Morgunblaðið - 10.07.1990, Side 5

Morgunblaðið - 10.07.1990, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JULI 1990 5 300 þúsund króna ljós- myndatækj- um stolið BROTIST var inn í fólksbíl við golfvöllinn á Seltjarnarnesi ný- lega og stolið úr honum ljós- myndatækjum að verðmæti um 300 þúsund krónur. Um var að ræða Ganon EF myndavél og 5 Canon-linsur: 400mm, 200mm, 85mm, 35mm og 15mm í svartri Temba-tösku. Þeir sem geta gefið upplýsingar um málið eru beðnir að hafa sam- band við RLR. Útlit fyrir góða græn- metisuppskeru Útlit er fyrir góða uppskeru á útiræktuðu grænmeti í sumar. Þurrkarnir að undanförnu hafa þó heldur dregið úr uppskeru. Kínakál er þegar komið á markað- inn og fyrstu sendingarnar af hvítkáli, rófum og gulrótum eru væntanlegar í þessari viku. Mynd- in var tekin um helgina á garð- yrkjubýlinu Melum í Flúðahverf- inu í Hrunamannahreppi þar sem Guðjón Birgisson garðyrkjubóndi og hans fólk var að skera kínakál og senda á markað. Náttúrlækninga- félag íslands: Yilja endur- hæfa krabba- meinssjúka að Sogni ÁFORM eru upgi um að Náttúru- lækningafélag Islands starfræki endurhæfingarstöð fyrir krabba- meinssjúklinga að Sogni í Olfúsi. NLFÍ hefur leigt Samtökum áhugafólks um áfengsivandamál- ið jörðina að Sogni, en leigu- samningurinn rann út í sumar. Félagið hefur lagt hugmyndir um endurhæfíngastöðina fyrir stjórnvöld, en þau hafa enn ekki sýnt nein viðbrögð við þeim, að sögn Jónasar Bjarnasonar form- anns NLFÍ. Jónas sagði að endurhæfing krabbameinssjúkra hefði oft komið til kasta Heilsuhælisins í Hvera- gerði undanfarin ár. Náttúrulækn- ingafélagið hefði ráðið Snorra Ingi- marsson yfirlækni hælisins en sér- grein hans væri krabbameinslækn- ingar. Kæmi það í hlut hans að skipuleggja meðferð sjúklinga á Sogni, ef af yrði. Að sögn Jónasar yrði markmið stöðvarinnar að aðstoða fólk sem er að ná sér eftir krabbameinsmeð- ferð. Þar yrði um sjúklinga að ræða sem stefna að því að komast aftur út í lífið. Stöðin yrði rekin sem ein af sviðum Heilsuhælisins. „Við höfum leitað til stjórnvalda um þátttöku i þessu verkefni. Hvað verður um þessi áform er háð því hvort stjórnvöld eru tilbúin að greiða daggjöld sjúklinga í stöð- inni,“ segir Jónas Bjarnason. Heilsuhælið í Hveragerði nýtur dag- gjalda frá ríkinu, en sjúklingar greiða einnig hluta kostnaðar úr eigin vasa. Aðspurður hvort sami háttur verði hafður á í endurhæf- ingarstöðinni segir Jónas að enn sé ekkert ákveðið í því efni. Reyndu inn- brot og voru á stolnum bíl ÞRÍR menn voru handteknir við innbrotstilraun í Sundakaffi við Sundahöfn aðfaranótt sunnu- dagsins. Mennirnir voru á stoln- um bíl. Sá þeirra sem ók virtist ölvaður. Hann hefur hlotið fjölda refsi- dóma fyrir bílþjófnaði og ölvunar- akstur, sem valdið hefur umferðar- slysum. Mennirnir höfðu skorið rúðu úr glugga í Sundanesti en óku á brott og í flasið á lögreglunni þegar við- vörunarkerfi fór í gang. í bílnum fannst þýfi úr öðru innbroti fyrr um nóttina. án reykinga w A hverjum degi þarft þú bæöi aö velja og hafna. Miklu máli skiptir hvaö þú velur, því hver ákvöröun getur haft áhrif á það hvernig líf þitt veröur. Heilbrigt líf er það mikilvægasta sem þú getur valið þér þín vegna og þeirra sem þú umgengst. Forseti Islands Heilbrigðisráöherra 20. LANDSMOT UMFI Mosfellsbæ 12.-15. júlí 1990

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.