Morgunblaðið - 10.04.1990, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 1990
55
Bjarni Jónsson og Astrid Ellingsen.
Sauðárkrókur:
Bjamí og Astrid sýna
BJARNI Jónsson, listmálari og
Astrid Ellingsen, prjónahönn-
uður, opna sýningu á verkum
sínum á fimmtudag, skírdag, í
Safnahúsinu á Sauðárkróki.
Sýningin verður opnuð klukkan
14 og verður opin alla daga frá
klukkan 14-19, en síðasti sýning-
ardagur verður 2. í páskum.
Bjarni Jónsson sýnir olíumál-
verk, vatnslitamyndir ogteikning-
ar, en Astrid sýnir prjónakjóla,
þar á meðal skírnarkjóla.
Átak til bættrar innheimtu virðisaukaskatts:
Almenningur hvattur til að
fylgjast með að reglum sé fylgt
HAFIÐ er átak fjármálaráðupeytisins og ríkisskattsljóra til þess að
bæta skil á virðisaukaskatti. Atakið beinist að því að upplýsa almenn-
ing og hvetja hann til að fylgjast með að reglum sé fylgt þegar keypt
er vara og þjónusta. „Með þessu kynningarátaki treystum við því að
í lýðræðisþjóðfélagi muni hver og einn taka þátt í þessu verki af því
að hér er um að ræða fjárnuini sem almenningur í landinu á sjálfúr,
þetta eru fjármunir úr hinum sameiginlega sjóði landsmanna," sagði
Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra, þegar átakið var kynnt.
BÍSN mótmælir breytt-
um úthlutunarreglum LÍN
AÐALFUNDUR Bandalags
íslenskra sérskólanema var liald-
inn sunnudaginn 25. mars síðast-
liðinn. í BÍSN gekk nýtt aðildarfé-
lag, nemendafélag Samvinnuhá-
skólans á Bifröst. Alls eru um
3.500 félagar úr 16 sérskólum í
BÍSN.
A fundinum var kosin ný fram-
kvæmdastjórn tii eins árs. Hana
skipa: Ólafur Loftsson forrn. úr
Kennaraháskólanum, Atli Georg
Lýðsson varaform. úr Kennarahá-
skólanum, Gunnhildur Jóhannsdóttir
ritari úr Þroskaþjálfaskólanum, Stef-
án Jeppesson gjaldkeri úr Iðnskólan-
um, Þorlákur Björnsson, Samvinnu-
skólanum, Kristján Þorsteinsson,
Stýrimannaskólanum, og Sóley
Ægisdóttir meðstjórnendur.
A fundinum var samþykkt ályktun
varðandi skerðingartillögur mennta-
málaráðherra og er hún svohljóðandi.
Aðalfundur BÍSN haldinn 25.
mars 1990 fordæmir harðlega tillög-
ur menntamálaráðherra varðandi
breytingar á úthlutunarreglum LÍN
um skerðingu á námslánum.
I lögum um lánasjóðinn segir að
námslánin skuli nægja hvetjum
námsmanni til að standa straum af
eðlilegum náms- og framfærslu-
kostnaði þegar eðlilegt tillit hefur
verið tekið til fjölskyldustærðar,
framfærslukostnaðar þar sem nám
er stundað, tekna námsmanns og
maka hans, lengdar árlegs námstíma
og annarra atriða er áhrif kunna að
hafa á fjárhagsstöðu námsmanns.
Námslánin í dag nægja ekki hveij-
um námsmanni til eðlilegrar fram-
færslu. Engur að síður ætla ríkis-
stjórnarfulltrúar lánasjóðsins að af-
greiða nýjar úthlutunarreglur sem
hljóða upp á 130 milljóna króna nið-
urskurð á útlánum sjóðsins. Þetta
kemur illa niður á meginþorra nárns-
manna. Því skorar aðalfundur BÍSN
á Svavar Gestsson menntamálaráð-
herra að endurskoða afstöðu sína til
niðurskurðar námslánanna og standa
þess í stað við fyrri loforð.
Áætlað var að 2,5 til 3 milljarðar
króna innheimtust í gær, fyrsta
gjalddaga virðisaukaskatts.
Kynningarátakið á að fara fram
með tvennum hætti, • annars vegar
verður fræðslu um sjóðvélar, það er
löglega búðarkassa, komið á fram-
færi við neytendur og aðila viðskipt-
alífsins með auglýsingum í blöðum
og sjónvarpi, hins vegar munu
starfsmenn ríkisskattstjóra kanna
ástand og notkun sjóðvéla á nokkr-
um stöðum og líta til með nótuvið-
skiptum.
Sjóðvélarnar eiga að hafa glugga
sem sýnir verð vöru og á hann að
vera sýnilegur viðskiptavininum.
Hver viðskiptavinur á að fá í hendur
dagsettan strimil sem sýni verð
keyptrar vöru og þegar afgreiðsla
hefst á kassinn að vera lokaður og
honum á að loka þegar afgreiðslu
lýkur.
