Morgunblaðið - 10.07.1990, Page 35

Morgunblaðið - 10.07.1990, Page 35
 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDÁGUR 10. JÚLÍ 1990 35 • að Hamragörðum að Heimalandi þann 30. maí 1987 frumflutti Kór Rangæingafélagsins ásamt karla- kórnum tónverkið Gunnarshólmi eftir Helga Helgason. Þannig hefur hagað til að Karla- kór Rangæingafélagsins hefur frá upphafi æft á heimili okkar. Það hefur verið okkur sérstök ánægja að taka á móti kórfélögum og milli þeirra og okkar hefur myndast sér- stök vinátta. í öllu þessu söng- og félagsstarfi hefur Bjarni verið hrók- ur alls fagnaðar og stuðlað að þess- ari jákvæðu starfsemi heils hugar og er hans sárt saknað. Uppruninn í Rángárþingi, menningarheimilið í Varmahlíð, hans eigið heimili, góð- mennska, léttleiki og áhugi, allt var þetta svo ríkt í eðli hans að hann flutti það áfram til okkar samferða- manna sinna. Við öll sem nutum þess eigum mikið að þakka Bjarna Einarssyni. Hjartaáfall hafði hann fengið árið 1976 og annað verra árið 1980. Bjarni bar sig vel í veik- indum sínum enda vel studdur af eiginkonu, börnum, systkinum og vinum. Það eru mikil örlög að ganga ekki heill til skógar svo árum skipt- ir. Vera alltaf meira og minna und- ir læknishendi en samt þurfa að stunda sína atvinnu meira og leng- ur en heilsan leyfir. Við vitum aldr- ei hve djúp og alvarleg áhrif það hefur á fólk sem reynir slíkt og lif- ir með því með reisn. Á fögrum sumardegi er fagurt en sárt að kveðja mann sem okkur er svo kær sem Bjarni Einarsson er. Sumarið hér sunnanlands hefur skartað sínu fegursta og við höfum öll notið þess. Hann nýtur núna sólu fegurra sumars. Við sendum Maríu, börnum þeirra, barnabörnum og systkinum Bjarna innilegar samúðarkveðjur með þökk fyrir vináttu liðinna ára. Megi Guð styrkja þau í sorg þeirra. Minningin um góðan dreng lifir. Dóra Ingvarsdóttir og Olafiir Oddgeirsson Bjarni Einarsson frá Varmahlíð undir Eyjafjöllum lést í Landspítal- anum þann 28. júní síðastliðinn. Allt of snemma þurfti þessi öðlingur frá okkur að hverfa. Bjarni var gift- ur föðursystur okkar, Maríu Sigur- jónsdóttur frá Fosshólum í Holta- hreppi. Við systkinin urðum þess aðnjót- andi hvort fyrir sig í tvo vetur að dveljast á heimili þeirra hjóna á Kópavogsbraut 72, þar sem þau bjuggu lengst af sínum búskap. Það var á námsárum okkar í Reykjavík, við komum til borgarinnar flestu ókunnug til skólagöngu í Verslun- arskólanum. Á Kópavogsbrautinni var okkur tekið opnum örmum og urðum við þennan tíma eins og hver annar fjölskylduméðlimur. Við vorum kynnt fyrir borgarlífinu, að- stoðuð og hjálpað í hvívetna og nutum þeirra forréttinda og öryggis sem fylgir því að dveljast á einka- heimili í stað þess að þurfa að hírast Kveðjuorð: Bergur Atlason Það var morgun í lífi ungs manns, bjartur og fagur sem gaf fyrirheit um góðan dag en þá varð myrkur og okkur varð ljós merking orðsins „harrnur". Hann Bergur var ekki lengur á meðal okkar, drengurinn sem veitti yndi öllum sem hann umgekkst. Börn fundu öryggi og frið í návist hans. Hann gat aðeins verið með okkur í 18 ár, en mun ávallt lifa í minningu