Morgunblaðið - 10.07.1990, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 10.07.1990, Blaðsíða 48
 NYTTA ISLANDI MATVÆU ÞRIÐJUDAGUR 10. JULI 1990 VERÐ I LAUSASOLU 90 KR. Staðarval fyrir nýtt álver: Keilisnes fiillnægir öllum skilyrðunum KEILISNES á Reykjanesi er talið fullnægja öilum skilyrðum Atl- antsálhópsins til að þar sé hægt að velja álveri stað. Kemur þetta fram í minnisblaði ráðgjafar- nefndar iðnaðarráðuneytisins um staðarval vegna álvers Atlantsál- hópsins frá 2. júli síðastliðnum, en þar segir, að staðarvalið hafi nú verið þrengt við Eyjafjörð, Reyðarfjörö og Keilisnes. Meðal skilyrða er að til þess að tryggja nægilegt starfslið þurfi 5-6 rtirsund manns að búa innan við 40 km fjarlægð frá álverinu, lóðin þurfi að vera 70 hektarar og möguleiki á að stækka hana í 100 hektara. Hún þurfi að vera nálægt upphækk- uðum vegi, utan þéttbýlis og nærri strönd. Þá verði að vera örugg höfn fyrir stór skip með 12 metra djúp- ristu, og raforkuafhending þurfi ávallt að vera trygg með tveimur 220 kv flutningslínum, sem hvor um sig geti fiutt 350 MW. Stofnkostnaður 200 þúsund ^tonna álvers með stækkunarmögu- Sig*luQarðar- bær lætur opna Skarðið Siglufírði. BYRJAÐ var að ryðja snjó af veginum um Sigluljarðarskarð í gærmorgun, og er verkið unnið á vegum Siglufjarðar- bæjar. Að sögn Þráins Sigurðs- sonar, bæjartíeknifræðings, er ástæðan fyrir því að vegurinn um skarðið verður opnaður sú að umferð um Strákagöng verður takmörkuð um tveggja mánaða skcið í haust. Fyrirhugað er að endurnýja akbraut og frárennslislagnir í Strákagöngum, og verða göngin þá einungis opin fyrir umferð klukkutíma í senn, kvölds og morgna. Sagði Þráinn að vegna þessa hafi þótt ástæða til að gera veginn um Siglufjarðarskarð fær- an jeppum og stærri bílum. Hann sagðist áætla að það tæki 4-5 daga að opna veginn um skarðið, en auk snjómokstursins þyrfti að gera þar við nokkur ræsi. Við snjómoksturinn er notuð 40 tonna jarðýta, og í gærkvöidi var hún komin á móts við Þver- gil. Víða á leiðinni hefur verið 5-6 metra djúpur snjór á vegin- um, og er reiknað með að snjó- dýptin sé enn meiri þegar ofar dregur í skarðinu. Siglufjarðarskarð liggur milli Fljóta í Skagafirði og Siglufjarð- ar, og um það var lengst af eina samgönguleið á landi fyrir Sigl- firðinga. Það er hæsti fjallvegur landsins, og jafnframt einn hinn snjóþyngsti, en vegurinn er 630 metra yfir sjávarmáli þar sem hæst er. Var ekki hægt að reikna með skarðinu opnu nema 3-4 mánuði yfir sumarið, en fyrir kom að það lokaðist einnig dag og dag í þeim mánuðum. Eftir að vegur var lagður um Stráka og Stráka- göng voru gerð hefur viðhald vegarins um skarðið lagst niður, en hann var þó opnaður sumarið 1988 í tilefni af því að þá voru liðin 70 ár frá því að Siglufjarðar- bær fékk kaupstaðarréttindi. Matthías. ituiiutiK ! I i J e g #« • } 1 leikum í 400 þúsund tonn er sam- kvæmt fyrstu vísbendingum talinn verða 20 til 40 milljónum banda- ríkjadala lægri á Keilisnesi en við Eyjafjörð og Reyðarfjörð. Auk þess er reksturskostnaður álvers á Keil- isnesi talinn verða lítillega lægri en á hinum stöðunum. Sjá frásögn í miðopnu. Kindakjöt: Steftiir í 500 tonna sölu- samdrátt á verðlagsárinu HORFUR eru á að sala kinda- kjöts á innanlandsmarkaði drag- ist saman um 500 tonn, eða tæp- lega 6%, á yfirstandandi verð- lagsári, sem lýkur í september næstkomandi. Síðastliðin þrjú verðlagsár hefur árleg sala verið í kringum 8.600 tonn, en útlit er fyrir að salan verði um 8.100 tonn á þessu verðlagsári. Kindakjötsframleiðslan síðastlið- ið haust var um 9.900 tonn, og hafði þá dregist saman um 650 tonn frá árinu áður, eða um 6%. Meðaltalssalan fyrstu átta mánuði verðlagsársins var um 600 tonn á mánuði, en í maí nam salan um 650 tonnum. Endanlegar sölutölur fyrir júnímánuð liggja ekki enn fyrir, en áætlað er að salan þá hafi verið í kringum 750 tonn. Gert er ráð fyr- ir að sala kindakjöts í júlí og ágúst nái samanlagt 1.800 tonnum, en það er um 100 tonnum minna en seldist á sama tímabili í fyrra. Morgunblaðið/BAR Hluti smyglvarningsins sem fannst í sendibíl í Þorlákshöfn. Tollgæslan lagði hald á 1.218 lítra af vodka Einn stærsti áfengisfarmur sem náðst hefiir í undanfarin ár TOLLGÆSLAN hefúr lagt hald á 1.218 lítra af vodka, 150 kart- on af vindlingum, 10 Ijörutíu- rása talstöðvar og nokkrar flöskur af