Morgunblaðið - 17.05.1990, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 1990
17
Menningarmál í Reykjavíkurborg:
Orðavaðall eða athaftiir?
eftir Svein Andra
Sveinsson
MENNINGARMÁL er málaflokkur
sem vinstrimenn hafa haft tilhneig-
ingu til þess að einoka í umræðu
um stjórnmál. Nú, þegar gengið er
til kosninga í Reykjavík, er vert að
huga að menningarmálum; hvað
unnið hefur verið í þeim málum af
hálfu meirihluta sjálfstæðismanna
og hvað sé framundan.
Fyrst ber þess að geta, að sjálf-
stæðismenn hafa unnið samkvæmt
þeirri þumalputtareglu, að 4% af
heildarútgjöldum borgarinnar renni
til menningarmála. Er þar um að
ræða bæði fé til framkvæmda á
þessu sviði, menningarstarfsemi á
vegum borgarinnar og starfslauna
til listamanna. Til samanburðar má
geta þess að aðeins 1% af fjárlögum
ríkisins rennurtil þessa málaflokks.
Framkvæmdagleði í
menningarmálum
Meirihluti sjálfstæðismanna hef-
ur staðið að ýmsum framkvæmdum
á sviði menningarmála á því
kjörtímabili sem senn er liðið. Hæst
ber vígsla hins nýja Borgarleikhúss,
sem nú þegar hefur gerbreytt leik-
húslífi borgarinnar. Endurgerð Við-
eyjarstofu og frágangur á svæðinu
er framtak, sem verulega er þakk-
arvert, er Viðey nú orðið eitt af
táknum borgarinnar og einn helsti
viðkomustaður gesta borgarinnar.
Það helsta er hins vegar það að
þarna er á ferðinni verndun og við-
hald menningar- og sögulegra verð-
mæta. Þess er vert að geta, að við-
hald hafi verið í gangi í ein 17 ár
í Viðey, áður en Reykjavík tók við;
þá voru hús og umhverfi gerð upp
á tveimur árum. Tengibygging við
Ásmundarsafn er vel á veg komin
og hafin er hönnunarvinna vegna
Kjarvalssafns. Nýtt útibú Borgar-
bókasafnsins við Grandaveg 47 var
og nýlega tekið í notkun.
Sjálfstæðismenn ætla ekki að
sitja með hendur í skauti að þessu
leyti á næsta kjörtímabili. Stærsta
verkefni næsta kjörtímabils verður
án efa bygging alhliða menningar-
og listmiðstöðvar að Korpúlfsstöð-
um, sem meðal annars er ætlað að
hýsa hina glæsilegu listaverkagjöf
Errós til Reykjavíkurborgar. (Það
segir nokkra sögu, að listamaðurinn
skuli frekar hafa valið þann kost
að afhenda borgaryfirvöldum verk
sín, en ekki ríkisvaldinu.) Ljúka
þarf tengibyggingu Ásmundasafns
og Kjarvalssafns. Annað brýnt
mál, sem vinna þarf að, er nýtt
húsnæði fyrir aðalbókasafn Borgar-
bókasafnsins. Öruggt er að lausn
þess máls mun ekki taka eins lang-
an tíma og bygging Þjóðarbókhlöð-
unnar.
Öflugt menningarstarf
borgarinnar
Víðtæk lista- og menningarstarf-
semi er á vegum borgarinnar, sem
of langt mál yrði að telja upp hér.
Meðal þessa má nefna endurbygg-
ing gamalla húsa og viðhald í Ár-
bæjarsafni. Ráðinn var fornleifa-
fræðingur í starf borgarminjavarð-
ar og má geta þessað hann hefur
staðið að stórfelldum fornleifaupp-
greftri í Viðey. Líflegt lista- og
menningarstarf hefur og verið í
menningarmiðstöðvum borgarinn-
ar, eins og Kjai'valsstöðum og
Gerðubergi. Sjálfstæðismenn munu
að sjálfsögðu vinna áfram á þessari
braut.
