Morgunblaðið - 02.06.1990, Síða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JUNI 1990
mmám
, Jizcib er &c?inlegcL c& þér?Bg er
a& Leita. abái//'sanaheftinum'mu!"
. . . að ýta við bakið á
henni.
TM Reg. U.S. Pat Off.—all nghts reserved
° 1990 Los Angeles Times Syndicate
Með
morgunkaffinu
Þú mátt slökkva ljósið,
læknir!
HÖGNI HREKKVÍSI
Ekki vanþörf á eft-
irlitsmönnum
Misheppn-
að framboð
Til Velvakanda.
Nú að loknum kosningum undrar
mig það mest hversu mörgum at-
kvæðum Nýr vettvangur náði að
smala saman. Þjóðin virðist ekki upp
úr því vaxin enn þrátt fyrir tvær
sjónvarpsstöðvar að kjósa vinsæla
fréttamenn í áhrifastöður. En þetta
virðast einhvers konar séreinkenni á
íslensku þjóðinni. Ef Hemmi Gunn
færi í framboð er ég viss um að
hann fengi mörg atkvæði hvar sem
hann lenti á lista.
Margir héldu að það myndi
skemma fyrir Nýjum vettvangi að
um klofningsflokk var að ræða utan
úr Alþýðubandalaginu en aðrir að
þessi nýi listi myndi græða öll ósköp-
in á því. Allir héldu að Nýr vettvang-
ur myndi gera út af við Kvennalis-
tann enda munaði mjóu og setti það
sinn svip á kosninganóttina. Þegar
upp er staðið virðist Nýr vettvangur
lítið hafa gagnað sem allra meina
bót við klofningnum til vinstri. Þvert
á móti virðist þetta brölt í þeim
Ólafi Ragnari Grímssyni og Jóni
Baldvin ætla að leiða til þess að til
verði tvö Alþýðubandalög innan
skamms og þótti víst flestum nóg
að eitt væri starfandi.
Guðmundur
Til Velvakanda.
Fyrir nokkru gerðist sá alvarlegi
atburður á flugi um borð í vestur-
þýskri Boeing 737-þotu að stýris-
hjólið datt af. Við athugun reyndist
vanta geirnagla (splitti) í kastalaró
sem heldur stýrishjólinu á sínum
stað. Fyrirskipuð var neyðarskoðun
á öllum Boeing 737, 400 og 500,
og þar með taldar flugvélar Flug-
leiða sem reyndust þó hvergi hafa
lausa skrúfu það best var séð. En
ný vél sem beið eiganda síns við
verksmiðjuna í Bandaríkjunum
reyndist þó hafa sama galla og sú
fyrstnefnda. Oft er það þegar nýjar
vélategundir eru teknar í notkun
virðist svo sem tilraunatímabilinu
sé ekki lokið og kaupendur séu látn-
ir sjá um afganginn.
Auðvitað er hér ekki átt við kast-
alaróna sem hver vélaviðgerðamað-
ur getur séð að hefur losnað vegna
vítaverðs kæruleysis samsetningar-
manna í verksmiðjunni. Annað er
það þegar túrbínudiskar mótanna í
sumum gerðum Boeing-vélanna
reyndust stórhættulegir, þar sem
þeir höfðu ekki nægan styrkleika.
Þá eru þess dæmi að af sumum
gerðum véla hafa hreyflar hreinlega
rifnað af vængjum véla og fallið til
jarðar, orsakir taldar ranglega
hannaðar festingar o.s.frv.
Undirritaður las viðtal Valgerðar
P. Hafstað í Morgunblaðinu í mars
sl. við þá Ólaf Marteinsson og Bald-
ur Bragason, eftirlits- og skoðunar-
menn Flugleiða í Seattle í Banda-
ríkjunum, en þá var smíði fyrstu
757-200-þotu Flugleiða að Ijúka.
Það kom fram í viðtalinu að ekki
hefðu öll flugfélög skoðunarmenn á
staðnum til að fylgjast með smíði
véla sinna. Baldur upplýsti t.d. að
nýiega .er hann átti leið fram hjá
tveimur mönnum er unnu að frá-
ganginum, þá heyrði hann annan
manninn segja: „Það þýðir ekkert
að kasta til höndunum þegar Flug-
leiðir eru annars vegar, en það er
alveg hægt að leyfa sér það við
aðra.“ Af þessum einkennilegu og
jafnframt furðulegu ummælum
starfsmanns í virtri flugvélaverk-
smiðju má ráða að ekki mun vera
vanþörf á fyrir kaupendur flugvéla
að hafa vel hæfa skoðunarmenn til
að fylgjast með gangi mála yfir
smíðatímann! Astæða er til að ætla
að þetta hafi þá vel til tekist hjá
Flugleiðum.
J. Gunnarsson
Þessir hrinfídu ..,
Geitungar
Kona hringdi:
„Fyrir nokkru birtist frétt í
Morgunblaðinu um að fólk hefði
hringt til lögreglu vegna ásóknar
geitunga í heimahúsum. Ég vil
benda fólki á einfalda aðferð til
að losna við geitunga, að sprauta
á þá hárlakki."
