Morgunblaðið - 29.05.1990, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIITI/AMNNUIÍF ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 1990
35
Fólk
■ ASGRIMUR
Hilmisson hefur
verið ráðinn úti-
bússtjóri Búnað-
arbankans á Eg-
ilsstöðum. Ás-
grímur hefur verið
starfsmaður Út-
vegsbanka ís-
lands frá 1964, Asgnmur
upphaflega í ýmsum deildum aðal-
bankans og síðar í útibúinu í
Glæsibæ þegar það var stofnað.
Árið 1972 fluttist hann til Akur-
eyrar og gegndi stöðu skrifstofu-
stjóra i útibúinu j)ar. 1978 varð
hann útibússtjóri Utvegsbankans á
Seyðisfirði, en frá_1982 hefur hann
verið útibússtjóri Útvegsbankans á
Akureyri. Ásgrímur lauk gagn-
fræðaprófi 1964 og árið 1973 var
hann um sex mánaða skeið hjá
National Westminster Bank í
London við nám. Ásgrímur er fædd-
ur 15. febrúar 1947. Hann er
kvæntur Ásu Sigríði Sverrisdótt-
ur og eiga þau tvær dætur.
■ BREYTINGAR á innra skipu-
lagi VISA ísland eru væntanlegar
á næstunni. Höfuðsvið verða fjögur
í stað þriggja áður, jafnframt því
sem gerðar eru tilfærslur á stafs-
og deildaskipan. Þá hefur verið ráð-
ið í tvær nýjar forstöðumannsstöð-
ur. Undir Stjórnsýslu fellur fjár-
málastjórn, almennur rekstur og
stafsmannahald. Forstöðumaður
þess er Leifúr Steinn Elísson,
hagfræðingur, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri, en hann hefur gegnt
því starfi síðan haustið 1986.
■ UNDIR Hag-
sýslu fellur yfir-
umsjón með öllu
reikningshaldi,
skýrslu- og áætl-
anagerð, hag- og
markaðskannanir.
Nýráðinn for-
stöðumaður þar er
Anna Inga Anna Infr;*
Grímsdóttir. Anna Inga er við-
skiptafræðingur frá HI, útskrifuð
af reikningshalds- og fjármálasviði.
Hún hefur lengst af starfað í Bún-
aðarbanka Islands, m.a. í hag-
deild,í endurskoðun sem skrifstofu-
stjóri og forstöðumaður afurðalána-
deildar. Síðustu tvö árin hefur hún
starfað sem fjármálastjóri hjá
Bræðrunum Ormsson hf. Hún
tekur til starfa i haust. Anna Inga
er ógift og barnlaus.
■ UNDIR Þjón-
ustu og gæða- E
stjórnun fellur I
yfirumsjón með [
starfsemi þeirra
stoðdeilda, sem
veita korthöfum,
kaupmönnum,
bönkum og spari-f
sjóðum þjónustu, Þórður
almannatengsl og markaðstengd
stafsemi. Nýráðinn forstöðumaður
þar er Þórður Jónsson. Hann er
viðskiptafræðingur að mennt, hefur
áður m.a. stafað' hjá hagdeild
Aðalfundur
Ólafúr Davíðs-
son talarhjá
Stjórnunar-
félaginu
ÓLAFUR Dav-
íðsson, fram-
kvæmdastjóri
Félags ísl. iðn-
rekenda, verður
aðalræðumaður
á aðalfúndi
Stjórnunarfélags
íslands sem hald-
inn verður á mið-
vikudag nk. í Víkingasal Hótel
Loftleiða.
Fundurinn hefst kl. 12 og að
loknum venjulegum aðalfundar-
störfum mun Ólafur flytja erindi
sem hann nefnir: „Standa íslenskir
stjórnendur af sér samkeppni innan
Evrópubandalagsins."
Landsbanka íslands, verið for-
stöðumaður Tölvudeildar SÍS, en
síðustu sjö árin hjá Arnarflugi hf.
Hann hefur störf síðari hluta maí-
mánaðar. Þórður er 45 ára, kvænt-
ur Björgu Kofoed-Hansen og eiga
þau þijú börn.
M Undir Tölvu og tækni fellur
sem áður kerfisþróun, tölvuvinnsla
og tæknileg umsýsla, samskipti við
Reiknistofu bankanna o.fl. For-
stöðumaður þar er Júlíus G.
Óskarsson kerfis- og viðskipta-
fræðingur og hefur hann gegnt því
starfi síðan 1987.
STUDENTAFAGNADUR
Nemendasambands Menntaskólans í Reykjavík verdur haldinn fóstudaginn
1. júní á Hótel íslandi og hefst með boróhaldi kl. 19.
Miðasala verður í anddyri Hótel íslands í dag, þriðjudaginn 29. maí, og mið-
vikudaginn 30. maíkl. 16.00-18.00ogfimmtudaginn 31. maikl. 16.00-19.00.
Samkvœmisklœðnaður
Stjórnin.
HJÓLABRETTAGENGIÐ
Þá er hún komin, myndin
sem allir krakkar verða að
sjá. „Gleaming the Cube“
er spennandi og skemmtileg
mynd, sem fjallar um Brian
Kelly og félaga hans, en
hjólabretti eru þeirra líf og
yndi. En óvæntir atburðir or-
saka það að hann og félagar
hans í „Hjólabrettagenginu"
verða að láta til sín taka.
Aðalhlutverk:
Christian Slater, Steven Bauer
og nokkrir af bestu hjóla-
brettamönnum heims.
iMU
kl. 5 - 7 - 9og 11
Komið og skoðið bretti
eins og notuð eru í
myndinni
Þar fæst allt fyrir
hjólabrettamanninn.