Morgunblaðið - 29.05.1990, Síða 56
56
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MAÍ 1990
//
Á/On/t vfar aS recjna aé fiyllCL, ci
e/rwota, icutít/are^"
sem þú sagðir áðan um
sameigilegan ávísana-
reikning okkar.
Með
morgnnkaffínu
Út á steikina er vinsælust
rjómasveppasósa og auð-
vitað tilheyrir þessu gott
rauðvín ...
HÖGNI HREKKVÍSI
INBLAÐIÐ I'RIÐJUDAGUR 22. MAI i
rr
smk
ní rf ■ ■■■» ------
VIEIRA UM STJÖRNUSPEKI
leika ..." ox tar er ég henni mjög til Galatamanna gagnrýnir Pall til-
Til Velvakanda.
| Ég vil þakka Helgu Sigurðardóttur
khugasemdir hennar í Velvakanda
. maí sl. Það er ágætt að skiptast
i skoðunum á málefnalegum grund-
i elli. Helga hefur það á móti fram-
setningu minni um stjörnuspeki i
Velvakanda 4. maí sl. að ég hafi
„tilhneigingu til að rugla saman trú
og stjörnuspeki". Vil ég því benda á
að stjörnuspeki nútimans grundvall-
ast á stjömuspeki fyrri tíðar manna,
t.d. Babýloníumanna og Egypta, og
var hún mikilvægur þáttur í frúar-
brögðum þeirra. Ef til vill skiptir það
ekki öllu máli hvort litið er á stjömu-
spekina sem trúarstefnu eða áhuga-
mál, þar sem Guð ráðleggur fólki
eindregið, hvort sem er, að koma
ekki nærri stjörnuspekinni (5. Móse-
hóu 10.2*
leika ...“ og þar er ég henni mjög
sammála, enda sagði 'Kristur um
sjálfan sig: „Ég er vegurinn, sann-
leikurinn og lífið“ (Guðspjall Jóhann-
esar 14.6). Kristur er uppspretta
sannleikans og orð hans, Biblían, ér
sannleikur. Sérhveija kenningu sem
boðar eitthvað sem er andstætt kenn-
ingu Drottins er ekki hægt að kalla
sannleika. Nú vill svo til að Kólossu-
menn forðum voru miklir aðdáendur
stjörnuspekinnar en nokknr þeirra
tóku trú á Jesúm Krist. Til að vara
þá við þeirri hættu að hverfa aftur
til fyrri villu, m.a. stjörnuspeki, skrif-
ar Páll postuli þetta: „Gætið þess að
enginn verði til að hertaka yður með
heimspeki og hégómavillu, sem
byggist á mannasetningum, er run-
nið frá heimsvættunum, en ekki frá
f hréfi sfnu
til Galatamanna gagnrýnir Páll til
heigingu þeirra til bókstafsdýrkunar
og stjörnuspek:. „Þér gefið gætur á
dögum og mánuðum, vissum tíðum
og árum. Ég er hræddur um yður,
að ég kunni að hafa haft erfiði fyri'
yður til ónýtis.“ (Gal. 4.10).
Að lokum þetta. í formála að bók
Gunnlaugs Guðmundssonar, „Hver
er ég?“, sem fjallar um stjörnuspeki
og Helga vitnar til, segir að tilgang-
ur bókarinnar sé að vekja fólk til
„umhugsunar og umræðu“. Þegar
umræða á sér stað um stjörnuspekina
er varla hægt að ætlast til þess að
allir séu höfundi eða Helgu sammála
í þessu efni, ekki síst þegar fólk kýs
fremur að hlýða orði Gyðs^sem er
svo afdráttarlaust á móti stjörnu
spekinni. Með bestu kveðju,
Steinþór Þórðarson.
Hættuleg-
ar fals-
kenningar
Til Velvakanda.