Nótur eiga að vera tölusettar,
nafn seljanda, virðisaukaskattsnúm-
er hans og kennitala eiga að koma
fram og þar á að taka skýrt fram
fyrir hvað greiðslan kemur og upp-
hæð virðisaukaskattsins á að koma
fram sérstaklega.
Ólafur sagði að vart hefði orðið
við að ekki sé öllum kunnugt um
að verslanir eða söluaðilar þurfi að
uppfylla þessi skilyrði. „Það er nokk-
uð mikið um afgreitt sé upp úr opn-
um kassa, þannig að innstimplanir
eigi sér ekki stað og kassanum sé
ekki lokað í hvert sinn og hringingin
heyrist ekki,“ sagði hann.
Ólafur var spurður hvað við-
skiptavinurinn eigi að gera ef þessi
atriði eru ekki í lagi. „Þá á hann
að hafa samband við skattyfirvöldin,
það er ríkisskattstjóraembættið,
skattstjóraembættið og fulltrúa
skattrannsóknarstjóra og tilkynna
um það sem hann hefur orðið var
við, eða benda viðkomandi fyrirtæki
á.að ekki sé farið eftir settum regl^
um,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson.
IsaQörður:
Drógn framboð til
baka vegna ágreinings
Isafírði.
SJÁLFSTÆÐISMENN á ísafirði efndu til prófkjörs fyrr í vetur um
framboðslista sinn til bæjarstjórnarkosninganna í vor. Tólf aðilar tóku
þátt í prófkjörinu og fengu fimm þeirra bindandi kosningu í jafiimörg
sæti. -**
Ólafur Helgi Kjartansson fékk
afgerandi kosningu í fyrsta sætið.
Hans Georg Bæringsson og Sigrún
Halldórsdóttir fengu jafnmörg at-
kvæði í annað sætið, Einar Garðar
Hjaltason náði kjöri í fjórða ogHelga
Sigmundsdóttir í það fimmta. I sjötta
sæti var Kristján Kristjánsson en
hann vantaði eitt atkvæði til að ná
bindandi kosningu. Kjörnefnd ákvað
að binda ekki kjörfylgi annarra
frambjóðenda.
Listinn var borinn fram á fulltrúa-
ráðsfundi flokksins sl. miðvikudag.
Samtök fiskvinnslustöðva:
Flest fiskvinnslufyrir-
tæki rekin án hagnaðar
MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi ályktun stjórnar
Samtaka fiskvinnslustöðva. Þar eru átalin harðlega þau sjónarmið
opinberra aðila að verðhækkanir á sjávarafurðum erlendis stefhu
stöðugleika atvinnulífsins í hættu:
.„Stjórn Samtaka fiskvinnslu-
stöðva átelur harðlega þau sjónar-
mið sem fram hafa komið af opin-
berri hálfu, bæði frá stjórnmála-
mönnum og embættismönnum,
um að verðbreytingar á sjávaraf-
urðum erlendis stefni stöðugleika
atvinnulífsins í hættu. Nefnt er
að jafnvel þyrfti að hækka gengi
eða taka stórfelldar fjárhæðir i
Fatlaðir fái hjálpar-
menn á ferðalögum
Á STJÓRNARFUNDI Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra, sem
haldinn var 16.-17. mars sl., var þeirri hugmynd beint til Öryrkja-
bandalags Islands að stofnaður verði sjóður á vegum þess er hafi
það hlutverk að veita fé til að greiða kostnað vegna hjálparmanna
fatlaðra á ferðalögum.
í ályktun fundarins segir að sam-
eiginlegt sé mörgum félagsmönnum
aðildarfélaga ÖBÍ að þeir geti ekki
ferðast einir, en sjaldan er á færi
einstaklinga að bera þann kostnað
er hlýst af ferð fylgdarmanna.
Mótmælt var á fundinum harð-
lega þeirri ákvörðun daggjalda-
nefndar að setja þak á halladag-
gjöld vegna rekstrar Vinnu- og
dvalarheimilis Sjálfsbjargar.
Fundurinn lýsti yfir ánægju með
að kominn sé skriður á endurskoðun
laga um almannatryggingar og
lagði Tíká áherálú á' unitæsvérða;
6 .osl:el i/ ] ‘tila; iirov I.
hækkun örorkubóta, jafnframt því
sem hlutfall lífeyris af heildarbótum
hækki verulega.
Þá lagði fundurinn áherslu á að
frumvarp til laga um félagsþjónustu
sveitarfélaga verði lagt fram á yfir-
standandi löggjafarþingi og lýsti
þeirri afstöðu að rétt sé að samráðs-
nefnd um málefni fatlaðra haldi
áfram störfum. Nefnd þessi hefur
á undanförnum árum sinnt sérstak-
lega atvinnumálum fatlaðra, m.a.
með ráðstefnuhaldi og útgáfu bækl-
inga.
Verðjöfnunarsjóð til að draga úr
þensluáhrifum verðbreytinganna.
Yfirlýsingar þessar sæta furðu
og opinbera vanþekkingu á stöðu
fiskvinnslufyrirtækja. Þótt nokkr-
ar verðhækkanir hafi orðið, aðal-
lega á saltfiski, eru fiskvinnslufyr-
irtæki flest rekin án hagnaðar um
þessar mundir.
