Morgunblaðið - 20.07.1990, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 20.07.1990, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 1990 29 ar. Ekki gleymist mér eftirminni- legur stuðningur Pál H. við klúbb- ana Öruggur akstur, þegar hann á landsfundi þeirra flutti hið snjalla umferðarerindi sitt „Frá Bergþórs- hvoli til Miklubrautar" sem við svo síðar gáfum út til dreifingar og var einnig af höfundi flutt í útvarpi. Ég man Pál H. vel frá mörgum sameiginlegum ferðum okkar út um land á vegum samvinnusamtak- anna; hversu lifandi og skemmtileg- ur ferðafélagi hann var, með gleði- og gamanmál á vörum: Mímis- brunnur söngs og sögu. Og það var vissulega upplifun að verða eitt sinn þeirrar gleði aðnjótandi að fara með honum beinlínis í skemmtiferð um heimahaga og hitta að máli marga sveitunga hans og gróna söngvini, í léttum galsa, þar sem engin var töluð tæpitunga og allt meint betur en sagt var, og varð ekki misskilið. Sá ég þá og fann, hversu Páll H. var vinsæll og dáður. Aldrei er hægt að segja allt. En margs fleira væri að minnast úr persónulegum samskiptum okkar Páls H. Jónssonar frá Laugum. Þau eru þó ekki nema brot af ævi- og starfsferli hans; þessa ijölhæfa manns sem svo lengi og víða hafði margþætta forystu og afskipti af lista- og menningarmálum sem kennari, söngstjóri, ljóð- og leikrita- skáld og margverðlaunaður rithöf- undur á efri árum. Af öllu þessu er frækin saga, skráð og óskráð sem ekki verður frekar vikið að í þessum minningarorðum. En mikið hefði ég viljað vera honum nærri meðan „ársól lífsins" brann okkur báðum „heit á vanga“, njóta yls og hrifn- ingar á hans stærstu og stoltustu stundum. En „nú er söngurinn hljóður og horfinn“, nema í verkum hans og huga og hjarta þeirra sem nutu. Perlur á borð við „Fölnuð er liljan og fölnuð er rós“ þeirra Páls H., Sigrúnar á Rangá og Gröndals, mun lifa „í bijóstum sem að geta fundið til“. Blessuð sé minning Páls H. Jóns- sonar frá Laugum. Baldvin Þ. Kristjánsson Páll H. Jónsson kennari á Laug- um er látinn 82 ára að aldri. Fyrir rúmum 50 árum lágu leiðir okkar Páls saman. Hann var þá kennari við Héraðsskólann á Laugum í Reykjadal, Suður-Þingeyjarsýslu, en ég kom þangað nemandi haustið 1937. Veran á Laugum hafði mjög mótandi áhrif á líf mitt. Skólastjóri og kennarar voru áhugasamir og lifandi í starfi og fylgdust vel með nemendum og glöddust yfir fram- förum þeirra. Skólinn var því ekki stirnuð stofnun heldur miklu líkari umhyggjusömu heimili þar sem hvatt var til góðs Iífs, náms og þroska. Reglur voru ákveðnar og þótt þess væri ekki alltaf gætt af nemendum að fara eftir þeim þá voru þær taldar sjálfsagðar og ekki undan þeim kvartað. Páll féll vel inn í þessa mynd. Hann var hugsjónamaður og sá fyrir sér batnandi þjóðlíf. Trúði á hið góða í fari hvers manns. Hann var tilfinninganæmur, fíngerður og fágaður í framkomu. Hann var mikill og næmur tónlistarmaður enda annaðist hann tón- og söng- mennt í skólanum. Hann tók virkan þátt í félagslífi nemenda og þegar upp voru færð leikrit var hann leik- stjórinn og góður leiðbeinandi í því efni. Alltaf var hann reiðubúinn til að rétta hjálparhönd ef á þurfti að halda. Þegar hann kenndi sögu þjóðarinnar lifði hann sig inn í at- burðarásina og hrifning hans yfir eldmóði þeirra og krafti, sem í for- ystu voru í sambandi við frelsisbar- áttuna var mikil og glæddi kennsl- una lífi. Að fórna störfum fyrir frelsið og samvinnuna til átaka í stórum málum taldi hann verðugt verkefni þeirra sem voru að vaxa úr grasi, feta í slóð feðranna og halda áfram baráttustarfi þeirra landi og þjóð til blessunar. Ung- mennafélagshreyfingin var honum kær, í stefnu hennar sá hann fyrir