Morgunblaðið - 02.06.1990, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JUNÍ 1990
37
Landvernd-Lögreglan;
Dreifa bæklingi um akstur
utan vega og á hálendinu
BÆKLINGI um akstur utan vega
og á hálendi landsins verður dreift
til allra erlendra ökumanna sem
heimsækja landið í sumar. Land-
vernd gefur bæklingin út á ensku
og >ýsku.
A blaðamannafundi Landverndar
og Vegalögreglunnar kom fram að
bæklingnum verður dreift til allra
ökumanna sem koma með feijunni
Norrænu í sumar. Auk þess mun
hann liggja frammi á öllum helstu
bílaleigum. Á fundinum kom fram
að landverðir og lögregla munu fylgj-
ast grannt með að farið verði eftir
þeim reglum sem settar eru fram í
bæklingnum. Þessir aðilar munu eiga
með sér náið samstarf í sumar auk
þess sem Landhelgisgæslan aðstoðar
lögregluna þegar þörf krefur.
1 máli Iandvarðanna kom fram að
þeir teldu nauðsynlegt að auka lög-
gæslu á hálendinu en í Vegalögregl-
an hefur einungis tvo bíla til umráða
í sumar. Bent var á að vel hefði tek-
ist til með sérstaka hálendislögreglu
sumarið 1987.
OFF-ROAD
DRIVING
IN
ICELAND
PLEASE NOTE
THATINICELAND
ALL DRIVING OFF-ROADS
OR MARKEI) 'I'RACKS
IS FORBIDDEN
Landvernd hefúr gefið út bækl-
ing um akstur utan vega og á
hálendi landsins.
Hveragerði:
Veðurblíðunm fagnað
Hveragerði
í Hveragerði fagna menn mikilli
veðurblíðu þessa síðustu daga eftir
snjóþungan og umhleypingasaman
vetur. Garðurinn er ungur að árum,
en dafnar vel á flötinni við Varmá.
Aðalhvatning að gróðursetningu
hans var stór peningagjöf frá Ingi-
maríu Karlsdóttur og börnum henn-
ar, sem gefin var til minningar um
eiginmann hennar, Gunnar Björns-
son, garðyrkjubónda í Álfafelli.
Hefur honu verið 'reistur minnis-
varði í garðinum. Margir hafa lagt
fram vinnu við garðinn, bæði Lions-
klúbbur Hveragerðis og einstakl-
ingar.
- Sigrún
Helga Hjörvar, skólastjóri Leiklistarskólans, llytur ávarp við skólslitin. Moigunbiaðið/Einar Faiur
Leiklistarskóli Islands:
Níu leikarar útskrifaðir
NÍU leikarar brautskráðust frá
Leiklistarskóla Islands síðastlið-
inn laugardag. Tuttugu og sex
nemendur hafa stundað nám í
skólanum í vetur.
Leikararnir sem útskrifuðust á
laugardaginn eru þau: Baltasar
Kormákur, Björri Ingi Hilmarsson,
Edda Arnljótsdóttir, Eggert Arnar
Kaaber, Erling Jóhannesson, Harpa
Arnardóttir, Hilmar- Jónsson, Ing-
var Eggert Sigurðsson og Katarina
Nolsoe, frá Færeyjum.
Vigdís Finnbogadóttir, forseti
Islands, fyrrum ritari skólanefndar,
var viðstödd skólaslitin ásamt
skólanefndarfulltrúum, kennurum,
starfsmönnum, nemum og öðrum
gestum. Einnig héldu fjórir árgang-
ar leikara upp á útskriftarafmæli
sín. Brynja Benediktsdóttir, leik-
stjóri, talaði fyrir hönd leikara sem
brautskráðust frá Þjóðleikhússkó-
lanum fyrir 30 árum. Fyrir hönd
þeirra, sem þaðan útskrifuðust fyr-
ir 20 árum, talaði Guðrún Alfréðs-
dóttir, formaður FÍL. Sigmundur
Orn Arngrímsson, leikari, talaði
fyrir hönd leikara, sem brauskráð-
ust fyrir 25 árum frá^ Leiklistar-
skóla Leikfélags Reykjavíkur og
Þór Tulinius, leikari, fyrir hönd
þeirra se_m útskrifuðust frá Leiklist-
arskóla Islands fyrir 5 árum.
Við skólaslitin var úthlutað verð-
launum fyrir „framsögn og meðferð
íslensks máls“ úr minningarsjóði
Lárusar Pálssonar leikara, sem fé-
lag íslenskra leikara stofnaði 1987,
■ STEÍNGRÍMUR St.Th. Sig-
urðsson opnar málverkasýningu í
Staðarskála V-Húnavatnssýslu,
laugardaginn 2. júní. Tilefnið er að
og hlaut þau að þessu sinni Ingvar
Eggert Sigurðsson og er hann þriðji
nemandinn sem hlýtur þessa viður-
kenningu.
