Morgunblaðið - 02.06.1990, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 02.06.1990, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 1990 Fjöldamorðanna í Kína minnst: Torgi hins himn- eska friðar lokað Peking. Reuter. Á MÁNUDAG verður ár liðið frá (jöldamorðunum á Torgi hins himneska friðar í Peking og verður lögregla með mikinn við- búnað í höfuðborginni. Torginu verður lokað og allt gert til að koma í veg fyrir að mótmæli brjótist út. Talið er að hundruð eða jafnvel oúsundir lýðræðissinna hafí beðið oana er hersveitir kváðu mótmæli peirra niður með grimmdarlegum hætti 4. júní í fyrra. Þrír þeirra, sem efndu til mótmælasveltis á Torgi hins himneska friðar tveimur dögum fyrir blóðsúthellingamar, úugðust halda blaðamannafund á fimmtudag til að krefjast þess að pólitískar fangar yrðu látnir lausir. Þeir aflýstu hins vegar fundinum í skyndi og ekkert var vitað um af- drif þeirra fyrr en í gær er greint var frá því að einn þeirra væri í vörslu lögreglu. Ellefu fangar voru teknir af lífí í Peking á miðvikudag og var til- gangurinn sá, að sögn stjórnvalda, að tiyggja að erlendir gestir geti notið Asíuleikanna í friði og spekt. Mennirnir voru sagðir hafa gerst sekir um morð, nauðganir og rán. Asíuleikarnir verða haldnir í Pek- ing eftir rúma þijá mánuði. „Við verðum að herða baráttuna gegn hvers kyns glæpaöflum til að tryggja að erlendir vinir okkar geti átt ánægjulega daga hér í Peking í friði og spekt,“ sagði í forystu- grein blaðsins. Pekinglögreglan er sögð hafa komið upp um 1144 af- brot að undanförnu. Reuter Lögreglan í Peking hefúr hert öryggiseftirlit í höfuðborginni og nágrenni hennar að undanfornu. Á myndinni eru lögreglumenn að handtaka konu, en hvorki var vitað um ástæður handtökunnar né hver afdrif hennar urðu. Skömmu áður en hún var handtekin hafði útlendingur átt orðastað við hana. Öryggisráð SÞ: Bandaríkin koma Israel- um til varnar Sameinuðu þjóðunum, Nicosíu. Reut- er. Bandaríkjamenn beittu á fimmtudag neitunarvaldi í ör- yggisráði Sameinuðu þjóðanna gegn tillögu um að send yrði þriggja manna nefnd til her- numdra svæða Israela til að kanna hvernig vernda skyldi líf Palestínumanna. Arabaþjóðir brugðust ókvæða við þessari ákvörðun Bandaríkja- manna en ísraelsstjóm fagnaði henni. Stjómin gaf til kynna að búast mætti við hefndaraðgerð- um - og þá líklega gegn Líbýu- mönnum - vegna strandhöggs hryðjuverkahópsins Frelsisfylk- ingar Palestínu (PLF) á bað- strönd skammt frá Tel Aviv á þriðjudag. Líbýustjórn vísaði því á bug að hún væri viðriðin strand- höggið. Landsbergis hittir Jeltsín; Ætla að smðganga aðflutn- ingsbannið gegn Litháen Moskvu. Reuter. BORIS Jeltsín, nýkjörinn forseti Sovétlýðveldisins Rússlands, átti í gær firnd með Vytautas Landsbergis, forseta Litháens. Meðal annars var rætt um viðskipti landanna en Jeltsín hefiir lýst sig reiðubúinn til að virða aðflutningsbann Sovétstjórnarinnar gegn Litháum að vettugi og sjá þeim meðal annars fyrir olíu og gasi. Ekki er ljóst hvemig Jeltsín Mið-Asíulýðveldunum Tadzhikist- er getur komið Litháum til hjálpar. Lestakerfí Sovétríkjanna