Morgunblaðið - 10.07.1990, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 10.07.1990, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 1990 41 aftur og trúðatækni.“ Blaðamaður hváir. „Já,“ segir Ada og útskýrir hvað hún á við. „Trúðatækni bygg- ist upp á því að fólk þekki trúðinn, viti hvers konar persóna hann er. Trúðurinn vill gera allt', sem hann er beðinn um, eins vel og hann mögulega getur. Ef þú biður hann til dæmis um að ganga upp vegg, reynir hann að ganga upp vegginn. Þegar hann kemst að því að hann getur ekki gert það sem hann er beðinn um verður hann sár. Öllum þykir vænt um raunverulegan trúð því hann er alltaf með tár á ann- arri kinninni. Hann tekur aldrei eft- ir því þegar áhorfendur hlæja.“ Ada segist kunna vel við íslend- inga. „Þið brosið ekki mikið,“ segir hún og horfir stríðnislega á viðmæi- anda sinni. „En þegar þið brosið getur maður verið viss um að þið meinið það. Maður getur verið ör- uggur um að þið farið ekki á bak- við mann.“ Hún segir að krakkamir standi sig ævintýralega vel í sirkuskúnst- unum. „Þegar ég byrjaði gerði ég mér ekki miklar vonir en nú þegar geta sumir krakkanna leikið sér með þijá bolta í einu. Þau em alltaf að koma til mín og segja: „Sjáðu Ada, sjáðu hvað ég get,“ og alltaf fer þeim fram.“ Frá íslandi fer Ada til Frakk- lands, þá til Helsinki, Leníngrad og Indlands. „Mér finnst gaman að ferðast," segir hún, „en það er allt- af jafn gott að koma aftur til ísr- aels. Ég er líka með ýmislegt á könnunni þar. Sem dæmi get ég nefnt að ég kenni tólf konum á aldr- inum 75-85 ára leikræna tjáningu. Ég hef kennt þeim í nokkur ár og fæ virkilega mikið út úr því,“ segir Ada og bætir við að upphaflega hafi einn karl verið með en hann hafi flúið af hólmi eftir nokkurn tíma. Listir sínar hefur Ada numið í London og París. LEIKARAR I stuttu fríi Umtalaðasta parið í leik- araheiminum um þess- ar .mundir er án efa Keifer Sutherland og Julia Roberts sem kvikmyndahúsagestir kannast við úr myndunum Stórkostleg stúlka (Pretty Woman) og Stálblóm (Steel Magnolias). Þau eru nú í stuttu fríi eftir að hafa lokið við að leika í myndinni Flat- liner. Keifer fékk skilnað frá fyrrverandi eiginkonu sinni, Camelie Kath, í febrúar en saman eiga þau tveggja ára dóttur. COSPER Notaðu ekki sporana, þeir kitla hann svo. LOKAÐ Vegna sumarleyfa starfsfólks verður lokað hjáokkurfrá 16.júlí tiI20. ágústnk. AGNAR LUDVIGSSON HF., Nýlendugötu 21, sími 12134. 4 K 10.7. 1990 VAKORT 4507 4100 0001 6254 4507 4300 0003 4784 4507 4500 0008 4274 4507 4500 0015 6544 4507 4500 0015 7880 4548 9000 0023 8743 4548 9000 0028 6346 Afgreiðslufólk vinsamlegast takið ofangreind kort úr umferð og sendið VISA íslandi sundurklippt. VERÐLAUN kr. 5000,- fyrir að klófesta kort og vísa á vágest. VISA ISLAND K ÞETTA ER ENGU KYNNINGAVERÐ Fljúgðu um og trillaðu á sumartánum með þrjú hjól undir botninn. Max skautahjólið sameinar sport, sprell og leikni og er hreint bráðskemmtilegt strax í byrjun. Max skautahjólið kostar ekki himinn og jörð heldur léttar tólf þúsund og níu hundruð krónur. Það er ekki mikið fyrir aðal upplyftara og smell sumarsins. Skelltu þér á Max og það strax.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.