Morgunblaðið - 06.05.1990, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUÐAGUR 6. MAI 1990
D 19
ar báðu þá um það, til að geta los-
að eigið lið og losnað við kostnað
af betri búnaði, sem kröfur voru
um. Afstaða kanadísku stjórnai'inn-
ar var alveg ljós, annaðhvort vildi
hún halda sínum herjum til öryggis
og varnar heima eða senda þá til
beinnar hjálpar í Bretlandi. Töldu
að almenningsálitið heima mundi
ekki sætta sig við annað og það
mundi skaða móral hermannanna
að fara að senda þá í annað land.
Og þó þeir með hangandi hendi
sendu lið, þá gengu allan tímann
skrifin og samingaumleitanirnar
milli herráðanna í Ottawa og Lon-
don um það hvort og þá hvaða her-
deildir ætti á víxl að búta í sundur
Götuskiltið frá Hveragerði hef-
ur í hálfa öld trónað í heiðurs-
sæti í bækistöð Mont Royal-
skotliðanna í Montreal, og
blasir við ungu skotliðunum,
sem þar eru við æfingar.
Guy Gauvreau. „Stelpurnar"
fyrir austan þóttu kanadísku
hermennirnir miklu huggulegri
en Bretarnir.
Reykjavík 14 km stendur á
þessu volduga götuskilti,
sem kanadísku hermennirn-
ir stálu á íslandi og sem
fylgdi herfylki þeirra í inn-
rásinni í Normandí og gegn
um allt stríðið við Þjóðverja.
ar rollur. Aftur á móti hafði Gauvr-
eau aldrei heyrt minnst á nokkra
kjúklinga, sem seinni tíma sögur
saka Kanadamennina um að hafa
stolið og etið. Segir að það muni
vera eitthvað málum blandið.
Kanadasveitirnar urðu aldrei
lengi á íslandi. Stjórnvöld í Ottawa
höfðu ekki verið neitt hrifin af því
að senda lið til Íslands, þegar Bret-
Morgunblaðið/EPá
og senda að hluta til íslands. Þar
til Ghurchill komst í málið. Hann
frétti fyrst af þessari deilu þar sem
hann var að kanna lið l. kanadísku
herdeildarinnar í Bretlandi og lýsti
undrun sinni. Kvað það mikil mistök
að staðsetja „slíka afbragðs her-
deild“ í svo verkefnalitlu varnar-
hlutverki á íslandi. Hann skrifaði
Anthony Eden utanríksráðherra
umsvifalaust að hann vildi fá báðar
kanadísku herdeildirnar til Bret-
lands. Þar ætti að koma þeim fyrir
í einu liði á suðausturhluta Bret-
lands, þar sem búist var við að Þjóð-
veijar mundu lenda ef þeir gerðu
innrás. Áður en vikan var liðin féll-
ust Bretar nú á tillögur Kanada-
manna frá 11. júlí, um að Cameron
Highlander-sveitiri frá Ottawa, sem
komið hafði í júlímánuði, yrði ein
eftir á íslandi, þar til bresk vél-
byssuherdeild gæti leyst hana af.
Mont Royal-skotliðarnir yrðu sendir
til Bretlands eins fljótt og auðið
væri að fá skip. Sagnfræðingurinn
Donald F. Bittner telur ástæðuna
fyrir því að Churchill vildi nú fá
alla Kanadamennina til SA-Eng-
lands vera þá, að hann leit á málið
frá pólitísku sjónarmiði og vildi að
þeir yrðu fyrstir fyrir væntanlegu
innrásarliði, því um leið og Þjóðverj-
ar felldu fyrsta Kandadamanninn,
þá væri Kanada komið í stríðið með
Bretum að fullu. Það hafi hann átt
við þegar hann talaði um að fá
þessa afbragðs hermenn til Bret-
lands.
Af þessum ástæðum voru alls
aðeins 2.659 kanadískir hermenn á
Islandi í nokkra mánuði sumarið
1940. Og 16. október sigldu Mont-
Royal-skotliðarnir og Konunglega
Kanadaherdeildin, en vélbyssu-
deildin Cameron Highlanders varð
fyrir beiðni Breta eftir fram á vor,
vegna skorts á breskum vélbyssu-
deildum. Þá héldu þeir lfka í stríðið.
Með íslensk götuskilti í
Normandí
Guy Gauvreau segir mér að Mont
Royal-skotliðarnir hafi haldið rak-
leiðis frá íslandi til Suður-Bret-
lands, eins og lög gerðu ráð fyrir.
Þar var hann um tíma ritari Mont-
gomerys marskálks, áður en hann
fór til Afríku: „Ef Montgomeiy
líkaði við einhvem, þá líkaði honum
mjög vel við hann. En ef honum
geðjaðist ekki að manni, þá var
hann ekki lamb að leika sér við.
