Morgunblaðið - 02.06.1990, Blaðsíða 48
Engum líkur
LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 1990
VERÐ f LAUSASÖLU 90 KR.
Akureyri:
Sjálfstæðis-
flokkur og Al-
™þýðubandalag
í meirihluta
Sjálfstæðisflokkur og Alþýðu-
bandalag náðu samkomulagi um
meirihlutasamstarf í bæjarstjórn
Akureyrar í gær. Málefnasamn-
ingur verður borinn undir at-
kvæði flokksmanna á þriðjudag.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins verður Halldór Jónsson,
framkvæmdastjóri Fjórðungssjúkra-
hússins, bæjarstjóri. Flokkarnir
skiptast á um að manna.stöður for-
manns bæjarráðs og forseta bæjar-
stjórnar.
Sjá bls. 28.
Metverð fyrir
þorsk í Eyjum
KAUPENDUR af Faxaflóasvæði
greiddu allt að 94 krónur fyrir
þorskkílóið í Eyjum í gær. Eyja-
menn gerðu ekki alvöru úr því að
flytja út meira af ísfíski en heimild-
ir Aflamiðlunar leyfðu.
„Ég trúi ekki öðru en að sá fiskur
sem hvorki er hægt að flytja út né
^•Finna hér geti vel selst á Faxaflóa-
svæðinu," sagði Geir Siguijónsson
hjá Sjávarfiski í Hafnarfirði.
Sjá bls. 20
Fengu 100 g
af kókaíni
frá Kólumbíu
ÞRÍR menn á þrítugsaldri hafa
verið úrskuröaðir í gæsluvarðhald
til 15. þessa mánaðar eftir að fíkni-
efnalögregla handtók þá í húsi í
Reykjavík með um 100 grömm af
kókaíni í fórum sínum. Efnið höfðu
>"%ennirnir fengið sent frá Kól-
umbíu.
Einu sinni áður hefur komist upp
um kókaínsmygl hingað til lands frá
Kólumbíu og var þá um smávægilegt
magn að ræða, að sögn Arnars Jens-
sonar lögreglufulitrúa. Að sögn hans
bendir ýmislegt til að mennirnir hafi
áður fengið sendingar af þessu tagi
eða eigi von á fleiri slíkum og bein-
ist rannsókn málsins meðal annars
að því.
Sá einstæði atburður gerðist síðastliðinn fimmtudag, að nunnurnar
í Karmelklaustrinu í Hafnarfirði opnuðu heimkynni sín og kapellu
fyrir forseta íslands frú Vigdísi Finnbogadóttur og öðrum gestum.
Var þetta gert í tilefni af 50 ára afmæli klaustursins. Hér sést forseti
í kapellu nunnanna í hátíðarmessu en við hlið frú Vigdísar situr Vil-
borg Kristjánsdóttir, fulltrúi forseta.
Sjá frásögn af aímælishátíðinni á miðopnu blaðsins.
Framkvæmdasljórn VSÍ ræðir verðlagsþróunina á þriðjudag:
Hætta á að vísitalan fari
0,6 stig yfir rauða strikið
FRAMKVÆMDASTJORN Vinnu-
veitendasambands Islands ræðir á
fundi á þriðjudag áætlanir um
verðbólgu næstu mánaða og hvað
hugsanlegar leiðir til að hafa áhrif
á þróunina til að forsendur gild-
andi kjarasamninga standist.
Samkvæmt áætlun sem Þjóðhags-
stoftiun hefúr gert fyrir forsætis-
ráðherra er útlit fyrir að hraði
framfærsluvísitölunnar verði 6%
í sumar sem er meira en gert var
ABR skorar á Ólaf Ragnar að segja af sér formennsku:
'Ætla mér að sitja áfram
sem formaður flokksins
- segir Ólafur Ragnar Grímsson
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ í Reykjavík hélt aðalfúnd sinn í fyrrakvöld
og þar var samþykkt áskorun til Olafs Ragnars Grímssonar, þess efn-
is að hann segi af sér formennsku í flokknum hið fyrsta. Atkvæði féllu
þánnig að 31 studdi þessa tillögu en 28 voru andvígir henni.
Ályktun fundarins um áskorun til
miðstjómar flokksins um að boða tii
landsfundar á komandi hausti var
samþykkt með öllum greiddum at-
kvæðum nema einu. I ályktuninni
er þess krafist að á Iandsfundi í
haust verði tekin afdráttarlaus af-
staða til þess hvernig vinnubrögðum
flokksins og formanns hans skuli
Tiáttað í framtíðinni.
