Morgunblaðið - 10.07.1990, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 1990
FRAMFÆRSLUVISITALAN A RAUÐA STRIKINU
Hugsanlegt að gjaldskrár opinberra
fyrirtækja verði óbreyttar ót árið
segir Ólafiir Ragnar Grímsson fj ármálaráðherra
ÓLAFUR Ragnar Grímsson, Qármálaráðherra, segir að verðlagsfor-
sendur kjarasamninganna í febrúar hafi verið í bjartsýnna lagi að
mati ýmissa sérfræðinga og bendir í því sambandi á spá hagdeildar
fjármálaráðuneytisins frá því í febrúar um verðlagshorfúr á árinu, en
þar er spáð um það bil 1% meiri verðbólgu á árinu í heild heldur en
gert var í forsendum samninganna. Framfærsluvísitalan í júlí er 146,4
stig eða sú sama og gert var ráð fyrir samkvæmt samningnunum að
hún yrði á fyrsta rauða strikinu I september og það er í samræmi við
spá hagdeildarinnar.
„Hlutimir eru á engan hátt að
fara úr skorðum, heldur er í febrúar
erfitt að segja með algjörri ná-
kvæmni hvemig þróunin muni vera
það sem eftir er ársins. í heild er
þróunin í stórum dráttum í samræmi
við það sem lagt var upp með og
verðbólgan er nú kominn svo langt
niður að það þarf að fara marga
áratugi aftur í tímann hér á íslandi
til að finna samanburð," sagði Ólafur
Ragnar.
Hann sagði að hækkanir opinberra
aðila hefðu verið í samræmi við það
sem miðað var við í forsendum kjara-
samninganna og meira að segja
minni en miðað var við. Það sæist á
því að bensíngjaldshækkun sem hefði
átt að koma til framkvæmda 1. júlí
hefði verið frestað. Þá væri það at-
hyglisvert að frá því í febrúar hefðu
opinberar hækkanir í heild aðeins
verið 1%, en verðlag á hinum al-
menna m;.rkaði hefðu verið 3,5%.
Það væru fyrst og fremst hækkanir
á almenna markaðnum sem gerðu
það að verkum að spá samningaðila
í febrúar hefði ekki gengið eftir.
„Þetta eru
staðreyndir sem
er mjög mikil-
vægt að hafa í
huga. Engu að
síður er ríkur vilji
fyrir því innan
ríkisstjórnarinnar
að taka þátt í því
ásamt aðilum vinnumarkaðarins að
ná að halda verðlagsþróuninni innan
við bönd rauðu strikanna. Það kemur
margt til greina í þessu sambandi
og ég hef kynnt forustumönnum
stjórnarflokkanna og aðilum vinnu-
markaðarins ýmsar hugmyndir í
þeim efnum og þær verða ræddar í
ríkisstjóminni á fímmtudag og næstu
daga við aðila vinnumarkaðarins,"
sagði Ólafur Ragnar.
Hann sagðist ekki vilja ræða þess-
ar hugmyndir í einstökum atriðum,
en til greina kæmi að opinber fyrir-
tæki haldi sínum gjaldskrám algjör-
lega óbreyttum út árið og hugsanlegt
væri að knýja einhver opinber fyrir-
tæki til ennfrekara aðhalds með ein-
hverri lækkun gjaldskrárákvarðana
sem teknar hefðu verið, til að sýna
aðhaldsfordæmi.
Ólafur sagði að einnig gæti komið
til greina að flýta afnámi virðisauka-
skatts af íslenskum bókum. Ef það
yrði gert um mánaðamótin ágúst/
september í stað miðs nóvember eins
og fjárlög gerðu ráð fyrir yrði það
tvímælalaust mikil búbót fyrir fjöl-
skyldur með unglinga í skóla.
