Morgunblaðið - 10.07.1990, Qupperneq 1
64 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
154. tbl. 78. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 1990
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Flokksþing sovéskra kommúnista:
Reuter
Heimilislausir Moskvubúar og umbótasinnar efndu til mótmæla skammt frá Rauða torginu í gær á
meðan (lokksþing sovéskra kommúnista hélt áfram. Á spjaldinu fyrir miðju stendur: „Kommúnistar,
hættið að kúga alþýðuna með tilskipunum ykkar á 73. ári alræðisins. Gerist alþýðumenn, segið af ykkur.“
Breyting á flokks-
forystunni treystir
Gorbatsjov í sessi
Moskvu. Reuter.
SAMÞYKKT var á flokksþingi sovéskra kommúnista í Moskvu í
gær að leiðtogi kommúnistaflokksins yrði áfram aðalritari, ekki
formaður eins og lagt hafði verið til. Ennfremur var ákveðið að
Qölga í æðstu valdastofhun flokksins, stjórnmálaráðinu, og talið
er það verði til að treysta Míkhaíl Gorbatsjov, Sovétforseta og
leiðtoga flokksins, í sessi.
kjörinn aðalrit-
ari flokksins á
þinginu í vik-
unni. Þingið
ákvað einnig að
stofna nýtt
embætti full-
trúa aðalritara,
sem verður
kjörinn á þing-
inu og fær sjálf-
Tillaga um breytingar á forystu
flokksins, þar sem meðal annars
var gert ráð fyrir að ftokksleiðtog-
inn yrði formaður forsætisnefndar,
var felld með 3.647 atkvæðum
gegn 475.
Þingið samþykkti hins vegar að
flokksleiðtogar úr öllum Sovétlýð-
veldunum fimmtán fengju sæti í
stjórnmálaráðinu. Gert er ráð fyrir
að 23-24 eigi sæti í ráðinu í stað
12 eins og nú.
Talið er næsta öruggt að
Míkhaíl Gorbatsjov verði endur-
Albanar fluttir úr tékkn-
eska sendiráðinu til Prag
Aðrir bjóða byssum og rafmagnsgirðingum birginn við landamærin að Grikklandi
Kakavia, Vín. Daily Telegraph, Keuter, dpa.
HÓPUR Albana, sem leitað hafði hælis í tékkneska sendiráðinu í
Tirana, höfuðborg Albaníu, var fluttur til Prag í gær. Flóttamanna-
straumurinn í sendiráð borgarinnar virðist hafa haft áhrif á stjórn-
völd því fyrr um daginn kynntu þau uppstokkun á stjórn landsins.
Samtímis bárust fregnir af því að Albanar freistuðu þess að flýja
ættland sitt yfir landamærin til Grikklands þrátt fyrir hert eftirlit.
Að sögn grískra hermanna við landamæri ríkjanna er tilkynnt um
skotárásir á albanska flóttamenn á hverri nóttu.
Albanska fréttastofan ATA
skýrði frá því í gærkvöldi að flug-
vél frá Tékkóslóvakíu hefði flutt
51 Albana úr sendiráði landsins til
Prag. Þetta eru fyrstu flóttamenn-
irnir af um 6.000 er leitað hafa
hælis í erlendum sendiráðum í Tir-
ana, sem fengið hafa að fara úr
Fundur sjö helstu iðnríkja heims:
„Ný veröld frels-
is er í sjónmáli“
- sagði Bush í setningarræðu sinni
Houston. Reuter.
GEORGE Bush Bandaríkjaforseti setti í gær fyrsta leiðtogafund
sjö voldugustu iðnríkja heims eftir að kalda stríðinu lauk. Forset-
inn sagði í setningarræðu sinni að „ný veröld frelsis" væri í sjón-
máli og leiðtogarnir hefðu það að leiðarljósi á fundinum að skapa
stöðugleika og hagsæld í heiminum.
Bush bauð leiðtoga Vestur-
Þýskalands, Frakklands, Japans,
Bretlands og Italíu velkomna til
þriggja daga viðræðna um mál,
sem hafa valdið miklum ágreiningi
á meðal þeirra - svo sem efna-
hagsaðstoð við Sovétmenn og að-
gerðir til að stemma stigu við hita-
breytingum á jörðunni.
„Ný veröld frelsis er í sjónmáli.
Veröld vona. Bjargfastrar vissu.
Heimur þar sem friður er varanleg-
ur - þar sem sanngirni er aðall
viðskipta - þar sem allt, sem virð-
ist mögulegt, er mögulegt,“ sagði
forsetinn.
