Morgunblaðið - 10.07.1990, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 10.07.1990, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 1990 Magnea Þórðar- dóttir - Minning Fædd 10. október 1901 Dáin 2. júlí 1990 Hinn 2. júlí sl. lést í Reykjavík frú Magnea D. Þórðardóttir. Magnea fæddist í Reykjavík 10. október 1901, dóttir hjónanna Þórð- ar H. Þórðarsonar sjómanns og Veróniku Hallbjargar Einarsdóttur húsmóður. Magnea naut hefðbundinnar skólagöngu þeirra tíma. Hún var nokkra vetur í barnadeld Kennara- skólans, síðan lá leiðin í Miðbæjar- skólann, m.a. vegna þess að Hriflu- Jónas vildi ekki kenna dönsku. Þar var hún einn vetur. Að því búnu stundaði hún vetrarlangt nám við Kvennaskólann í Reykjavík og þótti mikið gaman. Hún var langyngsti nemandinn þann vetur, því flestar skólasystur hennar voru vel yfir tvítugt og jafnvel eldri. Hugur hennar stóð til frekara náms en fjárhagur foreldra hennar leyfði það ekki. Eftir að skólagöngu lauk starfaði hún um skeið í álnavörubúð við ’Hverfísgötu 32 í Reykjavík. Vorið 1918 hóf hún störf við símstöðina í Vestmannaeyjum. Það atvikaðist þannig að frænka hennar, Guðný, dóttir Magnúsar móðurbróður hennar, sem var gift símstjóranum í Vestmannaeyjum, bauð henni starf við stöðina þar sem tvær stúlk- ur sem þar störfuðu voru að hætta. Magnea sló til því hún vildi komast í starf þar sem hún gæti séð sér farborða og verið sjálfstæð. Þar lærði hún á ritsímann, morsið og náði á því góðum tökum. Raunar sagði hún stundum að hún hefði morsið í fíngrunum ennþá. Fyrsta daginn í Vestmannaeyjum hitti hún manninn sem síðar varð eiginmaður hennar, Jóhann Þ. Jós- efsson. Jóhann var kaupmaður og útgerðarmaður í Vestmannaeyjum og síðar alþingismaður og ráðherra. Þessi fyrsti fundur Magneu og Jó- hanns varð henni eftirminnilegur. Henni fannst það merkileg tilviljun, kannski forlög, að fyrsti maðurinn sem hún hitti í Vestmannaeyjum, fyrir utan frænku sína og mann hennar, skyldi vera maðurinn sem síðar átti eftir að verða lífsförunaut- ur hennar. Við frásögnina bætti Magnea því kímilega að hún hefði löngu síðar frétt það að á Tangan- um, þar sem Jóhann rak verslun og útgerð, hefði vakið eftirtekt skyndilegur áhugi hans á að fara sjálfur með skeyti og aðrar sending- ar upp á símstöð eftir að nýja símstöðvarstúlkan hóf þar störf. Magnea og Jóhann gengu í hjónaband 22. maí 1920 og var Magnea seinni kona hans. Fyrri konu sína, Svanhvíti Ólafsdóttur, missti Jóhann eftir stutt hjónaband. Btómmtoja Fnðjinm Suðuriandsbraut 10 108 Reykjavík. Sími 31099 Opið öllkvöld tíl kl. 22,- einnig um helgar. Skreytingar við öll tilefnl. Gjafavörur. Magnea og Jóhann eignuðust þrjú börn, Svönu Guðrúnu, f. 1921, Ágústu, f. 1922, og Ólaf, f. 1928, Ólafur fórst með flugvéljnni Glit- faxa í janúar 1951. Á heimili Magneu og Jóhanns ólst einnig upp dóttir Jóhanns, Unnur, f. 1911. Hún lést af veikindum langt fyrir aldur fram rúmlega tvítug að aldri. Fyrstu fímmtán árin bjuggu Magnea og Jóhann í Fagurlyst í Vestmannaeyjum. Árið 1935 flutt- ust þau búferlum til Reykjavíkur og frá þeim tíma stóð heimili þeirra á Bergstaðastræti 86. Þar bjó Magnea í nær hálfa