Kvótafrumvarpið
Lárus hringdi:
„ Hvernig stendur á því að
háttvirtir þingmenn okkar Islend-
inga samþykkja kvótafrumvarp
sem felur það í sér að ákveðinn
hópur manna er gerður að eigend-
um fiskistofnanna og jafnframt
að milljónamæringum. Eru það
persónulegir hagsmunir þing-
manna sem þar ráða gerðum?“
Kettlingar
Fjórir kettlingar fást gefins.
Upplýsingar í síma 673084.
Fjórir fallegir þriggja mánaða
gamlir kettlingar fást gefins.
Upplýsingar í síma 44245.
Gullarmband
Fimm ára stúlka tapaði gull-
armbandi fyrir nokkru. A plötunni
stendur Suse Rut. Finnandi er
vinsamlegast beðinn að hringja í
síma 673039.
Húfa
Græn skyggnishúfa tapaðist á
leiðinnni frá Sundhöll Reykjavíkur
að Sjafnargötu. Finnandi er vin-
samlegast beðinn að hringja í
síma 44052.
Víkverji skrifar
Inýju símaskránni er auglýst ný
upplýsingaþjónusta Pósts og
síma. Með því að hringja í nokkur
símanúmer sem öll byija á 99 er
hægt að fá lesnar dagskrár sjón-
varpsstöðvanna, úrslit í getraunum
og lottó, umfjöllun um kvikmyndir
sem sýndar eru í kvikmyndahúsum
höfuðborgarinnar, íþróttafréttir og
popp-vinsældalista. Einnig er mög-
ulegt að hlusta á veðurspá fyrir
mismunandi spásvæði Veðurstof-
unnar og upplýsingar um flugveð-
urskilyrði. Þetta er skemmtileg ný-
breytni og stundum gagnleg. Hins
vegar varar Víkveiji símnotendur
við því, að það er dýrt að hringja
í 99-númerin. í hveiju skrefí eru
aðeins 12 sekúndur, en annars eru
240 sekúndur í einu skrefí innan-
bæjar. Þegar hringt er í ofangreind
númer kostar það því um 15 krónur
á mínútu. Sé hlustað í t.d. 5 mínút-
ur gera það 78 krónur, en 5 mín-
útna samtal innanbæjar aðeins tæp-
ar 7 krónur. Það er því ljóst að sé
hin nýja þjónusta Pósts og síma
notuð eitthvað að ráði munu þess
sjást greinileg merki á símareikn-
ingum notenda. Sérstaklega finnst
Víkveija ástæða til að vara fólk við
því að börn og unglingar ofnoti
þjónustuna, en það virðist nokkuð
ljóst að Póstur og sími reynir að
höfða til þeirra. Þau gera sér hins
vegar ekki alltaf grein fyrir því
hvað hlutirnir kosta.
xxx
Málfar fjölmiðlafólks er skiljan-
lega ætíð mjög undir smá-
sjánni. Einhæfur og klisjukenndur
orðaforði fréttamanna Sjónvarpsins
í kosningasjónvarpinu truflaði ann-
ars ágæta fréttamennsku. Sífelldar
endurtekningar á því að þessi og
hinn frambjóðandinn „bankaði á
dyrnar" voru ákaflega hvimleiðar,
jafnvel þótt orðasambandið væri
leiðrétt þegar líða tók á nóttina,
þannig að bankað var á hurðina.
Álíka þreytandi var að hlusta á
fréttamennina senda einhvem bolta
á milli sín. Annars var skemmtilegt
að fylgjast með þeirri hörkukeppni
sem var á milli sjónvarpsstöðvanna
um kosningafréttir og myndræna
framsetningu þeirra. í síðustu kosn-
ingum vann Stöð 2 þann leik með
yfirburðum, en núna finnst Vík-
veija Sjónvarpið hafa vinninginn,
sérstaklega hvað varðar tölvu-
vinnslu og framsetningu talna í
myndrænu formi.
xxx
* ■
Inýliðinni viku var sýning og ráð-
stefna á vegum Göthe-stofnun-
arinnar á uppbyggingu þýskrar iðn-
og starfsmenntunar. Fáir efast um
gæði þýskrar starfsmenntunar og
því kom mörgum ráðstefnugestum
á óvart, að í Þýskalandi er í megin-
atriðum byggt á því sem sumir iðn-
skólakennarar vildu kalla „gamal-
dags“ meistarakerfí. Smám saman
hefur meistarakerfí verið lagt niður
hér á landi og starfsnámið flutt inn
í iðn- og verkmenntaskóla að hætti
skandinava. Samtímis hefur verk-
menntun hrakað mjög. Það ætti því
ekki að koma nokkrum manni á
óvart, að krafan um að verknámið
verði flutt út í fyrirtækin á ný heyr-
ist æ oftar. Víkveiji er þess reyndar
fullviss, að nútímalegt meistara-
kerfí rísi á rústum núverandi verk-
námskerfis á næstu árum.