Morgunblaðið - 10.07.1990, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 1990
37
Ingigerður G. Daníels-
dóttir - Minning
Fædd 13. júlí 1903
Dáin 29. júní 1990
Nú er fegursti tími ársins, trén
orðin fallega laufguð eftir erfiðan
vetur og útsprungin blóm prýða
garða í öllum regnbogans litum.
Svona vildi Inga tengdamóðir min,
Ingigerður G. Daníelsdóttir, hafa
garðinn sinn. Hún lést rétt fyrir
miðnætti föstudaginn 29. júní á
Sjúkrahúsinu á Hvammstanga.
Hún hefur örugglega verið
hvíldinni fegin. Hefur hún verið
rúmliggjandi í mörg ár. Hún fékk
frábæra umönnun á Sjúkrahúsinu
og ber að þakka það.
Oft er dauðinn sár en núna var
hann kærkominn þreyttri konu sem
þráði fyrir löngu að sofna út af.
Ég hef þá trú að núna sé hún í
faðmi ástríks eiginmanns, Sigurðar
Gíslasonar, sem örugglega hefur
tekið vel á móti henni í nýju heim-
kynnunum. Inga var mér og minni
fjölskyldu afar góð, var alltaf boðin
og búin að rétta hjálparhönd hvern-
ig sem á stóð. Hún var ein af þeim
konum sem vildi alltaf veita, enda
stóð heimili þeirra hjóna öllum opið
og var alltaf kaffið komið á borðið
eftir smástund með góðu meðlæti
eða þá matur ef litið var inn á
þeim tíma. Það er svo ótal margt
sem leitar á hugann við fráfall
Ingu. Börnin okkar leituðu mikið
til hennar og gaf hún sér ávallt
mikinn tíma fyrir þau. Hún sagði
eitt sinn við mig, mundu það Hild-
ur mín, að börnin eru aðeins að
láni hjá okkur í skamman tíma, sá
tími líður ótrúlega fljótt, reyndu
því að njóta þeirra og vera eins
mikið með þeim og hægt er. Þessi
orð hef ég reynt að hafa að leiðar-
ljósi og fór eftir þeim eftir bestu
getu.
í mínum huga var Inga einstök,
hún var hreinskilin, ákveðin og vissi
ég alltaf hvar ég hafði hana. Það
er ómetanlegt að kynnast slíkri
mannkostakonu og er ég Guði eilíf-
lega þakklát fyrir það.
Inga fæddist 13. júlí 1903 að
Árnesi á Ströndum, en flutti ung
með foreldrum sínum, Daníel
Gestssyni og Valgerði Níelsdóttur,
í Vestur-Húnavatnssýslu. Hún var
í vist með foreldrum sínum á ýms-
um bæjum uns hún fór í kaupa-
vinnu um eða uppúr fermingu.
Árið 1929 kynntist hún mannsefni
sínu, Sigurði Gíslasyni, og stofnuðu
þau heimili í litlum torfbæ á
Hvammstanga árið 1930, hét bær-
inn Grund, sá bær er löngu horfinn
af sjónarsviðinu. I þessum bæ
bjuggu þau í tvö ár og fluttu síðan
í annan torfbæ, Bjargarbæ, sem
einnig er horfinn. Þau Iögðu svo í
að byggja smá timburhús fyrir ofan
kauptúnið, Lindarbrekku, þau voru
þar með talsverða garðrækt til
búdrýginda, enda var á þessum
árum kreppuástand, basl og
barlómur hvarvetna. En Inga virt-
ist sjá við þessu öllu enda mjög
dugleg og lét ekký bugast þó að
þröngt væri í búi. Á þessum árum
veiktist Sigurður mikið og lá hann
í átta mánuði á Farsóttarhúsinu í
Reykjavík hjá Maríu Maack, og
fékk þar mjög góða hjúkrun.
Inga og Sigurður eignuðust fjög-
ur heilbrigð börn: Ármann Karl,
búsettur á Hvammstanga, fæddur
11. júní 1931, kvæntur Jóhönnu
Birnu Ágústsdóttur. Þau eiga þrjú
börn, Sigurð Birgi, hans unnusta
er Ingibjörg Rebekka Helgadóttir,
búsett á Hvammstanga. Kolbrúnu,
hún er gift Guðmundi Erlendssyni,
eiga þau tvö börn, Jóhönnu Birnu
og Erlend Inga, búsett á Hvamms-
tanga.
