Morgunblaðið - 20.07.1990, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 20.07.1990, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 1990 13 Grímsá dauf „Þetta gengur svona sæmilega, það komu 113 laxar á land í síðustu viku á tíu stangir, en það eru engar stórar göngur, þetta svona reytist upp,“ sagði Daníel Lee Davis, leiðsögumaður við Grímsá í samtali við Morgunblað- ið í vikunni. Þá voru komnir milli 230 og 240 laxar á land sem er ekki mikið miðað við hvaða tími sumars er í hönd genginn. Daniel sagði stærsta laxinn til þessa hafa verið 17,5 punda fisk sem veidd- ist í byijun veiðitímans, en í síðustu viku veiddust auk þess tveir 17 punda fiskar. Yfirleitt væri laxinn í smærra lagi, en einn og einn stór í bland. Andakílsá lifiiar í vætunni Andakílsáin hefur verið óvenju- sein í gang í sumar og eiga þurrk- ar ekki við hana, en í vætunni tók áin vel við sér. Óli Kr. í Olís var að koma úr ánni, eftir þriggja daga veiði, ásamt félögum sínum og fengu þeir 14 laxa á stangirn- ar tvær. Alla á flugu og var sá stærsti 21 punda hængur sem Ingvi Jón Einarsson veiddi á Veiðivon nr.10 í hyl númer 4. „Það gekk mikið á og laxinn hafði strikað í gegn um fimm hylji aðra áður en hann náðist,“ sagði Jó- hannes Helgason leigutaki And- akílsár, í samtali við Morgunblað- ið. Þar með voru komnir 30 laxar á land og fylgdi sögunni, að all mikill lax hefði gengið í ána síðustu daga, eða eftir að rigna tók. Lofar það góðu um framhald- ið. Veiði hefur einnig verið góð á silungasvæðinu fyrir neðan brú og sagði Jóhannes að bestu da- garnir hefðu gefið allt að 70 til 80. sjóbleikjur. Þetta er mest 1 og 2 punda fiskar, en vænni í bland, allt að 5 punda. Þá hafa tveir laxar veiðst á svæðinu. Fremur dauft í Vopnafirðinum Nýlegar fregnir herma að Hofsá og Selá hafi gefið milli 70 og 80 laxa hvor á og vart sé hægt að tala um annað en reyting- sveiði. Menn sjá slatta af laxi, en hann tekur illa og göngur eru ekki kröftugar enn sem komið er. 17 og 18 punda fiskar hafa veiðst vænstir á þessum slóðum það sem af er. Hér og þar Enn er allt við það sama í Rang- ánum, þar veiðast þetta 15 til 25 laxar á degi hveijum og laxarnir orðnir hátt í þijú hundruð sem veiðst hafa. Ekkert lát er á göngum eða veiði og segja kunn- ugir að mikið magn laxa hafí gengið í ána. Nýlega veiddi ókunnugur og óvanur maður 7 punda urriða á urriðasvæðinu fyr- ir ofan Árbæjarfoss. Ástandið í Húnavatnssýslunum er ekki gott, þar er lítið af fiski og nær allur laxinn tveggja ára fiskur úr sjó sem er að byija að verða leginn. Smálaxinn lætur á sér standa og eru menn að byrja að verða kvíðnir um framhaldið. Nýlega veiddust aðeins 12 laxar í 4 daga holli í Víðidalsá og komu þar af átta laxar á eina stöngina, hinar sex skiptu því hinum löxun- um fjórum á milli sín. Þá segja sérfræðingar að það séu ár og dagar síðan að jafn lítið hafi sést af laxi í Laxá á Ásum í miðjum júlí. Þar eru aðeins um 200 laxar komnir á land og telst það ljótur aflabrestur á þeim vígstöðvum. -gg- Föstudag kl. 9-18 og laugardag kl: 10-17 seljum við eftirtalda úrvals bíla með afslætti og lánakjörum: Daihatsu Charade ’88 - Toyota Corolla LB ’87 • Daihatsu Charade ’88 - Lada Sport ’87 Dodge Aries Stat. ’88 - Lada Sport ’87 • Subaru S/W GL ’85 - Honda Civic Shut. ’85 Fiat Uno 60s ’87 ■ Nissan Sunny 1,5 ’87 ■ Citroen AX14 trs ’88 ■ Daihatsu Charade ’87 Ford Bronco ’87 ■ Lada Sport ’86 • Daihatsu Charade ’87 ■ BMW 316 ’87 • Ford Sierra ’86 Daihatsu Charade ’88 - Fiat Uno 60s ’86 - Mazda 323 sendib. ’85 - Toyota Corolla ’87 Volvo 244 GL ■ Ford Escort ’86 - Daihatsu Charade ’87 - Suzuki Swift GL ’89 - Opel Kadet ’85 - Opel Rekord ’83 - Volvo 460 ’82 - Mazda 626 GLX ’87 - Toyota Tercel ’85 Honda Civic ’86 - Peugot 205 GL ’88 ■ Toyota Corolla ’87 ■ Daihatsu Cuore'’87 Komið sjáið og sannfæríst /IMTAflW PÍItP Laugavegi 174 - Sími 695660/695500 SÍMINN ER 689400 BYGGT & BÚIÐ KRINGLUNNI 2 3 <

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.