Morgunblaðið - 02.06.1990, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 02.06.1990, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 1990 KNATTSPYRNA / 2. DEILD Sovétmaður og Tékki til Tindastóls? MIKLAR líkur eru á því að Sov- étmaður og Tékki muni bætast í raðir körfuknattleiksmanna Tindastóls fyrir næsta vetur. Sovétmaðurinn sem leikmaður og Tékkinn sem þjálfari. Falleg mörk í Kópavogi Breiðablik vann Grindavík 2:1 í Kópavogi. Hilmar Sighvatsson skoraði eina mark fyrri hálfieiksins. Hann sendi knöttinn mjög laglega neðst í markhornið Katrín beint úr aukaspyrnu Friðríksen skammt utan víta- skrífar teigs, á 17. mín. A 51. mín. skor- aði Breiðablik aftur eftir fallegt spil. Þar var Þorsteinn Geirsson að verki með skoti utan af hægri kanti, neðst í hornið fjær. Mjög vel var að markinu staðið; undirbúning- urinn laglegur, en Skúli Jónsson markvörður hefði þó átt að ná að veija. Gunnlaugur Einarsson kom inn á miðjuna hjá Grindvíkingum strax eftir hlé og.lífgaði mjög upp á spil- ið. Eftir að Blikarnir komust í 2:0 sóttu Grindvíkingar meira, Ragnar Eðvaldsson átti m.a. skot í stöng af stuttu- færi og síðan minnkuðu þeir muninn á 66. mín. Einar Daní- elsson fékk boltann á miðju, „labb- aði“ framhjá fimm varnarmönnum, var allt í einu í teig fyrir miðju marki og skoraði auðveldlega. Ótrú- legt en satt! Mjög vel gert. Þorsteinn Geirsson var mjög góð- ur í liði Breiðabliks, Eiríkur í mark- inu og Guðmundur Guðmundsson léku einnig vel, svo og Valur en hann fór meiddur af velli snemma í seinni hálfleik. Hjá Grindvíkingum var Einar Daníelsson bestur. Eina Asbjörn Ólafsson lék einnig vel og varamaðurinn Gunnlaugur Einars- son breytti leik liðsins til hins betra í síðari hálfleik. Barátluleikur í Garðinum Víðismenn kræktu sér í dýrmæt stig í Garðinum í gærkvöldi þegar þeir sigruðu Siglfirðinga 1:0 í miklum baráttuleik. Steinar Ingi- ■■■■■■ mundarson skoraði Björn sigurmarkið í fyrri Blöndal hálfleik með glæsi- skrífarfrá legu skoti sem markvörður Sigl- firðinga átti ekki möguleika á að verja. Víðismenn léku oft ágætlega framan af í fyrri hálfleik, en eftir að þeir höfðu skorað datt botninn úr leik þeirra. Siglfirðingar áttu þá nokkur hættuleg upphlaup og áttu meðal annars skot í stöng. Síðari hálfleikur var ekki eins góður og sá fyrri og höfðu leikmenn hvorugs liðsins þá erindi sem erfiði. Morgunblaðið/Einar Falur Twö fyrstu mörk Fylkis gegn Leiftri í gærkvöldi. Á stóru myndinni gerir Þoi-valdur markvörður örvæntingarfulla tilraun til að koma í veg fyrir sjálfsmark Steingríms Eiðssonar (2:0), en á þeirri minni skorar Indriði Einarsson fyrsta markið án þess að Ómar Torfason, þjálfari og leikmaður með Leiftri, fái rönd við reist. Óskabyijun Fylkis Tvö mörk á upphafsmínútunum kváðu Leiftur í kútinn Skúli Unnar Sveinsson skrifar ÞAÐ má með sanni segja að Fylkismenn hafi fengið óska- byrjun gegn Leiftri í Arbæ. Þeir skoruðu tvö mörk á aðeins tveggja mín. kafla í upphafi leiks, á 10. og 12. mín., og eft- ir það var aldrei spurning um hvað hvort lið færi með sigur af hólmi. Fyrsta markið skoraði Indriði Einarsson með glæsilegu skoti úr miðjum teig, efst í markhornið. Vöm Leifturs var mjög illa á verði og mistókst að spyrna út úr teign- um í þrígang áður en knötturinn barst til Indriða. Strax tveimur mín. síðar sá varnarmaður- inn Steingrímur Örn Eiðsson um að auka forskot Árbæinga er hann skallaði í eigið mark. Hann ætlaði Þorvaldi markverði sendinguna, en