Morgunblaðið - 10.07.1990, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 10.07.1990, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 1990 47 Sovéskir stórmeist- arar í efstu sætunum Skák Karl Þorsteins Sovésku stórmeistararnir Ivan- chuk, Gurevich og Gelfand eru efstir á millisvæðamótinu í Manila að loknum 9 umferðum. Þeir hafa allir hlotið sex og hálfan vinning. Jóhann Hjartarson hefur fjóran og hálfan vinning, en skák Mar- geirs Péturssonar og alþjóðlega meistarans Mavin frá Rúmeníu er ólokið. Staðan í biðskákinni er jafnteflisleg og verði jafntefli nið- urstaðan þá hefur Margeir íjóra vinninga. í sjöundu umferð mótsins sigr- aði Jóhann v-þýska stórmeistar- ann Tobran en Margeir tapaði fyrir Anaud. í áttundu umferð á laugardaginn gerðu Margeir og Jóhann jafntefli í innbyrðisskák. Jóhann gerði sér síðan lítið fyrir og lagði breska stórmeistarann Chandler að velli með svörtu mönnunum, á meðan Margeir komst lítt áleiðis gegn Mavin. 10. umferð mótsins verður tefld í dag, þriðjudag, en mótinu lýkur á laug- ardag. Margeir Pétursson var óhepp- inn að sigra ekki Rekhlis í fimmtu umferð. Margeir hafði peði yfir í hróksendatafli en með snjallri vörn tókst andstæðingi hans að halda jöfnum hlút. Gegn Gulka jafnaði Margeir taflið auðveldlega með svörtu mönnunum og hafnaði jafntefli áður en allsheijar upp- skipti fóru í hönd. Veikindi hafa sett mark sitt á taflmennsku Jó- hanns í mótinu. Hann hefur kosið að beijast til síðasta blóðdopa, fremur en að sættast á snubbótt jafntefli. Skák Nicolic og Ivanchuks vakti óskipta athygli áhorfenda í fímmtu umferð. Júgóslavinn hóf sóknaráðgerðir snemma tafls og fórnaði peði og síðan skiptamun. Staðan virðist mjög vænleg á hvítan en Ivanshuk varðist af mikiili hugdirfsku bæði fórnirnar og þegar kóngsókn hvíts sigldi í strand vann hann sigur. Hvítt: Nicolic Svart: Ivanchuk Hollensk vörn 1. d4 - f5 2. g3 - Rf6 3. Bg2 - g6 4. c3 (Víkur frá alfaraleiðum. í þriðju umferð lék Nicolic 6. c4 - d6 7. Rc3 - De8 8. d5 gegn Gurevich og vann.) 4. - c6 5. Bg5 - Bg7 6. Rd2 - d5 7. Rb3 - 0-0 8. 0-0 De8 9. c4 - Re4 10. Rxe4 dxe4 11. f3 exf3 12. exf3 - Df7 13. Hel - Dxc4 14. Bxe7 - He8 15. Khl - Ra6 16. Bfl - Df7 17. Rg5 - Dd5 18. Dcl - b5 19. Bg2 - Bb7 20. f4 - Dxd4 21. a4 - Hab8 22. axb5 cxb5 23. Hxa6!? (Það er hreint með ólíkindum að svarti tekst að veija kóngstöðu sína: áframhaldinu. Báðir kepp- endur höfðu eytt miklum tima á skákina og tímahrak nú yfírvof- andi.) 23. Bxa6 24. Dc6 - h6! 25. De6 - Kh8 26. Rf7 - Kh 7 27. Re5? Bxe5! 28.fxe5 (28. Hxe5 Dc4! Kemur í sama stað niður því 29. Dfl mát.) 28. Dc4! 