Morgunblaðið - 17.05.1990, Page 42

Morgunblaðið - 17.05.1990, Page 42
42 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAI 1990 Opið bréf til Eyfirðinga Vegna áhuga sumra þeirra fyrir álverksmiðju við Eyjaflörð eftirStefán Valgeirsson 3. GREIN Það var haft eftir forsætisráð- herra hér um daginn, að sumir í Atlantal-hópnum viidu ekki byggja álver hjá Straumsvík því ef yrði mengunarslys þá þyrfti það að liggja ljóst fyrir hvorum aðilanum væri um að kenna. Þetta sýnir að báðir aðilar eru þess meðvitaðir að engin leið er að útiloka að slíkt slys geti gerst, enda eru þau alltaf að gerast. Sautján læknar frá Norðurlönd- um fóru til Póllands í byijun apríl sl. til að kynna sér ástandið þar og þó fyrst og fremst ástand vegna mengunar. Þeir komu m.a. á sjúkra- hús og á fæðingardeild þess. Þar var þeim sagt, að um 15% af börn- um sem fæddust þar væru vansköp- uð. Þeim skildist að læknar þar álitu að vansköpunin stafaði af kjarn- orkuslysinu í Rússlandi, Chemobyl. Norrænu læknarnir fengu upplýs- ingar um að geislamengun hefði ekki verið meiri en t.d. sums staðar í Svíþjóð, en þar hafa engin van- sköpuð börn fæðst. Álit þeirra var að vansköpunin stafaði frá kop- arnámum og málmbræðslum. í síðari hiuta marsmánaðar sl. kom eftirfarandi frétt í ríkisútvarp- inu: „Kanadísk stjórnvöld hafa fyrir- skipað opinbera rannsókn á því, hvers vegna óvenju mörg vansköp- uð börn hafa fæðst nærri kjarn- orkuveri í iðnaðarbænum Bentilili í Quibeck á síðustu tveimur árum. Bændur í sveitum nærri kjarnorku- verinu greina einnig frá því, að mikið hafi fæðst af vansköpuðum skepnum á sama tíma. Kjarnorku- verið í Bentilill hóf starfsemi 1982. Hópur sérfræðinga mun rannsaka hugsanlega geislun frá verinu, mengun frá álverum og öðrum verksmiðjum í Bentili!l.“ HAIR SYSTZVb Hjótlu lífsins mð Apollo hár Fromleiðendur í Ameríku bjóða nú upp á sársaukalausa og lyfjalausa lausn, sem bætir útlitið. Evrópskir og amerískir sérfræðingar hafa komið fram með þessa lausn, eftir 26 ára rannsóknir, sem er fléttuð í hárið þitt og er sem hluti afsjólfum þér allan sólarhringinn. Fáið sendan Apollo - myndabækling. Ék. RAKARA- OG HÁRGREIÐSIUSTOFAN GREIFIM HRINGBRAUT 119 ® 22077 Það koma nú víða fram grun- semdir um mjög skaðlega mengun frá álverum og fara fram rannsókn- ir vegna þeirra grunsemda. Iðnþjóð- irnar leggja kapp á að byggja ál- bræðslur utan síns heimalands og þróunarríkin eru orðin í stórhættu vegna þessarar þróunar og ásóknar álbræðsluauðhringa. Fólk er varað við að setja ílát úr áli í þvottavélar vegna útfellingar álsins. Grunsemd- ir eru uppi um hvort ekki sé vara- samt að nota álflát undir matvæli. Rannsóknir fara nú fram á því og einnig fleiri málmum. í Svíþjóð og fleiri Evrópulöndum eru menn orðn- ir hræddari við aðra mengun en frá kjarnorkuverum. Þrátt fyrir þetta allt erum við íslendingar að sækj- ast eftir að byggt verði hér risa- stórt álver og sumir vilja að það verði staðsett í blómlegasta land- búnaðarhéraði landsins við tiltölu- lega þröngan fjörð, umkringdan háum fjöllum, þar sem landslag og veðurfar er með þeim hætti, að síst ætti að setja niður álver þar eða aðra mengunarríka framleiðslu. Er okkur íslendingum ekki sjálf- rátt? eða eru kæruleysið orðið svo yfirþyrmandi að menn ana út í hvað sem er án þess að gera sér grein fyrir afleiðingunum? Getur verið að minnimáttarkenndin eða þjónkunin við erlenda auðhringa ráði ferðinni? Ég get a.m.k. ekki séð eða skilið að heilbrigð skynsemi ráði í þessu máli. í bráðabirgðaáliti Þjóðhagsstofn- unar kemur fram, að hagvöxturinn verði rúmlega 5% meiri en ella fram til áranna 1997 ef álver verði reist. Hins vegar kemur ekki fram