Traustur stuðningur við
listamenn
Einn af hornsteinum í menning-
armálastefnu sjálfstæðismanna í
Reykjavík er að styðja dyggilega
við bakið á listamönnum borgarinn-
ar með fjárframlögum. Undanfarið
hefur þetta verið gert með tilnefn-
ingu borgarlistamanns, en þá er um
það að ræða að listamaður er á
launum í eitt ár. Ennfremur hafa
sjálfstæðismenn tekið upp greiðslu
starfslauna til þriggja ára. Nýlegt
dæmi er að á fjárhagsáætlun
Reykjavíkurborgar fyrir þetta ár
er heimild veitt til þess að ráða fjög-
urra manna strengjasveitar í hálft
starf fyrir borgina. Annað gott
dæmi um það hvernig Reykjavíkur-
borg hefur stutt við bakið á lista-
mönnum eru fyrirhuguð kaup á
húsnæði Nýlistasafnsins, til að
byggja nýlistamönnum húsnæði.
Einnig er rétt að geta þess, að
Reykjavíkurborg veitir árlega um-
talsverðu fé til listaverkakaupa;
meira en ríkisvaldið sjálft. Sjálf-
stæðismenn munu ekkert hvika frá
þessari stefnu sinni á næsta
kjörtímabili.
í hverju felst munurinn?
Reykjavík er miðstöð íslenskrar
menningar og lista. Það er í raun
spurning um stolt höfuðborgar að
slík starfsemi sé með blóma. Þessu
hafa sjálfstæðismenn áttað sig vel
á og staðið vel að. Sjálfstæðisflokk-
urinn telur að best sé unnið að
menningarmálum með hvatningu
og stuðningi, en ekki með forsjá.
Aðeins með því að einstaklingurinn
Sveinn Andri Sveinsson
fái notið sín, ber listsköpunin ávöxt.
Er því hafnað öllum forsjártilhneig-
ingum vinstriflokkanna.
Eins og framan var getið, hafa
vinstrimenn haft þá tilhneigingu að
einoka menningarmálin í umræð-
unni um stjórnmál. Þeir geta hins
vegar lítið annað gert en tala; minna
hefur verið um athafnir. Niðurlæg-
ingartímabil vinstrimeirihlutans á
árunum 1978—82 er til vitnis um
það. Töluðu vinstrimenn meðal ann-
ars digurbarkalega fyrir þær kosn-
ingar um að drífa þyrfti upp Borg-
arleikhúsið, en ekkert gerðist allt
það kjörtímabil. Annað dæmi eru
yfirlýsingar þeirra um útilistaverk,
en ekkert gerðist þar heldur.
Allt annað hefur verið upp á ten-
ingnum hjá sjálfstæðismönnum,
þannig að segja má að sjálfstæðis-
menn hafí einokað framkvæmdir á
sviði menningarmálá. Spurningin
er því sú hvort Reykvíkingar kjósi
fremur athafnir eða orðavaðal í
menningarmálum.
Höfundur er laganemi og skipar
10. sætiá lista Sjáltstæðistlokksins
vegna borgarstjórnarkosninga.
Nýr glæsilegur Volvo
Volvo 460 er glæsileg viðbót við framhjóladrifnu .400 línuna sem
markaði tímamót hjá Volvo. Volvo 460 er bíll sem sameinar öryggi,
frábæra aksturseiginleika og fágað útlit.
Volvo 460 er ríkulega búinn:
Öflug 106 hestafla vél með beinni innspýtingu, 5 gíra beinskipting eða
4 gíra sjálfskipting, framhjóladrif, álfelgur, vökvastýri/veltistýri,
lúxusinnrétting, upphituð framsæti, rafstýrðar rúður og speglar,
samlæsing á hurðum/skottloki, litað gler o.fl.
Volvo á einstöku verði
Verðið á Volvo 460 er einstaklega gott, eða frá 1.344.000 kr. stgr.
kominn á götuna.
Brimborg hf.
FAXAFENI 8 • S.68 58 70