öld uns hún flutti snemma árs 1984 að Lyng- haga 26, þar sem hún bjó til dauða- dags. Magnea var móðuramma eigin- manns míns og kynntist ég henni fyrst haustið 1976. Þá var Magnea 75 ára gömul og bar aldurinn vel. Hún var í meðallagi há, grannvax- in, nett og létt á fæti. Hlátur henn- ar var dillandi og unglegur. Hún var frábærlega smekkvís og bar klæðaburður hennar og heimili vitni þess. Kurteisi var henni í blóð borin og framkoma hennar í senn fáguð og virðuieg. Hún vissi hvað hún vildi, var ákveðip, jafnvel þijósk, og fór sínu fram ef um var að ræða mál sem hún taldi mikilvæg. Magnea átti sér mörg áhugamál. Meðan sjónin leyfði las hún mikið. Hún var vel að sér í erlendum tungumálum, mest af sjálfsnámi. Hún hafði dönsku, ensku og þýsku vel á valdi sínu og var nokkuð heima í franskri tungu. Ættfræði var og sérstakt áhugasvið. Til hinsta dags hafði hún lifandi áhuga á stjórnmál- um, bæði innanlands og utan. Hún var eindrægur sjáifstæðismaður og fylgdist grannt með störfum Sjálf- stæðisflokksins í stjórn og stjórnar- andstöðu. í hjónabandi sínu og fjölskyldu- lífí taldi Magnea sig gæfumann- eskju. Fráfall einkasonarins, Ólafs, sem fórst með flugvélinni Glitfaxa, skildi þó eftir sár sem aldrei greru. Við andbyr kom heilsteyptur per- sónuleiki hennar best í ljós. Hún tókst á við hveija raun og varð sterkari eftir. Magnea bar hag sinna nánustu mjög fyrir bijósti. Hún vildi fylgjast með því sem á daga okkar dreif bæði í lífi og starfi. Hún gladdist hjartanlega yfir öllu því í lífí okkar sem til framfara horfði og frá henni streymdi einlæg hlýja og styrkur ef á móti blés. Magnea kunni vel að meta frá- sagnir af ferðalögum sem við tókum okkur fyrir hendur, bæði innan lands og utan. Oftar en ekki leiddi af slíkum ferðasögum samanburður við ferðir hennar sjálfrar fyrr á öld- inni til sömu staða. Kom þá vel fram frábært og óbrigðult minni hennar. Legsteinar Framleiðum allar stærðir og gerðir af legsteinum. Veitum fúslega upplýsingar og ráðgjöf um gerð og val iegsteina. S.HELGASON HF STEINSNIIÐJA SKEMMUVEGI48. SIMI76677 Hún var hafsjór af fróðleik um liðna tíma og var í essinu sínu þegar hún rifjaði upp liðna atburði úr við- burðaríkri ævi sinni; uppvaxtarár í Reykjavík í byijun aldarinnar, fyrstu hjúskaparárin í Vestmanna- eyjum, Reykjavík um miðbik aldar- innar, ferðalög innanlands og utan. Hún sagði skemmtilega frá og dró upp ljóslifandi myndir af atburðum, stöðum, mönnum og málefnum. Vegpia þátttöku Jóhanns í hringiðu stjórnmálanna um tæplega fjörutíu ára skeið hafði hún við hlið hans upplifað margt og hitt marga af fremstu stjórnmálaforingjum hér á landi og í Evrópu. Betur að við hefðum skráð í ríkari mæli fróðleik- inn sem hún bjó yfir. Á kveðjustund er mér efst í huga þakklæti fyrir að hafa fengið að kynnast jafn mikilhæfri konu og Magnea var. Á sömu stundu gleðst ég yfir því að Magneu auðnaðist til dauðadags að vera eins og hún helst vildi, sjálfstæð og ekki upp á ókunnuga komin. Þangað til viku fyrir andlát sitt bjó hún ein þó sjón væri farin að daprast mjög, heyrnin skert og hreyfigetan takmörkuð. Þetta tókst henni með óeigingjarnri o g