Morgunblaðið - 20.07.1990, Síða 1
56 SIÐUR B/C
162. tbl. 78. árg.
FÖSTUDAGUR 20. JULÍ 1990
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Harkaleg landa-
mæradeila Kúvæta
og Iraka veldur ugg
Nicosíu. Reuter.
KÚVÆTAR brugðust í gær ókvæða við ásökunum Iraka um að þeir
hefðu sýnt þeim yfirgang með því að stela olíubirgðum og reisa
hernaðarmannvirki innan landamæra Iraks. Irakar fordæmdu einnig
stjórnvöld í Kúvæt og Sameinuðu arabísku fiirstadæmunum fyrir að
hafa af ásettu ráði valdið þeim miklu efiiahagslegu tjóni með oflram-
leiðslu á olíu. Bandaríkjamenn ítrekuðu stuðning sinn við Kúvæta
eftir að írakar höfðu gefið í skyn að þeir kynnu að beita hervaldi
ef arabaríkin drægju ekki úr olíuframleiðslu sinni. Harkan í deilu
Kúvæta og Iraka veldur ugg.
Saddam Hussein, forseti íraks,
olli miklu uppnámi í arabaheiminum
á þriðjudag er hann sakaði stjórn-
völd í Kúvæt og Sameinuðu
arabísku furstadæmunum um að
hafa komið aftan að írökum með
offramleiðslu á olíu og stuðlað
þannig að lækkandi olíuverði þrátt
fyrir loforð þeirra um að virða
samninga Samtaka olíuútflutnings-
ríkja, OPEC, um framleiðslukvóta.
Daginn eftir sendi Tareq Aziz, ut-
anríkisráðherra íraks, Arababanda-
laginu 'bréf, þar sem hann beindi
einkum spjótum sínum að Kúvæt-
um. Hann sakaði þá um að hafa
stolið olíu og reist hernaðarmann-
virki á írösku landsvæði meðan á
Persaflóastríðinu stóð. Stjórnarer-
indrekar telja að ráðherrann hafi
átt við eyðimerkursvæði við landa-
mæri ríkjanna, sem ekki hefur ver-
ið skýrt afmarkað og er auðugt af
olíu.
Kúvætar svöruðu þessum ásök-
unum í harðorðu bréfi til Araba-
bandalagsins í gær og sökuðu íraka
um að hafa lengi borað eftir oiíu
innan landamæra Kúvæts. Boðað
var til neyðarfundar á þingi lands-
ins og að honum loknum voru þrír
ráðherrar sendir til nágrannaríkja
til að leita eftir stuðningi þeirra í
deilunni.
Richard Boucher, talsmaður
bandaríska utanríkisráðuneytisins,
sagði að Kúvætar gætu reitt sig á
stuðning Bandaríkjamanna í deil-
unni en neitaði að svara spurning-
um um hvort til greina kæmi að
veita þeim hernaðarlega aðstoð ef
á þá yrði_ ráðist.
í her íraks eru um milljón her-
menn, auk þess sem hann hefur
yfir 5.000 skriðdrekum, fyölda biyn-
vagna og 500 orrustuþotum að
ráða. Kúvætar hafa eflt her sinn á
undanförnum árum og hafa um
20.000 hermenn, 70 orrustuþotur
og 500 skriðdreka.
Mótmæla óréttlæti
Reuter
Þúsundir úzbeskra kvenna efndu til mótmæla við
aðalstöðvar kommúnistaflokksins í borginni Osh í
Kírgízíu í gær og kröfðust þess að ættingjar þeirra
sem handteknir voru vegna átaka Kírgíza og Uz-
beka yrðu látnir lausir. A borða kvennanna stendur
„Óréttlæti".
Gorbatsjov biður nm taf-
arlausa efiiahagsaðstoð
Moskvu. Reuter.
MÍKHAÍL Gorbatsjov Sovétforseti
skoraði í gær á vestræn ríki að
veita Sovétmönnum þegar í stað
efiiahagsaðstoð. Sagði hann Jac-
ques Delors, forseta framkvæmda-
stjórnar Evrópubandalagsins
(EB), að umbótastefiian, perestroj-
Frakkland:
Fyrrverandi
ráðherra svipt-
ur lækningaleyfi
París. The Daily Telegraph.
LEON Schwarzenberg, fyrrum heilbrigðisráðherra Frakka og
einn helsti krabbameinssérfræðingur landsins, hefur nú verið
sviptur Iækningaleyfi í eitt ár. Ástæðan er sú að Schwarzenberg
viðurkenndi í blaðaviðtali að hafa stytt dauðvona sjúklingi aldur
með hans samþykki.
Það var í ágúst 1987 sem við-
talið birtist við Schwarzenberg í
franska blaðinu Journal du Dim-
anche. Þar segir hann frá því er
hann aðstoðaði konu sem þjáðist
af krabbameini við að deyja. Að
sögn blaðsins hélt konan kveðju-
veislu fyrir vini og vandamenn
áður en yfir lauk.