boltinn sigldi framhjá Þorvaldi og í markið. Enginn andstæðingur var nálægur og enginn hætta virtist þvi á ferðum. Kristinn Tómasson sá um að inn- sigla sigurinn með þriðja marki leiksins. Ingi Ingason lék upp að endamörkum vinstra megin, gaf á Indriða sem átti gott skot sem Þor- valdur varði. Hann hélt þó ekki knettinum, Kristinn fylgdi vel á eftir og skoraði af öryggi. Sigur Fylkis var mjög öruggur. Pétur Óskarsson, aftasti maður í vörn, var besti maður liðsins — mjög öruggur. Einnig léku Páll Guðmundsson markvörður, Indriði og Hörður Valsson vel. Hjá Leiftri var fátt um fína drætti. Allan brodd vantaði í leik liðsins. Björn Björnsson skrifarfrá Sauöárkróki Tindastóll vann ÍR á Sauðárkróki Tindastóll sigraði ÍR 3:1 á Sauð- árkróki. Guðbrandur Guð- brandsson skoraði fyrst fyrir hei- maliðið á 42. mín. Guðbjartur Magnason átti þá skot eftir fyrirgjöf, markvörður ÍR varði en missti knöttinn frá sér og Guð- brandur Guðbrandsson fylgdi vei á eftir og skoraði. Eftir þetta færðist mikið líf í ÍR-inga og þeir áttu þunga sókn að marki Tindastóls sem ekki bar þó árangur. Tindastólsmenn komu sprækir til leiks eftir hlé og á 50. mín. átti Guðbrandur fallega fyrigjöf frá hægri, Guðbjartur batt endahnútinn á sóknina og skoraði, 2:0. ÍR-ingar tvíefldust við mótlætið og gerðu harða hríð að marki heimamanna. Leikurinn fór að mestu fram á vall- arhelmingi Tindastóls, sem þó átti nokkrar skyndisóknir — og í einni þeirra skallaði Björn Sigtryggsson í þverslá. En barátta ÍR-inga bar ávöxt á 63. mín. Vörn Tindastóls gerði þá hver mistökin af öðru og Jón G. Bjarnason skoraði fyrir ÍR. Jónas Björnsson skoraði svo þriðja mark heimamanna á 75. mín. með glæsilegu skoti beint úr aukaspyrnu rétt utan vítateigs. í heild var leikurinn heldur léleg- ur, baráttuleikur og mistök á báða bóga. ÍR-liðið virkaði meira sann- færandi, reyndi meira stutt spil en náði ekki að nýta sér nema eitt þeirra tækifæra er liðið fékk. Sókn- armenn Tindastóls voru beittari og heppnari en ÍR-ingar en vörn liðsins var oft illa á verði og áttu ÍR-ingar mjög auðvelt með að leika báða kantana fría og skapa þannig hættu við mark Tindastóls. Jón G. Bjarnason var bestur hjá IR og Stefán Arnarson, markvörð- ur, var bestur í heimaliðinu. Auk þess átti Ólafur Adolfsson góðan ieik í vörn Tindastóls. Júgóslavarnir bestir á Selfossi Keflvíkingar gerðu góða ferð til Selfoss í gærkvöldi og sigruðu heima- menn 2:1 í frekar slökum en jöfnum leik. Júgóslavinn Marko Pan- asic kom gestunum á bragðið með góðu marki um miðjan fyrri hálfleik og stundarfjórðungi fyrir leikslok bætti Jóhann Magnússon öðru marki ■■■^■1 við. Páll Guðmundsson minnkaði muninn einni mínútu fyr- Frá ir leikslok. Ekki er ástæða til að hæla neinum sérstökum, Sigurði en segja má að júgóslavnesku leikmennirnir, tveir hjá Sel- Jónssym fossi og einn hjá Keflavík, hafi verið bestir. íþróttasamband íslands: Hvetur til samstöðu gegn siðleysi F ramkvæmdastjórn ÍSÍ sendi Morgunblaðinu eftirfarandi: „í tilefni þeirrar smekklausu og leiðinda atburða, er áttu sér stað á Laugardalsvellinum í tengslum við landsleik íslands og Albaníu hinn 30. maí s.l. ályktar framkvæmdastjóm ÍSÍ eftirfar- andi: Framkvæmdastjórnin harmar þá siðlausu og sjúklegu atburði er áttu sér stað í tengslum við umræddan landsleik og hvetur alla hlutaðeigandi aðila, svo sem vallaryfírvöld, lögreglu og Knatt- spymusamband íslands til að kanna og leita allra hugsanlegra leiða til að