Morgunblaðið - 20.07.1990, Blaðsíða 40
KJÖRBÓK
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
FOSTUDAGUR 20. JULI 1990
VERÐ I LAUSASOLU 90 KR.
Morgunblaðið/Einar Falur
Fjögur lið í hattinn
Fjögur lið fara í hattinn þegar dregið verður í
undanúrslit bikarkeppni KSÍ í dag. Liðin eru ÍBK,
KR, Valur og Víkingur. Þau unnu andstæðinga sína
í átta liða úrslitum í gærkvöldi. Sigurliðin léku öll
á heimavelli. Myndin er úr leik Víkings og Stjörnunn-
ar í Stjörnugróf, sem Víkingar unnu 2:1.
Greiðsluerfíðleikar Sovétmanna:
Greiðslur fyrir fíyst-
an físk hafa dregist
GREIÐSLUR frá Sovétmönnum fyrir frystan fisk hafa nú í fyrsta
skipti dregist talsvert meira en ráð er fyrir gert. Friðrik Pálsson for-
stjóri Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna staðfesti þetta í samtali við
Morgunblaðið. „Greiðslur hafa enn ekki borist fyrir farm sem fór utan
í maí. Við höfúm reynt að ýta á eftir greiðslunum með þeim sambönd-
um sem við höfúm til þess en höfúm ekki fengið endanleg svör við
þvi hvenær þær muni berast,“ sagði Friðrik.
„Við tökum þetta að sjálfsögðu
alvarlega því þetta hefur ekki gerst
áður. Við erum þó óhræddir um að
greiðslurnar berist ekki en töfin er
að sjálfsögðu óþægileg."
Friðrik sagði fulltrúa SH hafa
haft samband við Sovétmenn í gegn-
um allar mögulegar leiðir og að svör-
um hefði verið lofað í dag um hver
framvindan yrði og hvenær greiðsl-
anna mætti vænta. Hann vildi ekki
gefa upp hversu há upphæðin væri,
einungis að um einn farm af frystum
fiski væri að ræða.
Aðspurður um hvaða afleiðingar
slík greiðslutöf hefði, sagði Friðrik
að greiðslur til framleiðenda drægj-
ust fyrir þá vöru sem búið væri að
skipa út og af því skapaðist þó-
nokkurt tjón. Auk þess hefði varan
verið seld í dollurum og gengi dollar-
ans hefði lækkað á þessu tímabili.
Þrumur og* eldglær-
ingar yfír Húsavík
Eldingu sló niður í fjarskiptatæki
Húsavík
ÞRUMUR og eldingar voru í gær
á Húsavík en slíkt er mjög sjald-
gæft þar og hafa fæstir séð eld-
glæringar á borð þær sem voru
í gær.
Hörður Einarsson fyrrverandi stjórnarformaður:
Fjármálaráðherra hefur sýnt
valdníðslu gagnvart Amarflugi
Fer fram á að forsætisráðherra taki málið af Olafí Ragnari
HÖRÐUR Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Arnarflugs, hefur
sent Steingrími Hermannssyni forsætisráðherra bréf, þar sem hann
sakar Ólaf Ragnar Grímsson fjármálaráðherra um valdníðslu í málum
Arnarflugs. Hörður fer fram á að forsætisráðherra taki mál Arnar-
flugs úr höndum Ólafs og lýsi því sjálfúr yfir að samþykkt rikisstjórnar-
innar um fyrirgreiðslu við Arnarflug verði hrundið í framkvæmd.
Hörður heldur því fram að í'jár-
málaráðherra hafi ekki staðið við
samþykkt ríkisstjórnarinnar frá
fyrra ári um aðstoð við Arnarfiug.
Þá kallar hann ósannindi þau um-
mæli Ólafs Ragnars, að Arnarflug
hafi farið fram á miklu hærri skulda-
niðurfellingu en samþykkt ríkis-
Fjárlög næsta
árs afgreidd
með halla
RÍKISSTJÓRNIN fjallaði um
fjárlög fyrir árið 1991 á fundi
sínum í gær. Samkvæmt upplýs-
ingum Morgunblaðsins er gert
ráð fyrir að næstu fjárlög verði
afgreidd með halla, eins og nú-
gildandi fjárlög.
Ekki er búist við, að fjárlög
næsta árs verði mjög frábrugðin
fjárlögum þessa árs. Þó mun vera
reiknað með tekjum af skatti á fjár-
magnstekjur, en ríkisstjórnin hefur
boðað slíkan skatt frá því hún tók
við völdum. Þá mun einnig vera
gert ráð fyrir skatti á orkufyrir-
tæki. í núgildandi fjárlögum var
gert ráð fyrir slíkum skatti á þessu
ári, en frumvarp þar að lútandi
dagaði uppi á Alþingi í vor.
stjórnarinnar hafi gert ráð fyrir, allt
að 300 milljónir. Fjármálaráðherra
sé að skemmta sér við að reikna á
skuldina hæstu dráttarvexti á meðan
hann dragi málið sjálfur á langinn.
Þá segir Hörður að ráðherrann hafi
skaðað hagsmuni ríkissjóðs með því
að taka of lágu kauptilboði í „þjóðar-
þotuna“ svonefndu, og lítið hafi skil-
að sér af kaupverði vélarinnar.
„Þetta bréf er því miður ágætt
sýnishorn af þeim orðræðustíl, sem
Hörður Einarsson sem stjórnarform-
aður Arnarflugs hefur tamið sér á
undanförnum misserum í samskipt-
um við fjármálaráðuneytið," sagði
Ólafur Ragnar Grímsson er ásakanir
Harðar voru bornar undir hann.
