Morgunblaðið - 02.06.1990, Side 23

Morgunblaðið - 02.06.1990, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JUNI 1990 23 Forseti S-Kóreu á fund Gorbatsjovs: Norður-Kóreumenn vara við afleiðingum viðræðnanna Seoul, Tókíó. Reuter. Líbería: Hjálparbeiðni frá Doe TILKYNNT var í Suður-Kóreu á fimmtudag að forseti landsins, Roh Tae-woo, myndi eiga fund með Míkhaíl S. Gorbatsjov, leið- toga sovéska kommúnistaflokks- ins, í San Francisco í Banda- ríkjunum á mánudag. Almennt er litið svo á að ört vaxandi sam- vinna ríkjanna á sviði verslunar og viðskipta verði helsta umræðu- efiiið. Yfirvöld í Norður-Kóreu Skýrsla efnahagsráðsins kemur út aðeins nokkrum dögum eftir að ríkisstjórnin mátti viðurkenna, að hallinn á ríkisbúskapnum stefndi í 22 milljarða dkr. á þessu ári en í fjárlögum var hins vegar gert ráð fyrir sjö milljarða dkr. halla. Segir ennfremur, að mikið atvinnuleysi, 256.000 manns án atvinnu á næstu árum, sé að festast í sessi og skipt- ir ráðið þjóðinni í tvo flokka, A-flokk, þá, sem hafa atvinnu, og B-flokk. I þeim flokki eru þeir, sem hafa verið vöruðu í gær við „pólitískum áhrifum" fúndarins. Fundurinn verður sögulegur fyrir þær sakir að þetta verður í fyrsta skipti sem leiðtogar ríkjanna tveggja ræðast við. Þeir Roh og Gorbatsjov munu hittast í San Francisco er sá síðarnefndi hefur lokið fundi sínum með George Bush, forseta Banda- ríkjanna. Viðskiptasambandi atvinnulausir lengi, fólk, sem horfir upp á eigin menntun verða að engu og er í raun búið að missa móðinn. Efnahagsráðið segir, að fram- leiðni í opinbera kerfinu verði að bæta stórlega og leggur áherslu á aukinn, almennan sparnað og minni neyslu. Það eina, sem fann náð fyr- ir augum ráðsmannanna, var verð- bólgustigið í Danmörku en það er nú 2-2,5% á ári og minna en í helstu samkeppnislöndunum. Suður-Kóreu og Sovétríkjanna var kömið á eftir ólympíuleikana í Seoul árið 1988. Viðskipti ríkjanna námu alls tæpum 600 milljónum Banda- ríkjadala á síðasta ári og embættis- og kaupsýslumenn telja að þau geti þrefaldast, hið minnsta, á næstu tveimur til þremur árum. Talsmaður ríkisstjórnar Suður-Kóreu sagði að tækju ríkin upp stjórnmálasamband væri ekkert því til fyrirstöðu að gerð- ur yrði bindandi viðskiptasamningur. Fréttamenn suður-kóreska ríkisút- varpsins kváðust í gær hafa heimild- ir fyrir því að stjórnvöld hygðust jafnvel veita Sovétmönnum þriggja milljarða dala lán til að greiða fyrir aukinni viðskiptasamvinnu ríkjanna. Talsmaður utanríkisráðuneytis Norður-Kóreu brást hinn versti við þessum tíðindum. Svo'sem alkunna er ríkir algjör fjandskapur milli kór- esku ríkjanna tveggja en Sovétmenn hafa fram til þessa verið dyggustu stuðningsmenn einræðisstjórnarinn- ar í Norður-Kóreu; veitt henni dipló- matískan stuðning og selt þangað hergögn. Talmaðurinn sagði að fundur þeirra Roh og Gorbatsjovs myndi hafa „alvarlegar pólítískar afleiðingar" og skaða samskipti kór- esku ríkjanna enn frekar. Sá hinn sami kvað það fullljóst að leiðtogi Sovétríkjanna gerði sér grein fyrir afleiðingum fundarins með forseta Suður-Kóreu sem hefði það markmið eitt