Morgunblaðið - 10.07.1990, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 10.07.1990, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JULI 1990 29 Dósaávextir firá Suður- Afríku, eða hvað? eftir Sunnu Snædal og Gylfa Pál Hersi Miðvikudaginn 20. júní kom Nel- son Mandela, leiðtogi frelsissinna í Suður-Afríku, til Bandaríkjanna í 12 daga heimsókn. Hundruð þús- unda fögnuðu komu hans. Mandela hefur gert víðreist eftir að hann var látinn laus úr fangelsi, en þar mátti hann dúsa í rúm 27 ár fyrir bar- áttu sína og félaga sinna gegn apartheid. Einn aðalboðskapur Mandela til þjóða heims er að þær slaki ekki á viðskiptaþvingunum gagnvart ríkisstjórn hvíta minni- hlutans í Suður-Afríku fyrr en hið ómanneskjulega apartheid-kerfi hafi- verið lagt af. Þetta var einnig eitt aðalerindi fulltrúa Afríska þjóðarráðsins er kom hingað til lands í byrjun mars. Forsætis- og utanríkisráðherra full- vissuðu fulltrúann um að ekki yrði hvikað frá lögum um bann á inn- og útflutningi frá Suður-Afríku. Lög um bann gegn viðskiptum við Suður-Afríku voru samþykkt 20. mai 1988, en í bráðabirgðaákvæði laganna segir: „Lögum þessum verður ekki breytt vegna innflutn- ings eða útflutnings sem á sér stað fyrir 1. janúar 1989 enda hafi verið samið um slík viðskipti fyrir gildis- töku þessara laga.“ Nú, tveim árum eftir gildistöku þeirra og einu og hálfu ári eftir að alfarið var bannað að flytja þessar vörur inn í landið, má víða sjá dósaávexti frá Suður- Afríku merkta Del Monte og Gold Reef, í hillum búða. Því var það að sama dag og Mandela kom til Bandaríkjanna óskuðu Suður-Afríkusamtökin gegn , apartheid eftir því við ríkissaksókn- ara, að fram færi opinber rannsókn á innflutningi á niðursoðnum ávöxt- um frá Suður-Afríku. Með bréfi til ríkissaksóknara fylgdu stað- greiðslunótur frá Blómavali, Mikla- ( garði og Kaupstað í Mjódd. Þar kom fram að dósirnar voru framleiddar í Suður-Afríku. Alþýðusamband ís- lands, sem er aðili að Suður-Afríku- samtökunum, studdi þessar aðgerð- ir eftir að hafa rætt þær á mið- stjórnarfundi. Lögfræðingur hjá ASÍ aðstoðaði við gerð bréfsins til ríkissaksóknara, blaðamannafund- ur um málið var haldinn í húsakynn- um ASÍ og var Ásmundur Stefáns- son, forseti ASÍ, viðstaddur fund- inn, enda eiga verkalýðssamtökin hvað drýgstan þátt í því að sett var viðskiptabann á Suður-Afríku. Hvernig má það vera að dósa- ávextir frá Suður-Afríku skuli vera enn á boðstólum hér á landi? Eru 1 þetta kannski gamlar birgðir? í sjónvarpsfréttum þann 20. júní var sagt; „Suður-Afríkusamtökin gegn Apartheid segja að hérlendis séu seldar vörur frá Suður-Afríku sem ólöglegt sé að flytja inn.“ Við höfum * aldrei fullyrt að það sé gert. Við látum almenningi eftir að spá í það og ríkissaksóknara að rannska málið. En er það ekki undarleg fjár- festing að kaupa dósaávexti og géyma þá svo í að minnsta kosti hátt á annað ár? Er virkilega al- gengt að heildsalar safni margra ára vörubirgðum? Hvar voru allar þessar dósir eiginlega geymdar og hvað voru keyptar margar niður- suðudósir á því herrans ári 1988? Er sumt af þessu kannski enn eldra? „Hvort skyldi nú vera fullyrt að allt í einu hafi fundist ganilar birgðir eða þá að villst hafi verið á miðum? Er ef til vill verið að kiára gömlu miðana?“ Það væri fróðlegt að sannreyna hversu miklar birgðir eru eftir og hversu lengi þær munu endast. Hvernig stendur á því að stundum eru þessar dósir ekki til um nokk- urn tíma en birtast svo skyndilega á ný í búðarhillum? Í einni verslun- inni var haft eftir umboðinu að stundum væru þessr dósir því miður ekki til, en von væri á þeim. Eins var fullyrt við viðkomandi verslun- armann að um glænýja sendingu væri að ræða. A öðrum stað var okkur tjáð að þar væru aldrei dósir í meira en 2-3 vikur í senn. Framundir lok síðasta árs voru fjölmargar dósir frá Gold Reef merktar framleiðslulandinu Suður- Afríka. Seinna bárust sendingar af dósunum þar sem upplýsingar um framleiðsluland voru huldar með nafni innflytjenda. Innflytjandinn fullyrti að þær væru frá Botswana. Seinna voru dósirnar merktar Suður-Afríku á nýjan leik. Hvort skyldi nú vera fullyrt að allt í einu hafi fundist gamlar birgðir eða þá að villst hafi verið á miðum? Er ef til vill verið að klára gömlu miðana? Þeir sem styðja innflutning frá Suður-Afríku, að ekki sé minnst á innflytjendurna sjálfa, skirrast við að hlýða áratuga langri hvatningu frelsisunnenda í Suður-Afríku. í landi þar sem 85% íbúanna hafa ekki einu sinni kosningarétt. Þeir eru vandfundnir er réttlæta kerfi sem grundvallast á kúgun fólks eftir litarhætti. Þeir eru þó til. Það er nú fyrst, eftir langa og erfiða baráttu frelsissamtaka Suður-Afríku og eftir að viðskipta- þvinganir eru farnar að hafa áhrif, að þetta fólk er farið að sjá fyrir endann á hörmungunum. Á sama tíma læðupúkast íslenskir innflytj- endur með dósaávexti frá Suður- Afríku. Afstaða þeirra til Apart- heid-kerfisins er ömurleg. Höfundar: Sunna Snædal er formaður Suður-Afríku samtakanna og Gylfi Páll Hersir félagsmaður. * Miðað við 6 fyrstu mánuði þessa árs. Ob VERÐBRÉFAMARKAÐUR FJÁRFESTINGARFÉLAGSINS HF - Löggilt verðbréfafyrirtæki - HAFNARSTRÆTI28566 • KRINGLUNNI689700 • AKUREYR111100 —U&Xt——\ ■..11L..1.ÍÍ1H—ILL-..J—L——iii-uj-líU-.IU 4aggagnax'fc 'MKj: t z

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.