Fyrir skömmu birtist ágæt grein
í Morgunblaðinu þar sem sýnt var
fram á að stjörnuspeki væri and-
kristileg iðja. Þessi grein var svar
við annarri þar sem stjörnuspeki-
kukli var hrósað á hvert reipi. Svo
fávísir eru sumir menn að þeir halda
að þeir geti fundið einhvern stóra-
sannleik með því að góna út í geim-
inn og fylgjast með gangi himin-
tungla. Þetta hneykslar mig. Allir
kristnir menn ættu þó að vita að
Bibiían leggur bann við allri spá-
speki eins og stjörnuspeki. Sann-
leikann finnum við aðeins í Bibl-
íunni, bók bókanna, og ekkert gott
hlýst af því að leita út fyrir hennar
bókstaf. Furðulegt er að fólk sem
kallar sig kristið láti glepjast af
þessu tískufyrirbæri sem fyrst og
fremst er til þess að hafa af fólki
peninga. Morgunblaðið ætti að
hætta að birta stjörnuspár en það
á þakkir skilið fyrir að taka fram
á hveijum degi að þetta sé ekki
annað en vitleysa. Það ætti að
standa varhugaverð og mann-
skemmandi vitleysa.
I þessari sömu grein er einnig
vikið að því að prestarnir séu til
þess að áminna okkur. Einnig það
er alveg rétt. Prestarnir eiga að
mótmæla því sem Biblían bannar
og láta í sér heyra — það er þeirra
verk að standa vörð um hjörðina.
Margir þeirra rækja þetta hlutverk
sitt ekki og því líðst hveijum sem
er að troða upp með alls konar tál
og blekkingar. Vísindin, svokölluð,
þykjast í hroka sínum vita allt.
Vísindamennirnir segja að maður-
inn sé kominn af öpum og lífið
hafi orðið til fyrir tilviljun. Hvílík
forherðing, hvílík heimska. Og
þetta er blessuðum börnunum kennt
og það með að allt sé rétt sem kenn-
arinn segir. Ekki er hirt um að préd-
ika það sem Biblían kennir og inn-
ræta börnunum Guðs orð, hreint
og ómengað. Kristið fólk ætti að
taka sig saman um að útrýma þess-
um kenningum og hefja Biblíuna
til vegs.
Sannkristin kona
Þessir hringdu ...
Dýr íþróttaföt
Kristín hringdi:
„Það er allaf verið að tala um
ágæti þess að stunda íþróttir og
það hversu mikils virði uppbyggi-
leg áhugamál eru æskufólki. En
þegar foreldrar sitja upp með tvö
til þijú pör af of litlum, fokdýrum
íþróttaskóm og lágmarks útgjöld
til kaupa á íþróttafötum fyrir
sumarið eru 30 þúsund (en þá er
einvörðungu verið að tala um
keppnisföt) fara að renna á mann
tvær grímur.
Og ekki nóg með það heldur
er leit að íþróttafötum án auglýs-
inga. Þegar ofna á þetta bætist
neikvæður keppnisandi og stríðni
ef „þú ert ekki eins og allir hinir“
og oft á tíðum afspyrnu léleg
þjálfun, fara íþróttirnar að missa
glansinn. Það er kominn tími til
að við gerum upp við okkur hvort
við viljum veita íþróttum brautar-
gengi ánægunar vegna eða til að
styrkja aurasálir og illar hvatir.“
Armband
Silfurarmband tapaðist við
Laugaveg eða á leið gegnum
Þingholtin þriðjudaginn 22. maí.
Finnandi er vinsamlegast beðinn
að hringja í síma 21133 að degin-
um eða síma 17526 eftir kl. 19.
Kettlingar
Tveir gæfir kettlingar fást
gefnis. Upplýsingar í síma 13297.
Kápa
Rauð kápa var tekin í misgrip-
um í Siglfirðingakaffi í Safaðar-
heimilinu í Garðabæ. Viðkomandi
er vinsamlegast beðinn að skila
henni þangað eða hringja í síma
671301.
Úlpa
Kona hringdi:
„Sonur minn er í Kópavogs-
skóla. Úlpan hans var tekin í mis-
gripum en önnur skilin eftir. Hans
úlpa er númer 152 eða 154 en sú
sem skilin var eftir er nr. 140.
Hans úlpa er merkt inn á borðnum
og með tveimur lyklum í vasa.
Ég bið foreldra og börn í 2. eða
3. bekk að athuga hvort einhver
geti verið með ranga úlpu og hafa
þá samband við.mig síma 641367.
