Morgunblaðið - 10.07.1990, Side 13

Morgunblaðið - 10.07.1990, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JULI 1990 13 „Hér fljótum vér eplin“ Svar við grein Jóns Viðars Jónssonar í Morgunblaðinu þann 30.6. sl. eftirHávar Siguijónsson Ekki var það ætlun mín að hefja ritglímu við Jón Viðar Jónsson um leikstjórn og nám í þeim fræðum þegar ég settist niður á dögunum og skrifaði úr mér hrollinn eftir lestur á grein hans í Fréttabréfi Leiklistarsambandsins. Ég hefði þó mátt vita betur og kannski er það kærkomið að nota þetta tækifæri til að festa á blað ýmsar hugmynd- ir um leikstjórn sem ekki hafa fund- ið mótaðan farveg í orðum fyrr. Sýnist mér nokkuð jafnt á komið með okkur Jóni í þeim efnum. Ég vil þó byrja á því að leiðrétta það sem Jón segir um starf nefndar þeirrar sem skilaði af sér marg- nefndum tillögum um leikstjórn- amám á liðnu hausti og eru undir- rót þessara skrifa. Jón segir rétti- lega að nefndinni hafi einkum verið falið að „kanna möguleika á því að auðvelda ungum leikstjórum að- gang að atvinnuleikhúsunum". Þetta er rétt en þó ekki nema hálf- ur sannleikur því hugmyndin að baki þessu var sú að veita ungum leikstjóraefnum tækifæri til þjálf- unar í atvinnuleikhúsunum sem fólgin væri í aðstoðarleikstjórn hjá reyndum leikstjórum. Við í nefnd- inni — sem öll höfum starfað sem aðstoðarleikstjórar í atvinnuleik- húsunum — vorum þó sammála um að aðstoðarleikstjórn í þeirri mynd sem hefur tíðkast væri afskaplega losaralega skilgreint starf og oftar en ekki uppspretta vonbrigða frem- ur en langþráð tækifæri til náms í leikhúsi. Stafar þetta vafalaust af því að aldrei hefur verið skilið á milli starfs aðstoðarleikstjóra og aðstoðarmanns leikstjóra í íslensku leikhúsi. Þótti okkur sem fyrsta skrefið væri að reyna að draga ein- hvern málefnalegan ramma um starfssvið aðstoðarleikstjórans og fá leikstjórana til að_ virða þau mörk að verðleikum. í framhaldi af þessu þróaðist sú hugmynd að tengja þetta Leiklistarskóla Islands og voru hugmyndirnar bornar á mótunarstigi undir Helgu Hjörvar skólastjóra Leiklistarskólans og lagði hún þar margt gagnlegt til málanna. Hugmyndirnar eru því ekki „loftkastalakenndari" en svo, að þær voru að þessu leyti unnar í samráði við stjórnanda Leiklistar- skólans. Mér er hinsvegar fyllilega ljóst að þetta eru hugmyndir á byij- unarstigi og sem slíkar ómótaðar að ýmsu leyti og þurfa meiri um- ræðu við. Jóni Viðari verður því fullmikið niðri fyrir í röksemda- færslu sinni þegar hann kallar þess- ar tillögur „námsskrá" því það eru þær engan veginn og ekki hugsaðar sem slíkar. Tillögurnar eru fyrst og fremst ætlaðar seiri framlag Félags íslenskra leikstjóra til þessarar umræðu þó fullvel sé vitað að skipt- ar skoðanir séu innan félagsins um tilgang,_ gagnsemi og kosti slíks náms. Ég held þó að fálæti fólks innan leiklistarstéttar stafí af öðr- um toga en þeim, að hugmyndirnar séu einfaldlega „loftkastalakennd- ar“. Mér finnst til að mynda miður að Jón Viðar skuli ekki sjá gildi þess að tengja saman eiginlegt nám í skóla og beint starf í leikhúsKeins og tillögurnar gera ráð fyrir, þar sem slíkt er fátítt erlendis en gæti tekist hér vegna nálægðar leikhús- anna við Leiklistarskólann — bæði í eiginlegum og óeiginlegum skiln- ingi. Er hér beinlínis verið að sporna við þeim „gróðurhúsaáhrifum“ sem Jón Viðar bendir á sem ókost við skólanám í leikstjórn. Aukinheldur með því að gera ráð fyrir að í ein- stökum verkefnum séu leikstjórnar- nemanum fengnir atvinnuleikarar til að starfa með. Þá er einnig rétt að benda Jóni Viðari á að tillögurn- ar gera beinlínis ráð fyrir að um- rædd leikstjórnarbraut væri fram- haldsnám til viðbótar við nám í leik- list og/eða leikhúsfræðum. Jón Viðar segir einnig: „Ég hef satt að segja aldrei verið trúaður á ágæti þeirra leikstjórnarskóla sem Hávar Siguijónsson og fáeinir aðrir íslendingar hafa sótt erlendis, þó sjálfsagt geti þeir verið misjafnir eftir því hvaða kennarar og leið- beinendur veljast til þeirra.