Morgunblaðið - 10.07.1990, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ LRIÐ.IUDAGUR 10. JÚLÍ 1,990
HRAÐLESTRARNÁMSKEIÐ
Sumamómskeið í hraðlestri hefst miðvikudaginn 18. júlí nk.
Vilt þú lesa meira, en hefur ekki nægan tíma?
Vilt þú vera vel undirbúin(n) undir nómið í haust?
Nú er tækifæri fyrir þó, sem vilja margfalda lestrarhraða
sinn, en hafa ekki tíma til þess ó veturnar.
Ath. Sérstakur sumarafsláttur.
Skróning í dag og næstu daga í síma 641091
HraMestrarskóllm.
NITCHI
TALÍUR 3/4-6 TONN
Pwulsen
Suðurlandsbraut 10,
sími 686499.
Garðsnyrtitæki frá Skil eru byggð samkvæmt
ströngustu öryggis- og neytendakröfum,
viðurkennd af Rafmagnseftirliti ríkisins.
SPÁÐU í VERÐIÐ!
FÁLKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8, SlMI 84670 U’
RARA8AKKI 3, SfMI 670100
V
SML
TOPP w GÆÐI
SLÁTTUORF - HEKKKLIPPUR
L. 4490,-
Minning:
Bjarni Einarsson
frá Varmahlíð
í dag er kvaddur frá Kópavogs-
kirkju einn af okkar kærustu vinum,
Bjarni Einarsson frá Varmahlíð
undir Eyjafjöllum.
Bjarni fæddist þann 3. mars 1923
í Varmahlíð og lést þann 28. júní
sl. á Landspítalanum í Reykjavík.
Foreldrar Bjarna voru heiðurshjón-
in í Varmahlíð, Einar Sigurðsson
bóndi og Ingibjörg Bjarnadóttir
húsfreyja. Bjarni var næstelstur 6
systkina. Þau eru Þóra Dóra skrif-
stofumaður, Hólmfríður ljósmóðir,
Sigríður kennari, Einar Ingi bóndi
og Guðný Svana sjúkraþjálfari.
Bjarni ólst upp í Varmahlíð með
samstilltum og glöðum systkina-
hópi. Varmahlíðarheimilið var í
þjóðbraut og annálað fyrir gest-
risni, mikla rausn, glaðværð og all-
an myndarskap. Mótuðu foreldrar
Bjarna heimilisbraginn með glæsi-
brag. Sá samstillti systkinahópur
sem þarna ólst upp hefur alltaf
haldið mjög mikið saman í gegnum
árin. Þráin austur að Varmahlíð
hefur fylgt þeim og ófáar eru ferð-
ir Bjarna og fjölskyldunnar austur
undir fjöll til átthaganna til hjálpar
við sveitastörfin eða sér og sínum
til skemmtunar. Sá grunnur sem
uppeldið skóp þessum systkinum
hefur verið þeim gott veganesti í
gegnum lífið.
Rausn heimilisins, söngur og
hljóðfærasláttur hefur fylgt þessum
ágætu systkinum í gegnum lífið.
Einar faðir þeirra var organisti í
Ásólfsskálakirkju og kenndi þeim
öllum á orgel. I þessu andrúmslofti
og fögru umhverfi Eyjafjallanna
ólst Bjarni Einarsson upp og þessi
andi fylgdi honum alla tíð. Einar
og Ingibjörg ólu einnig upp Guð-
mund Óskar Sigurðsson sjómann.
Einnig var Axel Ólafsson bifreiða-
stjóri heimilisfastur í Varmahlíð í
áratugi. Bjarni lauk námi frá Flens-
borgarskóla í Hafnarfirði. Hann
vann síðan heima í Varmahlíð sem
ungur maður. Síðan tóku við versl-
unarstörf en á árinu 1946 hóf hann
akstur hjá Bifreiðastöð Reykjavík
og starfaði þar óslitið síðan.
Þann 2. júlí 1954 kvæntist Bjarni
Maríu Siguijónsdóttur sjúkraliða
frá Fosshólum í Holtum. Þau hafa
eignast 5 böm og þau eru: Ingi-
björg, f. 29. 9.1952, skrifstofumað-
ur. Amdís, f. 30. 12. 1955, sjúkra-
þjálfari í Seattle, maki Pétur Már
Pétursson líffræðingur. Einar, f. 9.
7. 1957, flugvirki, maki Elín Þóra
Sverrisdóttir húsmóðir. Guðrún
Björk, f. 4. 2. 1962, hjúkrunarfræð-
ingur, maki Páll R. Guðmundsson
verkfræðingur, ogÁsmundur, f. 18.
9. 1966, tölvunarfræðingur, unn-
usta Jóhanna Walderhaug rakari.