fórnfúsri umönnun dóttur sinnar, Ágústu. Umhyggja hennar og aðstoð við móður sína verður seint fullþökkuð. Guð blessi minningu Magneu D. Þórðardóttur. Dögg Pálsdótdr Magnea Dagmar Þórðardóttir, amma mín, lést í Landspítalanum aðfaranótt 2. júlí sl. á 89. aldurs- ári. í dag verður jarðarför hennar gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík þar sem hún var skírð barn og fermd ung stúlka. Magnea var fædd á Holtastöðum við Laufásveg í Reykjavík 10. októ- ber 1901, dóttir hjónanna Veróniku Hallbjargar Einarsdóttur og Þórðar Helga Þórðarsonar sjómanns. Holtastaðir voru býli sem stóð fyrir neðan lóðina Bergstaðastræti 62 og sem móðurafí hennar, Einar Magnússon, fluttist á eftir að hafa stundað búskap m.a. á Skrauthólum á Kjalarnesi. Fáum árum eftir fæð- ingu ömmu var reist hús á Berg- staðastræti 62, og þar stóð æsku- heimili hennar og heimili foreldra hennar meðan þau lifðu. Amma minntist æskuheimilis síns með mikilli hlýju. Þar ólst hún upg ásamt yngri systur sinni, Guðrúnu Ágústu, umvafín ástríki foreldra sinna og afa. Aldrei féll styggðaryrði á því heimili, sagði amma jafnan. Ég geri ekki ráð fyrir að efnin hafi verið mikil á heimilinu. En þar var gestkvæmt. Þangað komu meðal annarra bændur, gamlir sveitungar Einars Magnússonar, og vinnufólk sem hafði verið hjá honum og öllu þessu fólki var glaðlega tekið og oft gefinn fatnaður og gjafír, enda húsmóðirin veitul. „Og svo fór það ánægt,“ sagði amma. Frá þessu fólki heyrði hún hvað afí hennar og amma voru vel látin og hvað móðuramma hennar, Guðrún Jóns- dóttir, hefði verið góð húsmóðir og stórfalleg kona. Föðuramma henn- ar, sem einnig hafði verið fögur kona. hét Steinunn Stefánsdóttir bónda á Vestri-Kirkjubæ á Rangár- völlum (bróðir hins kunna og kyn- sæla Guðmundar á Keldum), Brynj- ólfssonar b. og hreppstjóra á Vestri-Kirkjubæ, Stefánssonar b. og hreppstjóra í Árbæ, Rangárvöll- um, Bjarnasonar b. og hreppstjóra á Víkingslæk á Rangárvöllum, ætt- föður Víkingslækjarættarinnar. Ein af bernskuminninum ömmu spannst af heimsókn Símons Dala- skálds á Holtastaði. Hann var búinn að þiggja góðgerðir, hélt á henni 5 ára gamalli á hné sér og sagði: Hljóttu manna hylli hér hamingja og Ián ei þrotni, víst með aldri veitist þér viska og náð hjá Drottni. Vísuna lærði hún strax og gleymdi henni aldrej. Ámma sagði mérj að mikið hafí verið lesið á heimilinu. Lesnar voru fornsögur, alls konar íslenskur fróð- leikur og bækur eftjr því sem þær komu út. Passíusálmarnir þóttu sjálfsagðir og voru líka sungnir. Ullarvinna var mikið stunduð en þá var alltaf einhver góður lesari fenginn til að lesa. Afi hennar gerði fjarska mikið af því. Svo var'sung- ið mikið. Afí hennar var alltaf for- söngvari í kirkju þar sem hann var, hafði ákaflega mikla og fallega rödd. Amma minntist föður síns sem hægláts prúðmennis. Um móður sína og afa talaði hún um sem greindarfólk. „Hún mamma og hann afí, þau mundu allt,“ sagði hún við mig. Afi hennar var henni sérstaklega hugfólginn og aðdáun hennar á honum leyndi sér ekki. Honum lýsti hún svo: „Afí var fædd- ur 1832. Hann fór aldrei til læknis, aldrei til tannlæknis, hélt hárinu, hélt