Morgunblaðið - 20.07.1990, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 20.07.1990, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 1990 Landamæri Litháens og Póllands opnuð á ný Moskvu. Reuter. LANDAMÆRI Litháens og Pól- lands verða opnuð á ný á laugar- dag, en þeim var lokað af sovésk- um yfirvöldum í mars. Lokunin var liður í efnahagsþvingunum Sovétmanna gegn Litháum vegna sjálfetæðisyfirlýsingar þeirra. Sovéska fréttastofan Tass skýrði frá þessu á miðvikudag. Samningaviðræður miíli Litháa og sovéskra yfirvalda eiga að hefjast í Moskvu innan skamms og hafa Lit- háar lýst því yfir að þeir muni fresta sjálfstæðisyfirlýsingu í 100 daga frá með upphafí viðræðnanna. Akvörð- unin um landamæraopnunina var tekin í framhaldi af yfírlýsingunni. Olíu- og gassölubanni á Litháen hafði þegar verið aflétt. Viðræðumar milli sovéskra yfír- valda og Litháa, sem krafíst hafa sjálfstæðis ásamt Lettlandi og Eistl- andi, eiga að hefjast í september. Kambódíudeilan: 4* Solberg Poulsen við bát sinn, skammt fyrir utan Björgvin í Noregi. Færeyjar: Siglingakappi ferst Þórshöfin. Frá Snorra B. Halldórssyni, fréttaritara Morgunblaðsins, SOLBERG Poulsen, færeyskur eyju skammt frá ævintýramaður lrá bænum Ströndum á Austurey er hugð- ist sigla einn sömu leið til Is- Iands og norrænir víkingar til forna, fannst látinn af kulda og vosbúð í bát sinum á miðviku- dag. Poulsen varð 46 ára gamall. Bátur hans hét Elsba og var 70 ára gamall sexæringur, búinn seglum. Poulsen lagði upp frá Björgvin í Vestur-Noregi fyrir tveim vikum og hugðist sigla þaðan til Hjalt- lands, Færeyja og loks til íslands. Er Poulsen hafði ekki haft fjar- skiptasamband við land í marga sólarhringa var lýst eftir honum í Þórshafnarradíó á sunnudags- kvöld. Báturinn fannst eftir nokkra leit, að sögn blaðsins Dim- malætting kom hann ekki fram á ratsjá, en siglingakappinn var þá látinn. Deilan um flóttamenn í Havana: Sendiherra Spán- ar kallaður heim Madríd. Frá Kagnari Bragasyni, fréttaritara Morgunblaðsins. SENDIHERRA Spánar á Kúbu hefúr verið kallaður til Madríd til fúndar við ríkisstjórnina til að ræða ástandið á Kúbu eftir að fólk tók að brjóta sér leið inn í sendiráð Spánar í landinu. Ríkis- sljórn Kúbu hafði sent út yfírlýsingu þar sem utanríkisráðherra Spánar, Fernández Ordóiiez, var harðlega gagnrýndur og hann kallaður illa upplýstur nýlenduherra. Fjórir Kúbveijar hafa komist inn í sendiráð Spánar og slapp sá síðasti framhjá lögreglumönnum sem höfðu umkringt sendiráðið. Einn þeirra skaut á hann en hæfði ekki. Nú eru fjórir Kúbveijar í sendiráði Spánar og fjórir í bústað ítalska sendiherrans en þeir fimm sem voru á heimili staðgengils tékkneska sendiherrans gáfust upp í gær og yfirgáfu húsið. Kúbveijarnir hafa óskað þess að fá að yfirgefa landið en stjórn- völd á Kúbu hafa neitað þeim um það. Þau segja að þeir verði annað hvort að gefast upp skiiyrðislaust Ottinn við Rauða khmera færir Bandaríkjamenn nær Víetnam og muni þá ekki verða refsað eða dvelja í sendiráðunum til dauða- dags. Þau segja að beiðnimar um að fá að yfirgefa Kúbu séu ögrun, skipulögð í því skyni að draga upp ranga mynd af ástandinu og gera of mikið úr öryggisleysi íbúa á Kúbu. Ordónes lét þau orð falla að Spánn myndi leitast við að tryggja öryggi allra sem vildu koma inn í sendiráðið. Hann sagði ennfremur að kommúnistaríkin féllu alltaf þegar dyrnar væru opnaðar, svo líklega myndi Fidel Kastro fara hægt í að opna þær. „Hinsvegar,“ bætti hann við, „er kúbverska ríkisstjórnin ekki í aðstöðu til að leiða ástandið hjá sér og láta sig engu varða alþjóðleg lög.