Morgunblaðið - 20.07.1990, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 20.07.1990, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 1990 9 I/ELKOMINÍ TESS Útsalan er hafin 40% afsláttur sumarvörum. TESS NEÐST VIÐ DUNHAGA, S. 622230. v NEi FðSTUDAGSTILBOD 20 - 25% afsláttur af FÖTUM OG MITTISJÖKKUM Sumartónleikar í Skélholti Fimmtándu Sumartónleikarnir í Skálholti hófust laugardaginn 14. júlí. Þessi árvissa hljómlistarhátíð — því það er hún með sanni — hefur unnið sér fastan sess í samtíðarmenningu okkar. Hún er eitt af mörgum jákvæðum samtímateiknum, sem því miðurfalia í skugga hinnar neikvæðu umræðu. Staksteinar staldra við þetta efni, ásamt öðru, í dag, en þess skal jafnframt getið, að Skálholtshátíðin er á sunnudaginn. Menntasetur frá kristnitöku Fyrir 937 árum, árið 1053, var Isleifur Giss- urarson iiins hvíta til- nefiidur af leikum og lærðum fyrsfi íslenzki biskupinn. Tilnefiiingin var staðfest með vígslu í Brimum tveimur árum síðar. Sonur ísleifs, Gissur, gaf Skálholt til hiskups- seturs. Skyidi biskup sitja þar meðan kristni væri í landinu. Hann lét reisa dómkirkju í Skálholti. Hann. fékk og lögfesta tíund um 1096, en með henni var lagður fjár- hagslegur grunnur að kirlgulegu starfi í landinu. Allar götur síðan hefur Skálholt — og Hólar í Hjaltadal frá 1106 — ver- ið menningar- og fræða- setur, þótt ldutverk hinna fornu biskupssetra sé annað í samtið en fortíð. Margt hefur verið gert til^ að hefja Skálholt og Hola til fyrri reisnar og virðingar. Sumartónleik- arair i Skálholti þjóna til þeirrar áttar. Þeir hafii ekki aðeins verið menn- ingarlegur gleðigjafi tón- listarsælkera heldur jafii- framt sterkur segull, sem laðað hefur fólk úr borgarstressinu til Skál- holts. Hásalir feg- urðarinnar Sumartónleikar i Skál- holti hafa með sanni ver- ið menningarviðburðir. Vonandi verða þeir áfram sú sól í sinni, sem þeir hala verið flölmörg- um gestkomandi á hinu foma biskupssetri. Þar hafa margir listamenn komið við sögu, ekki sizt semballeikariim góð- kunni, Helga Ingólfsdótt- ir, sem var eiim af frum- kvöðlum tónleikanna. A öðrum sumartón- leikum ársins 1990 kom Hamraliliðarkórinn fram með og ásamt fleiri túlk- endum. Jón Asgeirsson, tónlistargagnrýnandi Morgunblaðsins, komst svo að orði um framlag hans: „I söng Hamrahlíðar- kórsins fóru saman vönd- uð vinnubrögð og list- rænt innsæi, sem gerir fátæklegustu tónlist að perlum og opnar í stór- um verkum sýn til hásala fegurðarinnar.“ Það er ekki margt sem er ánægjulegra en að leggja leið sína í góðu veðri til Skálholts og heimsækja sumartónleik- ana þar á bæ, sem gera fatæklegustu tónlist að perlum og opna um stór verk sýn til sala fegurö- arinnar. Hvarvetna er eitthvað að gerast í henni Reykjavík Þeir sem hafa lagt leið sína um höfúðborgina á björtum sumardögum liðinna vikna hafa trú- lega sannfierzt urn, að Reykjavík er fogur byggð, sem vel er hugsað og sinnt um af íbúum og borgaryfirvöldiun. Meim sjá að vísu undantekning- ar