Morgunblaðið - 06.05.1990, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. MAI 1990
D 21
barnaheimili og heilsugæslustöövar auk
endurhæfmgarstöðvar fyrir
mænuskaddaða. Rauði kross íslands
lagði fram 2 milljónir króna í þetta
uppbyggingarstarf auk 2 milljóna í
neyðaraðstoð.
SUDAN. I einu af fátækustu löndum
heims voru miklir þurrkar fyrri hluta
árs. Astandið versnaði síðan til mikilla
muna þegar innanlandsófriðurinn
blossaði upp á ný undir haustið.
Matvælaflutningar stöðvuðust vegna
ófriðarins. RKÍ sendi 170.000 krónur.
MALAWI. Fjöldi fólks varð
heimilislaus vegna flóða. Flóttamenn
frá Mosambik hafa streymt inn í landið
og nú eru þar um 750.000 manns.
Rauði krossinn hefur komið upp
flóttamannabúðum og dreifir þar
matvælum og fatnaði, sér um kennslu
og starfsþjálfun fyrir flóttamennina.
Skordýrafaraldur eyóilagði uppskeru á
stórum svæðum. RKI sendi hundrað
þúsund krónur og 12 tonn af fatnaði.
MOSAMBIQ. Innanlandsófriður
þjakar landsbúa og Rauði krossinn
deildi út matvælum til nauðstaddra í
þeim héruðum sem erfiðast var að ná
til. Vannærðum börnum var veitt
aðstoð. Ennfremur fær hjúkrunarfólk
starfsþjálfun og í gangi er áætlun um
baráttu gegn alnæmi.
AFGHANISTAN. Sex milljónir
manna hafa flúið ófriðinn í
heimalandinu. Rauði krossinn veitir
læknishjálp og hjúkrun og heimsækir
þúsundir stríðsfanga. Þetta er með
umfangsmestu hjálparstörfum Rauða
krossins og 3 íslenskir
hjúkrunarfræðingar tóku þátt í þessu
starfi. Auk þess lagði RKÍ fram kr.
500.000.
LÍBANON. Síðla sumars hörðnuðu
átökin í innanlandsófriðnum til muna
og æ fleiri óbreyttir borgarar urðu
fórnarlömb. Stór hluti íbúanna í Beirut
flúði til Suður-Líbanon. Rauði krossinn
sem í áraraðir hefur hjúkrað særðum
og séð um útvegun lyfja og
lækningatækja auk leitarþjónustu og
fræðslu um mannúðarlög fékk nú nýtt
hlutverk: að aðstoða þúsundir
flóttamanna. RKÍ lagði fram kr.
360.000.
SRILANKA. 250.000 manns urðu
fyrir tjóni af völdum flóða í kjölfar
ofsarigninga. RKI lagði fram kr.
165.000.
MIÐ-AMERÍKA. Fellibylur olli miklu
tjóni á mannvirkjum og tugþúsundir
misstu heimili sín. RKÍ lagði fram 1
milljón króna til uppbyggingarstarfs í
Costa Rica og Nicaragua.
THAILAND. Flóttamannabúðirnar
skammt frá landamærum Kampútseu
hafa nú staðið í nær tíu ár. Hundruð
þúsunda flóttamanna eru enn í þessum
búðum. Rauði krossinn starfrækir
skurðspítala í Khao-I-Dang sem gerir
m.a. að sárum þeirra fjölmörgu sem
missa útlimi af völdum jarðsprengna.
RKÍ sendi 2 hjúkrunarfræðinga til
starfa 1989.
ALÞJÓÐARÁÐIÐ. Skráning og
heimsóknir til stríðsfanga um allan
heim eru einn af föstum þáttum í
starfi Alþjóðaráðsins. Auk þess er rekin
umfangsmikil leitarþjónusta og í
spjaldskránni í Genf eru margar
milljónir nafna þeirra sem hafa yfirgefið
heimili sín og orðið viðskila við
fjölskyldur sínar. RKÍ lagði fram kr.
360.000 til þessa starfs.
PAKISTAN. Fjöldi Afghana sem
særist í innanlandsófriðnum fær búið
að sárum sínum í spítala Rauða krossins
í Quetta. RKÍ sendi hjúkrunarfræðing
til starfa þar í hálft ár.
DJIBOUTI. Flóð af völdum mikillar
úrkomu ollu stjórtjóni á húsum, vegum
ogbrúm. Um 150.000 urðu fyrir
stórfelldu tjóni og hætta á farsóttum
er mikil. RKÍ sendi kr. 165.000.
EÞÍÓPÍA. Deild eþíópíska Rauða
krossins vinnur að því að vernda *
vatnsból til að tryggja fólkinu ómengað
drykkjarvatn. RKÍ sendi fólk og fé til
að aðstoða vió verkefnið.
BANGLADESH. Þúsundir barna
deyja árlega af völdum niðurgangs og
barnasjúkdóma sem auðvelt er að
lækna. RKI sendi 1 milljón króna til
bólusetningar bárna og
heilbrigðisfræðslu meðal mæðranna.
Hjálpiö okkur að hjálpa!
Ef þú ert sammála grundvallaratriðum
Rauða krossins:
AÐ LEITAST VIÐ AÐ LINA
ÞJÁNINGU
AÐ VERNDA LÍF OG SKAPA
VIRÐINGU FYRIR
M ANN GILDINU
HJÁLPA
ÞUSUND
MANNS
Þá er ekki úr vegi að taka þátt í starfi
okkar og gerast félagi í RKÍ. Árgjaldið
er aðeins kr. 500,-
Þú getur einnig styrkt hjálparsjóð
félagsins með því að greiða á
gíróreikning 90000-1 þáupphæð sem
þú sjálf(ur) velur - og ekkert er því
til fyrirstöðu að þú gerir hvorttveggja.
□ Ég vil styðja Rauða k.rossinn með því að
gerast félagi. Sendið mér gíróseóil fyrir
félagsgjaldi fyrir árið 1990 kr. 500.
Ll Ég vil gerast styrktaraðili Rauða kross
Islands og styðja hjálparsjóð félagsins
með kr.-------------------------------á mán.
Ég óska eftir að greiða með:
□ gíró Qvísa □ euro
Kortnúmer
Gildir til:
Nafn
Kennitala
Heimili
Póstnúmer Sími m
Sendið miðann til Rauða kross íslands, ■
Pósthólf 5450, Rauðarárstíg 18, 105 Reykjavík|
mmmmnmmmmmammmt
Rauði Kross íslands