sér háleitar hugsjónir rætast. Hann skildi vel og var næmur fyrir því hvað ungum var hollt veganesti á lífsleiðinni og kom það vel fram í barnabókum hans síðar þar sem áhersla er lögð á hið góða og mann- bætandi og meta öðru meira heil- brigt líf, trúmennsku og skyldu- rækni en láta ekki hin illu öflin ná tökum á sér. Hann skildi vel það böl sem vímuefnin valda og var alla tíð mjög andvígur notkun þeirra. Langt er um liðið síðan fundum okkar Páls bar saman. Og nú við kveðjustund koma minningarnar frá Laugum fram í hugann. E.t.v. segir það best, hve veran þar hafði djúp áhrif að ávallt þegar ég fer um Þingeyjarsýslu finnst mér að ég sé kominn í mína aðra heima- byggð. Þannig dregur ekki landið eitt þótt fagurt sé heldur þarf til fólk með gott hugarþel og hjarta- hlýju, í hópi þess var Páll. Eg þakka honum samfylgdina og góða leið- sögn. Kona Páls var Rannveig Krist- jánsdóttir frá Fremstafelli og eign- uðust þau 5 börn. Rannveig lést árið 1966. Páll kvongaðist aftur Fanneyju Sigtryggsdóttur húsmæð- rakennara frá Stóru-Reykjum. Við sendum henni og fjölskyldunni allri innilegar samúðarkveðjur. Guðs blessun fylgi látnum kennara og vini, vormanninum til hinstu stund- ar, góða drengnum sem unni þjóð sinni og öllum vildi vel. Páll V. Daníelsson Dagur er kominn að kvöldi. Blindálfar drúpa höfði. Fuglinn skrítni og skemmtilegi, hann Berjabítur, situr hljóður og hnugg- inn á grein sinni. Agnarögn og Lambadrengur haldast í hendur og reyna að hugga hvort annað. Afi er farinn, afi var að kveðja. Afi sem var um leið skapari þeirra og lífgjafi, hefur öðlast hvíldina miklu en þáu lifa áfram sjálfstæðu lífi í bókunum hans, eins og hann mun gera í minningum okkar allra sem þekktum hann og elskuðum. Afi minn, Páll J. Jónsson, er farinn. En ekki horfinn, aldrei horfinn, meðan hann lifir í verkum sínum og minningunum góðu. Löngum og oft erfiðum starfs- degi er lokið. Afi var orðinn þreytt- ur og kannski hvíldinni feginn. Og hann hlýddi kalli ferjumannsins æðrulaust. „Til ferðar skal fúslega gengið/ við feijumannsins orð,/ er mitt eða þitt hann nefnir nafn/ sem næsta farþega um borð.“ Þannig kvað afi um kveðjustundina miklu í ljóðinu Á ströndinni. Og hann var ferðbúinn þegar nafn hans var kall- að. Ég hafði þekkt afa frá barnæsku en kannski kynntist ég honum fyrst á annan hátt þegar hann og Fann- ey, kona hans, fluttust til Húsavík- ur fyrir allmörgum árum þar sem ég var búsett. Við urðum strax fé- lagar og vinir og kynslóðabilið var fyrirbæri sem við þekktum ekki og þurftum því ekki að yfirstíga. Hann var svo ríkur og hafði svo mikið að gefa ungri stúlku sem var að feta sín fyrstu sjálfstæðu spor í lífinu. Hann varð þátttakandi í mínu lífi, í sorg og gleði. Hann stóð aldr- ei hjá sem hlutlaus áhorfandi eins og svo mörgum er gjarnt. Hann var ekki „einmana gestur dæmdur til að vaka/ og hlusta um nótt á lífið líða hjá“. Hann studdi mig og leið- beindi mér, hann talaði við mig eins og vin, eins og félaga, eins og afa- stelpu, eins og manneskju. Og sjón- deildarhringur stelpunnar stækkaði við hveija samverustund með þess- um hlýlega og vitra manni. Hann gat töfrað fram hátíðar- stundir í gráma hversdagsins með einni sögu, einni samverustund eða kannski fyrst og fremst með sínu hlýja viðmóti og skilningi og um- burðarlyndi þess manns sem hefur á langri ævi öðlast þá visku að það er ekki okkar að dæma bræður okkar og systur, heldur að reyna að skilja þau og rétta hjálparhönd. Hann tók þátt í erfiðleikunum með mér og blés mér í bijóst kjarki til að takast á við þá og halda svo áfram, þó gatan væri ekki alltaf greið. Hann þekkti sjálfur flesta vegi mannlífsins, vegi sem voru svo miklu erfiðari