hvað hagvöxturinn mundi aukast ef við færum í fjárfrekar framkvæmdir vegna annarrar framleiðslu. Á1 skal það vera hvað sem það kostar og hveijar sem afleiðingarnar verða. Sagt er að álver mundi kosta a.m.k. 3 'Amilljörðum. meira væri það byggt við Eyjafjörð en á Reykjanesi. Væri nú ekki ráð fyrir íbúa Eyjafjarðar að sameinast um að falla frá öllum þrýstingi á að fá álver en í stað þess krefjast þess að fá þessa upphæð til atvinnuupp- byggingar við fjörðinn. Cartier 18 karat gullhringur. Sá eini sanni frá Cartier Tækifærisgjafir frá Cartier Uppfakarar, lyklakíppur, bókamerki, bókahnífur, pennaro.fi. GARÐAR ÓLAFSSON, úrsmiður, Lækjartorgi, sími 10081 Áhugi á álveri er vegna nauð- synjar að auka atvinnumöguleika á svæðinu. Það er hægt með ýmsu móti, en til þess þarf fjármagn. Þið ráðamenn sem sýnt hafið skilning á þörfinni á atvinnuupp- byggingu hér, er ekki fýsilegri kost- ur að nýta og styrkja hugvit og krafta kvenna og karla við Eyja- fjörð en að halda áfram þessum blindingsleik sem hefur ófyrirsjáan- legar afleiðingar fyrir byggðarlagið og þjóðina alla. Það er ekki einu sinni sannað mál að álver sé „þjóð- hagslega hagkvæmt" eins og það heitir, þ.e.a.s. skapi okkur betri efnahagsleg lífskjör en önnur upp- bygging. Ur því að hægt er að fá fjármagn til að byggja álver, getum við þá ekki sameinast um að nýta þá ijár- magnsmöguleika til skynsamlegri atvinnuuppbyggingar bæði hér við Eyjafjörð og á landinu öllu? Eða er álver orðið átrúnaðargoð íslenskra ráðamanna? Niðurstaða 1. Álver er ekki hagkvæmur kostur fyrir okkur íslendinga. 2. Við höfum mjög takmarkaða hagkvæma virkjunarkosti og verð- um að hafa það í huga við verðlagn- ingu orkunnar. 3. Við íslendingar eigum fyrst og fremst að framleiða matvæli. Mengunarfyrirtæki, eins og álver og framleiðsla, á matvælum fara ekki saman. 4. Við eigum ekki að fara eftir atvinnustefnu, sem verður þess valdandi að þjappa þjóðinjii saman á 2-3 staði. 5. Við verðum að byggja at- vinnulífíð upp á þann veg, að það henti jafnt fyrir konur sem karla, það gerum við ekki með byggingu álbræðslu. 6. Eyjaíjörður kemur ekki til greina að mínu mati, undir ál- smiðju, vegna landslags, gróðurs og veðurfars. Stefán Valgeirsson „Það koma nú víða fram grunsemdir um mjög skaðlega mengun frá álverum og fara fram rannsóknir vegna þeirra grunsemda. Iðn- þjóðirnar leggja kapp á að byggja álbræðslur utan síns heimalands og þróunarríkin eru orðin í stórhættu vegna þess- arar þróunar og ásókn- ar álbræðsluauð- hringa.“ 7. Norsku sérfræðingamir sem staðarvalsnefnd fékk til að mæla hvernig mengun myndi dreifast um byggðir Eyjafjarðar frá álveri á Dysnesi, komust að þeirri niður- stöðu að það færi eftir magni þeirra efna sem færu út í andrúmsloftið og þeir gætu ekkert um það sagt hver dreifingin yrði um Hörgárdal og innan við Akureyri. 8. Tvö hundruð þúsund tonna, hvað þá tvöfalt stærra álver, mundi verka sem krabbamein í eyfirskum byggðum. Vilt þú lesandi góður bera ábyrgð á slíku? Að minnsta kosti vil ég það ekki. 9. Ég hygg að Akureyri og ey- firskar byggðir muni ekki lengur hafa aðdráttarafl fyrir ferðamenn ef álver rís þar og blámóða byrgir sýn. 10. Ég hygg að landbúnaðar- framleiðslu verði stefnt í verulega hættu ef álbræðsla rís við fjörðinn. 11. Risastórt álver er ekki byggðamál, hvar sem það verður sett niður, heldur andhverfa þeirrar byggðastefnu, sem flestir flokkar, ef ekki allir, hafa þóst beijast fyrir. 12. Nú eru 90% líkur fyrir því að álverið verði sett niður á Vatns- leysuströnd og dregið verði úr öllum framkvæmdum á byggingartíma þess. Telja landsmenn slíka upp- byggingu æskilega, og munu þeir styðja þá stefnu? 