léttu víni, sem talið er að smyglað hafi verið til landsins firá Bandaríkjunum með Bakkafossi. Þetta er ein- hvert mesta magn af sterku áfengi sem smyglað hefur verið til landsins á siðustu árum, að sögn Kristins Ólafssonar toll- gæslustjóra. Miðað við söluverð ATVR er verðmæti áfengisins rúmar 3 milljónir króna. Einn maður er í haldi hjá lögreglu í Vestmannaeyjum vegna máls- ins. Skipverjar á Bakkafossi hafa ekki verið yfirheyrðir enda er skipið nú á leið til Englands. Tollverðir stöðvuðu á sunnudag í Þorlákshöfn sendibíl sem kom til lands með Heijólfi. í bílnum voru 840 lítraflöskur af Smir- noff-vodka, 8 þriggja pela flöskur af sömu tegund, 150 karton af Winston vindlingum og 10 fjörutíu rása talstöðvar. Við frekari rann- sókn fundust 336 lítraflöskur og 48 þriggjapela flöskur í gámi í Vestmannaeyjum. Talið er góssið hafi verið flutt til landsins með Bakkafossi, sem kom frá Bandaríkjunum í síðustu viku. Vestmannaeyjar voru þriðja viðkomuhöfn skipsins hérlendis áður en það hélt .aftur utan. Málið fer áfram til rannsóknar hjá tollgæslu íslands'og bæjar- fógetaembættinu í Vestmanna- eyjum. Framfærsluvísitalan þegar komin á rauða strikið: Viðræður um leiðir til að halda óbreyttri vísitölu fram í september Rætt um gengishækkun og að frysta hækkanir á opinberum gjaldskrám FRYSTING hækkana á opinberri þjónustu og jafhvel lækkun hennar frá því sem nú er, gengishækkun og afnám iiluta jöfnunargjalds sem sett eru á innfluttan iðnvarning í samkeppni við innlendan eru með- al þeirra aðgerða sem ræddar eru af aðilum vinnumarkaðarins og ríkisstjórninni til að framfærsluvísitalan verði innan við rauða strikið í september sem sett var i kjarasamningunum í vetur. Framfærslu- vísitalan í júlí er komin á rauða strikið og reiknað er með að hækk- un hennar í ágúst og september verði um 1%. Ölafúr Ragnar Grímsson, fjármálaráðherra, segir að ekki gangi að hið opinbera axli eitt byrðar af niðurgreiðslu vísitölunnar og eðlilegt sé að einka- markaðurinn geri það til jafns við ríkissjóð og opinber fyrirtæki. Framfærsluvísitalan í júli sem birt var í gær hækkaði um 0,7% frá fyrra mánuði og er nú 146,4 stig eða það sem gert var ráð fyrir að framfærsluvísitalan yrði í septem- ber við gerð kjarasamningana í febrúar. Samkvæmt ákvæðum þeirra á launanefnd aðila að úr- skurða um aðgerðir fari vísitalan fram úr rauðu strikunum og leita leiða til að koma í veg íyrir það. Af einstökum verðhækkunum milli júní og júlí má nefna að 0,1% eru vegna hækkana matvöru, 0,2% •vegna* Kækkaba á áfengi og tó- baki, 0,1% vegna hækkana á hús- gögnum og heimilisbúnaði, 0,1% vegna hækkana á ferðum og flutn- ingum, 0,1% vegna tómstundaiðk- unar og 0,1% vegna hækkana á veitinga- og hótelþjónustu. Undan- farna þtjá mánuði hefur fram- færsluvísitalan hækkað um 2,3%, en það jafngildir 9,6% verðbólgu umreiknað til heils árs. Síðustu 12 mánuði hefur vísitalan hækkað um 15,5%. Aðilar vinnumarkaðarins ræddu þessi mál á fundi með ráðherrum ríkisstjórnarinnar í gærmorgun. Aðilar munu hafa samráð um að- . gerðir- næstu- daga-og-málið verður rætt á ríkisstjórnarfundi á fimmtu- dag. Olafur Ragnar Grímsson, fjár- málaráðherra, sagði að verðlags- spár við gerð kjarasamninga hefðu verið í bjartsýnna lagi. En þótt verð- lag færi 1% umfram það sem spáð hefði verið væru hlutirnir á engan hátt að fara úr böndunum. Ásmundur Stefánsson, forseti Alþýðusambands Islands, segir að stefna eigi að því að vísitalan verði inna marka rauða striksins í sept- ember. Ekkert væri hægt að segja um það á þessu stigi málsins til hvaða ráðstafana yrði gripið, en hann teldi ljóst að bæði hið opin- bera og einkafyrirtæki yrðu að leggja sitt af mörkum. Einar Oddur Kristjánsson for- maður VSÍ sagði vinnuveitendur staðráðna í að leita allra leiða, í samvinnu við ASÍ, til að koma í veg fyrir að kaupmáttarviðmiðanir kjarasamninganna bresti. Hann sagðist vera bjartsýnn á að það takist. Sjá samtöl bls. 4 við fjármálaráðherra, forseta ASÍ og formann VSÍ. Pundið hækk- ar og dollar- inn lækkar Bandaríkjadalur var í gær, mánudag, seldur á 58,91 krónu og hefúr því ltekkað um 6,1% frá því í nóvember í fyrra. Sterlingspundið var aftur á móti selt á 106,50 krónur í gær og hefur hækkað um 8% frá því í nóvember síðastliðnum. Sjá Peningamarkaðinn bls. 26.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.