yfirferðar, en sá sem ég var að feta. Og hann skildi. Og hann gaf. Hann tók þátt í sælustundunum með mér þegar börnin fæddust Afi hélt á litlu stúlkubarni undir skírn. Við nefndum hana Guðrúnu Sigríði. Guðrún bar nafn fóstru hans sem hann þreyttist aldrei á að tala um við okkur Fanneyju, fóstruna, sem vildi allt fyrir hann gera í uppvext- inum. Og það er einmitt það sem ræður úrslitum í lífi okkar flestra, að eiga einhvern að sem vill allt fyrir okkur gera? Eins og ég átti afa minn, þessi ár sem við vorum samvistum á Húsavík. Og eins og hann átti Rannveigu ömmu og síðar Fann- eyju, sem með ástríki sínu og um- hyggju gaf honum kannski nýtt líf og varpaði sumarbirtu á haustið í lífi afa. Mig langar til að kveðja elsku afa minn, með hans eigin orðum úr ljóðinu Aldan, þar sem hann líkir mannlífinu við feril öldunnar á haf- inu: Á lífsins hyl var eitt sinn upphaf mitt, og eins og þú ég hraða för að landi, og hverf að lokum hljóðlaust eins og þú. Sigríður Kristín Þórhallsdóttir t Eiginkona mín, HALLA DAGBJARTSDÓTTIR, Heiðargerði 70, lést 16. júlí í Landakotsspítala. Jarðsett verður frá Bústaðakirkju mánudaginn 23. júlí kl. 15.00. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Krabbameinsfélagið. Pétur Grímsson. t Föðurbróðir okkar, ÞORMÓÐUR DAGSSON, er látinn. Útför hans verður gerð frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 24. júlí kl. 13.30. Oddbjörg og Steinunn Jónsdætur. + Ástkær móðir okkar, KRISTÍN MARÍA KRISTINSDÓTTIR fyrrverandi bankafulltrúi, Hringbraut 112, lést í hjúkrunarheimilinu Skjól miðvikudaginn 18. júlí. Edda Svava Stefánsdóttir, Hafsteinn Þór Stefánsson, Jón Baldvin Stefánsson. + Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, HARALDUR HANNESSON, formaður starfsmannafélags Reykjavíkurborgar, Bakkagerði 2, Reykjavfk, lést á Borgarspítalanum 19. júlí. Sveinbjörg Georgsdóttir, Ólöf Haraldsdóttir, Stefán Aðalsteinsson, Einar Haraldsson, Guðrún Ásgeirsdóttir, Ólafur Haraldsson, Jóna Jóhannsdóttir, Heigi Már Haraldsson, Magnús Þór Haraldsson, Þórey Magnúsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Systir mín og móðursystir okkar, MARGRÉT STEINGRÍMSDÓTTIR, Hringbraut 90, Reykjavík, andaðist 18. júlí. Kristjana Steingrímsdóttir, Margrét Guðjónsdóttir, Arnór Steingrímur Guðjónsson. + Faðir okkar, tengdafaðir og afi, ODDUR INGÓLFUR EINARSSON málarameistari, Vallholti 28, Selfossi, lést 17. júlí. Útför hans fer fram frá Selfosskirkju laugardaginn 21. júlí kl. 11.00. Jenný Oddsdóttir, Guðni Pálmi Oddsson, Kolbrún Hansen, Ingibjörg Hrönn Pálmadóttir, Guðni Rúnar Pálmason, Atli Már Pálmason. + Maðurinn minn, sonur, faðir, fósti ir, tengdafaðir og afi, ALFRED GEORG ALFREDSSC framkvæmdastjóri, Vesturgötu 71, Reykjavík, lést miðvikudaginn 18. júlí. Lillian Simson, Laufey Maríasdóttir, Hervör Lúðviksdóttir, Erna Lína Alfredsdóttir, Kristín Bára Alfredsdóttir, Alfred Georg Alfredsson, Guðrún Dröfn Emilsdóttir, Ragna Björk Emilsdóttir og barnabörn. + Eiginmaður minn, SIGURÐUR GUÐJÓNSSON, Urriðaá, sem lést 16. júlí, verður jarðsunginn frá Borgarneskirkju laugar- daginn 21. júlí kl. 14.00. Hólmfríður Þórdís Guðmundsdóttir og fjölskylda. + Eiginmaður minn, ÁSGEIR E. JÓHANNESSON, Seljanesvegi 18, ísafirði, verður jarðsunginn frá ísafjarðarkapellu laugardaginn 21. júlí kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Þuríður Jónsdóttir Edwald. + Maðurinn minn, MÁLFREÐ FRIÐRIK FRIÐRIKSSON skósmíðameistari, Ægisstíg 2, Sauðárkróki, verður jarðsunginn frá Hóladómkirkju laugardaginn 21. júlí kl. 14.00. Jarðsett verður í Sauðárkrókskirkjugarði. Fyrir hönd aðstandenda. Sesselja Hannesdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.