13. Það er kátbroslegt að vera að setja á stofn umhverfisráðuneyti á sama tíma og rætt er um að byggja 400 þúsund tonna álver við Eyjafjörð. Ég er tilbúinn að mæta á fundi norðan fjalla til að rökræða við hvern sem er um byggingu álvers við Eyjafjörð. Heimildir: 1. Hollustuvernd ríkisins, mengunar- varnir. Mælingar i Straumsvík 1986. 2. Hollustuvernd ríkisins og Siglinga- málastoftiun. Mengunarhætta vegna förgunar kerbrota. 3. Mengun frá álveri og áhrif hennar á umhverfið eftir Ólaf Pétursson for- stöðumann Hollustuvernda rikisins. 4. Spredningsberegninger for et plan- lagt Aluminiumverk nord for Akur- eyri, Island eftir Jörgen Sclyoldager og Frederick Gram. 5. Leiðir álver til lakari iífskjara, eft- ir Jóhann Rúnar Björgvinsson hag- fræðing. 6. Þjóðhagsstoftiun. Þjóðhagsleg áhrif nýs 200 þús. tonna álvers. 7. Ahrif stóriðju á búsetu og vinnu- markað, Byggðastofnun. Höfúndur er alþingismaður fyrir Snmtök um jafrirétti og félagshyggju í Norðurlandskjördæmi eystra. Handbendi þeirra stóru Svar til Olafs Davíðssonar framkvæmdastj óra FII eftir Sigrúnu Magnúsdóttur í Morgunblaðinu 10. maí sl. send- ir Ólafur Davíðsson svar við opnu bréfi sem ég skrifaði bonum og Jóni Ásbergssyni forstjóra Hag- kaupa í Mbl. 8. maí. Hann reynir í svari sínu að rétt- læta misnotkun Hagkaupa á íslenskum iðnrekendum, þ.e.a.s. hvernig þessi vörukynning hefur verið kynnt og auglýst. Þá hefði hann getað minnst á og þakkað að samtök hans ættu svo dyggan stuðningsmann í borgarstjórn sem rís upp þegar henni finnst á iðnað- inn hallað. Rætin aðdróttun Ólafur reynir hinsvegar að læða því inn að ég hafi andmælt misnotk- 'mms* MA Vinsamlegast geriö okkurþá ánægju að vera við opnunarhátíð „Hagkaups á heimavelli fimnttudaginn 10. maí nk. í Hagkaup, Kringlunni, matvðrudeild. Dagskráin hefst kl. 16.00 með því að Víglundur Þorsteinsson, formaður Félags íslenskra iðnrekenda og Jón Ásbergsson, framkvxmdastjóri Hagkaups hf. flytja ávðrp. Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, mun síðan opna „tslenska daga". á FÉLAQ ISLENSKRAIÐNREKENDA HAOKADP XJöfðar til Xlfólksíöllum starfsgreinum! un Hagkaupa á iðnrekendum vegna þess að ég er kaupmaður. Það er ósatt, ég fylltist heilagri reiði, sem borgarfulltrúi, þegar mér barst bréf þeirra félaga í hendur enda var það stílað á mig sem borgarfulltrúa. Ég þekki ef til vill betur en marg- ir aðrir borgarfulltrúar hvað þeir stóru einsog Hagkaup pína fram- leiðendur í krafti ofurveldis síns. Hins vegar er ég stolt að vera búin að vera kaupmaður á horninu í bráðum tvo áratugi í Reykjavíkur- borg. Ég er stolt af því að eiga elstu matvöruverslun (ásamt Versluninni Vísi) í borginni, það segir ekki litla sögu í þessu ölduróti í matvöru- verslun. Það sýnir að þeir stóru eni ekki alltaf öruggastir. Útúrsnúningar Ólafs Ólafur leyfir sér að jafna þessu tijtæki, „Hagkaup á heimavelli“, við „íslenska daga“ í fyrra eða mat- vælasýningar og fleira undir kjör- orðinu „Veljum íslenskt". Þar er ólíku saman að jafna enda kjörorð- in ólík. Kjörorðið „Hagkaup á heimavelli" minnir ekkert á íslensk- an iðnað. Það er bara auglýsing fyrir verslunina. Sönnun á staðhæfíngum mínum Ég birti hér mynd af boðskorti sem ég fékk máli mínu til sönnunar. Ég vona sannarlega að íslenskur iðnaður nái að vaxa og dafna og hafi hagsmuni heildarinnar að leið- arljósi. Það er ljóst af þeim viðtök- um sem opna bréfið mitt hefur feng- ið að forystumenn verða að vanda sig betur í framtíðinni. Við skulum heldur reyna að vinna saman að eflingu íslensks iðnaðar — það er lykilatriði. Höfundur er borgarfulltrúi Framsóknarflokksins í Reykja vík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.