Staða fiskvinnslufyrirtækja er
slík að fjölmörg gjaldþrot hafa
orðið á liðnum mánuðum og opin-
berir sjóðir eru orðnir meirihluta-
eigendur og rekstraraðilar að fisk-
vinnslufyrirtækjum víða um land.
Miklar skuldbreytingar voru
gerðar á liðnu ári í kjölfar gífur-
legs taprekstrar sem að mestu var
afleiðing rangrar gengisskráning-
ar, en fjármagnskostnaður vinnsl-
unnar vegna þessa taps kemur
hvergi fram í opinberum afkomu-
tölum um rekstur.
Þegar kemur að gjalddögum
afborgana versnar greiðslustaðan
enn frekar. Ef borð verður fyrir
báni í rekstrinum í ár, er biýnasta
verkefnið að lækka skuldir fisk-
vinnslufyrirtækja.
Til að lækka skuldir verða fyrir-
tækin, þrátt fyrir aflasamdrátt og
hátt hráefnisverð, að hagnast
verulega á næstu árum og stöðva
fjárfestingar nær algerlega að frá-
talinni vinnu vegna hagræðingar
í rekstri. Fiskvinnslan tók ríkan
þátt í þbirri1 sátt' sém gérð •'Vár j
síðustu kjarasamningum og féllst
á að freista þess að búa við óbreytt
raungengi í ár. Fiskvinnslan lagði
þannig dijúgan skerf til að verð-
bólga lækki verulega í ár og
lífskjör verði tryggð til lengri tíma.
En þá verða orð að standa og
fiskvinnslan verður að eiga mögu-
leika á að vinna sig út úr vandan-
um. Þensluáhrif verða nær engin,
ef þær auknu tekjur vinnslunnar
vegna erlendra verðhækkana fara
til greiðslu á skuldum fiskvinnslu-
fyrirtækja. Fiskvinnslufyrirtækin
hafa lagt sitt af mörkum til að
efnahagsstefna kjarasamning-
anna nái fram að ganga. Ef stjórn-
völd hafa áhyggjur af hugsanlegri
þenslu liggur beinast við -að tak-
marka erlendar lántökur og skera
niður ríkisútgjöld og hagræða í
rekstri.
Þá kom fram alvarlegur ágreiningur
milli Ólafs Helga Kjartanssonar og
Sigrúnar Halldórsdóttur sem kjör-
nefnd hafði úrskurðað í þriðja sætið.
Fór svo að Sigrún dró framboð sitt
til baka og í framhaldi af því drógu
tveir aðilar, sem sátu á lista þeim
sem kjörnefndin lagði fram, sig út
af listanum. Á fundinum var endan-
lega gengið frá framboðslistanum
og er hann þannig skipaður: Ólafur
H. Kjartansson, skattstjóri, Hans
Georg Bæringsson, málarameista^j,
Helga Sigmundsdóttir, húsmóðir,
Einar Garðar Hjaltason, fiskverk-
andi, Kristján Kristjánsson, um-
dæmistæknifræðingur, Pétur H.R.
Sigurðsson, mjólkurbússtjóri, Emma
Rafnsdóttir, starfsstúlka, Jórunn
Sigurðardóttir, sjúkraliði, Guðmund-
ur Marinósson, framkvæmdastjóri,
Sævar Óskarsson, rafiðnfræðingur,
Rúnar Jónatansson, flugafgreiðslu-
maður, Hermann Skúlason, skip-
stjóri, Jósefma Gísladóttir, verslun-
arstjóri, Jakob Falur Garðarsson,
ritstjóri, Ragnheiður Hákonardóttir,
húsmóðir, Signý Rósantsdóttir,
verkakona, Aðalbjörn Jóakimsson,
framkvæmdastjóri, og Geirþrúður
Charlesdóttir, gjaldkeri. Sjálfstæði^
menn eiga nú fjóra fulltrúa af nn?
í bæjarstjórn.
- Úlfar
Nýtt líftekið við útgáf-
unni á Hesturinn okkar
LANDSSAMBAND hestamanna hefur samið við Nýtt líf og Þráin
Bertelsson um að gefa út tímaritið Hestinn okkar í þijú ár. Fyrsta
tölublaðið sem Nýtt líf/Þráinn Bertelsson gefa út er komið á markað^*
inn, 1. tölublað 31. árgangs, breytt að útliti og efni.
Þráinn Bertelsson kvikmynda-
gerðarmaður er ritstjóri Hestsins
okkar og með honum starfar þrett-
án manna ritnefnd. „Takmark okk-
ar er að hefja Hestinn okkar til
vegs og virðingar á ný til að hann
megi verða öflugt málgagn allra
'hestamaVi’ná ög: þeifra seím unna
hestum og hestamennsku,“ segir
nýi útgefandinn í Hestinum okkar.
Blaðið er gefið út í 6.500 eintaka
upplagi. Hesturinn okkar hefur
komið út 6 sinnum á ári og segir
útgefandinn að stefnt sé að fjölgun
tölublaða þannig að blaðið komi út
sem næst mánaðarlega.