Morgunblaðið - 02.06.1990, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 02.06.1990, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 1990 VEÐUR Vínardrengjakórinn kominn á Listahátíð: Stoltir að hafa verið valdir til Islandsfarar að Vínardrengjakórnum sé skipt í fjóra hópa. „Yfirleitt syngur hver hópur í sínu lagi en stundum kem- ur fyrir að tveir hópar syngja sam- an. Við erum mjög stoltir yfir að hafa verið valdir til að fara til ís- lands,“ segir hann. „Það er eitt- hvað heillandi við þetta land, ein- hver dulúð.“ Þess má geta að strákarnir í kórnum eru allir á aldrinum 10-14 ára. Skrifstofiir Arnar- flugs innsiglaðar að kröfii Gjaldheimtu Svavar hættur sem framkvæmdasljóri GJALDHEIMTAN í Reykjavík lét í gær innsigla aðal- og söluskrif- stofu Arnarflugs í Lágmúla 7 vegna vanskila fyrirtækisins á staðgreiðslu opinberra gjalda. Flug verður þó með eðlilegum hætti um helgina. Laun starfs- fólks Arnarflugs verða ekki greidd út að fullu um þessi mán- aðamót og laun fyrir aprílmánuð voru greidd að hluta í síðustu viku. Svavar Egilsson lét af starfi framkvæmdastjóra félagsins hf. á stjórnarfúndi þess sl. miðviku- dag að eigin ósk, en starfínu hafði hann gegnt samhliða Kristni Sigtryggssyni. Skuld Arnarflugs við Gjaldheimt- una er vegna mars og apríl og nem- ur um sjö milljónum. Að sögn Óla Tynes hjá markaðsdeild fyrirtækis- ins hafði tekist að ná saman hluta upphæðarinnar, en Gjaldheimtan vildi fá alla skuldina greidda. „Um helgina verður lokið við að ná sam- an því sem upp á vantar og við stefnum að því að greiða það og opna skrifstofuna eins og venjulega á þriðjudaginn,“ sagði Oli. Þrátt fyrir að aðal- og söluskrif- stofu í Lágmúla hafi verið lokað, verður afgreiðsla flugfélagsins á Keflavíkurflugvelli opin áfram og þar verður hægt að afgreiða far- seðla að sögn Ola Tynes. Þá segir hann að flug um helgina verði með eðlilegum hætti. Arnarflug hafði frest til föstu- dags til að greiða húsaleiguskuld félagsins í Flugstöð Leifs Eiríksson- ar, en á miðvikudag fékk félagið lokaviðvörun um að greiða skuldina sem nemur 4,3 milljónum kr. Óli Tynes segir að félagið hafi átt í þriggja ára stríði við flugvallaryfir- völd vegna leigunnar sem hann kallaði okurleigu. „Við vorum með 11 fermetra bás og greiddum fyrir hann 120 þúsund kr. á mánuði í Innsigli borgarfógeta á skrifstofu Arnarflugs. leigu og sameiginlegur kostnaður var reiknaður sem hlutfall af leigu- gjaldi en ekki eftir fermetrafjölda. Við höfum leitað leiðréttinga á þessu og skrifað mörg bréf til ut- anríkisráðuneytisins vegna þessa máls en það hefur ekki tekist að fá fram leiðréttingu," sagði Óli. Kristinn Sigtryggsson, fram- kvæmdastjóri Arnarflugs, sagði í samtali við Morgunblaðið að Svavar Egilsson hefði farið fram á það að taka alfarið við daglegri stjórn á fyrirtækinu. „Hann afturkallaði þá ósk á þessum fundi. Með þeim hætti gekk hann út,“ sagði Kristinn Sigtryggsson, framkvæmdastjóri. Hann sagði að Svavar hefði ekki gefið neinar skýringar á ákvörðun sinni. „Ég mun standa við mínar skuld- bindingar í haust að uppfylltum öllum þeim skilyrðum sem ég hef sett,“ sagði Svavar Egilsson í sam- tali við Morgunblaðið. TUTTUGU og tveir kórdrengir úr Vínardrengjakórnum komu til Reykjavíkur í jgær. Kórinn heldur sína fyrstu tónleika í Akureyrar- kirkju í dag. A morgun syngur kórinn í Bessastaðakirkju klukkan ellefú. Að messu lokinni mun kórinn sitja móttöku í boði bæjar- stjórnar Garðabæjar að viðstöddum forseta Islands. A sunnudag og mánudag klukkan fímm mun kórinn svo halda tónleika í Há- skólabíói. Blaðamaður ræddi við tvo kór- drengjanna, þá Martin og Georg, við komuna til Reykjavíkur í gær. Hann forvitnaðist fyrst um það hvort ekki færi mikill timi í æfíng- ar með kómum. „Virka daga æfum við tvo tíma á dag,“ segir Georg. „Um helgar einn og hálfan. Það er nógur tími eftir til að læra og leika sér.