“ Kúba svaraði með því að stórmóðga ut- anríkisráðherrann. Hann var sak- aður um vanþekkingu á alþjóða- lögum, um að hagræða staðreynd- um og um að láta utangarðsmenn líta út eins og pólitíska flótta- menn. „Hann minnir á nýlendu- herrana sem stjórnuðu Kúbu í eina tíð í nafni Spánarkonungs," segir í skilaboðunum. Bangkok. Reuter. VÍETNAMAR hafa fagnað þeirri ákvörðun Bandaríkjastjórnar að hefja við þá viðræður til að hindra að Rauðu khmeramir komist til valda í Kambódíu. Kúvending Bandaríkjastjórnar hefur vakið mikla athygli því í þijá áratugi hefúr rikt svarinn fjanuskapur milli hennar og komm- únista í Víetnam, sem náðu völdum í landinu öllu 1975. Er talið víst að þessi stefnubreyting eigi eftir að gjörbreyta aðstæðum í þessum heimshluta. Ótti er sagður ríkja meðal íbúa Kambódíu við Rauðu khmerana, harðlínukommúnista sem myrtu allt að helming þjóðarinnar á valdatíma sínum á áttunda áratugnum. Víet- namar veltu þeim úr sessi með inn- rás árið 1979 og höfðu fjölmennt herlið í landinu fram á síðasta ár. í Kambódíu situr nú ríkisstjóm sem Víetnamar komu til valda og hefur hún verið einangruð á alþjóðavett- vangi nema hvað hún hefur notið stuðnings kommúnistaríkja. Kínveij- ar hafa stutt Rauðu khmerana með vopnasendingum og fé. Bandaríkja- menn hafa á hinn bóginn veitt tveim- ur hreyfíngum skæruliða er ekki aðhyllast kommúnisma í Kambódíu stuðning. Leikur grunur á að sá stuðningur hafí stundum komið Rauðu khmerunum til góða. Khmer- amir hafa sótt mjög í sig veðrið að undanfömu og bendir margt til að þeir séií að ná yfirráðum í Kambódíu á ný. Það var James Baker utanríkisráð- herra Bandaríkjanna sem tilkynnti stefnubreytingu Bandaríkjastjómar í París á miðvikudag. Hann sagði stjóm sína reiðubúna að hefja við- ræður við Víetnama um að ljúka stríðinu í Kambódíu. Bandaríkja- menn hafa allt frá því Víetnamstríð- inu lauk árið 1975 reynt að einangra stjómina í Hanoi. Viðbrögð í Austurl- öndum fjær við kúvendingu Banda- ríkjastjómar hafa verið misjöfn. Víetnamar fögnuðu henni og sagði Nguyen Co Thach utanríkisráðherra að stjórn hans væri reiðubúin að ræða við alla sem vildu binda enda á stríðið í Kambódíu. Japönsk stjóm- völd segja að ástandið í Kambódíu sé svo flókið að ákvörðun Banda- ríkjastjómar muni ekki auka líkumar á skjótum friði. Sihanouk fursti, leið- togi annarrar af tveimur andkom- múnískum skæruliðsveitum í Kambódíu, sagði að með ákvörðun sinni væm Bandaríkjamenn að verð- launa þá sem reynt hefðu að breyta Kambódíu í nýlendu sína og átti þá við Víetnama. Cesare _ Corti, starfsmaður sendiráðs Ítalíu á Kúbu, segir að nú sé reynt að finna lausn á mál- um þeirra fjögurra Kúbveija, sem dveljast á verönd ítalska sendi- herrabústaðarins. Ríkisstjóm ít- alíu vill „skjóta og einfalda lausn sem fullnægir mannréttindum og alþjóðalögum,“ sagði hann. Kúb- veijarnir tólf sem skjólshúsi var skotið yfir í tékkneska sendiráðinu í síðustu viku gáfust upp á mánu- dagskvöld eftir að hafa haldið sendiráðsstarfsmönnum í gíslingu í fimm klukkustundir og deilt inn- byrðis. HÖRPUDEILDIN LEIKUR Á ALS 0DDI , ^teváttuimi HÖRPU ÞAKVARI er einkum ætlaöur til notkunar utanhúss á bárujárn o.fl. Hann er framleiddur úr sérstökum alkýðum úr Ijósþolnum litaretnum sem veita honum frábært veðrunarþol. Allt þetta gerir ÞAKVARANN ómetanlegan í toppbaráttunni gegn kenjum veðurguðanna. HARPA lífinu lit. § * < PEGAR Á HEILDINA ER LiTIÐ PARF EKKi AÐ SPYRJA AÐ LEIKSLOKUM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.