Gunnar Valgeir, búsettur á
Hvammstanga, fæddur 10. nóvem-
ber 1932, kvæntur Hildi Kristínu
Jakobsdóttur, eiga þau þijú börn,
Þórdísi, hún er gift Benedikt Guð-
mundi Grímssyni, eiga þau eina
dóttur, Söru, og eru þau búsett á
Hólmavík. Valur, kvæntur
Hermínu Gunnarsdóttur, eiga þau
þijú börn Ólöfu, Hildi og Gunnar,
áður eignaðist Valur dóttur, Birg-
ittu Maggý, þau eru öll búsett á
Hvammstanga. Örn er í foreldra-
húsum.
Bryndís Maggý, búsett í
Reykjavík, fædd 28. desember
1939, gift Gunnari Sölva Sigurðs-
syni. Þau eiga tvö börn, Sigurð
Inga, hann er í foreldrahúsum, og
Valgerði Mörtu, hún er gift Bene-
dikt Emil Jóhannssyni, búsett í
Reykjavík, eiga þau þijú börn, Evu
Björk, Gunnar Orn og Lilju.
Guðmundur Már, búsettur í
Reykjavík, fæddur 23. janúar 1945,
kvæntur Ragnhildi Guðrúnu Karls-
dóttur. Þau eiga þijár dætur, Bryn-
hildi, Ingu Hönnu og Gunnlaugu,
þær eru allar í foreldrahúsum.
Þegar börnin uxu úr grasi
byggðu þau Inga og Sigurður nýtt
hús niðri í þorpinu 1947 og heitir
það Sólland, sem tónlistarskólinn
er starfræktur nú. Þau fluttu í
húsið 1948. Húsið er byggt á sólrík-
um stað.
Inga tók til að rækta tré, blóm
og garðávexti í nýja garðinum
sínum og dafnaði þetta allt vel hjá
henni. Síðasta húsið sem þau fluttu
í á Hvammstanga var Breiðagerði
og þaðan lá Ieiðin til Reykjavíkur
haustið 1967.
Inga og Sigurður höfðu það fyr-
ir reglu eftir að þau eignuðust
tengdabörn og barnabörn að bjóða
öllum í hádegismat á aðfangadag
jóla, það má því með sanni segja
að jólin hafi byrjað snemma dags
hjá okkur og var alltaf mikil til-
hlökkun að koma til þeirra. Sigurð-
ur hjálpaði henni alltaf við að
ganga frá í eldhúsinu á eftir matn-
um. Ég man alltaf eftir því þegar
ég kom fyrst í heimsókn til þeirra,
þá unglingsstúlka nýflutt frá Þórs-
höfn, hvað mér þótti þetta skrítið
að sjá karlmann við uppvaskið en
svo að sjálfsögðu vandist þetta og
til allrar lukku erfðu drengirnir
þetta frá honum og margt fleira
gott.
Inga kom á Sjúkrahúsið á
Hvammstanga 22. október 1983
og eru því orðin nærri því sjö ár
sem hún hefur verið sjúklingur
hér, áður var hún búin að dvelja á
elliheimilinu Grund í Reykjavík.
Fyrir 38 árum orti Sigurður
Gíslason ljóðið „Draumastúlkan"
sem birtist í ljóðabók hans, „Blá-
grýti“.
í kossum þínum eru ástartöfrar,
í augna’þinna ljóma gleðin býr.
í hlýjum æsku bjarma brosa þinna
er blíða, ró og dulið ævintýr.
Á himni minum ertu stjarnan eina.
I ævi mínnar bikar skín þitt vín;
Ég elska þig af æskuheitum funa,
yndislega draumastúlkan mín.
Ég kveð elsku Ingu. Góðar minn-
ingar á ég um hana. Guð varðveiti
hana í nýjum heimkynnum. Þess
óskar einlæg tengdadóttir.
Ilildur Kristín Jakobsdótt-
ir, Hvoli, Hvammstanga.
MURRAY
Metsöluhjól
Glæsilegt úrval reiðhjóla fyrir alla
fjölskylduna, m.a. fjallareiðhjól frá
kr. 16.950,-
Sterkir, kraftmiklir gæðingar.
Póstsendum um land allt.
Opið frá kl. 10-4 á laugard.
Sláttuvéla- & Hjólamarkaöur Hvellur
Smiðjuvegi 4c, Kóp. S: 689699 og 688658
enn meiri háttar
0STATILB0Ð
nú eru það smurostarnir, 3 dósir í pakka
af rækjuosti eða 3 mismunandi tegundum
Áður kostuðu 3 dósiru.þ.b^CTkr., IIÚ 345 klY
um 25% lækkun.
* leiðbeinandi smásöluverð.
Tilboðið stendur tii 15. júlí
Tilvalið í ferðalagið!