okkar afa og ömmu á Bestó og allra hinna. Við þökkum samfylgdina þessa stuttu leið. Berg- ur var góður förunautur. Bergur Jónsson Bergur sagði. . ., Bergur ætl- ar . . ., Bergur gerði . . ., voru okkar fyrstu kynni af besta vini sonar okkar þegar nýi strákurinn kom í 4. E.V. í Langholtsskóla. Upp frá því má segja að líf þeirra hafi flétt- ast saman, þeir áttu sameiginleg áhugamál og höfðu sams konar kímnigáfu. Bergur Atlason gerðist heimagangur hjá okkur og heillaði okkur og Elsu litlu, systur Hall- dórs, með hreinskilinni og þægi- legri framkomu. Það fylgdi Bergi alltaf mikill styrkur og friður, það var gott að hafa hann nálægt. Það var gaman að fylgjast með þeim í Playmobil-leikjum sem smá- þróuðust i gegnum árin af „cow- boy“-stiginu út í mannkynssöguna með heimsstyijaldirnar sem mið- punkt, orsakir og afleiðingar. Bún- ingar voru málaðir á fígúrurnar samkvæmt uppsláttarbókum og annað í þeim dúr. Umræður og fyr- irgrennslanir voru með ólíkindum. Svo er farið út í kvikmyndagerð ásamt Þórarni, Agnari og fleiri góðum vinum. Okkur fannst að þessir drengir gætu allt sem þá langaði til, ekkert verkefni yrði lát- ið ófullgert. Þetta voru okkur ógleymanlegir tímar. Eins var með tilraunirnar og sprengju-tímabilið sem tók sem betur fer stuttan tíma. Það sem manni þótti sérstakt við þennan strákahóp var hversu um- burðarlyndir þeir voru við litlu syst- ur sem var þremur árum yngri en fékk að sitja inni hjá þeim og fylgj- ast með tímunum saman. Þegar Bergur flutti til Seyðis- fjarðar átti sonur okkar bágt og saknaði hans sáran. Úr því var þó bætt eftir getu með símtölum og gaggnkvæmum heimsóknum og síðast en ekki síst þegar þeir þrír, Bergur, Þórarinn og Halldór, fengu að dvelja í viku einir í Hallorms- staðaskógi í tjaldi, fjórtari eða fimmtán ára gamlir. Svo kom Bergur suður í 9. bekk og var þá tekinn upp þráðurinn við kvikmyndaframleiðsluna og önnur áhugamál. Bergur hafði tekið svo- kallað pungapróf um sumarið og völdu þeir Halldór og Þórarinn sér sjóvinnu sem valgrein í 9. bekk og luku lík pungaprófi. Mikil áform um framtiðina voru plönuð í fram- haldi af þessu. Einn ætlaði að læra köfun og sjávarh'ffræði eða haf- fræði og annar eitthvað annað. Níunda bekk lauk og aftur skildu leiðir en sterki vináttustrengurinn hélst og bréfaskriftir og símtöl treystu hann. Nú var haldið í menntaskóla og framtíðaráætlanir gerðar og skeggræddar. Við horfð- um fram á bjarta og gæfuríka framtíð glæsilegra og góðra ungra manna sem ekkert væri ómögulegt. Halldór gerði hlé á námi sinu hér heima og fór sem AFS skiptinemi til Ástralíu í janúar sl. þar sem hann dvelst nú ljarri ástvinum sínum þegar hann fær þær válegu fréttir að Bergur, besti vinur hans sé farinn frá okkur. Minningarnar um góðan dreng munu lifa með okkur til eilífðar. Við erum rík fyr- ir það að hafa fengið að eiga þess- ar stundir með honum og þann fjár- sjóð getur enginn tekið frá okkur. Sjana, Atli, systkini og aðrir ást- vinir, við samhryggjumst ykkur af öllu hjarta. Megi minningin um góðan dreng lina þjáningarnar. Eiríkur og Hulda Með fáum orðum viljum við