Úlpan var keypt í Hagkaup, hún
er græn með svörtum loðkanti á
hettu. Þetta úlputap kemur sér
mjög illa því að drengurinn er að
fara í sveit.“
Yíkverii skrifar
*
borgarstjórnarkosningunum
1958 unnu Sjálfstæðismenn
sinn mesta sigur fram að þeim tíma
undir forystu Gunnars Thorodds-
ens, sem þá var borgarstjóri. Þá
fékk Sjálfstæðisflokkurinn 10 full-
trúa í borgarstjórn eins og nú og
57,7% greiddra atkvæða, ef Víkveiji
man rétt. í borgarstjórnarkosning-
unum 1974 fékk Sjálfstæðisflokk-
urinn, sem þá var undir forystu
Birgis ísl. Gunnarssonar, þáverandi
borgarstjóra, ívið meira atkvæða-
magn eða 57,9% en hins vegar 9
borgarfulltrúa.
Nú hefur Davíð Oddsson slegið
þetta 32 ára gamla met Gunnars
Thoroddsens. Hann fékk jafnmarga
borgarfulltrúa kjörna én heldur
hærra atkvæðahlutfall eða 60,4%.
Pólitísk skilyrði Sjálfstæðisflokks-
ins í þessum kosningum voru svip-
uð. A árunum 1958 og 1974 sátu
óvinsælar vinstri stjórnir eins og
nú, en 1958 var harkan í pólitíkinni
miklu meiri en nú. Þótt aldrei sé
hægt að rökstyðja eftirfarandi
vangaveltur með nokkrum hætti
má þó spyija, hvort andstaða við
vinstri stjórnina 1956-1958 hafi átt
ríkari þátt í kosningaúrslitunum þá
en sterk málefnastaða og miklar
persónuvinsældir borgarstjóra átt
meiri þátt í kosningaúrslitunum nú
en óvinsældir ríkisstjórnarinnar.
Þess ber þó að geta, að Gunnar
Thoroddsen naut mikilla vinsælda
sem borgarstjóri á þeim árum. Það
gerði Geir Hallgrímsson raunar líka
þau 13 ár, sem hann var borgar-
stjóri Reykjavíkur, eins og glögg-
lega kom fram í prófkjörum á þeim
árum. Líklega hefur enginn forystu-
maður Sjálfstæðisflokksins náð jafn
góðum árangri í prófkjörum og
Geir gerði þá. Geir Hallgrímsson
fékk 9 menn kjörna í kosningunum
1962 en 8 menn 1966 og 1970 en
þá ber þess að geta, að allt hans
borgarstjóratímabil var Sjálfstæðis-
flokkurinn í ríkisstjórn og í kosning-
unum 1970 var þjóðin að feta sig
út úr mestu kreppu, sem þá hafði
skollið yfir í áratugi.
xxx
Einn frambjóðandi minnihluta-
flokkanna í Reykjavík jók
mjög veg sinn í kosningabaráttunni
að mati Víkveija, en það var Sigur-
jón Pétursson, borgarfulltrúi Al-
þýðubandalags. Hann sýndi í mál-
flutningi sínum mikla þekkingu á
borgarmálum og jafnframt þá sann-
girni að viðurkenna margt af því,
sem vel var gert af hálfu Sjálfstæð-
ismanna. Siguijón hefur áreiðan-
lega átt mestan þátt í því, að Al-
þýðubandalagið fór ekki enn ver
út úr kosningunum. Svipaða sögu
má segja um Sigrúnu Magnúsdótt-
ur, en hún átti við ramman reip að
draga, þar sem var upphlaup ann-
ars manns á lista Framsóknar, Al-
freðs Þorsteinssonar. Hann var
helzti dragbítur á framboð Sigrún-
ar, þótt hún héldi velli, eins og Elín
Ólafsdóttir við mikið andstreymi
vegna dvínandi fylgis Kvennalista.
xxx
Fulltrúar minnihlutaflokkanna
staðfestu strax á kosninga
'nóttina og á sunnudag kenningar
Sjálfstæðismanna um glundroðann
til vinstri. Seint á aðfararnótt
sunnudags byijaði Bjarni P. Magn-
ússon að skilja við Nýjan vettvang
í undarlegu samtali við Ríkisútvarp-
ið, þar sem hann virtist öðrum þræði
gera sér vonir um að ná kjöri, þótt
tölurnar segðu allt annað. I umræð-
um í útvarpssal eftir hádegi á
sunnudag voru fulltrúar minnihlu-
taflokkanna svo komnir í hár saman
og var satt að segja ósköp broslegt
að hlusta á það tal.