heyrninni, þannig að hann heyrði grasið gróa og ullina vaxa eins og kallað var, og notaði aldrei gleraugu. Þetta var svo framúr- skarandi vel gefinn maður, listfeng- ur með afbrigðum, kurteis og fróð- ur. Þetta var verulegt heiðurs- menni, heiðursmaður alveg sérstak- ur. Ég vissi ekki til að hann ætti neinn óvin eða neinn sem væri með ónot við hann. Allir leituðu til hans ef eitthvað þurfti að gera við, þá var komið til hans, hvort það voru dauðir hlutir eða smíða þurfti eitt- hvað, og ég tala nú ekki um ef eitt- hvað var að skepnum. Nú, ef kona gat ekki fætt og gekk illa að ein- hveiju leyti og ekki hægt að ná í ljósmóður, þá var hann kallaður til. Það var allt sem honum var gefíð.“ Þessi lýsing ömmu á afa sínum bregður jafnframt skýru Ijósi á hana sjálfa. Magnea gekk í Æfingadeild Kennaraskólans og Miðbæjarbarna- skólann og var einn vetur í Kvenna- skólanum í Reykjavík. Oft minntist hún frábærra kennara sinna, m.a. stærðfræðingsins Ólafs Daníelsson- ar og Jónasar Jónssonar frá Hriflu, sem hún mat mikils sem kennara. Enda þótt henni veittist létt að læra og skaraði fram úr öðrum varð skólagangan ekki lengri. En hún sýndi það að menntun getur fólk öðlast jafnvel þótt það njóti ekki langrar skólagöngu. Amma var víðlesin og átti sér mörg áhuga- mál. Hún hafði unun af náttúru- fræði, var vel heima í bókmenntum, íslenskum og erlendutn, hafði yndi af ljóðum og talaði ensku og þýsku reiprennandi auk Norðurlandamála. Saga lands og lýðs var henni sem opin bók, og það átti líka við um menningu og siði annarra þjóða. Um áratuga skeið las hún t.d. hið kunna tímarit National Geographie, sem fjallar um þessi efni. Þá er ótalin ættfræðin, sem átti stórt rúm í huga hennar allt til síðustu stund- ar. Ahugi hennar á þessari sérís- lensku fræðigrein var slíkur, að úg gat ekki annað en smitast af henjii, og þá áttum við enn eitt sameigin- legt áhugamál sem kallaði á miklar samræður og athuganir í fræðirit- um. Vorið 1918 urðu kaflaskil í lífí ömmu. Þá fór hún til Vestmanna- j eyja til að vinna í símstöðinni í Eyjum, en frænka hennar var gift símstöðvarstjóranum. Hún starfaði sem talsímakona í hálft annað ár fram til hausts 1919 og minntist starfs síns með ánægju. Alltaf þyk- ir mér jafn skemmtileg tilhugsunin um að eiga ömmu sem hafði vald á skeytasendingum og kunni morse-stafrófið. Hún kynntist fljótt fólkinu í Eyjum, kjörum þess og högum. Hún mundi komu sína til Eyja í áliðnum aprílmánuði 1918 eins og gerst hefði í gær. Þann dag hitti hún mannsefnið sitt, er hún var kynnt fyrir Jóhanni Þ. Jósefs- syni, kaupmanni og útgerðarmanni í Vestmannaeyjum. Hún hvarf aftur til Reykjavíkur hausti 1919 þar sem hún liðsinnti við hjúkrun afa síns, sem lést þá um veturinn. Magnea og Jóhann voru gefin saman 22. maí 1920 á heimili séra Ólafs Ólafssonar, hins mikla mæl- skumanns. Jóhann var fæddur 17. júní 1886, sonur hjónanna Guðrún- ar Þorkelsdóttur og Jósefs skip- stjóra í Vestmannaeyjum, launson- ar síra Jóns Þorvarðarsonar, próf- asts í Reykholti. Guðrún var Vest- mannaeyingur í móðurætt, en faðir hennar, Þorkell Einarsson, var Eyr- bekkingur. Heimili Magneu og Jó- hanns