Morgunblaðið - 02.06.1990, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 02.06.1990, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JUNI 1990 SUMARHÚSASÝNING að Bæjar- hrauni 25, Hafnarfirði, (bak við blómabúðina Dögg) dag- ana 2.-5.maí ó milli kl. 13.00 og 19.00. Fagmenn sl. - 0 . Morgunblaðið/Einar Falur I Listhúsinu. Frá vinstri eru Johannes Johannesson, Emar Þorláksson og Hafsteinn Austmann í Listmál arafélaginu og Guðmundur Snorrason forstöðumaður Listhússins á Vesturgötu 17. Listmálarafélagið; Listhús 1 tilefini Lista- hátíðar Listmálarafélagið opnar List- hús á Vesturgötu 17 í Reykjavík í dag, laugardaginn 2. júní, kl. 16.00 í tilefni Listahátíðar. Sýnd verða málverk eftir 9 list- málara, þá Braga Ásgeirsson, Einar G. Baldvinsson, Hafstein Aust- mann, Jóhannes Geir Jónsson, Jó- hannes Jóhannesson, Kjartan Guð- jónsson, Kristján Davíðsson og Valtý Pétursson. Sýningin verður opin frá kl. 14 til 18alladagaframtil20.júnínk. Með sýningunni vilja félagar Valtýs Péturssonar í Listmálarafé- laginu heiðra minningu hans. 40 þús.króna sekt fyrir að vanvirða fánann LÖGREGLAN í Reykjavík hand- tók fimm menn um tvítugt vegna óspekta í kjölfar landsleiks ís- lands og Albaníu á miðvikudags- kvöld. I átökum við mennina meiddist einn lögreglumannanna á fingri og einn hinna handteknu meiddist á úlnlið og fékk gifsumbúðir á slysa- deild. Þrír mannanna gistu fanga- geymslur lögreglu um nóttina. Ein- um þeirra var í gær gert að greiða 40 þúsund króna sekt, fyrir ölvun, óspektir og vanvirðu við þjóðfán- ann. Hinir tveir greiða 5 og 20 þúsund króna sektir. Erþetta „níðvísa“? Varðandi skrif Steinþórs Gúð- bjartssonar íþróttafréttamanns í Mbl. 31. maí um „níðvísu" sem Ómar Ragnarsson gaukaði að und- irrituðum og lesin var .í hátalara- kerfi Laugardalsvallar eftir lands- leik íslands og Albaníu fer ég fram á að Morgunblaðið birti þessa tæki- færisvísu. Við eigum í leiknum flest afburðaspörk og Albanir kenna á því, að þegar þeir fá á sig fleiri mörk þá fá þeir þau „duty free“. Ég legg það í dóm lesenda Mbl. hvort um „níðvísu" sé að ræða. Með þakklæti fyrir birtinguna. Hörður Hilmarsson % Arðbœr sparnaður til eins árs eða lengur! Viltu geta ávaxtaö sparifé þitt til lengri tíma? I Sparileiö 3 er þaö binditíminn sem rœöur vöxtunum. Hér er um aö ræöa góöan kost ef þú vilt geyma sparifé þitt í 12 mánuöi eöa lengur. Þannig nýturöu ríkulegrar ávöxtunar eftir aöeins 12 mánuöi. Á Sparileiö 3 geturöu náö 5,75% vöxtum umfram verötryggingu. Leiöarvísir liggur frammi á öllum afgreiöslustööum bankans. ÍSLANDSBAN.KI -í takt við nýja tíma! Sparileidir íslandsbanka - fyrir fólk sem fer sínar eigin leidir í sparnaði! wmtm mmm YDDA F26.40 / SÍA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.