“ Tekur Jón Viðar síðan sem dæmi þær spurnir sem hann hafði af einum skóla í Svíþjóð til að skjóta stoðum undir þessa fullyrðingu sína. Ég kann satt að segja ávallt betur við að menn hafi áreiðanlegri þekkingu á viðfangsefni sínu en hér kemur fram, ekki síst þegar um jafn mikil- vægt málefni er ijallað og hér um ræðir. Hitt er vissulega rétt að lista- skólar hveiju nafni sem þeir nefn- Hávar Sigurjónsson ast draga orðstír sinn ávallt af orð- spori og getu þeirra sem þar kenna — og þarf engan að undra — en eftir að hafa haft bein kynni af þremur sambærilegum skólum í Bretlandi um rúmlega fimm ára skeið samtals, þá efast ég ekki um að hérlendis finnst fólk innan leik- húsanna sem gæti miðlað af þekk- ingu sinni og kunnáttu til ungra leikstjóra með góðum árangri. Ég fæ heldur ekki betur séð en Jón Viðar hafi misskilið orð mín fullkomlega þegar hann segir: „Því skal að sönnu ekki neitað, að til sé tegund sviðsetjara sérhæfðra í þeim tæknigöldrum sem vel búin nútíma- leikhús megna að fremja, en ef það eru slíkir meistarar sem Hávar vill fara að framleiða hér þá erum við qrugglega ekki að tala um sama nlutinn." Ég get ekki gert neitt annað en endurtaka orð mín frá fyrri grein þar sem segir að — kóreógraf a, ljósanotkun og líkams- beiting leikaranna o.s.frv. verða að lúta verkinu en ekki öfugt og það er einmitt þessi skilningur sem skil- ur á milli tæknimannanna í röðum leikstjóra og hinna sem hafa óeigin- gjarnari skilning á starfi sínu; hélt ég satt að segja að ekki færi milli mála hvorum hlutanum ég_ fylgdi að málum enda röksemd mín ein- faldlega sú að leikstjóri sem kann full skil á möguleikum leikhússins sé færari um að koma hugmyndum sínum í frambærilegan búning en sá sem hefur aðeins loðmullulega, orðum skrýdda tilfínningu fyrir verkefni sínu. Finnst mér satt að segja undarlegt ef Jón Viðar hefur lesið orð mín þannig að ég sé ein- hver málsvari hins svokallaða „leik- stjórnarleikhúss". Leikstjórinn er hins vegar stað- reynd í leikhúsi nútímans og á þeim eitt hundrað árum sem þessi starfs- grein hefur þróast er ýmislegt í því starfi sem flokkast undir handverk, þó mig gruni reyndar í að undirrót þessa ólíka skilnings á starfi leik- stjórans, sem við Jón Viðar virð- umst hafa, sé að finna í viðhorfi okkar til leikstjórnar sem listgrein- ar. Minn skilningur er sá að leik- stjóri leggur ekki upp í feril sinn sem LISTAMAÐUR, heldur er sá titill áunninn af verkunum sem hann skilar af sér. Þar til sá titill er fastur í sessi er leikstjórinn, sem og aðrir sem í leikhúsinu starfa, auðmjúkir handverksmenn í garði leiklistargyðjunnar. Með þessa hugsun að leiðarljósi gæti uppsker- an í því homi garðsins sem okkur hér á íslandi hefur verið fengið til umsjónar kannski orðið annað og meira en fallegar umbúðir um epli blandin taði._______________________ Höfundur er leikstjórí og hefur skrifað greinar um menningarmái í Morgunblaðið. Síðan ég fékk Party Pavilion tjaldið mitt hef ég getað eytt meiri tíma í garðinum en nokkni sinni áður. Tjaldið hefur sömu kosti og garðstofa og því get ég boðið gestum mínum út í garð þó skiptist á skin og skúrir. 'Sáfta Styunýóít&clöttOt ÓDÝR OG HENTUG LAUSN Á íslandi er sumarið stutt, og því er um að gera að njóta þess sem best. PartyPavilion tjöldin eru frábær lausn fyrir þá sem unna útiveru og láta síbreytilega veðráttu ekki aftra sér. Party Pavilion tjöldin eru ódýrar og hentugar garðstofur. SKÚTUVOGI 10A- 104 REYKJAVÍK - SÍMI 686700

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.