Morgunblaðið - 10.07.1990, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 10.07.1990, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JULI 1990 23 Bretland: Scargill gagnrýndur fyrir JJármálabrask fyrir að minnsta kosti einni milljón dala (60 milljónum ÍKR), sem sov- éskir námamenn hefðu sent bresk- um starfsbræðrum sínum í deilu þeirra við . yfirvöld veturinn 1984-85. Scargill vísaði þessu á bug. I gær, mánudag, birti dagblaðið Daily Mirror frétt þess efnis, að eitt þeirra skjala, sem lagt hefði verið fyrir rannsóknarnefndina, hefði verið falsað. Það væri því ástæða til að draga niðurstöður nefndarinnar í efa. Eins og áður segir stendur nú yfir ársfundur Sambands breskra námaverkamanna. í gærmorgun varði Scargill sig af hörku og sagð- ist hafa orðið að þola réttarhöld fjölmiðla yfir sér. } Heildsölubirgðir • íslensk Dreifing • Sími 91-68 73 74 Súkkulaði Sælkerans „Helst langaði mig til að kaupa þúsund tonn af málningu og mála yfir allt,“ sagði V-Þjóðverji einn við blaðamann, en hús eru víða í mikilli niðurníðslu í Austur-Þýskalandi. gera fyrir vestan". Herbergið vildi hann fá greitt fyrirfram og í reiðufé — vestur- þýskum mörkum að sjálfsögðu. „Það var hægt að borga með krítar- kortum hér áður fyrr en það verður ekki hægt aftur fyrr en í lok júlí eða á meðan breytingarnar ganga yfir — þér skiljið." St. Androws. Frá Guðmundi Heiðari Frímaanssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. ARTHUR Scargill, leiðtogi bre- skra námamanna, segist ekki munu segja af sér þrátt fyrir mikla gagnrýni fyrir að hafa misfarið með fé. Þing breskra námamanna stendur nú yfir og er þar fjallað um fjármálastjórn Norður-Irland: Deiluaðilar reiðubúnir tilsanminga St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. PETER Brooke, Norður-írlands- málaráðherra bresku sljórnarinn- ar, hefur unnið að því í kyrrþey að undanfornu að fá alla deiluað- ila á Norður-írlandi að samninga- borði til að komast að samkomu- lagi um stjórnarfyrirkomulag. Stjórnvöld á Irlandi komu í veg fyrir, að hann gæti lýst yfir upp- hafi viðræðnanna í neðri deild breska þingsins í síðustu viku. í fyrsta sinn hafa leiðtogar mót- mælenda tekið í mál, að mæta til slíkra viðræðna. Fulltrúar allra ann- arra stjórnmálaflokka höfðu í síðustu viku fallist á að taka þátt í viðræðunum. Samkvæmt því samkomulagi var óljóst, hvenær fulltrúar írskra stjórn- valda í Dyflinni áttu að koma inn í viðræðurnar. Vegna þessa neituðu þau að fallast á samkomulagsdrögin. Peter Brooke varð að gefa neðri deildinni skýrslu í síðustu viku sam- kvæmt siðvenju, en gat ekki lýst yfir upphafi viðræðna í september, eins og hann hafði vonað. Þetta er í fyrsta sinn í langan tíma, sem allir deiluaðilar á Norður- írlandi hafa verið reiðubúnir að setj- ast að samningaborði. Þessar undir- búningsviðræður eru komnar svo langt, að enginn vill láta líta svo út, að hann komi í veg fyrir þær. írsk stjórnvöld lýstu yfir um helgina, að þau væru þess fullviss, að viðræður hæfust áður en langt um liði. Scargills, sem helur sætt gagn- rýni um nokkurt skeið. Fyrr á þessu ári var Scargill sakaður um, að hafa misnotað fé Sambands breskra námamanna til að kaupa sér hús. Scargill stóð þá að því ásamt öðrum frammá- mönnum sambandsins að setja á stofn rannsóknanefnd undir for- sæti virts lögfræðings, Gavins Lig- htmans. Skýrsla Lightmans var birt í síðustu viku. í henni er Scargill hreinsaður af því að hafa sjálfur notað fé sambandsins. Hann var hins vegar gagnrýndur fyrir að hafa flutt Ijármuni þess yfir til Alþjóðasambands námaverka- manna, sem hefur aðsetur í París. Scargill er forseti þessa sam- bands, sem hefur árum saman notið stuðnings kommúnistaflokka í Austur-Evrópu. í skýrslunni er Scargill gagnrýndur fyrir hafa ekki skilið skýrt á milli hagsmuna þessara sambanda. í skýrslunni kemur einnig fram, að Scargill og aðrir frammámenn námamanna hafa flutt fjármuni sambandsins um flókið net banka- reikninga, á meðan á verkfalli námamanna stóð veturinn 1984-85, til að koma í veg fyrir, að hægt yrði að gera eignir sam- bandsins upptækar samkvæmt lögum. Scargill lýsti því yfir um leið og skýrslan kom út, að hún hefði hreinsað sig af þeim ásökunum, sem á hann hefðu verið bornar. Daginn eftir kom leiðtogi sovéskra námamanna fram í sjónvarp og sagði að ekki hefði verið gerð grein UPP UM FJÖLL OG Hvort sem þú ætlar í stutta gönguferð í Heiðmörk eða í úti- legu í Þórsmörk þá hefst ferðin hjá okkur í Skátabúðinni. Mikið úrval af útilegubúnaði fyrir reynt sem óreynt útiveru- fólk. Faglegar leiðbeiningar. Aðeins þekkt vörumerki. Upp um fjöll og firnindi með-Skátabúðinni. -SWWK FRAMtíR SNORRABRAUT 60 SÍM112045

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.