Bush kvaðst vonast til þess að
leiðtogunum auðnaðist að flýta
fyrir framförum í heiminum. „Við
komum hér saman sem banda-
menn og vinir til að taka ákvarðan-
ir sem skapa stöðugleika og hag-
sæld í heiminumbætti hann við.
landi. Stjórnarerindreki í ungverska
sendiráðinu í borginni kvaðst búast
við því að þess yrði ekki langt að
bíða að 40 flóttamenn færu þaðan
til Ungveijalands.
ATA hafði skýrt frá þvi að fjórir
ráðherrar, sem farið hafa með efna-
hagsmál, hefðu látið af embætti.
Simon Stefani innaníkisráðherra og
nokkrir aðrir harðlínumenn höfðu
verið reknir á laugardag. Erlendir
fréttaskýrendur og stjórnarerind-
rekar sögðu að forseti landsins,
Ramiz Alia, væri fylgjandi umbct-
um en vildi að þeim yrði komið á
í áföngum. Hann hefði miklar
áhyggjur af almennri óánægju í
landinu með lífskjörin, sem eru þau
verstu í Evrópu.
Að sögn flóttamanna, sem hafa
komist yfir landamærin til Grikk-
lands, er nú skotið á alla er reyna
að flýja land en flestir þeirra eru
af grísku bergi brotnir. Þeir segja
að lík séu látin rotna í hitanum við
víggirðingarnar, öðrum flóttamönn-
um til viðvörunar. Rafstraumurinn
á girðingunum er ekki nógu mikill
til að valda dauða, flóttamennirnir
klippa á vírinn og þurfa síðan að
hlaupa yfir um 500 m breitt svæði.
Að sögn flóttamanna næst einn af
hveijum þremur á hlaupunum eða
er skotinn. Óstaðfestar fregnir
herma að þeir sem nást séu skotnir
á staðnum. Flóttatilraunir eru nú
taldar vera frá 10 til 50 á viku og
þeim fjölgar ört.
Biskup grísku rétttrúnaðarkirkj-
unnar, Sebastianos, sem aðstoðar
flóttamenn, segir fjölda albanskra
liðhlaupa einnig fara vaxandi. Þrátt
fyrir aukið eftirlit hefur flóttatil-
raunum ekki fækkað. í miðstöð
fyrir flóttamenn í Ioannina var haft
eftir 25 ára gömlum albönskum
flóttamanni að 15 af um 100 ungum
mönnum í þorpinu hans hefðu reynt
að flýja á undanförnum mánuðum.
Tveir þeirra voru skotnir. Flótta-
menn segja ástæðuna fyrir því
hvers vegna ungt fólk hættir lífi
sínu við að reyna að flýja Albaníu
vera trúarofsóknir og að það sé æ
betur að gera sér grein fyrir bágum
kjörum sínum og fátækt.
krafa sæti í stjórnmálaráðinu eins
og flokksleiðtoginn. Samkvæmt
heimildarmönnum á þinginu er
gert ráð fyrir að miðstjórn flokks-
ins kjósi ijóra eða fimm menn í
stjórnmálaráðið tii viðbótar.
Erlendir fréttaskýrendur í
Moskvu töldu þessa breytingu
Míkhaíl Gorbatsjov í hag, því hann
myndi eiga auðveldara með að
hafa stjórn á flokksleiðtogunum
fimmtán heldur en stjórnmála-
mönnum, sem sækja áhrif sín til
Moskvu. Hins vegar sögðu þeir
að erfiðara yrði fyrir harðlínu-
menn, sem hafa átt í eijum við
stuðningsmenn Gorbatsjovs á
þinginu, að ná meirihluta í stjórn-
málaráðinu.
Umbótasinnar og harðlínumenn
deildu hart á flokksþinginu í gær.
Alexander Jakovljev, einn af nán-
ustu samstarfsmönnum Gor-
batsjovs, kvartaði undan því að
harðlínumenn hefðu hafið áróðurs-
herferð til að rægja hann.
Sjá: „Ráðast á fríðindi flokks-
brodda . . .“ á bls. 22.
Reuter
Heimsmeisturum fagnað
Liðsmönnum og þjálfara vestur-
þýska knattspyrnulandsliðsins var
fagnað sem þjóðhetjum er heims-
meistararnir í knattspyrnu komu
lieim til Þýskalands í gær. Mynd-
in var tfekin í Frankfurt er liðs-
menn óku um götur borgarinnar
í opnum bifreiðum og er Rudi
Völler fyrir miðju.
Sjá nánar uniljöllun um HM í
knattspyrnu á bls. B7-B9.