Skólastjóri Leiklistarskóla ís-
lands er Helga Hjörvar en formaður
skólanefndar Sveinn Einarsson.
þijátíu ár eru liðin frá því veitinga-
rekstur hófst í Staðarskála. Sýning-
unni lýkur 14. júní.
Steingrímur Sigurðsson, listmálari
Frá skólaslitum Vélskóla íslands.
jjgfc' 'Cí wBSÍl tT; f
K" A1 p||§r ' Hl JgÉg WXy* i'-C.vCV |
Vélskóla Islands slitið í
sjötugasta og flórða sinn
ÞRETTÁN nemendur brautskráðust frá Vélskóla íslands 24. maí.
Þá var skólanum slitið í sjötugasta og íjórða sinn. Ætlunin er að
minnast 75 ára afmælis skólans á komandi haust.
í ávarpi Andrésar Guðjónssonar,
skólameistara, brýndi hann fyrir
nemendum að bera virðingu fyrir
umhverfi sínu . Orðtakið „Lengi
tekur sjórinn við“ ætti ekki lengur
við. Þá talaði hann um örar tækni-
breytingar og nauðsyn endur-
menntunar.
Við skólaslitin voru veittar viður-
kenningar fyrir góðan árangur í
skólanum. Gunnlaugur Skúlason
hlaut viðurkenningu frá Landssam-
bandi íslenskra útvegsmanna fyrir
bestan árangur í í vélfræði og raf-
magnsfræði og Hallgrímur Guð-
steinsson hlaut viðurkenningu frá
Vélstjórafélagi íslands fyrir félags-
málastarf innan skólans. Auk þeirra
hlutu Gísli Gylfason, Atli Dagsson,
Þórður Elefsen og Jens G. Gunnars-
son viðurkenningar frá skólanum
fyrir góðan námsárangur.
Þá afhenti Georg Arnason, full-
trúi 20 ára afmælisnemenda, skól-
anum myndarlega peningaupphæð
til' bókakaupa. Ingólfur Ólafsson
vélstjóri átti 50 ára vélstjóraafmæji
og af því tilefni gaf hann skólanum
fé til bókakaupa.
Unglingalúðrasveit frá Svíþjóð *
heimsækir Njarðvík:
Þeytir lúðra í Kringl-
imni o g á Austurvelli í dag
Keflavík.
Unglingalúðrasveit frá Alvsby í Norður-Svíþjóð kom til landsins
í gær og ætlar lúðrasveitin, sem heitir Alvsby-Brass, að leika þrisvar
á meðán á íslandsdvölinni stendur. Sænsku unglingarnir ætla að
leika fyrir Reykvíkinga tvívegis í dag, fyrst í Kringlunni kl. II og
síðan á Austurvelli kl. 14. En aðaltónleikarnir verða í Ytri-Njarðvíkur-
kirkju á mánudagskvöldið kl. 20 og verður aðgangur að tónleikunum
ókeypis og öllum heimill.
Hingað er Alvsby-Brass komin á
vegum Tónlistarskóla Njarðvíkur
og Norræna hússins og mun ís-
landsdvölin standa í 5 daga. Harald-
ur Árni Haraldsson skólastjóri Tón-
listarskóla Njarðvíkur sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að beiðni hefði
borist frá Norræna húsinu um að
taka á móti hljómsveitinni og hefði
Foreldrafélag Skólahljómsveitar
Tónlistarskóla Njarðvíkur skipað
nefnd til að annast undirbúning og
taka á móti sænsku gestunum sem
hefðu aðsetur í grunnskólanum.
Haraldur Árni Haraldsson sagði
að mikill áhugi væri fyrir þessari
heimsókn og ætlaði bæjarstjórn að
halda matarboð fyrir gestina og
skólahljómsveit Tónlistarskólans
ætlaði að bjóða þeim til grillveislu.
Þá yrði farið með gestina vítt og
breitt um Suðurnes og einnig til
Þingvalla og að Gullfossi og Geysi.
Haraldur Árni sagði að í hljómsveit-
inni væru 35 hljóðfæraleikarar og
hann hvatti alla tónlistaráhuga—
menn til að láta tónleika Alvsby-
Brass ekki fram hjá sér fara.
BB
Lokapred-
ikun í dag
FIMM guðfræðistúdentar flytja
lokapredikun sína í kapellu Há-
skólans í dag, 2. júní.
Þar serti hópurinn er þetta fjöl-
mennur er honum skipt. Fyrri at-
höfnin hefst kl. 13.30 og predika
þar Sigurður Kr. Sigurðsson, Guðný
Hallgrímsdóttir og Hjörtur Hjartar-
son. Við seinni athöfnina, sem hefst
kl. 15, predika Jón Hagbarður
Knútsson og Sigríður Guðmarsdótt-
ir. Aðgangur er heimill almenningi.