í Vestmannaeyjum var í Fag- urlyst, fögru húsi sem hann hafði reist þar sem kallað var á Hólnum, en stóð við Urðarveg og eyðilagðist í eldgosinu 1973. Magnea og Jóhann áttu þijú börn, systurnar Svönu Guðrúnu, f. 20. febrúar 1921, og Ágústu, móð- ur mína, f. 10. desember 1922, og soninn Olaf, f. 20. september 1928. Auk þeirra ólst upp hjá þeim Unn- ur, dóttir Jóhanns, f. 27. júní 1911. Unnur lést aðeins tvítug að aidri, 4. nóvember 1931, eftir að hafa veikst í Þýskalandi þar sem hún var ðvið nám. Unnur þótti yndisleg stúlka og var hvers manns hug- ljúfí. Svana Guðrún giftist Stur- laugi Böðvarssyni, útgerðarmanni frá Akranesi, og áttu þau eina dótt- ur. Þau slitu samvistir. Hún giftist síðar Roger B. Hodgson, verkfræð- ingi frá MIT-háskólanum, Banda- ríkjamanni af ágætu fólki, sem rek- ur ættir sínar til Englands. Þau eiga fímm börn. Ágústa giftist ísleifí A. Pálssyni, verslunarmanni, fæddum í Vestmannaeyjum, og eiga þau þijá syni. Þau slitu samvistir. Ólafur kvæntist Ellenu Sigurðar- dóttur Waage, og áttu þau einn son. Ólafur var flugstjóri flugvélar- innar Glitfaxa, sem fórst er hún var að koma til Reykjavíkur frá Vest- mannaeyjum 31. janúar 1951. Þarf ekki að lýsa þeim harmi, sem kveð- inn var að foreldrum hans, eigin- konu og systrum, við fráfall þessa glæsilega unga manns. Jóhann Þ. Jósefsson hafði með höndum umsvifamikinn atvinnu- rekstur í Vestmannaeyjum og rak í félagi við Gunnar Ólafsson fyrir- tæki, sem kallað var Tanginn í dag- legu tali í Eyjum. Hann var frum- kvöðull að mörgum framfaramálum í atvirinulífi Eyjanna, sat í Síldarút- vegsnefnd, stjórn SÍF, vann að stofnun Björgunarfélags Vest- mannaeyja og kaupum á björgunar- skipinu Þór, sem jafnframt var fyrsta varðskip sem þjóðin eignað- ist. Hann var ræðismaður Þýska- lands í Vestmannaeyjum frá 1919 og lengi síðan. Jafnframt hlóðust á hann margvísleg trúnaðarstörf á vettvangi stjómmála. Hann var kjörinn í fyrstu bæjarstjórn Vest- mannaeyja 1918 og var bæjarfull- trúi næstu tuttugu ár. Hann hlaut glæsilega kosningu sem þingmaður Vestmannaeyja 1923. Hann bauð sig fyrst fram fyrir Borgaraflokkinn og var einn af stofnendum íhalds- flokksins 1924. Þegar Sjálfstæðis- flokkurinn var stofnaður af þing- mönnum íhaldsflokksins og Fijáls- lynda flokksins var Jóhann Þ. Jós- efsson einn stofnenda. Hann átti öruggt og gott fylgi og sat á þingi til 1959. Voru Vestmannaeyjar taldar óvinnandi vígi sjálfstæðis- manna undir hans forystu. Jóhann Þ. Jósefsson var fjármála- og at- vinnumálaráðherra í ríkisstjórn Stefáns Jóhanns Stefánssonar 1947-1949 og atvinnumálaráðherra í ríkisstórn Ólafs Thors 1950. Hann var formaður Nýbyggingaráðs, sem nýsköpunarstjómin setti á fót eftir heimsstyijöldina síðari til að end- umýja atvinnutæki landsmanna. Hann var fulltrúi íslands á Allsheij- arþingi Sameinuðu þjóðanna og átti sæti í Evrópuráðinu til æviloka. I Magnea studdi vel og dyggilega I við bakið á manni sínum og bjó honum fagurt og glæsilegt heimili, fyrst í Fagurlyst í Vestmannaeyjum og síðar á Bergstaðastræti 86 eftir að fjölskyldan fluttist búferlum til

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.