Schwarzenberg varð heilbrigð-
isráðherra árið 1988 en þurfti að
segja af sér eftir einungis einn
mánuð í embætti vegna skoðana
sinna á líknardrápi og eiturlyfjum.
Hann heldur því fram að innan
læknastéttarinnar ríki mikil tvö-
feldni í afstöðunni til dauðans.
Segist hann ekki sjá siðferðilegan
mun á því að horfa aðgerðalaus
á ólæknandi sjúklinga deyja þján-
ingarfullum dauðdaga og stytta
sjúklingum aldur með þeirra sam-
þykki.
Schwarzenberg sem iðulega
verður mjög ofarlega í skoðana-
könnunum um vipsælustu Frakk-
ana hefur ákveðið að áfrýja úr-
skurði siðanefndarinnar sem
svipti hann starfsleyfinu.
ka, væri í hættu og sömuleiðis
slökun í alþjóðamálum ef aðstoð
fengist ekki þegar í stað. Þriggja
daga heimsókn Delors til Moskvu
Iýkur í dag.
Gorbatsjov sagði að viðurkennt
væri að perestrojkan væri ekki
einkamál Sovétmanna heldur
heimsbyggðarinnar allrar. Komið
væri að vesturveldunum að sýna
þann skilning sinn í verki. Án efna-
hagsaðstoðar, samvinnu í umhverf-
is- ogjnenningarmálum og afvopn-
unar væri tilgangslaust að láta sig
dreyma um nýja skipan mála í Evr-
ópu.
Delors ræddi við Gorbatsjov í
Moskvu um hugsanlega efnahags-
samvinnu EB og Sovétríkjanna. Á
leiðtogafundi EB-ríkjanna í Dublin
í fyrra mánuði var ákveðið að láta
fram fara könnun á ástandi og
horfum í sovéskum efnahagsmálum
og hvernig tryggja mætti að efna-
hagsaðstoð kæmi að sem bestum
notum. Heimsókn Delors til Moskvu
er upphafið á þeirri könnun. Hún
er einnig talin marka þáttaskil í
samskiptum EB og Sovétmanna á
ýmsum sviðum.
Hermt er að Delors hafi lagt að
Gorbatsjov að hrinda sem snarast
í framkvæmd viðskiptasamkomu-.
lagi sem Sovétmenn og EB gerðu
með sér í fyrra. Samkvæmt því
munu EB-ríkjn afnema með öllu
kvóta á innflutning frá Sovétríkjun-
um árið 1995 gegn greiðari að-
gangi evrópskra iðnfyrirtækja að
hinum sovéska markaði.
Sérfræðingar EB telja, að lítils
árangurs sé að vænta af umbóta-
stefnu Gorbatsjovs nema til komi
umtalsverð vestræn efnahagsað-
stoð. Gorbatsjov hefur mætt mót-
spyrnu frá harðlínumönnum innan
sovéska kommúnistaflokksins í
þeirri viðleytni sinni að afnema
miðstýrðan áætlunarbúskap Sovét-
manna á öllum sviðum efnahagslífs-
• Vestur-Þjóðveijar hafa lagt til
að vesturveldin veiti Sovétmönnum
15 milljarða dollara efnahagsað-
stoð. Styðja Frakkar þá tillögu en
Bandaríkjamenn og Bretar vilja
takmarka aðstoð þar til raunveru-
legum markaðsbúskap hefur verið
komið á þar í landi.
Filippseyjar:
37 menn finnast á
lífi í rústum hótels
Manilla. Reuter.
ÞRJÁTÍU og sjö menn fúndust
á lífi í gær í rústum hótels sem
hrundi í borginni Baguio í jarð-
skjálftunum á Filippseyjum sl.
mánudag.
Að sögn embættismanna var
37 mönnum bjargað úr rústum
Park-hótelsins. Hótelið hrundi sem
spilaborg í skjálftanum, sem
mældist 7,7 stig á richter. Baguio
er í norðurhluta landsins og varð
verst úti í jarðskjálftunum á mánu-
dag.
Óttast er að um 100 manns
hafi týnt lífi er þeir urðu undir
jarðskriðu í fjallahéraðinu Nueva
Viscaya, um 170 km norður af
Manilla. Þar munu mörg hundruð
manns vera strandaglópar vegna
skriðufallanna.
Kúba:
Andófsmenn
gefast upp
Havana. Reutcr.
FIMM Kúbumenn sem ruddust inn
í bústað tékknesks sendiráðs-
manns i Havana á Kúbu í síðustu
viku gáfú sig fram við lögreglu í
gær.
Tékkneska sendiráðið hafði neitað
mönnunum fimm um vernd á þeirri
forsendu áð þeir hefðu ruðst með
valdi inn í bústaðinn. Þeir vildu fá
að fara úr landi.
Sjá „Sendiherra ...“ á bls. 18.