Ég var svo heppinn að á fyrsta
degi kom hann til mín og sagði:
Þú verður að lofa mér því að lifa
af. Ég þarf á þér að halda,“ segir
Gauvreau og lætur konu sína draga
fram bókina „21. Army Group Nor-
mandy to the Baltic", eftir Field
Marchall the Viscount Montgomery
of Alamein. Og þegar ég opna hana
blasir við áritun: Til „Brigadier G.
Gauvreau, drengilega kanadíska
hermannsins, sem. einu sinni var
aðstoðarmaður minn (A.D.C.) og
átti sinn stóra hlut í þessari orustu.
Með bestu kveðju. Montgomery of
Alamein, Field Marshall." Má nærri
geta að ungum herdeildarforingja
þótti meira ævintýri að vera með
hinum fræga hershöfðingja en
byggja bragga með ódælum mönn-
um sínum í hinu friðsæla þorpi
Hveragerði.
Ánægjan fór þó fljótt af, því
Mont Royal-skotliðamir voru með
þeim fyrstu sem héldu yfir sundið
í innrásinni í Normandí. Og alltaf
fylgdu þeim þungu götuskiltin frá
Hveragerði, sjálfsagt 20-30 kg
hvort. Þarna féllu þeir hver um
annan í framsókninni. Foringi
þeirra Guy Gauvreau ók í jeppa
sínum yfir sprengju og var krafta-
verk að hann lifði af. En kvalir í
bakinu fylgdu honum alltaf og gera
enn. Hann hafði barist hetjulega
3g gata í bænum Faffaise í Frakk-
landi ber nafn hans: La Rue Colon-
el Gauvreau. í bænum ber önnur
gata nafn herdeildarinnar: Rue
Fusier Mont Royal. Með í för voru
skilti, sem á stóð Reykjavík 14 km
og Grýta 2 km. Þau voru orðin
merki herdeildarinnar. Og þegar
skotliðarnir komu heim til Montreal
eftir frækilega sigra í heimsstyij-
öldinni voru skiltin þar enn. Sagt
var frá þeim í blöðunum. „Fólki
þóttu þetta skrýtið heillamerki og
kannski enn kátlegra að herfang
herdeildarinnar úr stríðinu kæmi
frá Islandi,“ segir Guy Gauvreau.
En skiltunum var komið fyrir í svo-
kölluðu Armory, bækistöðvum,
Mont Royal-skotliðanna, þar sem
þau eru enn í heiðurssæti hálfri öld
síðar.
Guy Gauvreau varð ræðismaður
íslands í Montreal 1956 og aðalræð-
ismaður 1967. Þau hjónin komu
nokkru síðar til íslands, svo hann
gat sýnt Louise konu sinni Hvera-
gerði og landið, sem undarlegu
bréfín með eyðunum eftir ritskoð-
unina komu frá á fyrstu mánuðum
stríðsins. ■
MEÐ
HYBREX
FÆRÐU GOTT SÍMKERFl
OG ÞJÓNUSTU
SEM HÆGT ER
AÐ TREYSTA.
HYBREX AX er eitt fullkomnasta tölvustýröa sím-
kerfiö á markaðnum í dag. Auövelt er aö koma
því fyrir og þaö er einfalt í notkun. HYBREX er
mjög sveigjanlegt í stærðum.
DÆMI: (AX 8)1- 4bæjarlínur-Alltað8símtæki
(AX32) 1 -32 bæjarl ínur—Allt að 192símtæki
Möguleikarnir eru ótæmandi.
HELSTU KOSTIR HYBREX
• Islenskur texti á skjám tækjanna.
•Beint innval.
•Hægt er að fá útprentaða mjög nákvæma sundurliðun
þ.e. tími, lengd, hver og hvert var hringt osfr.
•Sjálfvirk símsvörun.
•Hægt er að láta kerfið eða tæki hringja á fyrirfram-
ákveðnum tíma.
•Hjálparsími ef skiptiborðið annar ekki álagstímum.
•Sjálfvirk endurhringing innanhúss sem bíður þar til númer
losnar.
•Mjög auðvelt er að nota Hybrex fyrir símafundi.
•Hægt er að tengja Telefaxtæki við Hybrex án þess að það
skerði kerfið.
•Hægt er að loka fyrir hringingar í tæki ef menn vilja frið.
• Innbyggt kallkerfi er í Hybrex.
•Langlínulæsing á hverjum og einum síma.
OKKAR STOLT ERU ÁNÆGÐIR VIÐSKIPTAVINIR
Borgarleikhúsið Morgunblaðið, augl.
Gatnamálastjóri Samband íslenskra
Reykjavikur sveitarfélaga
Gúmmívinnustofan Securitas
íslenska óperan Sjóvá-Almennar
Landsbréf hf. ofl. ofl. ofl.
HRHn
ís\en'
Heimilistæki hf
Tæknideild, Sætúni 8 SÍMI 69 15 00