Morgunblaðið - 02.06.1990, Blaðsíða 36
MÖR^ufeL&tó' OtóöA!RDA(&Ít í.
Minning:
Sverrir Guðmundsson
Fæddur 17. ágtist 1923
Dáinn 23. maí 1990
Kær tengdafaðir minn, Sverrir
Guðmundsson, lést í Sjúkrahúsi Si-
glufjarðar 23. maí eftir mikil veik-
indi undanfama mánuði. Hann
kvæntist Hallfríði Njálsdóttur 3.
maí 1945 og eiga þau fimm börn
sem öll lifa föður sinn. Þau eru:
Njáll, kvæntur Ólöfu Guðmunds-
dóttur, Jóhanndine, gift Valdimari
Guðmundssyni, Vigdís, gift Jónasi
Valtýssyni, Fríða, gift Ingimari Jón-
assyni, Hallgrímur, yngstur, kvænt-
ur undiiTÍtaðri. Barnabömin eru
orðin þrettán.
Sverrir var góður maður, ekkert
nema hógværðin og blíðan. Heimur-
inn væri ekki eins slæmur og hann
er í dag ef fleiri hefðu þá eiginleika
sem hann hafði. Dætur okkar fóru
oft til ömmu og afa á Sigló og í
þeim heimsóknum var afi ávallt
reiðubúinn að spila við þær og var
þá oft glatt á hjalla og eiga þær
margar góðar minningar um spila-
mennskuna við afa. Hallfríður, kon-
an hans, er búin að ganga í gegnum
hans veikindastríð af mikilli elsku.
Hún er búin að fara margar ferðir
suður til Reykjavíkur að leita hon-
um lækninga en allt kom fyrir ekki.
Ég bý á Akureyri og þurfti suður
til lækninga þegar Sverrir lá á
Landspítala. Ég var ekki fyrr kom-
in í heimsókn til hans er hann
spurði hvað ég hefði fengið út úr
minni rannsókn. Hann hafði ekki
áhyggjur af sér heldur var hugurmn
hjá mér, hvernig mér hefði reitt af.
Þetta mat ég mikils.
Hallfríður saknar nú ástríks eig-
inmanns, öll börnin hans góðs föður
og þá ekki síður öll barnabömin
góðs afa.
Kæra tengdamóðir mín. Ég votta
þér mína dýpstu samúð. Þú ert
sterk kona. Þú ert búin að vera
hughraust og viljasterk í gegnum
ValgarðurJ. Vilnnmd-
arson - Kveðjuorð
Fæddur 11. janúar 1973
Dáinn 19. maí 1990
Það er sárt að svo snemma þurfí
að kveðja vin sinn, að eilífu. Aldrei
meir megi maður gleðjast með hon-
um, sjá bros hans né heyra hlátur
hans á ný.
Við viljum minnast bekkjarbróð-
ur okkar Valgarðs. í mörg ár höfum
við fýlgst að í litla skólanum okk-
ar. Þegar við vorum yngri var hóp-
ur okkar samrýndur og þær stund-
ir eru þær bestu sem við eigum til
að minnast. Botnaferðin, Færeyja-
ferðin, matreiðsiunámskeiðin á
Hallormsstað og stundirnar með
krökkunum úr bekknum. Valla var
auðvelt að dá fyrir dugnað hans.
Hann fór snemma á trillu að fiska
með bróður sínum, íþróttir stundaði
hann af miklu kappi. Ekki var auð-
velt að stoppa hann í handboltanum
og alls ekki vinsælt að vera í vörn
á móti honum. Svo margar stundir
með góðum strák að minnast en
svo fá orð sem geta lýst því sem
hugur okkar og hjarta vilja láta í
ljós. Við þökkum fyrir að hafa feng-
ið að njóta samveru með Valla og
reynum að minnast ánægjustund-
anna. Við vonum að handan við
móðuna miklu fáum við að heyra
hlátur hans á ný þegar okkar tími
hér er liðinn.
Við vottum foreldrum Valla,
systkinum og ástvinum dýpstu sam-
úð okkar og biðjum þess að góður
t
Eiginmaður minn,
AXEL HALLDÓRSSON
frá Kirkjuhvoli,
Vestmannaeyjum,
lést aðfaranótt 31. maí í Sjúkrahúsi Vestmannaeyja.
Sigurbjörg Magnúsdóttir.
t
Bróðir okkar,
OTTÓ B. E. BENEDIKTSSON,
Grettisgötu 37,
andaðist á Landakotsspítala 31. maí.
Systkini hins látna.
t
Hjartkær eiginkona mín,
ÁSA GUNNARSDÓTTIR,
Skógargerði 3,
Reykjavík,
andaðist í Landsspítalanum 31. maí.
Baldvin Árnason.
t
Ástækær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
HERMANN GUÐJÓNSSON,
Óðinsgötu 15,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju þriðjudaginn 5. júní ki.
13.30. Blóm vinsamlegast afþökkuð en, þeim, sem vilja minnast
hans, láti Hallgrímskirkju njóta þess.
Aðalbjörg Skæringsdóttir,
Sigurður Sveinsson, Theodóra Sveinsdóttir,
Hildur Kristín HermannsdóttHaraldur Eggertsson,
Erling Þór Hermannsson, Þórlaug Erla Einarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Hákon Marteinn
Leifsson — Kveðja
allt þetta veikindastríð Sverris. Guð
styrki þig. Ég votta systkinum hans
mína samúð og öllum sem hans
sakna. Ég bið þig góðan Guð að
geyma tengdaföður minn. Við eig-
um eftir að hittast aftur. Fari hann
í friði, friður Guðs blessi tengdaföð-
ur minn.
