Morgunblaðið - 02.06.1990, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 1990
Blæösp
Populus tremula
Blóm vikunnar
Ágústa Björnsdóttir
167. þáttur
Til er gömul sögn um blæösp-
ina, Populus tremula, en tremula
þýðir skjálfandi, að kross Krists
hafi verið úr aspartré og þess
vegna skuli hún skjálfa, allt til
enda veraldar. En skjálfti aspar-
laufsins á sér sínar náttúrulegu
skýringar í frekar löngum ör-
grönnum blaðstilk, svo að laufin
ná að bærast fyrir minnsta vind-
blæ, er jafnvel hægt að ganga á
hljóðið af skijáfi blaðanna í skógi
í kyrru veðri. Blæöspin er íslensk
tegund, fannst hér um aldamótin
síðustu, var þá talið að um leifar
af gróðursetningu væri að ræða,
en síðan hefur hún fundist víðar
og skráðir fundarstaðir (1981) eru
Egilsstaðaskógur, Garður í
Fnjóskadal, Gestsstaðir í Fá-
skrúðsfirði og Stöðvarfjörður.
Misjafna dóma fær blæöspin um
það hve heppilegt garðtré hún sé,
en fallegt þykir mér tréð þar sem
það er í reitnum með íslensku flór-
unni í Lystigarðinum á Akureyri
og sóma mundi það sér vel í hvaða
garði sem væri. Ekki man ég eft-
ir að hafa séð blæöspina á plöntu-
listum frá Skógræktinni á Hall-
ormsstað. Snemma á þessari öld
fannst í Vestur-Gautlandi í
Svíþjóð blæasparafbrigði með
óvenjulegan vöxt, grönn með upp-
sveigðar aðlægar greinar, súlu-
ösp, hlaut afbrigði þetta nafnið
Erecta. í Noregi nær hún 10-15
Ljósmynd/S. Blöndal
Úr blæasparlundi Ágústar á Hofi. Blæöspin var flutt frá Garði í
Fnjóskadal.
metra hæð, en er ekki nema um
metri á breidd. í Trögstad í Nor-
egi fannst 1955 svipuð ösp er
hlaut nafnið Trögstad, er hún um
helmingi breiðvaxnari en Erecta.
Segja sumir þessar aspir svar
norðursins við hinni suðrænu tígu-
legu píramídaösp, Populus Nigra
Italica. Ekki telja Norðmenn þessi
afbrigði eins harðgerð og Populus
tremula, en þar vex hún upp í
1.200 m hæð yfir sjó. í smáriti
um garðinn í Múlakoti frá Skóg-
rækt ríkisins er út kom 1984, er
í tegundaskrá getið um „Erecta“
frá Finnlandi en ekkert um fjölda
tijáa, þrif né hvenær þeim var
plantað, og eru þetta einu heimild-
ir sem ég hef séð um ræktun
þessarar aspar hér á landi.
Svanlaug Björnsdóttir,
Húsavík.
Es. Líkur eru til þess að eitt-
hvað af blæasparplöntum frá
Hofi í Vatnsdal verði til sölu í
skógræktarstöðinni í Fossvogi
1 V°r‘ Umsj.
Vestmannaeyjar:
Andrés kærir
til kj ömeftidar
Vestmannaeyjum.
ANDRÉS Sigmundsson, efsti maður á lista Framsóknarflokksins
í Eyjum, hefur lagt fram kæru til bæjarfógeta vegna úrskurðar á
vafaatkvæðum og utankjörfundaratkvæðum, eftir endurtalningu
atkvæða í bæjarsljórnarkosningunum.
„Ég kærði vegna úrskurðar kjör-
stjórnar á vafaatkvæðum við endur-
talninguna," sagði Andrés í samtali
við Morgunblaðið.
Kæra hans fjallar um úrskurð
yfirkjörstjómar á gildum og ógild-
um atkvæðum, bæði greiddum á
kjörstað og utan kjörfundar. Andrés
segir meðal annars f kæru sinni að
á utankjörfundaratkvæði hafi vant-
að votta auk þess sem ekki hafi
verið sama rithönd utan á umslagi
sem innihélt kjörseðilinn og var á
seðlinum sjálfum.
„Ég tel úrskurð á Vafaatkvæðum
einfaldlega rangan," sagði Andrés.
