Morgunblaðið - 20.07.1990, Side 3

Morgunblaðið - 20.07.1990, Side 3
ÍSLEN5KA AUCLÝSINCASTOFAN HF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 1990 SAMKEPPNI UM NÝTT ÍSLENSKT ORD f STAÐINN FYRIR ENSKA ORÐIÐ „SQUEEZE BOTTLE" VERÐLAUN: TVÖ GLÆSILEG GIANT FJALLAHJÓL FRÁ MARKINU AÐ VERÐMÆTI 35.000 KRÓNUR HVORT, 40 ÍÞRÓTTATÖSKUR OG 40 BAÐSTRANDARHANDKLÆÐI. Coca Cola kynnir nýjung ó íslandi, svonefnda „squeeze bottle" sem er mjúk plastflaska 'með röri. Maður fær sér hress- ingu með því að stinga upp í sig rörinu og kreista flöskuna. í kvikmyndahúsi, á skyndibitastað, á hjóli, í leik eða starfi - einföld lausn við bráðum þorsta. ^ Keppnisreglur: Leitað er eftir lipru og þjálu íslensku orði í staðinn fyrir „squeeze bottle". Skilafrestur er til 1. september. Tillögur ásamt nafni, heimilisfangi og símanúmeri skal senda til Verksmiðjunnar Vífilfells. Utanáskriftin er: „squeeze bottle-samkeppnin" ■ Verksmiðjan Vífilfell hf. • Haga við Hofsvallagötu 107 Reykjavík. Sérstök dómnefnd velur bestu tillöguna. Úrslitin verða birt í Morgunblaðinu 21. september. Verðlaun: 2 Giant fjallahjól frá Markinu að verðmæti 35.000 krónur hvort, 40 íþróttatöskur og 40 baðstrandarhand- klæði. Þátttökueyðublöð liggja frammi þar sem Coke fæst úr gosvélum. „Sq ueeze-bottle" og þátttökublöð fást alls staðar þar sem Coke er selt úr gosvélum; kvikmyndahúsum, veitinga- og skyndibitastöðum. Skilafrestur er til 1. september.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.