Aðspurður um hugmyndir um af-
nám jöfnunargjalds sagði hann að
erfiðara væri tryggja að sú lækkun
skilaði sér út í verðlagið. Það væri
einfaldara að taka fáa og skýra liði
sem allir gætu fylgst með að kæmu
til framkvæmda. Ráðherra sagði, að
það þyrfti líka að gera þetta með
þeim hætti að einkafyrirtækin, sem
hefðu verið að taka sér meiri hækk-
anir en reiknað var með, fengju ekk-
ert tilefni til þess að halda áfram að
taka sér slíkar hækkanir. Hann
sagðist aðspurður-telja eðlilegt að
ríkið gæti með beinum aðgerðum
lagt fram sem næmi 0,4-0,5% lækk-
un vísitölunnar eða um það bil helm-
ing þess sem þyrfti til þess að halda
vísitölunni innan marka, en hinn
helmingurinn kæmi eftir leiðum sem
tengdust meira verðbreytingum á
hinum almenna markaði.
Ásmundur Stefánsson:
Stefiit að framfeerslu-
vísitölunni innan
VEÐURHORFUR í DAG, 10. JÚLÍ
YFIRLIT í GÆR: Hæðarhryggur er yfir Grærtlandshafi og vestan-
veröu landinu og hreyfíst hann austur, en um 400 km suður af
Hvarfi er 995 mb lægð á hreyfingu noröaustur.
SPÁ: Víða suðaustan kaldi og rigning, en þó þurrt að kalla norð-
austanlands. Um hádegisbil snýst vindur sunnanlands í sunnan
kaida með skúrum. Hiti víða 8-16 stig. Hiýjast í innsveitum á Norð-
ur- og Norðausturiandi.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á MIÐVIKUDAG.-Vestan- og norðvestanátt. Skýjað og
sums staðar þokusúld á Norður- og Norðausturlandi, en annars
þurrt að kalla. Bjartviðri suðaustanlands. Fremur svalt.
HORFUR Á FIMMTUDAG: Sunnan- og suðvestanátt. Skýjað og
viða rigning siðdegis á Suður- og Vesturlandi. Léttskýjað á Norð-
ur- og Austuriandi. Nokkuð hlýtt í veðri, einkum norðaustanlands.
TAKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
x, Norðan, 4 vindstig:
^ Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
. jt*___________________
■j 0' Hitastig:
10 gráður á Celsius
V
Y
Skúrir
Él
— Þoka
= Þokumóða
>, ’ Súld
OO Mistur
—Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ($1. tíma
hftl ueður
Akureyri 10 skýjað
ReykÍBVik 11 léttskýjað
Bergen 11 skúr
Helsinki 16 rigning
Kaupmannahöfn 17 skúr
Narssarssuaq 11 skýjað
Nuuk 8 féttskýjað
Óaló 16 skúr
Stokkhólmur 18 skýjað
Þórshöfn 13 skýjað
Algarve 30 heíðskfrt
Amsterdam 16 skýjað
Barcelona 25 heiðskfrt
Berlín 22 hálfskýjað
Chicago 26 alskýjað
Feneyjar 26 heiðskirt
Frankfurt 17 rlgning
Qlasgow 14 skúr
Hamborg 15 skúr
Las Palmas vantar
London 17 skýjað
Los Angeles 18 alskýjað
Lúxemborg 17 skýjað
Madríd 34 léttskýjað
Malaga 29 heíðskírt
Mallorca 29 heiðskirt
Montreal 21 þokuméða
NewYork 25 mistur
Orlando 26 léttskýjað
Parts 18 skýjað
Róm 28 iéttskýjað
Vín 26 hálfqkýjað
Washington 28 mistur
Winnipeg 14 léttskýjað
marka 1 september
„Við reifuðum hugmyndir okkar um hvað helst kæmi til greina í
sambandi við niðurfærslu til þess að reyna að vinna upp það sem fyrir-
séð er að farið verði fram yfir rauða strikið I september ef ekkert
verður að gert,“ sagði Ásmundur Stefánsson, forseti Alþýðusambands
Islands, aðspurður um fund forsvarsmanna aðila vinnumarkaðarins
með ráðherrum ríkisst jórnarinnar í gærmorgun.
Hann sagði að
frá því í maí mán-
uði hefði verið
ljóst að líklegt
væri að verðlags-
þróunin stefndi
fram úr því sem
ráð hefði verið
fyrir gert í sept-
ember og þróunin
uði benti til þess að verðlag fari um
1% fram úr rauða strikinu. „Það kom
fram að fjallað yrði um málið á ríkis-
stjórnarfundi I vikunni og við mynd-
um síðan bera okkur saman og reyna
að fínna niðurstöðu sem allir geta
verið samstíga um,“ sagði Ásmund-
ur.