„Alþýðubandalagið er lýðræðis-
legur flokkur. Þar hafa menn fuli-
komið frelsi til að hafa sínar skoðan-
ir. Eg var hins vegar kosinn formað-
ur Alþýðubandalagsins og ætla mér
að gegna því starfi áfram,“ sagði
Olafur Ragnar Grímsson í samtali
við Morgunblaðið í gær, þegar hann
var spurður hver viðbrögð hans yrðu
við ofangreindri áskorun. Ólafur
sagði að á undanförnum misserum
hefði hann unnið að því að fram-
kvæma stefnu flokksins og ríkis-
stjórnarinnar, með-þeim árangri sem
nú væri óðum að koma í ljós. „Eg
ætla mér að varðveita þann árang-
ur,“ sagði Ólafur Ragnar.
Ólafur Ragnar sagði að allt of
snémmt væri að taka afstöðu til
þess nú hvort orðið yrði við beiðn-
inni um að halda landsfund í haust.
„Það sem mér fannst athyglisvert
við þennan fund Alþýðubandalagsins
í Reykjavík í gær voru þær atkvæða-
tölur sem þar komu fram og endur-
spegla greinilega mjög mismunandi
sjónarmið á fundinum," sagði Ólafur
Ragnar Grímsson.
Sjá Af innlendum vettvangi: í
góðsemi þeir vega hver annan,
bls. 18 og 19.
ráð fyrir við gerð kjarasamning-
anna. VSI telur hættu á að vísital-
an fari 0,6 stig yfir rauða strikið
í september.
Við gerð kjarasamninganna var
gert ráð fyrir 4,2% hækkun fram-
færsluvísitölu frá maí 1990 til maí
1991. Sett var upp áætlun um þróun
hennar á tímabilinu, svokölluð rauð
strik. Fyrsta rauða strikið var í
maí, 144,5 stig, og þá reyndist vísi-
talan 144,4 stig, eða 0,1 stigi undir
áætlun. Næsta rauða strik er í sept-
ember, 146,4 stig, það þriðja í nóv-
ember, 147 stig, og það síðasta í
maí 1991, 150,7 stig. Fari vísitalan
yfir þessi mörk tekur til starfa launa-
nefnd aðila þar sem ASI hefur odda-
mann og hún ákveður hvort og hve
miklar launahækkanir eigi að greiða
vegna hækkunar vísitölunnar um-
fram það sem kjarasamningar gera
ráð fyrir._ Sætti VSÍ sig ekki við nið-
urstöðuna getur það sagt samning-
unum upp. I nóvember á launanefnd
að endurmeta forsendur samning-
anna og náist ekki samkomulag
geta báðir aðilar sagt þeim upp.
Einar Oddur Kristjánsson, for-
maður VSÍ segir að samkvæmt áætl-
unum vinnuveitenda sé hætta á að
framfærsluvísitalan fari 0,6 stig yfir
áætlun í september og muni fram-
kvæmdastjórn VSÍ ræða viðbrögð
við því á þriðjudag. Hann leggur
áherslu á að ekki sé ástæða til að
grípa til efnahagsráðstafana að
íslenskum hætti. Einar sagði að við
gerð samninganna hefðu verið- gerð-
ar áætlanir um feril verðbólgunnar
og þær hafðar eins stífar og mögu-
legt var og allir gert sér grein fyrir
því. Þessar áætlanir hefðu staðist
hingað til en nú væri útlit fyrir að
framfærsluvísitalan í september færi
lítillega yfir sett markmið. „Okkar
sjónarmið er að tvímælaiaust eigi
að reyna að finna raunhæfar leiðir
til að láta forsendur samninganna
halda,“ segir Einar Oddur.
Einar þvertekur fyrir að VSÍ hafi
dregið úi' aðhaldi að hækkunum.
Hann vekur athygli á að verðbólgan
sé enn á áætlun og með kjarasamn-
ingunum hafi verðbólgunni ekki ver-
ið eytt. Verðbreytingarnar að und-
anförnu hafi ekki verið meiri en
menn áttu von á og þær eigi ekki
að skapa óróa. Sem ástæður fyrir
hækkunum nefnir hann óhagstæða
gengisþróun fyrir innflutningsversl-
unina og hækkun innflutningsverðs
vegna verðbólgu erlendis.
Guðmundur J. Guðmundsson, for-
maður Dagsbrúnar, segir of mikla
hreyfingu komna á verðlag eftir
nokkurt stöðugleikatímabil. Segist
hann óttast að þær hækkanir, sem
ákveðnar hafa verið að undanförnu,
leiði af sér hækkanir hjá öðrum sem
reynt hafi sitt ýtrasta til að halda
aftur af hækkunum. „Ef þessi ókyrrð
sem nú er að skapast fær útrás
kemur hún yfir á vinnumarkaðinn
og þá missum við tökin og leikurinn
tapast," segir Guðmundur. Hann
segir að rikisstjórnin verði að stöðva
þróunina með.ainhveijum. hætti.
*
Forseti Islands í Karmelklaustri
Morgunblaðið/KGA