Kær kveðja frá foreldrum
mínum.
Fanney Gunnarsdóttir
Fæddur 18. janúar 1989
Dáinn 26. maí 1990
Við mennirnir erum vanafastir
og viljum hafa dag hvern líkan því
se'm hann var áður. En við vitum
að allt er breytingum háð og tökum
slíku með jafnaðargeði.
En okkur setur hljóð þegar lítill
fjörkálfur eins og hálfs árs er ekki
lengur ljóslifandi á meðal okkar.
Horfinn úr sínu umhverfi og skilur
eftir sig óljósa minningarmynd frá
örstuttu æviskeiði.
Hákon litli var athafnasamur
drengur, fjörugur og þurfti að
kanna umhverfi sitt og athafna-
svæði. Hann var ákveðinn og lét
ekki smá hindranir hefta för sína.
Og umhverfíð tók stundum hart á
honum og oft gekk hann vonsvikinn
frá leik sínum með kúlu eða skrámu.
Þannig kynnast víst ungir menn
heiminum og læra að tilveran getur
verið á pörtum dálítið hvöss.
En víst er að engan grunaði að
lítill strákhnokki yrði að lúta í lægra
haldi fyrir þeim hættum sem á leik-
svæðinu leynast. En sú varð raunin
og þessi litli vinur minn mun ekki
framar skeyta skapi sínu á litlum
sandbyng: eða moldarhrúgu. Hann
hefur verið burtu kvaddur af þessu
tímabundna leiksvæði okkar mann-
anna, jörðinni, og skilur eftir sig
fáein spor í slóð minninganna.
Guð blessi foreldra hans, systkini
og ástvini alla og styrki þau í
þungri sorg.
Gurrý, Arni og börn.
Björgvin V. Finns
son — Kveðjuorð
kraftur styrki þau í sorginni.
Blessuð sé minning um góðan
dreng.
Æska, bíð hér eina stund.
Ó, hvert stefnir íj'örið bráða?
Hvað sem þinni líður lund,
leið mun þinni dauðinn ráða,
engum hlífir aldri manns
ógnarsterka valdið hans.
(Sálm. 63S.)
Guðrún Ragna og Sigurveig
Fæddur 5. nóvember 1967
Dáinn 26. maí 1990
Það var sólbjartur og fagur vor-
morgunn er mér barst sú harma-
fregn að hann Björgvin V. Finnsson
væri farinn héðan úr þessu jarðlífi.
Það var svo erfitt að trúa því að'
hann, sem var alltaf svo glaður og
fullur af lífsorku, myndi ekki koma
oftar eða hringja og spyija eftir
vini sínum, svo þeir gætu lagt á
hestana sína eða farið eitthvert
annað saman. Engan hefði getað
grunað að það yrði síðasta ferðin
er þeir sonur minn fóru á föstudag
þegar þeir þeystu á fákum út mót
+
Þökkum af alhug öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vinar-
hug við andlát og útför móður okkar og ömmu,
STEINUNNAR SIGURBJARGAR JÓHANNSDÓTTUR,
Mýrargötu 18,
Neskaupstað.
Ólína Hlífarsdóttir,
Hlífar Þorsteinsson, Inga Magnúsdóttir,
Lára Þorsteinsdóttir, Sigurður ísleifsson
og aðrir vandamenn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför móður minnar, tengdamóður og ömmu,
ANAÍS N. ÁRNADÓTTUR,
Kárastíg 2.
Árný Ólafsdóttir Crane,
William A. Crane,
Deborah A. Crane,
William A. Crane jr,
Jennifer L. Crane.
+
Hjartans þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur vináttu
og hlýhug og vottuðu okkur samúð við andlát og útför eiginkonu
minnar, móður, tengdamóður og ömmu,
MAGNEU ALDÍSAR DAVÍÐSDÓTTUR,
Ljárskógum 26.
Jóhannes Leifsson,
Davfð Jóhannesson, Margrét Karlsdóttir,
Ólafur Már Jóhannesson
og barnabörn.
„Góður vinur er gulli betri.“ Nú
er hann horfinn en við trúum því
að þegar ungmenni í blóma lífsins
eru kölluð burt hlýtur það að vera
vegna þess að þeim sé ætlað eitt-
hvert annað starf á Guðs vegum.
Og við trúum því einnig að seinna
munum við fá að sjást aftur er við
skiljum við þennan heim.
Við biðjum Guð að blessa ljúfan
dreng, sem öllum vildi gott gera,
af einstakri hjálpsemi sinni.
Svanhildur S. Leósd.
Stykkishólmur:
Skaftfell-
ingakórinn
með tónleika
í kirkjunni
Stykkishólmi.
Skaftfellingakórinn kom til
Stykkishólms fyrir skömmu og
hélt tónleika í nýju kirkjunni og
fékk hann skinandi góðar mót-
tökur. Þetta er 40 manna kór,
sópran, alt, tenór og bassi. Réttu
nafni heitir hann Söngfélag Skaft-
fellinga í Reykjavík og kórfélagar
úr báðum sýslunum. Stjórnandi er
Violeta Smid og undirleikari Pavel
Smid. Á söngskránni voru 17 lög
eftir bæði innlenda og erlenda höf-
unda, mjög fjölbreytt að efnisvali.
Hljómburður í kirkjunni er sér-
staklega góður.
- Árni