Morgunblaðið - 10.07.1990, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 10.07.1990, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 1990 33 Minning: Sigfus Þorsteinsson bóndi - Minning Fæddur 20. mars 1901 Dáinn 7. júní 1990 Á morgun verður til moldar bor- inn Sigfús Þorsteinsson bóndi í Skálateigi. Sigfús var elsti borgari Norðfjarðarhrepps er hann lést. Hann var giftur mannkostakonunni Mörtu Einarsdóttur og eignuðust þau þijú börn. Marta féll frá á miðj- um aldri. Minna er nú talað um fræðaþuli en áður var þegar tengslin við for- tíðina og allur fróðleikur byggðist að miklu leyti á þeim mönnum, sem þegar í æsku lögðu sig eftir að hlusta fullorðna fólkið segja sögu sína og forðfeðranna. Fullkomnir tengiliðir urðu þá aðeins þeir, sem höfðu allt í senn, minni, vilja og hæfileika til endursagnar. Allt þetta hafði Sigfús Þorsteinsson í ríkum mæli, enda fróður um flesta hluti og vísur hafði hann á hraðbergi. Hæst bar þó þekkingu hans á hestum og hestamönnum. Mátti kalla það sérsvið í þekkingunni. Tengsl hans við hestinn slitnuðu aldrei og var það meira en segja mátti um flesta hans samferðamenn sem bílaöldin ruglaði í ríminu. Nú hefur stór hluti þjóðarinnar tileink- að sér hestamennsku og naut við það elju þeirra sem létu þráðinn aldrei slitna. í þeim hópi stóð Sig- fús með fremstu mönnum. Um langa ævi átti hann mikið af góðum hestum og stóðhesta hélt hann öðru hveiju alla sína bú- skapartíð. Þá sótti hann oft langar leiðir í góða stofna, enda fór hann þá víða um land á alls kyns farar- tækjum. Á hestum fór hann um landið þvert og endilangt fyrir utan hinar mörgu ferðir um Miðaustur- land fram á síðustu æviár. Um heimabyggðina, Norðfjarðarhrepp, fór hann árvissar ferðir á hestum þó erfitt væri oft yfirferðar. Kom þá fyrir að hann stóð við hlið hests- ins á hæstu ijallatindum. Sem ungur maður var hann tíðum fenginn til fylgdar við ferða- menn svo sem frambjóðendur og alþingismenn að ógleymdum djörf- um meðalaferðum. Sigfús í Skálateigi var búhöldur góður, átti afurðasamar skepnur og var öðrum bændum fremur, sjálfum sér nægur um tæki á þeim tíma er hestar og hestatæki voru allsráðandi til búverka, enda ungur maður þegar bændur áttuðu sig á því, að hestinn mátti hafa til fjöl- breyttari nota en undir klifberareið- færi. Það tímabil í sögu þarfasta þjónsins má kalla undanfara véla- aldar. Sigfús var fyrstur bænda í Norð- fjarðarhreppi til að panta sér drátt- arvél og sýndi, að þó hann stæði föstum fótum í fortíðinni var hann maður nýrra tíma. Þegar búskapur Sigfúsar stóð með blóma héldu þau hjón kaupa- fólk. Þá voru foreldrar Mörtu og systkini um árabil í Skálateigi og unnu heimilinu svo hann átti gott með að bregða sér af bæ, sem pass- aði honum vel. Fór hann þá jafnvel yfir Oddsskarð og Fagradal, eða aðra fjallvegi er lágu til Héraðs og heimsótti bændur þar. Var til þess tekið þar efra hve vel ríðandi hann var. Sigfús var fríður maður sýnum, léttur á fæti og léttur í lund; þó skapharður og við ekkert hræddur. Hann var góður fulltrúi síns byggð- arlags á mannamótum víða um land. Hin meitluðu tilsvör hans verða á vörum manna um langa hríð. Júlíus Þórðarson t Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarð- arför KARELS VALTÝSSONAR. Sérstakar þakkir til starfsfólks öldrunardeildar Borgarspítalans. Þórhíldur Valtýsdóttir, Þuríður Valtýsdóttir, Helga Valtýsdóttir, Grímur Pálsson, Valtýr Sigurðsson, Sverrir Kristjánsson og fjölskylda. t Öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýju við andlát og útför dóttur minnar og systur okkar, ÞORGERÐAR JÓNU ARNADÓTTUR frá Hlöðutúni, sendum við hjartans þakklæti. Guð blessi ykkur öll. Þuríður Guðmundsdóttir frá Bæ, systkinin og fjölskyldur þeirra. t ' 1 J Hjartans þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur vináttu og hlýhug við andlát og útför ARNAR ARNARSONAR, Sléttuvegi 4, Selfossi. Guð blessi ykkur öll. Aðstandendur. Opna fire$tone golfmótið veröur haldið á Strandarvelli 15. júlí. Keppt verður með og án forgjafar og hefst mótið kl. 8. Góð verðlaun í boði. Skráning fer fram í síma 98-78208 13.-14. júlí kl. 13-18 báða dagana. Golfklúbbur Hellu JÖFUR ÞEGAR ÞÚ KAUPIR BÍL Nýbýlavegi 2, sími 42600 KÆLISKÁPAR: Ltr. Hæð Br. Dýpt Verð áður kr. Júlíverð (stgr.) ME140 140 85 50 60 32.160 27.500 DF230 230 139 55 60 42.800 36.800 DF260 (þrísk.) 260 151 55 60 51.900 44.500 RF290 260 152 55 60 52.900 44.900 FRYSTISKÁPAR: GS120 120 85 50 60 33.500 28.900 GS210 210 122 55 60 42.800 36.800 UP290 290 150 60 60 51.900 44.500 ÖNNUR HEIMILISTÆKI VELOTURBO 2800 (tvískipt, topphlaöin þvottavél 2800/sn.) 64.900 S52 ARISTON þurrkari 41.900 Genial Dry þurrkari, blástursofn 17.900 Uppþvottavél 57.885 HELLUBORÐ: 22I/04R4B hvít sjálfstæð helluborð 21.900 55.900 35.900 14.900 49.900 15.900

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.