Hann sagði að þrátt fyrir það að
framfærsluvísitalan nú væri orðinn
hærri en stefnt hefði verið að við
gerð kjarasamninga, mætti ekki
gleyma því að enn einn mánuður
hefði bæst við þar sem verðbólgu-
hraðinn væri innan við 10% og það
væru æði mörg ár síðan það hefði
gerst mánuð eftir mánuð. Árangur-
inn væri þrátt fyrir allt bærilegur
og frávik upp á 0,5-1,0% væri ekki
mikið miðað við þá óhjákvæmilegu
ónákvæmni sem væri í spám af þessu
tagi.
Hann sagði að ekki væri auðvelt
að benda á eitthvað ákveðið sem
gerði það að verkum að verðlagsspá-
in hefði ekki gengið eftir. Um væri
að ræða lítil frávik á flestum sviðum
og segja mætti að þær árshækkanir
sem hefðu átt eftir að koma inn hefðu
verið vanmetnar. Hlutir væru að
koma inn núna sem hefðu ekki tekið
verðbreytingum í heilt ár. Ef til vill
hefði verðlagsspáin í febrúar verið
fullbjartsýn.
Aðspurður hvort þær aðgerðir sem
rætt sé um miði að því að fram-
færsluvísitalan verði innan marka í
september, sagði Ásmundur: „Ef við
eigum að komast undir mörkin þarf
tölvert að koma til eins og tölurnar
sýna. Ég vil setja það mark að menn
miði við að það gerist."
Hann sagði að ekkert væri hægt
að segja á þessu stigi málsins um
það til hvaða ráðstafana yrði gripið,
en ljóst að bæði hið opinbera og
einkafyrirtæki yrðu að leggja sitt að
mörkum.
„Það er ekki hægt að neita því
að við höfum væntanlega náð meiri
árangri heldur en flestir bjuggust
við, þrátt fyrir að við séum að fjalla
um hugsanlegt frávik upp á 1% í
september. Málið snýst um að fylgja
þessum árangri eftir og fínna leiðir
til að tryggja kaupmáttinn. Vegna
þessara umframhækkana er hann
lægri núna en við gerðum ráð fyrir.
Niðurfærsluaðgerðir hafa ekki að-
eins þann tilgang að bæta það upp
og ef það tekst helst kaupmátturinn
án þess að það komi til úrskurðar
verðbóta 1. október," sagði Ásmund-
ur að lokum.
Staðráðnir í að fínna leið-
ir til að rétta þetta við
*
- segir Einar Oddur Kristjánsson formaður VSI
EINAR Oddur Kristjánsson formaður Vinnuveitendasambands íslands
segir vinnuveitendur staðráðna í að leita leiða til að lækka framfærsluv-
ísitöluna svo rauð strik kjarasamninganna haldi. Það komi í ljós um
næstu helgi hver niðurstaðan verði en hann sé bjartsýnn á árangurinn.
Einar Oddur
vildi ekki fjalla
nánar um hvaða
möguleika helst
væri rætt um.
Gengið væri til
þessara hluta
með opnum huga
og á þessu stigi
málsins vildu menn ekki taka eitt
fram yfir annað.
Þegar Einar var spurður hvort það
ylli honum ekki vonbrigðum að við-
miðanir kjarasamninganna héldu
ekki, sagði hann menn ekki mega
gleyma því að rauðu strikin hefðu
vériðkaapniáUamðfnÍðuri;' áð 'sálriil-'
ingsaðilar hefðu orðið ásáttir um að
kaupmátturinn mætti ekki og ætti
ekki að fara neðar.
„Ég held að okkar hagfræðingar
hefðu getað gert áætlun sem hefði
staðist. Hitt var kúnstin að ná sam-
komulagi,“ sagði Einar.
Hann bætti við að nú væri verið
að fást við septemberpunktinn og svo
ætti eftir að kljást við rauða strikið
í desember. „Óg við ætlum okkur
að klára desemberpunktinn líka. í
kjarasamningnum eru líka ákvæði
um að endurmeta viðskiptakjörin í
nóvember, svo þetta verður allt í
stöðugri umfjöllun næstu. þli^ri,"
sagði Einar Öddur Kristjánsson.