Morgunblaðið - 20.07.1990, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 1990
Litlar manna-
breytingar
hjá Dalvíkurbæ
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Fulltrúar lög'reglunnar veita viðtöku gjöf Honda á Islandi og VIS í gær: Jón R. Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri Þórshamars, Ingi R. Helgason stjórnarformaður VIS, Guðmundur Sölvason lögreglu-
þjónn, Ólafur Ásgeirsson aðstoðaryfirlögregluþjóim og Axel Gíslason forstjori VÍS.
í bænum. Markmið félagsins sé að
halda þjónustu innan bæjarmar-
kanna. Þá muni bifvélavirki stöðv-
arinnar hafa eftirlit með viðgerðum
á bifreiðum sem hann hefur skoðað.
Ólafur Ásgeirsson aðstoðaryfir-
lögregluþjónn veitti viðtöku gjafa-
bréfi VÍS og Honda á íslandi við
athöfnina í gær. í því segir að fyrir-
tækin hafi ákveðið að gefa lögregl-
unni vélhjól til þess að gefa ung-
mennum kost á að æfa sig í notkun
þessara ökutækja. undir eftirliti.
Þetta sé í samræmi við stefnu fé-
laganna í fyrirbyggjandi aðgerðum.
Tjónaskoðunarstöð VÍS er sniðin
að fyrirmynd þeirra tveggja stöðva
sem starfa á höfuðborgarsvæðinu.
Hún er í rúmgóðri skemmu við
Furuvelli. Auk bifreiðaskoðunar
verða reglulega haldin uppboð á
ökutækjum í stöðinni. Forstöðu-
maður hennar er Kristinn H. Jó-
hannsson bifvélavirkjameistari.
Dalvík.
TILTÖLULEGA litlar manna-
breytingar hafa átt sér stað í
embættum á vegum Dalvíkur-
bæjar nú að loknum sveitar-
stjórnarkosningum. Kristján
Þór Júlíusson sem gegndi starfi
bæjarstjóra síðasta kjörtímabil
hefur verið endurráðinn til þess
starfs. Starf bæjarritara var
auglýst laust til umsóknar en
Guðmundur H. Atlason sem
gegnt hefur starfinu undanfarin
ár hefúr sagt því lausu.
Fimm umsóknir bárust um
starfið og samþykkti bæjarráð á
fundi fyrir viku að ráða Helga
Þorsteinsson í starfið. Helgi er
bæjarmálum ekki ókunnur en hann
hefur setið í bæjartjórn á Dalvík
tvö kjörtímabil. Fyrst árin 1974-
1978 og síðar 1982-1986. Hann
var skólastjóri á Dalvík þartil hann
gerðist hluthafi í Bókhaldsskrif-
stofunni hf. og hóf störf við fyrir-
tækið, þar sem hann hefur starfað
til þessa dags.
Þá tók fyrir skömmu nýr bókari
til starfa hjá bænum, en til þess
starfs var ráðinn Hannes Garðars-
son sem áður gegndi starfi íþrótta-
og æskulýðsfulltrúa í bænum.
- Fréttaritari
V átryggingarfé-
lag Islands:
Gefur lög-
reglunni
vélhjól
til kennslu
Tj ónaskoðunarstöð
félagsins opnuð
Tjónaskoðunarstöð Vátrygging-
arfélags Islands var opnuð á
Akureyri í gær af Axel Gíslasyni
forstjóra. Afhenti hann af því
tilefni lögreglunni 'a Akureyri
vélhjól að gjöf, sem nýta á við
kennslu unglinga í meðferð vél-
knúinna ökutækja.
Fjögur önnur tryggingafélög
sem starfa á Akureyri opnuðu
tjónastöð í bænum fyrir viku. Þar
munu sjálfstæðir verktakar annast
skoðun tjónabíla, en VÍS verður
með fastan starfsmann við sína
stöð.
Sigurður K. Harðarson svæðis-
stjóri VÍS segir að tryggingarfélög-
in sem starfa í bænum hafi ekki
náð samstöðu um rekstur einnar
tjjónaskpðunarstöðvar. Forráða-
menn VÍS vilja bjóða tjónabíla upp
á Akureyri og kaupa varahluti til
viðgerðar í gegnum bifreiðaumboð
Hallgrímur
Helgason
sýnir í Vín
HALLGRÍMUR Helgason
myndlistarmaður opnar sýn-
ingu í blómaskálanum Vín á
laugardag, 20. júlí. I fréttatil-
kynningu frá Hallgrími segir
að myndirnar skiptist í tvo
fiokka: Annarsvegar „topp-
grínmyndir" sem tileinkaðar
eru baráttunni gegn ofijárfest-
ingu í undirstöðuatvinnuvegin-
um og eru þær allar með
íslenskum texta. Hinsvegar
„léttar gamanmyndir" sem end-
urspegla innra líf þjóðarsálar-
innar með áherslu á svæðisút-
varp Norðurlands.
Auk þess að leggja stund á
myndlist veitir Hallgrímur for-
stöðu Útvarpi Manhattan, sem
sent er út vikulega á Rás tvö.
Sýningin er opin frá klukkan
10-23 dag hvern fram tii 29. júlí.
Hallgrímur Helgason með sjálf-
sprottnar myndir, sem sýndar
verða í Vín.
Gengið til samninga uni
sölu Hótels Akureyrar
FIMM aðilar á Akureyri og í
Reykjavík hafa gert tilboð í Hót-
el Akureyri, sem Byggðastofnun
eignaðist á nauðungaruppboði í
vor. Að sögn Guðmundar Óla
Guðmundssonar lögfi-æðings,
talsmanns væntanlegra kaup-
enda, verður að likindum gengið
frá samningum við Byggðastofh-
un á næstu dögum. Hann segir
að reynt verði að koma hótelinu
í rekstur strax og samningar
hafa náðst. Byggðastofnun
keypti hótelið á 11 milljónir
króna.