að koma í veg fyrir sameiningu kóresku ríkjanna. Monróvíu. Reuter. SAMUEL Doe, forseti Líberíu, bað Bandaríkin og önnur vinveitt ríki í gær um aðstoð við að binda enda á uppreisn, sem staðið hefúr í sex mánuði. Skæruliðar stjórnarandstæðinga sitja nú um höfuðborgina, Monróvíu, og ríkir neyðarástand í landinu vegna uppreisnar þeirra. Bandaríkjamenn sendu í gær herlið til þess að verja bandaríska þegna í Líberfu. Þar eru um 1.200 Bandaríkjamenn, þar af um 100 tengdir bandariska sendiráð- inu í Monróvíu. Doe sagðist í gær ekki ætla að bjóða sig fram við forsetakosningar sem ráðgerðar eru á næsta ári. Hann sagði útilokað að Charles Taylor, leiðtogi uppreisnarmanna, gæti boðið sig fram þar sem hann væri eftirlýst- ur glæpamaður. Danmörk: Kerfi í ógöngum Kaupmannahöfn. Frá N.J.Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins. DANSKA efiiahagsráðið segir í nýrri skýrslu, að efnahagsmálin í landinu séu komin í ógöngur og eina leiðin til að ráða bót á stöðugum greiðsluhalla ríkisins sé gagnger uppstokkun á vinnumarkaði, hús- næðismarkaði og öllu velferðarkerfinu. BMW 518i GAGNTEKUR EVRÓPU! Ef þú ert í hópi þeirra sem alltaf hefur langað í BMW þá er ástæða til að staldra við og kanna hvort ekki sé kominn tími til að láta ósk þína rætast. Nú er kominn BMW úr hinni glæsilegu 5-línu með ná- kvæmlega sömu yfirbyggingu, sömu frábæru aksturs- eiginleikana, sömu þægindin og sama akstursöryggið og gert hafa BMW 5-bílana að eftirsóttustu bílum heims. Samt er verðið lægra en áður og eldsneytisnýtingin betri. Hvernigmá þaðvera? BMW í Munchen tók upphaflega ákvörðun um að setja aðeins 6 strokka vélar í BMW 5 bílana; þá gerðist það að tæknideildin fékk vitrun og ný ákvörðun var tekin um að út- búa a.m.k. eina gerðina með hinni nýju og sérlega vel heppnuðu fjögurra strokka M40 vél sem knýr m.a. BMW 318i. Útkomanvarðhreint ótrúleg. M40 vélin er tæknilega náskyld hinni nýju VI2 vél sem er aðall BMW 7-bílanna. Þegar hún kom fyrstfram á sjónar- sviðið vakti hún strax athygli bílaáhugamanna fyrir þrennt: kraft, sparneytni og þýðan gang. Og staðreyndin er sú að M40 vélin er hönnuð sérstaklega með snúningskraft í huga og í þeim efnum gefur hún 6-strokka M20 vélinni nán- ast ekkert eftir, einkum á lágum snúningshraða. Við þetta bætist að BMW 518i er 70 kg léttari en BMW 520 svo að munurinn verður enn minni. Með smávægi- legum hönnunarbreytingum tókst einnig að ná fram sömu þyngdardreifingu og er í BMW 520. Allir aksturseigin- leikar haldast því óbreyttir. Nú bendir allt til þess að BMW 518i eigi eftir að verða vinsælasti bíllinn í 5-seríunni og á verðið sinn þátt í því, að ógleymdri sparneytninni. Ef þú vilt sjálfur kynnast BMW 518i er tækifæri til þess einmitt nú. Vegna mikillar eftirspurnar í Evrópu fæst takmarkaður fjöldi þessara bíla til Islands, en ef þú bregst skjótt við þá getur þú orðið meðal hinna útvöldu. Reynsluakstur færir þig í allan sannleika um það sem þig grunar nú þegar: BMW er engum líkur. Bílaumboöiö hf KRÓKHÁLSI 1, REYKJAVlK, SlMI 686633 ARGUS/SIA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.