heyrir undir ráðuneyti í Moskvu sem nýverið kom í veg fyrir að Litháar sendu kjöt til Síberíu í skiptum fyrir olíui. Spurningin er því hveij- um lestarstarfsmenn hlýða, Míkhaíl Gorbatsjov, forseta Sov- étríkjanna, eða Jeltsín. Þar við bætist að sökum boð- aðra efnahagsaðgerða Sovét- stjómarinnar era borgir, hérað og jafnvel Iýðveldi í Sovétríkjunum í vaxandi mæli treg til að leyfa brottflutning á vöra. Ráðamenn í an og Uzbekistan hafa þegar stöðvað útflutning á ferskum ávöxtum og grænmeti. Héraðs- stjórnir í nágrenni höfuðborgar- innar Moskvu hafa einnig dregið úr fiutningi þangað á kjöti, vodka og annarri vöra sem skortur er á. Tilgangurinn er meðal annars sá að þvinga borgaryfirvöld í Moskvu til að falla frá ákvörðun sinni um að banna sölu á eftir- sóttri vöra til annarra en borg- arbúa. Reuter Vytautas Landsbergis EFTA-EB: Agreiningur um fyrirvara Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. STJÓRNARNEFND Fríverslun- arbandalags Evrópu (EFTA) í viðræðum bandalagsins við Evr- ópubandalagið (EB) reyndi ár- angurslaust í vikunni að ná sam- komulagi um lista yfir fyrirvara og' undanþágur, sem leggja á sameiginlega fram af hálfu EFTA-ríkjanna í væntanlegum samningaviðræðum við EB. Framkvæmdastjórn EB hefiir ótvírætt gefið í skyn að undan- þágum verði haldið í algjöru lág- marki í samningnum um Evr- ópska efnahagssvæðið (EE.S) en samkvæmt heimildum í Genf hafa EFTA ríkin hvert í sínu lagi lagt fram tugi fyrirvara. Fyrirvararnir vora lagðir fram í vinnuhópum embættismanna í vet- ur, flestir snúast þeir um lítilfjörleg tæknileg atriði. Settu íslendingarn- ir til dæmis fram fyrirvara vegna sérstakra reglna um ljósatíma bif- reiða á íslandi. Mikilvægu fyrirvar- arnir varða sameiginlegan vinnu- markað, fjármagnsflutninga og samgöngur. Austurríkismenn og Svisslendingar hafa ekki verið til umræðu um að fella inn í samning- inn um EES samkomulag um um- ferð flutningabíla í gegnum löndin. Innan Evrópubandalagsins er hins vegar lögð mikil áhersla á að leyst verði úr þeim deilum með EES samningnum. Líklegt er talið að samkomulag takist um flesta fyrir- varana en ljóst er að haldið verður fast í fyrirvara vegna vinnuafls og náttúruauðlinda. Stjórnarnefnd EFTA í viðræðun- um kemur saman til fundar í Gauta- borg 11. og 12 júní nk. og á þeim fundi verður þess freistað að kom- ast að samkomulagi um sameigin- legan, stuttan lista. Talið er mikil- vægt að ná samkomulagi um þetta atriði áður en utanríkisráðherrar EB ríkjanna fjalla um tillögu fram- kvæmdastjórnar bandalagsins að umboði til að ganga til formlegra samninga við EFTA, 18. og 19. júní í Lúxemborg. Talsmenn EB hafa gefið í skyn að slíkt samkomu- lag innan EFTA myndi greiða fyrir samþykkt umboðsins. LYFJATÆKNASKOLI ÍSLANDS AUGLÝSING UM INNTÖKU NEMA Lyfjatækninám er þriggja ára nám. Umsækjandi um skólavist skal hafa lokið tveggja ára námi í framhaldsskóla (fjölbrautaskóla). Umsækjendur, sem lokið hafa prófi tveggja ára heilsugæslubrautar framhaldsskóla eða hlið- stæðu eða frekara námi að mati skólastjórnar, skulu að öðru jöfnu sitja fyrir um skólavist. Skóla- stjórn er heimilt að meta starfsreynslu umsækj- anda og er einnig heimilt að takmarka fjölda þeirra nema, sem teknir eru í skólann hverju sinni. Upplýsingar eru veittar í skólanum alla daga fyrir hádegi. Umsókn skal fylgja eftirfarandi: 1. Staðfest afrit prófskírteinis. 