Væntanlegir kaupendur hyggjast
ekki liafa hótelið opið allt árið.
Utan venjulegs ferðamannatíma á
vetrum mun verða tekið á móti
hópum og almennum ferðamönnum
þegar annir eru á skíðasvæðunum.
Starfsfólk á að kalla til starfa eftir
þörfum.
Guðmundur segir að áætlanir
væntanlegra kaupenda bendi til
þess að reksturinn geti fyllilega
staðið undir sér. „Það þarf mikið
að ganga á til þess að endar nái
ekki saman,“- segir hann.
Tuttugu herbergi eru á Hótel
Akureyri, 18 tveggja manna og tvö
eins manns. Þau eru nýuppgerð og
hin stærstu búin sjónvarpi og
ísskápi. Gert er ráð fyrir 50 gestum
í veitingasalnum Laut. Væntanlegir
kaupendur hyggjast bjóða rekstur
Lautar út, að sögn Guðmundar.
Mikið flutt með Sæfara
FLUTNINGAR Eyjafjarðarferjunnar Sæfara hafa sífellt verið að
aukast, að sögn Örlygs Ingólfssonar skipsfjóra. Skipið hóf siglingar
í apríl en lá við bryggju 1.-15. júní þegar smíðað var á það hús fyrir
90 farþega. Þegar hafa verið fluttar 3.100 lestir af varningi með
skipinu og um 1.260 farþegar. Gefin hafa verið út afsláttarkort fyr-
ir þá sem nota skipið oft og veita þau 45% afslátt af ferðum.
Sæfari siglir tvisvar í viku milli Eftir að Sæfari kom til skjalanna
Dalvíkur og Grímseyjar, á mánu- færist í vöxt að fiskverkun KEA
dögum og föstudögum. Fimmtu-
daga er siglt milli Hríseyjar og
Akureyrar. Utan þess er skipið í
flutningum með vörur og ferða-
mannahópa. Allar helgar í júlí hafa
til dæmis verið bókaðar fyrir hópa
á leið til Grímseyjar, að sögn Ór-
lygs.
sendi fisk til Hríseyjar í vinnslu.
Ferðir skipsins eru þó ekki bundnar
við Eyjafjörðinn og Grímsey. Sæ-
fari flutti til dæmis salt til Sauðár-
króks nýverið og hefur sótt fisk
allt suður til Hafnar í Hornafirði
til vinnslu í Hrísey.
Dómkirkjan:
Orgeltónleikar
'í&líM
Hin vinsæla hljðmsveit
Ingimars Eydai
leikur fyrir dansi
laugardagskvöld.
Glæsilegur
sérrétfamatseóill
Borðapantanirí
síma 22200.
Hótel KEA
Sýning
Rúnu í Fer-
stikluskála
RÚNA Gísladóttir listmálari sýnir
myndir sínar í Fcrstikluskála í
Hvalfirði næstu vikurnar. Þetfii
cr listkynning fyrir fcrðafólk eða
þá sem langar til að fá sér klukku-
tíma bílferð til að skoða myndlist.
Rúna stundaði nám við Myndlista-
og handíðaskólann árin 1978-82 og
ei.nnig í Noregi um tíma. Hún hefur
unnið við liscsköpun undanfarin ár
og haldið nokkrar einkasýningar,
m.a. á Kjarvalsstöðum, Blönduósi og
Siglufirði. Hún starfar á eigin vinnu-
stofu að Selbraut 11, Seltjarnarnesi.
Þar stendur hún einnig fyrir nám-
skeiðum í málun og myndlist.
Rúna Gísladóttir listmálari.
Myndir Rúnu á sýningunni eru
vatnslitamyndir, akrýlmyndir og col-
lage (öðru nafni klippimyndir) og eru
þær allar ti söiú.
Opið er á opnunartíma skálans,
sem er fram til klukkan 23 hvern
dag.
ÞÝSKUR prófessor i orgelleik,
Heinz Markus Göttsche, heldur
orgeltónleika í Dómkirkjunni
laugardaginn 21. júlí klukkan
20.30.
Heinz Markus Göttsche er fyrrver-
andi söngmálastjóri kirkjunnar í
Leiðrétting
RANGHERMT var í frétt af ilim
ferðarstysi á Vesturlandsvegi í
blaðinu í gær að einungis ökumað-
ur annars bílanna, sem þar lentu
í árekstri, hefði slasast. Farþegi í
framsæti þess bíls, sextug eigin-
kona ökumannsins, slasaðist mikið
og liggur á sjúkrahúsi með áverka
á brjóstkassa og á hálsi.
Rheinland Pfalz og er nú kantor
Stiftskirkjunnar í Landau.
Efnisskráin ber yfirskriftina
„Fimm aldir, fimm Evrópulönd" og
leikur hann m.a. verk eftir Presco-
baldi, Bach, MozartogMendelssohn.
Vegna ónákvæms orðalags í frétt-
inni óskaði ökumaðurinn einnig eftir
að fram kæmi að hann, sem var á
leið til Reykjavíkur, hefði séð að
ökumaður bílsins sem á móti kom
hafði ekki fullt vald á bifreið sinni í
krappri beygju undir Múlafjalli. Til
að reyna að forðast árekstur hafi
hann því ekið eins langt út í vegar-
kantinn og frekast var unnt en allt
komið fyrir ekki.