minnast fallega unga drengsins, Bergs Atlasonar, er bjó eitt sinn í litla hvíta húsinu næst okkar, fyrir átta árum. Margar skemmtilegar og ógleymanlegar stundir áttum við nágrannarnir saman í Skipasund- inu. Bergur var alveg einstaklega fal- legur strákur, en eftirminnilegast við hann var þó fáguð og falleg framkoma hans, sem var einstök af svo ungum dreng. Það var mikil eftirsjá er Bergur flutti austur með foreldrum sínum og Rósu litlu systur sinni, en eftir- sjáin er nú meiri og sárari er við kveðjum þennan unga og efnilega dreng í blóma lífins. Elsku Sjana mín og Atli, Rósa, Ásgeir og Trausti. Við Freyr vottum í herbergiskytru hjá vandalausum, velvild og stórhugur hefur alltaf verið aðalsmerki Bjarna og Mæju. Einn af höfuðkostum Bjarna vilj- um við hér draga fram öllum af hans góðu mannkostum öðrum fremur og það er það hvað Bjarni var alltaf barngóður og hve sér- stakt og gott lag hann hafði á börn- um. Þar er okkur í fersku minni hvað það var alltaf mikið tilhlökk- unarefni þegar von var á frændfólk- inu á Kópavogsbrautinni í heimsókn í sveitina. Bjarni lék á alsoddi við okkur krakkana, spjallaði við okkur um heima og geima og ávann sér traust okkar og virðingu. Það er einmitt vegna þess öðru fremur hve innilega vænt okkur þótti alltaf um Bjarna. Bjarni var félagslyndur maður og tók m.a. virkan þátt í starfi Rangæingafélagsihs í Reykjavík og söng með kór þess félags til fjölda ára. Eyjafjöllin og Rangárvallasýsl- an átttu alla tíð mjög stóran sess í hjarta hans. Á kveðjustundu minnumst við Bjarna með þakklæti fyrir fjölda ánægjulegra samverustunda, Veiði- vatnaferðirnar í gamla daga og hans góða og dygga stuðning og þátt í skólagöngu okkar. Elsku Mæju frænku, börnunum þeirra, barnabörnum og öðrum að- standendum sendum við innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé minn- ing Bjarna Einarssonar. Nonni og Anna ykkur, ættingjum og vinum Bergs, okkar dýpstu samúð og biðjum þess að þið öðlist styrk og æðmleysi á erfiðri stundu. „Augasteinn vorsins, lambagrasið litla lönpm í draumi sá ég þig í vetur. Guði sé lof, að líf þitt blómstfar aftur líkt þeirri von, sem aldrei dáið getur.“ (Jóhannes úr Kötlum) Sif og Freyr Myndatökur frá kr. 7.500.- Ljósmyndastofurnar: Barna og Fjölskylduljósmyndir Reykjavík sími: 12644 Mynd Hafnarfirði, sími: 54207 Ljósmyndastofa Kópavogs, sími: 43020 ðllum okkar tökum fylgja tvær prufustækkanir 20x25 cm. / ■ ... á við bestu galdraþulu! Ef þér finnst eitthvað vanta .upp á bragðið af súpunni, pottréttinum, heitu sósunni, salatsósunni eða ídýfunni skaltu einfaldlega bæta við MS sýrðum rjóma, 18%. Það er allur galdurinn. Hitaeiningar MS sýrður rjómi Majónsósa 18% (Mayonnaise) 1 tsk (5 g) 9.7 37 I msk (15 g) 29 112 100 g 193 753 Á vildarkjörum vestur um haf New York Chicago 64.390.- Seattle 68.590,- Los Angeles 79.470,- Fargjöld þessi gilda frá 1. júní til 1. september. Flogiö er um Kaupmannahöfn en þar er heimilt aö stoppa á báöum leiöum. Haföu samband viö feröaskrifstofuna þína. W/SAS Laugavegi 3 sími 62 22 11

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.