Morgunblaðið - 17.05.1990, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 1990
51c
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
tík
Þesslr hrlngdu .. .
Góðar veitingar
Kona hringdi:
„Ég vil þakka fyrir góðan mat
og veitingar á Hótel Islandi á
föstudagskvöldið. Þama var sam-
an kominn mikill fjöldi manns til
að hlusta á Tom Jones. Maður
bjóst hálfparinn við að illa gengi
að þjóna svo mörgum til borðs
og eitthvað færi úrskeiðis. En það
var öðra nær. Maturinn var sér-
staklega góður og þjónustan sömu
leiðis. Ég vil þakka fyrir þetta
skemmtilega kvöld.“
Úlfurinn enn í
sauðargærunni
Guðrún Magnúsdóttir hringdi:
„Ég vona að íslenskir ráðamenn
séu ekki svo bláeygir að leyfa
Rússum að hafa hér flugaðstöðu.
Það gæti leitt til mikillar ógæfu
fyrir okkur. Úlfurinn er enn í
sauðargæranni þar fyrir austan
og óvíst hvenær skipt verður alveg
um ham þrátt fyrir perestróku.
Sigrún Stefánsdóttir frétta-
maður hafði viðtal við konu um
daginn sem hét því fram að ís-
lendingar hefðu alls ekki mátt
taka myndir á stríðsáranum. Ég
átti myndavél öll stríðsárin og tók
myndir af hveiju sem var, alger-
lega óáreit. En bróðir minn sigldi
til austantjaldslanda eftir stríð og
var hann umsvifalaust sviptur
myndavél sinni. Vonandi hefur
þetta eitthvað lagast þar aust-
urfrá. En við íslendingar ættum
samt að halda vöku okkar.“
Þakkir
Ferðanefnd Lionsklúbbs Hafii-
arfjarðar hafði samband.
„Hópur úr Lionsklúbb Hafnar-
fjarðar og makar senda hótel-
stjóra, Bessa Þorsteinssyni, og
starfsfólki hótel Borgamesi sér-
stakar þakkir fyrir góða þjónustu
og frábæran mat dagana 11. til
13. maí sl. Bestu þakkir fyrir
okkur."
Kettlingar
Kettlingar fást gefins. Upplýs-
ingar í síma 685919.
Regnhlíf
Stór regnhlíf, gul og svört, tap-
aðist fyrir nokkru. Finnandi er
vinsamlegast beðinn að hringja í
síma 15317. Fundarlaun.
Páfagaukur
Grádröfnóttur dísarpáfagaukur
með gula bringu og stóran skúf
tapaðist í Laugaráshverfi. Hann
heitir Albert. Vinsamlegast hring-
ið í Finn Þór í síma 679228 ef
páfagaukurinn hefur einhvers
staðar komið fram. Fundarlaun.
Gullnæla
Gullnæla tapaðist í Óperuhús-
inu eða við Ingólfsstræti hinn 10.
maí. Finnandi er vinsamlegast
beðinn að hringja í síma 32717.
Fundarlaun.
Kettlingar
Tveir kettlingar, 10 vikna
gamlir, fást gefins. Upplýsingar
í síma 14773.
• •
KOTTUR
Þessi fressköttur kom í hús við
Granaskjól fyrir hálfum mánuði.
Eigandi hans er vinsamlegast beð-
inn að hringja í síma 16147.
Skrifið eða hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til
að skrifa þættinum um hvaðeina,
sem hugur þeirra stendur til —
eða hringja milli kl. 10 og 12,
mánudaga til föstudaga, ef þeir
koma þvi ekki við að skrifa. Með-
al efnis, sem vel er þegið, eru
ábendingar og orðaskiptingar,
fyrirspurnir og frásagnir, auk
pistla og stuttra greina. Bréf
þurfa ekki að vera vélrituð, en
nöfn, nafhnúmer og heimilisföng
verða að fylgja öllu efiii til þáttar-
ins, þó að höfúndur óski nafii-
leyndar. Ekki verða birt nafhlaus
bréf sem eru gagnrýni, ádeilur
eða árásir á nafhgreint fólk.
Sérstaklega þykir ástæða til að
beina þvi til lesenda blaðsins utan
höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti
sinn hlut ekki eftir liggja hér í
dálkunum.
Athyglis-
verð bók
Til Velvakanda.
Nýverið las ég eina af bókunum,
sem komu út fyrir síðustu jól. Bók-
in ber heitið „Sendiherrafrúin segir
frá“. Það hefur ríkt þögn um þessa
bók á opinberum vettvangi. Sama
þögnin og umlukti Kristmann Guð-
mundsson á sínum tíma.
Ég vil íjúfa þessa þögn.
Þetta er frábærlega vel skrifuð
bók af höfundinum sjálfum, Hebu
Jónsdóttur.
Uppvaxin börn þessarar konu
mega svo sannarlega vera hreykin
af móður sinni.
Guðrún Jácobsen
Ribena
sólberjasafi
varla til neiít
hollara
Svunta af
barnavagni
Kæri Velvakandi.
Það var einn illviðrisdag í vetur
að ég varð fyrir því óhappi að
svuntan fór af vagninum mínum
við Engjasel 2 í Breiðholti og hefur
ekki fundist síðan. Þess vegna vil
ég biðja fólkið þar og víðar að
hafa augun hjá sér þegar það fer
að hreinsta til í görðum sínum fyr-
ir sumarið. Svuntan er mosagræn
af Silver cross vagni. Ég sakna
svuntunnar mikið þar sem vagninn
var svo fallegur. Svo vil ég biðja
fólk sem les þetta að geyma
símanúmerið ef ske kynni að
svuntan kæmi í leitirnar. Síminn
er 670272.
Sigríður Lund Hermannsdótt-
ir.
Þú svalar lestrarþörf dagsins y
ásíóum Moggans!
LAUSBLAÐA-
MÖPPUR
frá Múlalundi...
... þær duga sem besta bók.
Múlalundur
SÍMI: 62 84 50
' □
I
1 ö S * 3
m Jr æ-, m
W ' m
HÁÞRÝSTI-VC )KVAKERFI
Vökvamótorar
= HEÐINN =
VÉLAVERSLUN SÍMI 624260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA - LAGER
Kævu frú
Hvernig væri að fá elsku eiginmanninn með sér til
okkar að skoða hjónarúm?
Við eigum alveg einstaklega falleg rúm núna - og
stillum upp 30 mismunandi gerðum.
HÉR ERU FJÖGUR FRÁ RAUCH
GOÐDYM = GÓÐUR SVEFFi
FAX 91-673511 SIMI 91-681199
HUsgagnaHðllin
REGENT MÖBEL Á ÍSLANDl
BILDSHOFÐI 20 112 REYKJAVIK