð, en nú skelfur allt og nötrar, því nú hillir undir nýja Dana-
prinsessu. Það er búið að margspyija Iben síðustu daga hvort hún sé
ekki taugaóstyrk, en hún harðneitar því og segist aðeins vera
„spennt". Hún segir að hún hafi dregið mjög saman seglin í fyrirsætu-
störfunum og vinni nú einnig fyrir sér á lögmannsskrifstofu. Kvöld-
skóla stundar hún einnig og stefnir á stúdentsprófið. {j)en uetlev
félk í
fréttum
VAXTARRÆKT
Iþrótt en ekki
fegiiröaisamkeppni