slíkir atburðir endur- taki sig ekki. Hvers kvns skrílslæti, óregla og uppþot á kappleikjum erlendis, eru öllum kunn af fréttum. Sýni- legt er, að hliðstæðra tilhneiginga gætir hérlendis. Af þeirri ástæðu er gríðarlega mikilvægt að allir, sem áhrif geta haft, leggist á eitt og sameinist um að koma í veg fyrir samskon- ar þróun hér á landi. Sterkt og öflugt almenningsálit vegur þar einnig þungt. Framkvæmdastjórn ÍSÍ hvetur því alla sem hlut eiga að máli, og heitir þeim stuðningi sínum í þeirri viðleitni að skapa sérhveij- um kappleik og íþróttamóti þá ímynd og umgjörð, sem samboðin er drengilegri og heiðarlegri íþróttakeppni." Nánast er frágengið samkomu- lag við Sovétmanninn, sem er 2,11 metrar á hæð, 26 ára og hefur leikið bæði með A og B-landsliði ■■■■■■ Sovétríkjanna. Þá er Björn ' aðeins beðið eftir Blöndal undii'skrifts samn- skníar ings við tékkneska þjálfarann. Um er að ræða þjálfara sem starfað hefur 17 ár í tékknesku úrvalsdeildinni og hefur verið þar með lið í topp- bai'áttunni. Búist er við, að þegar samningar hafa verið undirritaðir að báðir þessir menn komi til lands- ins um mánaðannótin júlí/ágúst, en þá vei'ður undirbúningurinn und- ir keppnistímabilið kominn á fulla ferð. HANDBOLTI Ámi Indriða- son stjómar Víkingum Arni lndriðason, sem hefur þjálfað Gróttu undanfarin ár, fer aftur á fornar slóðir á næsta keppnistímabili — verður Guðmundi Guðmundssyni, þjálf- ara Víkings, til aðstoðar og stjórnar liðinu í leikjum. „Við erum mjög ánægðir með að hafa fengið Arna aftur til liðs við okkur,“ sagði Kristján Sigmuudsson, formaður Hand- knattleiksdeildar Víkings, við Morgunblaðið. „Við þurftum á hæfum þjálfara að halda til að Guðmundur gæti einbeitt sér sem leikmaður í leikjum og leit- uðum því til Árna.“ URSLIT KIMATTSPYRNA 2. dcild: Víðir-KS..........................1:0 Steinar Ingimundarson. UBK—Grindavík.....................2:1 Hilmar Sighvatsson, Þorsteinn Geirsson — Einar Daníelsson. Tindastóll—ÍR.....................3:1 Guðbrandur Guðbrandsson, Guðbjartur Magnússon, Jónas Björnsson — Jón G, Bjarnason. Fylkir—Leiftur....................3:0 Indriði Einarsson, Steingrímur Örn Eiðsson (sjálfsmark), Kristinn Tómasson. Selfoss—ÍBK.......................1:2 Páll Guðmundsson — Marko Panasic, Jó- hann Magnússon. 3. deild: Völsungur—TBA.....................2:1 Ásmundur Amarsson, Erling Aðalsteinsson — Halldór Jóhannsson. ^ BÍ-Dalvík.........................1:2 Stefán Tryggvason — Þorsteinn Guðbjarts- son, Ágúst Sigurðsson. Haukar—Þróttur N..................3:1 Brynjar Jóhannesson 3 — Kristján Svavars- son. Þróttur R.—Einheiji...............7:0 Óskar Óskarsson 2, Ásmundur Vilhelmsson 2, Sigurður Hallvai-ðsson, Ásmundur Helga- son, Haukur Magnússon. 4. deild: Árvakur—HK........................3:1 Páll Bjömsson, Elías Guðmundsson, Vil- helm Frederiksen — Róbert Haraldsson. Augnablik—Hafnir..................3:4 Sigurður Halldórsson, Viðar Gunnarsson, Guðmundur Halldórsson — Ólafur Sól- mundsson 2, Hallgiimur Sigurðsson, eitt sjálfsmark. ÞRIÞRAUT ISI Á morgun verður fyrsta keppni í þríþraut á vegum ISÍ, en frekari mót eru fyrirhuguð í sumar. Keppt et' í sundi, hjólreiðum og hlaupi. Byijað verður í sundlauginni í Hveragerði kl. 8:30 í fyrramálið og synda keppendur 1.100 metra. Síðan verður hjólað . áleiðis , til Reykjavíkur ,unj það bil 30 km og loks hlaupið 7,5 til 8 km inn í Árbæ. KORFUBOLTI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.