“ Martin kinkar kolli og bætir við að þeir séu báðir að læra á hljóð- færi. Hann leikur á píanó en Ge- org á fiðlu. En hvers konar tónlist ætli þeir hlusti á? „Ég hlusta á alls konar tónlist„“ segir Martin. Aðspurður sagðist hann þó ekki hafa áhuga á tónlist Rolling Sto- nes. „Mér finnst Micheal Jackson betri, að minnsta kosti sum lög- in,“ segir hann. Martin og Georg hafa ferðast töluvert með kórnum. „Við höfum farið tvisvar til Bandaríkjanna, til Arabíu, Spánar og Ítalíu,“ segir Georg. Stjórnandi kórsins, Peter G. Marschik, hefur bæst í hópinn og nefnir fleiri lönd, Japan, Astr- alíu, Nýja Sjáland og Mexíkó. En hvemig ætli sambandið sé á milli strákanna? „Við emm allir góðir vinir,“ segir Martin. „Og leikum okkur mikið saman,“ bætir hann við. Georg samsinnir þessu. Þess má geta að strákamir eru öllum stundum saman því þeir eru allir Morgunblaðið/RAX Vínardrengjakórinn við komuna til Reykjavíkur í gær. Á innfelldu myndini eru Georg og Martin. Fyrir aftan þá sést Peter G. Mars- chik, stjórnanda kórsins, og Sigurði Björnssyni, framkvæmdastjóra Sinfóníuhljómsveitar íslands, bregða fyrir. VEÐURHORFUR I DAG, 2. JUNI YFIRLIT í GÆR: Um 600 km suösuðaustur af Hornafirði er 998 mb lægö á hreyfingu austsuðaustur, en 963ja mb lægð um 500 km suðvestur af Hvarfi þokast norðaustur. SPÁ: Sunnan- og suðaustanátt um land allt, víðast gola eða kaldi. Dálítil rigning á stöku stað á Suður- og Vesturlandi, en yfirleitt þurrt annars staðar. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á HVÍTASUNNUDAG: Fremur hæg sunnan- og suðvest- anátt á landinu. Víða léttskýjaö á Norður- og Austurlandi, en skýj- að að mestu og sums staðar smáskúrir eða súld með köflum á Suður- og Vesturlandi. Hiti 10 til 18 stig. HORFUR Á ANNAN í HVÍTASUNNU: Austan- og suðaustanátt og skýjað um mest allt land. Dálítil rigning á Suður- og Suðvestur- landi, en yfirleitt þurrt í öðrum landshiutum. Hiti á bilinu 8 til 16 stig. TAKN: Heiðskírt Lettskýjao Hálfskýjaö Skyjað Alskýjað /, Norðan, 4 vindstig: * Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. r r r r r r r Rigning r r r * r * r * r * Slydda r * r * * * * * * * Snjókoma * * * ■j 0 H'itastig: 10 gráður á Celsius ý Skúrir * V El = Þoka = Þokumóða ’, ’ Súld OO Mistur —J- Skafrenningur [TJ Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM Ht kl. 12:00 í gær að ísl. ti hiti veður Akureyri 13 skýjað Reykjavík 13 skýjað Bergen 13 rigning Helsinki 20 léttskýjaö Kaupmannahöfn 15 skýjað Narssarssuaq 11 moldrok Nuuk 5 rigning Osló 13 þokumóða Stokkhólmur 20 skýjað Þórshöfn 8 sútd Algarve 26 léttskýjað Amsterdam 24 hálfskýjað Barcelona 24 hálfskýjað Berlín 22 léttskýjað Chicago 18 alskýjað Feneyjar 22 þokumóða Frankfurt /25 skýjað Glasgow /14 rigning Hamborg 20 skýjað Las Palmas ( 22 alskýjað London 23 alskýjað Los Angeles 13 heiðskirt Lúxemborg 23 skýjað Madríd 25 mistur Malaga 25 heiðskírt Mallorca 26 léttskýjað Montreal 16 skýjað New York 19 helðskirt Orlando 25 skýjað París 26 léttskýjað Róm 23 heiðskfrt Vfn 17 skýjað Washington 16 mistur Winnlpeg 16 léttskýjað í sérstökum heimavistarskóla í Vín. Stjómandinn, Peter G. Mars- chik, segir að 50-60 strákar sæki árlega um inngöngu í kórinn. „Við prófum þá og yeljum úr 30 heil- brigðar raddir,“ segir Peter. „Það skiptir ekki máli þó strákarnir hafí ekki lært að syngja en auðvit- að er það ekki verra. Það skiptir meira máli að þeim gangi vel í skóla og að þeir séu kurteisir." Peter var sjálfur í Vínardrengja- kórnum þegar hann var yngri. „Ég held að það sé mjög þroskandi að vera í kór eins og þessum," segir hann. „Drengirnir læra að vinna saman og taka tillit hver til ann- ars. Auk þess gefst þeim kostur á að ferðast til útlanda.“ Peter segir Strákamir segjast báðir hlakka til að skoða sig um á Islandi. I skólanum hafa þeir lært ýmislegt um landið. Þeir minnast á íslenska fískinn og litlu hestana. í skólan- um hafði kennarinn líka talað um sögumar. Á íslandi verða strák- amir í fímm daga. ÍPAGkl. 12.90 HelmiW: Veðuisioia IsWnds (Byggf á vaOutspá M 16.J5 f gowf

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.