Ólafur sagði að hann og forsætisráð-
herrann hefðu ekki rætt saman um
efni bréfsins, hins vegar væri forsæt-
isráðherra sammála þeirri ákvörðun
sinni að halda blaðamannafund og
svara ummælum Harðar á aðalfundi
Arnarflugs.
Ólafur sagði rangar fullyrðingar
Harðar um að samþykkt ríkisstjórn-
arinnar hefði ekki verið efnd. Hann
hefði á sínum tíma beðið Hörð um
greinargerð um stöðu og framtíðará-
form Arnarflugs, til að hægt væri
að leggja fram vitræna greinargerð
með frumvarpi um aðstoð við Arnar-
flug á Alþingi. „Hann sendi mér
stutt og snubbótt bréf í svipuðum
stíl og þetta. Ég taldi það nú ekki
þjóna hagsmunum Arnarflugs að
slíkt bréf væri birt í greinargerð-
inni.“
Hvað „þjóðarþotuna" varðar,
sagði Ólafur Ragnar að kaupandi
flugvélarinnar hefði staðið í fullum
skiium og efnt sinn hluta samnings-
ins. Hins vegar hefðu Arnarflugs-
menn ekki getað útvegað öll skoðun-
argögn vélarinnar, sem þurft hefði
til erlendrar lánsfjármögnunar
vegna kaupanna, og kaupandinn því
fengið frest á frekari greiðslum þar
til hægt yrði að afla skoðunargagna
eftir öðrum leiðum, sem hefði tekið
langan tíma.
Ekki náðist í Steingrím Her-
mannsson forsætisráðherra vegna
bréfs Harðar, en hann er erlendis.
Sjá bréf Harðar Einarssonar í
heild á miðopnu.
Þrumur fóru að heyrast um kl.
16 og fóru vaxandi næsta klukku-
tímann. Fylgdu þeim síðustu miklar
eldglæringar. Eftir það kom svo
mikið úrfelli, að tala mátti um ský-
fall. Þrumurnar heyrðust út á Tjör-
nestá og eldingarnar sáust fram í
Reykjahverfi og Aðaldal en munu
hafa verið mestar yfir Húsavík.
Eldingum sló niður í Ijarskiptatæki
á Húsavíkurfjalli, svo að símasam-
bandslaust varð við Raufarhöfn og
Siglufjörð og farsímasambands-
stöðin á Húsavíkurfjalli féll út.
Sömuleiðis útvarpsrásirnar.
Fljótlega tókst að koma á síma-
sambandi við Raufarhöfn og rás 1
í samband. Um kl. 21 í gærkvöldi
heyrðist rás 2 ekki og var enn síma-
sambandslaust við Siglufjörð. Þá
var aðaláherslan lögð á að koma
sambandi á við bæinn. Síðan sneru
menn sér að farsímanum og öðru
því sem úr lagi fór.
Úrkoman var feykilega mikil á
stuttum tíma en allt er þetta afstað-
ið og komið hið besta veður þó skýj-
að sé.
- Fréttaritari.
íslenska hrossakjötið vinsælt:
Japanir vilja kaupa all-
ar „pístólur“ sem til Mla
TVÆR sendingar af fitu-
sprengdu hrossakjöti, svoköll-
uðum pístólum, fara á næstunni
til Japans. Japanir vilja kaupa
allar pístólur sem til falla hér
á landi og greiða fyrir þær allt
að 400 krónur á kíló, en það
er um 18% hærra verð en þeir
greiddu fyrir sams konar kjöt
á síðasta ári.
Arni Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri búnaðardeildar
Sambandsins, sagði við Morgun-
blaðið, að hægt væri að selja
50-100 tonn af hrossakjöti til Jap-
ans á þessu ári, ef vandamál með
flutning leystist. Á síðasta ári
voru seld til Japans um 80 tonn
af kjöti. Þá var kjötið sent beint
með flugvélum Flying Tigers til
Japans, fyrir 2,35 dali eða 140
krónur á kíló, en nú lenda vélar
félagsins hér ekki lengur, þótt
vonir standi til að það breytist í
haust.
Þær tvær sendingar sem héðan
fara á næstunni, samtals um 8
tonn, verða fluttar á vegum Flug-
fax hf. með flugvél PanAm til
Bandaríkjanna, og er flutnings-
kostnaðurinn nær 3 dollurum eða
180 krónum, að sögn Árna. Það
er þó mun hagstæðara en tilboð
Flugleiða, sem bauðst til að flytja
kjötið til Japans fyrir 3,5-5 dali á
kíló, eða 210 til 300 krónur.
Á síðasta ári greiddu Japanir
5,5 dali fyrir kílóið af kjöti í besta
flokki en nú bjóða þeir allt að 6,5
dollara. Árni sagði að þessi hækk-
un dygði ekki til að hægt væri
að flytja kjötið út án einhverra
útflutningsbóta, þar sem flutn-
ingskostnaðurinn hækkar einnig.
Miðað er við að bóndinn fái um
100 krónur í sinn hlut, og slátrun-
ar- og heildsölukostnaður er um
150 krónur. Nánast enginn mark-
aður er fyrir hrossakjöt innan-
lands, og Evrópumarkaður lokað-
ist vegna fyrirvara um að ólögleg-
ir hormónar kynnu að vera í kjöt-
inu.
Svonefndar pístólur eru aftur-
hluti skrokks með hryggvöðva.
Þegar líður á sumarið og hrossin
eru feitust springur fitan inn í
vöðvann og éta Japanir þetta kjöt
hrátt.