Barnabörnin eru orðin 6.
Bjarni og María hófu búskap sinn
hér í Reykjavík en seinna byggðu
þau sér glæsilega íbúð á Kópavogs-
braut 72 og bjuggu þar í mörg ár
en nú nýlega höfðu þau skipt um
húsnæði og heimili þeirra nú er í
Furugrund 68 í Kópavogi. Heimili
Bjarna og Maríu var og er annálað
fyrir gestrisni. Þau hafa borið mikla
umhyggju fyrir börnum sínum og
barnabörnum. Þau hafa hlúð að
þeim með þeirri alúð og umhyggju
sem bestu foreldra má prýða og er
nú eiginmanns, föður og afa sárt
saknað.
Eins og áður segir hóf Bjarni
störf hjá BSR árið 1946 og starfaði
þar samfellt frá þeim tíma eftir því
sem heilsan leyfði. Bjarni var mjög
farsæll í starfi hjá BSR og ávann
sér traust viðskiptavina sinna. M.a.
ók hann Ingólfi Jónssyni ráðherra
í mörg ár í ráðherratíð hans. Bjarni
var félagslyndur maður og kynntist
því mörgum og varð vel til vina.
Hann beitti sér fyrir ýmsum félags-
málum innan stöðvarinnar og var
m.a. einn af stofnendum lánasjóðs
BSR og var í fyrstu stjórn hans.
Markmið sjóðsins er að aðstoða bif-
reiðastjóra við endurnýjun á bíla-
kosti sínum. Bjami var einn af
stofnendum BSR-kórsins og söng í
honum meðan hann starfaði. Hann
var í stjórn starfsmannafélags BSR
og í úthlutunarnefnd atvinnuleyfa
um tíma.
Til skamms tíma voru flestir
Reykvíkingar fæddir og uppaldir í
sveit. Straumur ungs fólks alls stað-
ar að á landinu var til Reykjavíkur
í atvinnuleit eða til þess að leita sér
menntunar og flestir settust þar að.
Þessi þróun hefur haldið áfram
fram á þennan dag. Fyrir sveita-
fólkið var oft nokkuð erfitt að festa
rætur hér í þéttbýlinu þó góður vilji
væri til þess. Ungmennafélags-
hreyfingin var mjög virk undir
Eyjaíjöllum. Þar var að alast upp
tápmikið og bjartsýnt æskufólk.
Ungmennafélagið Trausti stóð m.a.
fyrir fijálsíþróttamótum og öðru
menningarstarfi innan sveitarinnar
og fljótt gerðist Bjarni þar virkur
félagi. Starf átthagafélaganna í
Reykjavík er beint framhald af fé-
lagsstarfinu í sveitunum og fljót-
lega eftir að Bjarni og María flytj-
ast til Reykjavíkur fara þau að
starfa með Rangæingafélaginu í
Reykjavík. Markmið þess er að efla
kynni og auka félagsstarf og halda
uppi menningarstarfi meðal burt-
fluttra Rangæinga. Bjarni var í
stjórn Rangæingafélagsins í nokkur
ár og endurskoðandi þess í áratugi.
Bjarni og María voru ein af frum-
kvöðlum og stofnendum kórs
Rangæingafélagsins í Reykjavík
árið 1975 og sungu þau samfellt í
honum meðan hann starfaði eða í
14 ár. Þessi kór var mikil lyftistöng
fyrir félagslíf Rangæingafélagsins
og í raun gerbreytti hann öllu starfí
þess. Kórinn kom fram á öllum
samkomum félagsins og flutti einn-
ig sjálfstæða tónleika. Starfsemi
kórsins efldi innra starf félagsins
og jók kynni félagsmanna og var
sá hluti í starfí Rangæingafélagsins
sem alls ekki mátti missa.
Þegar leið að því að Rangæinga-
félagið fyllti 50 árin var fyrirhuguð
mikil afmælishátíð í Félagsheimili
Vestur-Eyfellinga að Heimalandi.
Rangæingafélagið ætlaði að flytja
Rangæingum í héraði sýnishorn af
því menningarstarfi sem stundað
var hér í Reykjavík. Á þessum tíma-
mótum stóð Bjarni fyrir því að
karlakór var stofnaður á vegum
Rangæingafélagsins. Hann kom
fram í fyrsta sinn á þessari afmælis-
hátíð þann 4. maí 1985 undir stjórn
Njáls Sigurðssonar og hefur karla-
kórinn starfað síðan undir hans
stjórn. Hann hefur sungið á öllum
samkomum félagsins og þegar
haldin var vígsluhátíð orlofshússins
,<
O
a.
MERKI UM GÓÐAN ÚTBÚNAÐ
VEIÐIHJÓL OG
STANGIR
Fást f nœstu sportvðruverslun.