29. Df6 - Bb7 30. e6 - hg8 31. h4 - Bxg2+ 32. Kxg2 - Dd5+ 33. Kh3 - Hbc8 34. h5 - g5 35. De5 - g4+ 36 Kh4 - Hc3: Stöðumynd Hvítur: Kh4, De5, Hel, Be7 Peð: h5, g3, e6, b2 Svartur: Kh7, Dd5, Hg8, Hc2 Peð: h6, g4, f5, b5, a7 Hvítur gafst upp. Morgimblaðið/Ágúst Blöndal Konurnar að koma úr Oddskarðsgöngum Eskifjarðarmegin. Neskaupstaður: Áheitaganga á Eskiíjörð HÆTTIÐ AÐ BOGRA VIÐ ÞRIFIN! Neskaupstað. KONUR úr kvennadeild SVFÍ á Norðíírði lögðu land undir fót nýlega og gengu áheitagöngu yfir Oddskarð til Eskifjarðar um 26 km leið yfir einn hæsta fjall- veg landsins. Tilefni göngunnar var að afla fjár til byggingar nýja Slysavarna- húsinu hér á staðnum. Gangan, sem tók um fimm og hálfa klukkustund, tókst vel og öfluðu konurnar um fjögur hundruð þúsund krónur með gönguferðinni. - Agúst. Ritið “Upplýsingar eru auðlind“ komið út KOMIÐ er út ritið “Upplýsingar eru auðlind", en að útgáfunni stendur samstarfsnefnd um upp- lýsingamál, sem skipuð er af menntamálaráðherra og hefur starfað síðan 1979. í bókinni, sem er um 300 blað- síður, eru 24 greinar eftir 17 höf- unda sem ijalla m.a. um löggjöf og skipulagsmál á sviði upplýsinga- mála hérlendis, skipulagsmál ann- ars staðar á Norðurlöndum og at- beina Evrópubandalagsins á upp- lýsingasviðinu, upplýsingatækni og nýtingu hennar, fjarskipta- og upp- lýsinganet, gagnaflutninga, mennt- un og rannsóknir á sviði upplýs- ingamála, bókasöfn, skjalasofn og aðrar stofnanir sem geyma gögn, varnaraðgerðir gegn hrörnun og eyðileggingu pappírs, uppbygging íslenskra bókfræðigagnasafna, hlutur einkaaðila í upplýsingastarf- semi, nýting erlendra gagnabanka og fjarvinnustofur og fjarkennsla. Hú fást vagnar með nýrri vindu /, par sem moppan er undin með I einu handtaki án þess að taka þurfi hana af skaftinu. Moppan fer alveg inn í horn og auðveldlega undir húsgögn. Einnig er hún tilvalin í veggjahreingerningar. Þetta þýðir auðveldari og betri þrif. Auðveldara, fljóthgraog hagkvæmara! Nýbýlavegi 18 Sími 641988 VARIST DÝRAR BRÁÐABIR6ÐAIAUSNIR! Tryggid endingu gluggans með ábyrgu eftirliti R.B. l VT. :' >• • f ■ . % ' • / / / Allir undirlistar eru úr áli og með áföstum þéttilista. Fræst er úr karmstykkjum fyrir PN gluggajárnum. Hallandi föls eru í öllum undirstykkjum. Hallandi föls eru í undirstykkjum á fögum. Opnanleg fög eru úr furulímtré. Állisti er festur með smellu. Allar brúnir eru fasaðar. Dæmigerð hönnun og frágangur á glugga frá Ramma hf. SHJBM SÖLUSKRIFSTOFA/RÁÐGJÖF IÐNVERK, HÁTÚNI 6A. SÍMI 91-62 80 80. IIFTRYGGING GLUGGANS: Gætið að því að framleiðandinn sé og hurðaeftirlit aQiii aQ jqh, því þá er hann sjálf- krafa undir ströngu gæðaeftirliti Rannsóknarstofnunar Byggingar- iðnaðarins R.B. Gætið að því að framleiðandinn hafi viðurkenningu Gagnvarnar- ráðs, ef gagnvörn er í boði. Eftirlit: R.B. Rammi hf. er eini aðilinn hér á landi sem hlotið hefur viðurkenningu Gagnvarnarráðs.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.