Hann sagðist hafa óskað eftir því
að Kristján Torfason, bæjarfógeti,
viki í þessu máli þar sem hann hefði
gegnt formennsku í yfirkjörstjórn,
og gæti því ekki skipað nýja menn
til að yfirfara atkvæðin. Hann sagð-
ist myndi sjá til hver niðurstaðan
yrði úr þessu en hann áskildi sér
allan rétt til þess að fylgja málinu
enn frekar eftir og kæra það til
félagsmálaráðuneytisins ef hann
teldi þörf á.
Kristján Torfason, bæjarfógeti,
sagði að hann myndi strax óska
eftir því við dómsmálaráðherra að
skipaður yrði sérstakur bæjarfógeti
í Eyjum til þess að annast þetta
mál. Sá fógeti myndi síðan skipa
nefnd, samkvæmt 37. grein sveitar-
TIIBOÐ
NOVELLA
SÓLSTÓLLINN
1.195,-
Verð aðeins kr.
Novella sólstóllinn er úr níðsterku plastefni,
staflast vel og hentar mjög vel hér á landi.
Novella sólstóllinn er einstaklega stöðugur og
er áreiðanlega með þeim sterkustu á markaðnum.
NOVA
Einkaumboð á íslandi.
Gróðurhúsinu v/Sigtún Sími: 68 90 70
- þar sem sumaríð er.
stjórnalaga, sem fjallar um kosn-
ingakærur. Hann sagðist búast við
að afgreiðslu þessa máls yrði hrað-
að enda yrðu kjörbréf til nýrra
bæjarfulltrúa ekki gefin út fyrr en
þessu máli lyki.
Kristján sagði að úrskurður vafa-
atkvæða nú væri á sama hátt og
gert hefði verið sl. tólf ár sem hann
hefði setið í kjörstjórn við alþingis-
kosningar. Hann benti einnig á að
fundargerðabók yfirkjörstjórnar
hefði, að afloknum kosningum, ver-
ið undirrituð án nokkurra athuga-
semda af yfirkjörstjórn og umboðs-
mönnum allra stjórnmálaflokkanna.
Hann sagði að sér þætti því ekki
laust við að kæra Ándrésar væri
hálfgert vantraust á þá umboðs-
menn sem Framsóknarflokkurinn
hefði haft við talninguna.
Varðandi utankjörfundaratkvæði
sagði hann að kjörstjórn hefði mót-
að ákveðnar vinnureglur áður en
talning þeirra hófst og eftir þeim
hefði verið farið. Þær reglur hefðu
miðast við að líta framhjá minni-
háttar göllum því það væri hart að
svipta menn kosningarétti, með því
að dæma atkvæði ógild, vegna
minniháttar mistaka kjörstjóra.
Kristján sagði að einungis hefðu
verið tvö utankjörfundaratkvæði
sem ekki voru vottuð með tveimur
vitundarvottum. Hann sagði að
gerðar hefðu verið athugasemdir
við rúmlega 100 atkvæði við endur-
talninguna og hefðu þær nær allar
verið frá Andrési Sigmundssyni ein-
um, aðrir fulltrúar við talninguna
hefðu talið atkvæðin góð og gild.
Grímur
Úrslit kosning-
anna á Skaga-
strönd kærð
Kærða atkvæðið get-
ur ráðið úrslitum
UMBOÐSMAÐUR G-listans á
Skagaströnd hefur lagt fram
kæru hjá sýslumanninum á
Blönduósi vegna utankjörstaða-
atkvæðis, sem dæmt var ógilt í
sveitarstjórnakosningunum.
Samkvæmt upplýsingum Ólafs
Bernódussonar, formanns kjör-
stjórnar á Skagaströnd, var umrætt
atkvæði dæmt ógilt vegna þess að
á það vantaði undirskriftir vitundar-
votta. „Þetta atkvæði getur hugs-
anlega haft úrslitaáhrif á kosning-
una, því ef það verður dæmt gilt
og ef það lendir hjá G-listanum, þá
þarf að varpa hlutkesti milli efsta
manns á G-lista og annars manns
á D-lista.“
Samkvæmt talningu atkvæða á
Skagaströnd fékk A-listinn einn
mann kjörinn með 55 atkvæðum,
B-listinn fékk einn mann kjörinn
með 73 atkvæðum, D-listinn fékk
tvo menn kjörna með 106 atkvæð-
um, G-listinn fékk 52 atkvæði og
engan mann kjörinn, og H-listinn
fékk einn mann kjörinn með 99
atkvæðum.
VZterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamióill!