Morgunblaðið - 02.06.1990, Síða 43
43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 1990
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
L/71 samtök áhugafólks
n^lJLrUj UM ÁFENGISVANDAMÁL
Aðalfundur SÁÁ
Náttúruverndarsjón-
armið eiga að ráða
verður haldinn laugardaginn 9. júní 1990 kl. 14.00
í Síðumúla 3-5, Reykjavík.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Til Velvakanda.
Eftir kosningar er auðvelt að
sjá, að íslendingar eru hræddir við
breytingar í stjórnmálageiranum.
Það les ég úr niðurstöðum nýafstað-
inna kosninga. Gömlu flokkarnir
fjórir, Alþýðuflokkur, Alþýðuband-
alag, Sjálfstæðisflokkur og Fram-
sóknarflokkur halda fylgi sínu í
megindráttum. Nýr vettvangur er
aðeins nýtt nafn fyrir fylgismenn
vinstriaflanna í þjóðfélaginu til að
kjósa, í mínum huga. Kvennalistinn
fékk ágætt fýlgi á tímabili, en fylgi
hans hefur hrunið jafnt og þétt síð-
an toppnum var náð.
Það sem mér fínnst dapurlegast
við úrslit þessara kosninga er ónógt
fylgi Græns framboðs, það held ég
sé hreyfing sem á framtíð fyrir
sér. Lítið fylgi dregur dilk á eftir
sér: Ekki er boðið fram á öllu
landinu. Ég bý í Kópavogi og gat
því ekki kosið flokkinn fyrst hann
býður ekki fram þar.
Við Islendingar tökum ekki nátt-
úruverndarmálin nógu sterkum tök-
um, þó hefur sá málaflokkur kom-
ist í sviðsljósið að undanförnu, en
betur má ef duga skal. Skammt er
síðan við fórum að ræða stofnun
umhverfismálaráðunéytis, en það
eitt dugir trauðla. Hér þarf að
verða vakning meðal allra sem í
landinu búa.
Ég hef heyrt þá skoðun að
Grænt framboð komi ekki fram með
nógu einarðlegum hætti, margir
treysta ákveðnum mönnum sem
hafa munninn fyrir neðan nefið, og
niðurlægja málstað andstæðings-
ins. Slíkt ber þó að varast; dæmin
sýna að slíkir menn beita oft ein-
ræðislegum vinnubrögðum. Fag-
urgali í stjórnmálamönnum boðar
ekkert jákvætt fyrir kjósendur að
rnínu mati, þeir eru eiginhagsmuna-
seggir. Þeir sem ekki niðurlægja
sig með sh'kum hætti eru trúverð-
ugri, tel ég, þótt persónutöfrarnir
séu minni. Mestu máli skiptir að
mennirnir komi góðum málum í
gegn, og reynslan er sannari en
mennirnir.
Ég hvet fólk til að gefa sig að
náttúruverndarmálun, og virkilega
spái í stjórnmálaflokka, til að sjá
hver á bestan málstað og framkomi
hvaða persóna sé í rauninni trúverð-
ugust.
Flokkakerfið okkar er ágætt eins
og það er, en varla held ég að það
myndi skaða þótt Græna framboðið
myndi stækka svo mikið að það
kæmi nokkrum mönnum á þing og
í borgarstjórn. Við skulum ekki
gleyma því að þeir flokkar sem virk-
ilega ógna gamla kerfinu eiga er-
fitt uppdráttar, viss hlýðniblindur
kjarni hefur safnast um gömlu
flokkana sem þessa flokka vantar.
Þess vegna eiga þeir i.vök að veij-
ast, því það er ekki nóg að vera
nýr, maður verður að vera síst
verri en sá sem fyrir er, helst betri
til að byrja með.
Ekki sæi ég eftir því þótt loft
færi úr vinstriöflunum eftir fram-
komu þeirra í ríkisstjórninni, og
Sjálfstæðisflokkurinn mætti einnig
við því að minnka svolítið. Ef
Græna framboðið tæki jafnt fylgi
frá öllum flokkum myndi jafnvægið
ekki raskast að ráði, slíkt er þó
ómögulegt að spá í.
Þeir sem aðhyllast raunverulega
náttúruvernd verða því að sýna
þessum flokki tryggð, • ef hann
bregst ekki, þau þurfa þess.
Það er þörf á þessum flokki í
íslenskum stjórnmálum, en öruggt
fýlgi vinnst með því að vera heiðar-
legur í stað þess að vera með æðu-
bunugang og fá loftbólufylgi. Og
séu frambjóðendur Græns framboðs
heiðarlegir hlýtur gott málefni og
nauðsynlegt að finna sér verðugan
stað í íslensku stjórnmálalitrófi.
Mörgu þarf að fórna fyrir bætt
ástands heimsins, eigingirni manns-
ins þarf að víkja að einhveiju leyti.
I ljosi reynslunnar verður að horfa
gagnrýnum augum á svokallaðar
framfarir, og fara hægt í þær. Við
þurfum að vera á verði gagnvart
vörum, og þeim úrgangi sem frá
okkur fer, meðfram jurtarækt.
Það er ekki nóg að náttúruvernd
sé afmarkaður málaflokkur eins og
umhverfismálaráðuneytið, allar
ákvarðanir þurfa að vera teknar
með hliðsjón af henni.
Ingólfur Sigurðsson
Itífiimf
Efþú átt
happdrættisnúmer
í aukaleiknum
og greiddir gíróseðilinn fyrir miðnætti miðvikudoginn 30. moí móttu
sækjn oukovinninginn, Mitsubishi Colt 1300 GL, þegor þér hentor.
Þú hefur líka hlotið somskonor bifreið í vinning ef þú ótt
happdrættisnúmer 1715529 - og greiddir gíróseðilinn fyrir
miðnætti 2. moí; ef þú ótt happdrættisnúmer 1651597
- og greiddir gíróseðilinn fyrir miðnætti 9. maí; ef þú
ótt happdrættisnúmer 1637260 - og greiddir gíróseðilinn
fyrir miðnætti 16. maí, eða ef þú ótt happdrættisnúmer
1668094 og greiddir giróseðilinn fyrir miðnætti 23. maí.
Misstu ekki af Aukaleiknum! Mundu að greiða gíróseðilinn sem
fyrst til að eiga kost ó aukavinningi i hverri viku!
Næst verdur dregið um aukavinning
miðvikudaginn 6. júní.
SPARISJÓÐUR VÉLSTJÓRA
ln-fur uf nlórfnift nlyrkt þrlla hupfulrtrlli.
LANDSSAMBAND
H JÁLPARSVEITA SKÁTA
SEIÐIÐ YKKAR EIGIÐ
/ /
Heilræði
Það gæti orðið
þitt barn!
Börnin í umferðinni eru börnin
okkar. Þar sem þau eru á eða
við akbrautir er nauðsynlegt
að sýna sérstaka aðgát. Öll vilj-
um við vemda börnin fyrir
hættum í umferðinni. Það ger-
um við best með því að sýna
gott fordæmi.
ASIU ÆVINTYRI
Asíu ævintýrið er einfalt, en einkar ljúflega samansett, eins og reyndar öll alvöru ævintýri.
Til að njóta þess fullkomlega færðu örlitla aðstoð við undirbúninginn,
síðan seiðir þú þitt eigið ævintýri í Wok-potti sem hitaður er með léttum gasloga.
Japanskt ævintýri:
Nautakjöt með
Sukiyaki sósu,
grænmeti
og salati
Vietnamskt ævintýri:
Svínakjöt eða
rækjur með
Mekong sósu,
grænmeti
og víetnömsku salati
Indónesískt ævintýri:
Lambakjöt eða
smokkfiskur með
karrý sósu,
grænmeti og
salati
Fiiippeyskt ævintýri:
Kjúklingakjöt eða
nýr fiskur
með Santos sósu,
Santos grænmeti
og salati
SERSTAKT TILBOÐ!
(EKKI ASÍU ÆVINTÝRI)
5 úrvals kjötréttir, fiskiréttir og kaffi á aðeins
890,- krónur. - Tilboðið gildir öll mánudags- til
fimmtudagskvöld.