2. Heilbrigðisvottorð á eyðublaði, sem skólinn lætur í té. 3. Sakavottorð. 4. Meðmæli skóla og/eða vinnuveitanda, ef vill. Umsóknarfrestur er til 8. júní. Eyðublöð fást á skrifstofu skólans. Umsóknir skal senda til: Lyfjatæknaskóla íslands, Suðurlandsbraut 6, 108 Reykjavk. Skólastjóri. Litháar mótmæla 1 Washington: „Jeltsín skiptir máli en ekki Gorbatsjov“ Sovétleiðtoginn segir bandarískum menningarvitum að sjálf- stæðisyfirlýsing Litháa hafi verið uppreisn gegn Kreml.“ Washington. Frá Önnu Bjarnadéttur, fréttaritara Morgunblaðsins. PÓLSKUR fréttamaður, Karol J. Szyndzielorz, sem hefur fylgst náið með Míkhaíl Gorbatsjov frá því hann komst til valda í Sovétríkjunum fyrir fimm árum sagði í samtali við fréttaritara Morgunblaðsins á fimmtudag að Sovétleiðtoginn væri þreytuleg- ur og hefði elst um tíu ár á þessum fimm árum. Rudy Bosch- witz, öldungardeildarþingmaður frá Minnesota, sem átti fiind með Gorbatsjov í gærmorgun ásamt öðrum bandarískum þing- mönnum, sagði þvert á móti að Gorbatsjov liti vel út og virtist ekki þreyttur þrátt fyrir erfiðleikana heima fyrir. Hann sagði aðspurður að Gorbatsjov hefði ekki ætt úr einu í annað á fimd- inum heldur verið með málþóf. Gorbatsjov bauð svokölluðum menningarvitum í hádegisverð á fimmtudag og hélt þá ræðu þar sem hann virtist hugsa upphátt og fór úr einu í annað. Hann nefndi Litháen og sagði að stjómvöld þar hefðu lýst yfír sjálfstæði á einni nóttu en nú vissu þau ekki hvað þau ættu til bragðs að taka. Hann veifaði fíngri framan í þingmenn í gær- morgun og kallaði sjálfstæðis- yfírlýsingu Litháa uppreisn gegn stjómvöldum í Kreml. Það hefur lítið borið á mót- mælum gegn Gorbatsjov í Was- hington síðan hann kom til borg- arinnar á miðvikudagskvöld. Kona með fána Úkraínu stóð á götuhorni skammt frá sovéska sendiráðinu í gærmorgun og sagðist vonast til að hann sæi hana svo að hann hugsaði ráð sitt og veitti lýðveldinu sjálf- stæði. Þó nokkur fjöldi fólks víðs vegar að úr Bandaríkjunum safnaðist saman á tröppum þing- hússins um hádegið í gær til að krefjast sjálfstæðis Litháens. Miðaldra fólk var í meirihluta en það kom til Bandaríkjanna eftir að Litháen var innlimað í Sovétríkin í byrjun seinni heims- styijaldarinnar. Það veifaði fán- um og kröfuspjöldum, söng lit- háíska söngva og fjöldi kvenna var í þjóðbúningum. Nokkrar þeirra sögðu í samtali við frétta- ritara Morgunblaðsins að þær hefðu ekki átt von á að þær ættu nokkum tíma eftir að taka þátt í mótmælaaðgerðum. „En við viljum frelsi þjóðar okkar,“ bættu þær við. Flestir viðmæl- enda fréttaritarans sögðu að Gorbatsjov hefði opnað dyrnar fyrir frelsi leppþjóða Sovétríkj- anna en nú væri ekki lengur þörf fyrir hann. „Valdadagar Gorbatsjovs eru taldir,“ sagði einn. „Borís Jeltsín skiptir máli núna.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.