frá meginreglu snyrti- mennskunnar, en höfúð- borgin þolir vel saman- burð að þessu leyti víð það sem bezt gerist er- lendis. Almenningrsgarðamir — hinar grænu grundir Iteykjavíkur — og borg- artorgin eru blómum skrýdd og hvarvetna eru unnið að framkvæmdum og lagfæringum, sem fegra umhverfið: ramm- ann um mannlifið. Og sjálf er borgin stærsti skógræktandi landsins. Gróðrarstöðin og hús- dýragarðurinn í Laug- ardalnum, Illjómskála- garðurinn, Viðey, Mikla- tún, Öskjulilíö og fleiri opin svæði eru vinjar inn- an um alla steinsteypuna, sem fleiri ættu að nýta en gera nú. Perlan í ÖskjuUIíð og ráðhúsið við Tjömina, sem stöku aðil- ar litu hornauga, eru og að taka á sig framtíðar- mynd. Hreinsun strand- Iengjunnar, sem er vel á veg komin, og landvinn- ingar borgarinnar (upp- fylling) norðan Skúla- götu og við Örfirisey tala og sínu máli um fram- kvæmdir borgarinnar. Hvarvetna er eitthvað að gerast í borghmi — og flest horfir þar til betri | tíðar með blóm í haga. Hitt sjónar- hornið t \ Einn af borgarfulltrú- um minnihlutans sér borgarlífið frá öðra sjón- arhorai og segir svo í grein hér í blaðinu í gær: „En þetta er scnnilega seinni tíma mál, enda er þjóðin í sumarfríi. Vamb- hvítir íslendingar í sól- arlöndum hamast við að slappa af með tilheyrandi bjórþambi, sólbrana og iðrakvillum. Hinir sem heima sitja liafa um ann- að að hugsa en borgar- stjóraarmál, enda Ula haldnir af harðsperrum, vöðvaverkjum og fóta- sárum eflir margvíslega útivist í faðmi ijalla og öræfa. Pólitiskar vangaveltur lieija ekki á nokkura maim um þessar mundir. Og svo mun . sjálfsagt verða fiam á haustmán- uði ... Þá færistþjóðlífið aftur í sinar ftistu skorð- ur og menn leiða hugann að einhveiju öðru en sumarbústaðnum, liring- veginum, sólarströndinni eða fjallaprílinu. Og þá kemur borgíirstjórnin saman á ný eftir sum- arfi'í." Það er nú svo — og svo er nú það. MMC Colt GLX, órg. 1988, vélorst. 1500, 5 gíra, 5 dyro, brúnsonseraður, ekinn 10.000. Veró kr. 670.000,- MMC Colt GLX, órg. 1989, vélorst. 1500, 5 gíro, 3jo dyro, hvítur, ekinn 11.000. Veró kr. 810.000,- MMC Loncer GLX, órg. 1989, vélarst. 1500, 5 gíro, 4ro dyro, vínrouður, ekinn 31.000. Verð kr. 840.000,- Ronge RoverVouge, órg. 1987, vélorst. 3500, sjólfsk., 5 dyro, bíór, ekinn 67.000. Veró kr. 2.700.000,- MMC Golont GTi 16v, 6rg. 1989, vélorst. 2000, 5 gíro, 4ro dyro, grænn, ekinn 19.000. Veró kr. 1.550.000,- 5 gíro, 5 dyro, blór/hvítur, Turbo diesel, ekinn 73.000. VerÓ kr. 1.490.000,- í Ármúla 7 er sýningarsalur Gása. Aðalatriðin í salnum eru Danica innrétt- ingar, settar upp á ýmsa vegu, en einnig má þar sjá útihurðir og tréstiga frá þekktum framleiðendum. Hjá Gásum er hægt að vera viss um að fá hugmyndir og góð ráð. Þar velta menn innréttingamálunum fyrir sér ... á alla kanta. DANICA - GÆÐI OG FALLEGT ÚTLIT Á ALLA KANTA Verið velkomin. Gásar Ármúla 7, sími 3 0500 INNRÉTTINGAR • STIGAR • ÚTIHURÐIR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.