Morgunblaðið - 02.06.1990, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 02.06.1990, Qupperneq 28
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JUNI 1990 28 FSA: Þrjár nýjar deild- ir teknar í notkun ÞRJÁR nýjar deildir verða formlega opnaðar við Fjórðungssjúkrahú- sið á Akureyri í næstu viku. Þar er um að ræða röntgendeild, rann- sóknardeild og meinafræðideild. 1 Undirbúningur vegna opnunar nýrrar röntgendeildar hefur staðið um margra ára skeið og enn er deildin ekki að fuilu búin. Röntgen- - deildin er vel tækjum búin og eru nánast öll tæki á deildinni ný. Allar deildirnar þijár verða opnaðar formlega í næstu viku, eða föstu- daginn 8. júní. „Vissulega er langþráður áfangi að nást, en mér er einnig ofarlega í huga, að þessu er ekki að fullu lokið enn, við eigum eftir nokkra þætti til að klára deildina að fullu, þar á meðal innréttingar og annað sem ekki reyndist mögulegt að ljúka við núna. Ég vona að unnt verði að ljúka deildinni að fullu strax á næsta ári, því það vill brenna við að ef einingar eru ekki kláraðar, þá vill stundum dragast úr hömlu að þeim sé lokið. En þetta er merki- legur áfangi og mun verða sjúkling- um og öðrum þeim sem njóta munu þjónustunnar til góðs og með til- komu nýju deildanna aukast mögu- leikar okkar á að greina sjúkdóma sem er undirstaða þess að menn geti fengið lækningu," sagði Hall- dór Jónsson framkvæmdastjóri FSA. Atvinnulausiim fækkar 160 ung-lingar 16-18 ára atvinnulausir UM ÞESSI mánaðamót voru 233 skráðir atvinnulausir á Akureyri, 30 nýir bættust við skrána í gærdag og að auki eru á skrá vinnum- iðlunar 70 16 ára unglingar og 90 unglingar fæddir 1972-73. Sigrún Björnsdóttir forstöðu- maður Vinnumiðlunarskrifstofu Akureyrar sagði að heldur færri væru á skrá nú um mánaðamótin en þau síðustu. Um mánaðamótin apríl/maí voru 285 skráðir án at- vinnu, en eru 233 nú. Karlar eru 138 og konur 98. Sigrún sagði að þessa dagana væru ræstingakonur úr skólunum að koma inn á atvinnuleysisskrá og sagði hún að talsvert hefði verið um nýjar skráningar í gær, en alls skráðu sig þá 30 manns atvinnu- lausa hjá skrifstofunni. Unglingar sem eru 16 ára á þessu ári, fæddir 1974, eru 70 á skrá hjá vinnumiðluninni og unglingar fæddir 1972-73 eru 90. Ungling- arnir njóta ekki bóta, þó svo þeir séu án atvinnu. Engin ákvörðun liggur enn fyrir um hvort ríki eða bær muni á einhvern hátt koma til móts við unglingana varðandi at- vinnu í sumar, að sögn Sigrúnar. á Seltjamamesi v/Bygggarða Húsið verður sýnt fullbúið með inn- réttingum og húsgögnum. Húsin er hægt að afgreiða á 4 byggingarstig- um og boðið er upp á hagstæða greiðsluskilmála. Söluaðilar: Lundi hf., BYNOR Byggörðum 7, Seltj. Akureyri. Sími 612400. Sími 96-96-26449. Opið um helgina frá kl. 14.00-17.00 og næstu helgar Morgunblaðið/Rúnar Þór Verpti í vélarrúmi Skógarþröstur gerði sig heimakominn í vélar- rúmi Rússajeppa sem staðið hefur óhreyfður frá því snjóa leysti við bæinn Rifkelsstaði í Önguls- staðahreppi. Þrösturinn bjó sér þar hreiður sem í eru fjórir ungar. Enginn vissi af hreiðrinu fyrr en í gærmorgun er maður nokkur sem hug hafði Samkomulag D- og G-lista um meirihlutasamstarf: á að kaupa jeppann kíkti ofan í vélarrúmið og við honum blöstu fjórir svangir skógarþrastar- ungar sem biðu matar síns. Á myndinni eru börnin á bænum, Andri Þór og Jana Rut, ásamt Aldísi sem er í sveit á Rifkelsstöðum og fylgjast þau spennt með vinunum sinum litlu. Halldór Jónsson vænt- anlegur bæjarstjóri Alþýðubandalag og Sjálf- stæðisflokkur náðu í gær sam- Prinsessa og seiðskratti á hvítasunnu FÉLAGAR úr Leikklúbbnum Sögu sýna ævintýragrímuleikinn„Prins- essan og seiðskrattinn", sem unn- inn er upp úr einu af ævintýrum H.C. Andersen, í Dynlieimum á hvítasunnudag. Leikverkið er lokapunkturinn á grímunámskeiði sem Sigurþór A. Heimisson leikari hjá LA hefur haft umsjón með hjá Sögu, en Sigurþór er einnig leikstjóri verksins. Þó svo leikverkið sé byggt upp á dæmigerðu ævintýri er ekki hægt að segja það sama um útfærsluna, en fram koma kóngur og drottning, prinsessa, seiðskratti, vonbiðill og bjargvættur. Aðeins verður um þessa einu sýningu að ræða á grímuleikn- um og er aðgangur ókeypis og öllum heimill, en sýningin hefst kl. 15 á hvítasunnudag. komulagi um meirihlutasam- starf í bæjarstjórn Akureyrar. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins ráða sjálfstæðismenn bæjarsljóranum og er væntan- legur bæjarstjóri Halldór Jóns- son, framkvæmdastjóri Fjórð- ungssjúkrahússins. Málefnasamningur var gerður í gær og verður hann iagður fyrir flokksfundi Alþýðubandalags og Sjálfstæðisflokks á þriðjudag. Jafnframt hefur verið gert sam- komulag um skiptingu embætta og formennsku í nefndum. Sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins munu flokkarnir skipta með sér embættum forseta bæjarstjórnar og formanns bæjarráðs, og munu flokkarnir manna embættin til skiptis, eitt ár í senn. Ekki fékkst neitt uppgefið um efni málefnasamnings flokkanna í gær. Fulltrúar flokkanna hafa gert með sér samkomulag um að láta ekkert uppi fyrr en báðir hafa samþykkt samninginn. Sjálfstæðismenn eiga fjóra menn í bæjarstjórn og Alþýðu- bandalagsmenn tvo. Sjálfstæðis- menn voru í meirihluta á siðasta kjörtímabili með Alþýðuflokks- mönnum. A Utvarp Norðurlands: Styttur út- sendingartími Útsendingartíini Útvarps Norð- urlands verður styttur frá 5. júní. Þetta er gert í kjölfar mót- mæla fólks á landsbyggðinni, sem vill fá að heyra Þjóðarsál á Rás 2. Útsendingartíminn verður sem hér segir: alla virka daga frá 5. júní: Á morgnana frá kl. 8.10 til 8.30 og síðdegis milli klukkan 18.35 og 19.00. Fyrirkomulag morgunútsendinga verður óbreytt, en í útsendingum síðdegis verður lögð áhersla á fréttir og frétta- tengt efni frá Norðurlandi. Úr fréttatilkynningu Islandsmfitið Hörpodeild Þörsvöllur laugardag kl. 14.00

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.